Morgunblaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
STJÓRNMÁLAFLOKKAR
OG AUGLÝSINGAR
Það er ástæða til að fagna þvísamkomulagi sem tekizt hefurá milli stjórnmálaflokkanna
um að takmarka auglýsingakostnað
sinn við 28 milljónir króna vegna
þingkosninganna í vor. Vonandi er
þetta fyrsta skrefið af mörgum sem
flokkarnir eiga eftir að taka til þess
að koma á heilbrigðari starfsháttum
á vettvangi stjórnmálanna.
Löggjöfin sem sett var seint á síð-
asta ári um fjármögnun á starfi
flokkanna var bylting. Hún leggur
grunn að því að flokkarnir verði eng-
um háðir, hvorki fyrirtækjum né ein-
staklingum, um fjármagn. Nú þegar
er ljóst að með þessari löggjöf er
tryggt að fjársterkir aðilar hafa mjög
takmarkaða möguleika á að hafa
áhrif á starfsemi flokkanna. Þessi
löggjöf stuðlar að heilbrigðara sam-
félagi.
Fólki hefur ofboðið það auglýs-
ingamagn sem komið hefur frá
stjórnmálaflokkunum fyrir kosning-
ar. Í sumum tilvikum hefur mátt ætla
að flokkarnir teldu auglýsingar geta
komið í staðinn fyrir hefðbundinn
málflutning frambjóðenda.
Þrátt fyrir samkomulag flokkanna
um takmörkun á fjármagni, sem var-
ið er til auglýsinga, eru 28 milljónir
miklir peningar í þessu skyni. Von-
andi tekst í næstu kosningum að tak-
marka þessa upphæð enn frekar.
Í kosningum á kjósandinn að ráða
– ekki fjármagnið.
Bæði löggjöfin um fjármögnun á
starfi flokkanna og það samkomulag,
sem þeir hafa nú náð, stuðla að heil-
brigðari kosningabaráttu. Að því
leyti til marka þessar kosningar
ákveðin tímamót.
Baráttan, sem háð hefur verið í
Hafnarfirði vegna kosninganna sem
þar fara fram um helgina um stækk-
un álversins, hefur vakið upp ýmsar
spurningar. Í gær var tilkynnt að há-
spennulínur vegna fyrirhugaðrar
stækkunar yrðu lagðar að hluta til í
jörð ef af yrði og Alcan mundi greiða
þann viðbótarkostnað. Það er
ánægjulegt, ekki sízt í ljósi þess að
hingað til hefur verið lítið um und-
irtektir við slíkar hugmyndir sem
Morgunblaðið hefur m.a. sett fram.
En dettur einhverjum í hug að það sé
einber tilviljun að þessi vilji Alcan til
þess að greiða þann viðbótarkostnað
sem um er að ræða birtist einmitt nú?
En svo má líka spyrja: hverjum dett-
ur í hug að Hafnfirðingar láti ákvarð-
anir á borð við þessa hafa áhrif á at-
kvæði sitt? Virðingarleysið gagnvart
kjósandanum er of mikið til þess að
þessi ákvörðun Alcan hafi nokkur
áhrif á úrslit kosninganna nema þá
öfug á við það sem að var stefnt.
Fólk er of vel upplýst til þess að
það láti baráttuaðferðir af þessu tagi
hafa áhrif á sig.
Höldum okkur við það stjórnskipu-
lag að málefni ráði atkvæði í kosn-
ingum en ekki peningar.
Á LITLA-HRAUNI?
Getur það verið, að 15 ára ungling-ur sé látinn dvelja í gæzluvarð-
haldi á Litla-Hrauni? Jafnvel full-
orðnir karlmenn, sem hafa marga
fjöruna sopið og verið vistaðir þar,
lýsa aðstæðum á Litla-Hrauni á þann
veg, að spyrja má, hvort ekki sé tíma-
bært að endurskoða þá starfsemi,
sem þar fer fram, frá grunni.
En hvað sem því líður er ljóst, að 15
ára unglingur á ekki heima þar, jafn-
vel þótt hann hafi framið afbrot.
Ef það er rétt, að þessi unglingur
sé vistaður á Litla-Hrauni, verður að
breyta þeirri ákvörðun þegar í stað.
Það er örugglega fullur vilji til staðar
hjá þeim sem að þessum málum
standa til að bjarga þessum unglingi
frá því að gerast afbrotamaður um
alla framtíð. En honum verður ekki
bjargað ef hann er vistaður á Litla-
Hrauni. Ekki þarf að tala við marga
fanga, sem dvalið hafa á Litla-
Hrauni, til þess að átta sig á þessum
einfalda veruleika.
Í Morgunblaðinu í gær er haft eftir
Steinunni Bergmann, formanni
Barnaverndar Reykjavíkur, að vel
komi til álita að Barnavernd hlutist
til um að þessi unglingur verði fluttur
til í gæzlu. Steinunn segir að sér finn-
ist ekki viðunandi að 15 ára ungmenni
sé í fangelsi en hugsanlega sé ástæð-
an úrræðaleysi lögreglunnar.
Hver sem ástæðan er gengur þetta
auðvitað ekki. Það hafa tiltölulega
litlar umræður farið fram opinber-
lega um fangelsismál hér og ekki skal
gert lítið úr vanda þeirra, sem um þau
fjalla frá degi til dags. Hins vegar er
tímabært að slíkar umræður fari
fram.
Það geta verið margar ástæður fyr-
ir því, að börn og unglingar leiðist út í
afbrot. En þeim mun mikilvægara er
að samfélagið taki skynsamlega á
þeim brotum og leitist við að finna
leiðir til að stöðva afbrotaferilinn þá
þegar. Sporin frá Breiðavík hræða.
Ekki eru nema örfáar vikur síðan
kona í Hafnarfirði sagði átakanlega
sögu sonar síns og fjölskyldu. Son-
urinn var tekinn af heimili hennar og
sendur á Breiðavík, opinbert með-
ferðarheimili eftir hnupl og bíður
þess aldrei bætur. Þar voru opinberir
aðilar að verki. Opinberir aðilar, sem
tóku ákvörðun um að taka barnið af
heimilinu og opinberir aðilar, sem
ráku meðferðarheimilið, þar sem
barnið var misnotað með þeim hætti
að líf þess var lagt í rúst.
Á að endurtaka þetta með því
hvernig mál barna og unglinga, sem
staðin eru að afbrotum, eru með-
höndluð? Hver ætlar að tryggja, að
unglingur, sem sendur er á Litla-
Hraun, verði ekki fyrir varanlegum
skaða það sem eftir er ævinnar af
þeirri ráðstöfun? Hver ætlar að
tryggja að Breiðavíkurmálið endur-
taki sig ekki á Litla-Hrauni fjórum
áratugum síðar? Sá hinn sami gefi sig
fram.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Hægt er að leggja 2+2 Suð-urlandsveg fyrir 7,5–8milljarða króna og ljúkaundirbúningi og verkinu
öllu á þremur árum. Þetta er nið-
urstaða Ístaks, sem unnið hefur
hönnunar- og kostnaðaráætlun fyrir
Suðurlandsveg í samvinnu við Sjóvá.
Þessi lausn byggist á því að nota
hringtorg frekar en mislæg gatnamót
og að styttra verði milli akreina
þannig að minna fyllingarefni þurfi í
veginn.
Vegagerðin áætlaði nýverið að
kostnaður við gerð 2+2 Suðurlands-
vegar næmi 13,5 milljörðum króna,
en 2+1 vegur kostaði 5,8 milljarða.
Ásgeir Loftsson, verkfræðingur
hjá Ístaki, sagði að kostnaðarútreikn-
ingar Ístaks og ráðgjafa fyrirtæk-
isins byggðust á sama grunni og
Vegagerðin. Hönnun Ístaks byggðist
hins vegar á annarri útfærslu en hjá
Vegagerðinni. Kostnaðurinn yrði þar
af leiðandi annar.
Önnur útfærsla en
hjá Vegagerðinni
Vegagerðin byggist á því að 11
metrar séu á milli akstursleiða og að
byggð verði u.þ.b. 11 mislæg gatna-
mót á leiðinni frá Reykjavík til Sel-
foss.
Hugmyndir Ístaks og Sjóvár eru
um að byggður verði 2+2 vegur þar
sem 2,5 metrar eru milli akstursleiða
og vegaxlir verði 2 metrar. Gert er
ráð fyrir að vegrið skilji að aksturs-
leiðir alla leiðina. Þá er gert ráð fyrir
að lýsing verði á eyjunni, en ekki til
hliðar við veginn.
Ásgeir sagði að á fyrsta hluta veg-
arins út úr Reykjavík yrðu hringtorg.
Á öðrum hluta leiðarinnar, frá Gunn-
arshólma að Hveragerði, væri reikn-
að með þremur mislægum gatnamót-
fæli í sér góða fram
tryggði öryggi veg
minnti á að notast væ
líkt og væru í hönnu
inum milli Reykjavík
bæjar. Ásgeir sagði
vegarins þar sem no
torg, þ.e. út úr Re
Hveragerðis og Selfo
þéttbýli og því væri
ráð fyrir minni umf
væri hins vegar ljós
arins væru minni m
en mislægum gatn
um eða öðrum lausnum,
m.a. svokölluðum U-
vegamótum. Á þessum
kafla, sem er 28 km
langur, væri gert ráð
fyrir óhindraðri umferð.
Á þriðja hluta leiðarinn-
ar, milli Hveragerðis og
Selfoss,væri reiknað með
hringtorgum.
Ásgeir sagði að við
hönnun vegarins hefði
Ístak stuðst við slysatöl-
ur frá Sjóvá sem hefði
verið mjög gagnlegt. Út
úr þessu samstarfi hefði
m.a. komið sú tillaga að
staðsetja ljósastaura á
eyju milli veganna og á milli veg-
riðanna.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
sagði að út frá slysatölum Sjóvár
mætti áætla að tjón vegna áreksturs
á ljósastaura á Reykjanesbraut næmi
um 100 milljónum á ári. Þetta væru
oft mjög slæm slys þar sem líkams-
tjón væri verulegt, en það væru dýr-
ustu slysin.
Góð framtíðarlausn
Ásgeir sagðist telja að sú útfærsla
sem Ístak og Sjóvá hefðu lagt fram
2+2 Suðurlands
kostar 7,5–8 mil
Suðurlandsvegur Tillaga Ístaks gerir ráð fyrir vegriði milli a
Ásgeir Loftsson Þór Sig
Ístak og Sjóvá hafa látið
hanna nýjan 2+2 Suður-
landsveg sem myndi kosta
7,5–8 milljarða króna.
Vegurinn er 30–40% dýr-
ari en 2+1 vegur og mun
ódýrari en útfærsla á 2+2
vegi sem Vegagerðin hef-
ur hannað. Egill Ólafsson
skoðaði tillöguna.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Nýr sendifulltrúi Jap-ans á Íslandi, Moto-katsu Watanabe,telur að hægt sé að
auka mjög áhuga ferðamanna í
Japan á að koma hingað til
lands. „Við höfum lagt áherslu
á að kynna Ísland og efnt hefur
verið til beinna flugferða hingað
frá Japan en samt er fjöldinn
sem hingað fer ekki nema um
sex eða sjö þúsund á ári.
Sjáðu til, Japanar fara gjarn-
an til staða eins og Hawaii,
Guam, Ástralíu og Filippseyja
og þá er það einkum sól, sandur
og búðaráp sem heillar fólk. En
þið getið lagt áherslu á allt aðra
hluti. Þið getið bent á að hér
eru goshverir, frábær fiskur og
það sem mestu skiptir: hér er
öruggt að vera. Japanskir
ferðamenn hika nú við að fara
til Bali í Indónesíu vegna
hryðjuverkanna þar fyrir
nokkrum árum. Þeir eru upp-
l
í
I
N
h
þ
e
J
kaupmenn reyni ekki að græða
á skorti með því að hækka
vöruverð. Japanar séu stoltir af
ímynd sinni sem öguð og siðuð
þjóð.
„En ímyndin verður að vera
raunsönn, oft byggist hún á
misskilningi og mýtum, staðal-
ímyndir eru hættulegar. Sann-
teknir af öryggismálum, í Jap-
an vill fólk geta gengið ótta-
laust um göturnar að
næturlagi. Ef til er öruggara
land en Japan þá er það Ís-
land.“
Sendiherra Japans hér á
landi hefur aðsetur í Ósló en
æðsti fulltrúi hans hérlendis er
nefndur sendifulltrúi. Wat-
anabe kom hingað frá Indlandi
en hann hefur gegnt störfum
fyrir japönsku utanríkisþjón-
ustuna í ýmsum ríkjum, þ. á m.
Bandaríkjunum og Danmörku.
Hann ræðir um ímyndir
þjóða og segir að fyrir skömmu
hafi orðið mikill jarðskjálfti í
Japana, kona fórst og allmargir
slösuðust. Mun harðari jarð-
skjálfti olli miklu eigna- og
manntjóni í Kobe á sínum tíma.
En Watanabe segist vera stolt-
ur af því að þegar slíkar ham-
farir verði í landinu sýni lands-
menn mikla samhjálp í verki.
Enginn reyni að misnota sér
aðstæður og stela að fremja
önnur afbrot í skjóli ástandsins,
Goshverir, frábær fis
Fleiri ferðamenn? Motokatsu Wat
Japans á Íslandi, vill auka tengsl þj