Morgunblaðið - 28.03.2007, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 47
Í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð, stendur
yfir sýning á verðlaunamyndum úr ljósmyndasamkeppni
sem Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins á
landsbyggðinni, og Morgunblaðið efndu til í vetur.
Á myndunum má sjá fjölbreytt viðfangsefni fréttaritara
Morgunblaðsins sem starfa um allt land. Þær eru einskonar
spegill þjóðar.
Myndin hér að ofan nefnist Skýjahöll og höfundur hennar
er Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins í Mýrdal.
Sýningin stendur til 4. apríl.
Myndirnar eru til sölu í Myndasafni Morgunblaðsins,
www.mbl.is/myndasafn
SPEGILL ÞJÓÐAR
Ljósmyndasýning
Morgunblaðsins í Smáralind
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HINN færeyski Brandur Enni er
ekki barnastjarna lengur. Brandur,
sem sló í gegn sem slíkur í heima-
landi sínu Færeyjum fyrir fimm ár-
um, er nú í óða önn að semja inn á
breiðskífu sem kemur út í enda árs
og bæði rödd og tónlist hafa dýpk-
að talsvert. Brandur er samnings-
bundinn Chrysalis í Skandinavíu en
hann stundar nám við tónlistar-
skóla í Svíþjóð meðfram tónlist-
arferlinum.
Brandur var tólf ára þegar plata
hans, Waiting in the Moonlight,
gerði allt vitlaust í heimalandinu.
Frægð hans barst meira að segja
hingað norðureftir og sungu hann
og helsta stjarna okkar á þessu
sviði, Jóhanna Guðrún, dúetta sam-
an. Enda segir Brandur blaða-
manni að hann hafi dálitlar áhyggj-
ur af tónleikunum, þar sem þeir
fara fram á stað sem hefur aldurs-
takmark. Hann hefur nefnilega
fengið þónokkuð af fyrirspurnum
frá sautján ára jafnöldrum sínum
héðan vegna tónleikanna, eldheit-
um Ennis-aðdáendum sem vilja að
sjálfsögðu fá að berja þetta goð sitt
augum.
Hugsað upp á nýtt
Brandur segir að ýmislegt hafi
breyst þegar hann hafi náð fimm-
tán ára aldri. Hann hafi farið að
semja sjálfur en á Waiting in the
Moonlight flutti hann lög eftir aðra.
Brandur er frá Suðurey, af mikilli
tónlistarfjölskyldu, og spilar m.a. á
trompet.
„Ég pæli nú ekki mikið í þessum
barnastjörnuferli mínum í dag,“
segir hann. „Án þess að ég sé að
afneita þessum tíma. Þetta var frá-
bært og ég er stoltur af því sem
við náðum að áorka. En jú jú, þeg-
ar maður sér gamlar myndir og
svona fær maður kannski hroll eins
og gengur.“
Brandur hlær við þegar hann er
spurður hvernig það hafi verið að
vera ofurstjarna í Færeyjum.
„Hmmm … það er kannski ofsagt
hjá þér, en auðvitað var þetta
skrítið, að vera stoppaður úti á
götu í Þórshöfn og svona. Það var
alltaf gott að koma aftur í litla bæ-
inn sinn og verða „eðlilegur“ aft-
ur.“
Að hans mati er mikið af hæfi-
leikaríku tónlistarfólki í Færeyjum,
sérstaklega ef miðað er við fólks-
fæðina.
„Eivör t.d., hún er ótrúleg. En sá
maður sem breytti hugsunarhætt-
inum í eyjunum að mínu mati er
Teitur (Lassen, sem treður og upp
á NASA). Fyrir fimm árum varstu
talinn geðveikur ef þú ætlaðir að
lifa af því að búa til tónlist. En svo
þegar Teitur fékk samning erlendis
og fór í kjölfarið að túra um allan
heim fór fólk að endurhugsa mál-
ið.“
Brandur segir að aldrei hafi
komið til greina annað en að halda
áfram í tónlist.
„Þetta er náttúrulegt og eðlilegt
fyrir mér. Það gengur vel að taka
upp og ég er að velja úr 35 laga
bunka, sem er ansi fjölbreyttur að
innihaldi. Ég er orðinn harla
spenntur vegna plötunnar, þar sem
þetta er að miklu leyti nýtt upphaf
hjá mér.“
Brandur Enni
snýr aftur
Tekur þátt í færeysku tónlistar-
kvöldi á NASA næsta laugardag
Brandur Enni Það er mörgum enn í fersku minni þegar Brandur kom hing-
að til lands fyrir fimm árum og söng dúett með Jóhönnu Guðrúnu.
www.brandur.com
www.myspace.com/atl-
anticmusicevent.
Einnig koma Eivör Pálsdóttir,
Högni Lisberg, Gestir og Teitur
fram. Miðaverð á hátíðina er
2.200 kr. og forsala aðgöngumiða
er í verslunum Skífunnar og á
midi.is.
Sími - 551 9000
The Illusionist kl. 5.45, 8 og 10:15
The Hitcher kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Venus kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Last King of Scotland kl. 8 og 10:35 B.i. 16 ára
Notes on a Scandal SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningarí Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
- Verslaðu miða á netinu
eeee
O.R. - EMPIRE
SÍÐUSTU SÝNINGAR Sýnd kl. 6 og 10 B.i. 7 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10:15 B.i. 16 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
MÖGNUÐ SPENNUMYND
Þegar kerfið bregst...
mun einhver deyja.
Heitustu hasarleikarar samtímans
mætast hér í magnaðri spennumynd.
www.laugarasbio.is
eeee
„Frábær skemmtun!“
- S.V., Mbl
„Óvænt kvikmyndaperla sem
enginn má láta fram hjá sér fara.“
- Sigríður Pétursdóttir, Rás 1
eeee
„Frábær leikur og
eftirminnileg mynd!“
- B.S., Fréttablaðið
Sýnd kl. 6, 8 og 10:30