Morgunblaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MEÐ einföldun sem kalla má grófa eða gagnlega eftir því hvað- an horft er má segja að Þorvaldur Þorsteinsson sé tveir höfundar, og eru þar ótaldir aðrir listamenn sem í honum búa og fást við sjón- listir af ýmsum toga. Annar höf- undanna skrifar djúp og dularfull verk fyrir börn, sem gjarnan eru það innihaldsrík að fullorðnum er skemmt líka, Skilaboðaskjóðuna og bækurnar um Blíðfinn. Hinn fer í könnunarleiðangra um nú- tímasamfélagið og niður í undir- heima sálarlífsins og flytur okkur tíðindi úr skúmaskotum sem leyn- ast (kannski) í venjulegu fólki sem maður hittir á götu eða býr í næsta húsi. Verk eins og Sveins- stykki, And Björk of Course og Maríusögur, sem Þorvaldur skrif- aði einmitt fyrir Nemendaleik- húsið eins og Lífið – notk- unarreglur nú. Svo einfölduninni sé haldið að- eins til streitu þá er það fyrr- nefndi höfundurinn sem núna spreytir sig. Lífið – notk- unarreglur er ævintýraverk fyrir fullorðna, tilraun til að nota form og skáldaleyfi slíkra verka til að koma erindi sínu á framfæri. Það er nokkuð vel til fundið. Grunnlík- ing verksins um fólkið sem er á leiðinni í gegnum skóginn er kjör- in til að tjá mismunandi afstöðu okkar til vegferðarinnar og þá ekki síður til að beina athyglinni að hinum óorðuðu og óskráðu reglum og kröfum sem við þurfum að hlíta, eða teljum okkur þurfa að gangast undir. Efnið er kunnuglegt þeim sem fylgst hafa með skrifum Þorvaldar undanfarið eða hlýtt á fyrirlestra hans. Hér er lofsungin sú frjáls- borna afstaða til lífsins að líta á allar athafnir sínar sem skapandi en messað gegn ítroðslu og braut- arlagningu skólakerfisins og sam- félagsins. Hér er þessum boðskap komið haganlega fyrir í stórri lík- ingu, sögu af hópi ungs fólks á leið gegnum skóg með ólíka afstöðu til ferðalagsins. Sumir njóta ferð- arinnar, mæta því sem fyrir augu ber opnir og tilbúnir. Aðrir mæna stífir á sjóndeildarhringinn, stað- ráðnir í að ná leiðarenda sem þeir vita vart hver er. Sumir gleðjast yfir fegurðinni, aðrir mæla og skrásetja tré og annað sem fyrir augu ber. Boðskapurinn er fallegur og fer vel í þessari umgjörð. Tvennt kemur þó í veg fyrir að þessi rýn- ir heillist algerlega upp úr skón- um. Fyrir það fyrsta þá vinna þær formkröfur sem verkefni fyrir út- skriftarhóp gera dálítið gegn áhrifamættinum og ævintýratöfr- unum. Það þarf nefnilega að skrifa verk með átta nokkurn veginn jafnbitastæðum hlutverkum, og það hefur Þorvaldur gert. En það sem tapast við það er ein dýpsta uppspretta töframáttar ævintýr- isins: sagan. Framvindan verður óhjákvæmilega í öðru sæti þegar svo margir þurfa að láta ljós sitt skína. Svo er líka snúið að finna átta áhugaverðar afstöður til ferðalagsins, og tekst ekki alveg hér. Hitt atriðið sem togar hrifning- arstigið niður er stíllinn á text- anum, þ.e.a.s. sá hluti hans sem er í bundnu máli. Þetta er vand- meðfarið stílbragð og nær fyrir minn smekk ekki því flugi hér sem réttlætir notkun þess. Í stað þess að efla slagkraftinn í verkinu dró mælgin úr honum, en sem betur fer er sú aðferð ekki allsráðandi í textanum. Og þegar best lætur er hann magnaður og lýsir persónun- um betur en þær ætluðust kannski til sjálfar, nokkuð sem hinn höf- undurinn sem býr í Þorvaldi er meistari í. En þótt rímið í leiktextanum sé stundum fullrislítið þá eru söng- textarnir glettilega góðir, og tón- listin frábær. Það er töfrablær yf- ir lögum Megasar sem bæði hafa skýr höfundareinkenni hans en eru jafnframt eins og sniðin fyrir leiksvið og vísa bæði í söngleikja- hefð og barnaleikrit. Flutning- urinn smekklegur mjög, bæði hjá hljómsveit og söngvurum. Flæðið í sýningunni er mark- visst og efnistök leikstjórans örugg. Umgjörðin er rómantísk, litir mildir, búningar með fallegum fortíðarblæ þótt viðfangsefnið sé klárlega hráblautur samtíminn. Þessi sýning er þótt skömm sé frá að segja mín fyrstu kynni af útskriftarhóp Listaháskólans að þessu sinni. Eiginlega finnst mér lítið um hvern einstakan leikara að segja á grundvelli frammistöð- unnar hér, sem er heilt yfir alveg skotheld. Hef reyndar grun um að sem leikverkefni séu hlutverkin hér ekki ýkja krefjandi. Það sama má segja um aðrar rullur sem leikarar Leikfélags Akureyrar skila með prýði. Ég hlakka til að fylgjast með framgangi hinna ungu listamanna næstu árin og óska þeim alls hins besta. Lífið – notkunarreglur er óvenjuleg og áhrifamikil sýning sem skilur eftir bæði spurningar og skýra tilfinningu fyrir afstöðu höfundar síns til ýmissa gilda í nú- tímanum. Það er alvara á bak við bernska útfærsluna, þungi undir rómatísku yfirborðinu. Það eru mörg vopn á lofti og kannski ekki skrítið að ekki takist að hafa styrka hönd á þeim öllum. En það sem hún hefur að segja er mik- ilvægt og hlátur áhorfenda á frumsýningu var aldrei hæðn- ishlátur þeirra sem vita betur, æv- inlega hlátur þess sem hittir sjálf- an sig fyrir á óvæntum stað. Skógar- ferð Öruggt „Flæðið í sýningunni er markvisst og efnistök leikstjórans örugg.“ LEIKLIST Leikfélag Akureyrar og leiklistardeild LHÍ Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson. Tón- list: Megas. Leikstjóri: Kjartan Ragn- arsson. Leikmynd og búningar: Þorvaldur Þorsteinsson. Tónlistarstjórn: Magga Stína. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Hljóðmynd: Magga Stína og Kristján Edelstein. Leikgervi: Ragna Fossberg. Hljómsveit: Magga Stína, Kristján Edelstein, Unnur Birna Björns- dóttir og Sigurður Helgi Oddsson. Leik- endur: Anna Svava Knútsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra Har- aldsdóttir, Magnús Guðmundsson, Ólafur Steinn Ingunnarson, Páll Sigþór Pálsson, Sara Marti Guðmundsdóttir, Sigrún Huld Skúladóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson og Þráinn Karls- son. LÍFIÐ – NOTKUNARREGLUR Þorgeir Tryggvason TÓNLISTARMAÐURINN Michael Jackson virðist ætla að endurnýja feril sinn í skemmtanaborginni Las Vegas ef marka má síðustu fréttir. Fregnir bárust af því fyrir nokkru að Jackson-bræðurnir myndu sam- einast fyrir sérstaka Jackson 5- sýningu en nú lítur út fyrir að atriðið muni eingöngu snúast um skærustu stjörnuna af þeim bræðrum. Þetta styður að minnsta kosti hugmynd tónlistarmannsins um risastórt vél- menni í hans mynd sem ætlað er að skjóta leysigeislum út í loftið í miðri eyðimörkinni. Er vélmennið hugsað sem auglýsing fyrir væntanlega sýn- ingu og mun Andre Van Pier, sem hannaði geimbúningana fyrir tón- leika U2 í New Orleans á dögunum, sjá um að smíða vélmennið. Vinnur að nýrri plötu Þá segir sagan að Michael Jack- son hafi keypt sér fasteign í borginni og hitt á fundi fjölmarga hóteleig- endur og framámenn í skemmt- anaiðnaðinum í þeim tilgangi að ræða hugmyndir um væntanlega Jackson-sýningu. Talsmaður Jack- sons, Raymon Bain, vill þó ekki stað- festa að tónlistarmaðurinn muni skemmta í Las Vegas og segir of snemmt að alhæfa nokkuð. „Hann hefur ekki ákveðið sig ennþá hvort hann komi til með að sýna í Las Vegas en hann er þar staddur til að klára breiðskífu sem hann er með í smíðum. Honum líður vel í Las Vegas og upptökustjórar og lagahöfundar eiga auðvelt með að hitta hann þar.“ Á meðal þeirra sem leggja til lög á plötuna eru Rodney Jerkins, will.i- .am úr Black Eyed Peas og Neffu. Jackson er samningslaus sem stend- ur en stendur í samningaviðræðum um dreifingarsamning. Ekki er vitað hvert nafn plötunnar verður. Vill risastórt vélmenni í eyði- mörkinni sem skýtur geislum Michael Jackson þreifar fyrir sér í Las Vegas Skrítinn Jackson er líklega þekktasti furðufugl samtímans og orðspor hans hefur af ýmsum sökum tekið djúpa dýfu á undanförnum missserum. Reuters Sími - 564 0000Sími - 462 3500 The Hitcher kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára The Hitcher LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10 Epic Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Ghost Rider kl. 5.30 og 10.15 B.i. 12 ára Anna og Skapsveiflurnar STUTTMYND kl. 4 og 4.45 Night at the Museum kl. 5.40 The Hitcher kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Epic Movie kl. 6 og 10 B.i. 7 ára Norbit kl. 6 og 8 - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir JIM CARREY eeee K.H.H. - FBL HÚN ER STÓR... VIÐ MÆLDUM UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN ÓSKARS- VERÐLAUN! 700 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn Frá framleiðendum Texas Chainsaw Massacre og The Amityville Horror Magnaður spen- nutryllir um ferðalag tveggja háskólanema á ónefndum þjóðvegi í USA og hremmingum þeirra! Stranglega bönnun innan 16 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.