Morgunblaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI
WILD HOGS kl. 6 - 8:15 - 10:30 B.i. 7 ára
300 kl. 5:30 - 8 - 10:10 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
NORBIT kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
eeee
V.J.V.
STÆRSTA MYND
ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDI
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
eee
VJV, TOPP5.IS
THE GOOD GERMAN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
300 kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
MUSIC AND LYRICS kl. 8
STÆR
BANDAR
GEORGE CLOONEY,
TOBEY MAGUIRE
OG CATE BLANCHETT
SÝNA STÓRLEIK Í
MAGNAÐRI MYND
LEIKSTJÓRANS
STEVEN SODERBERGH
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
LADY CHATTERLEY kl. 5:40 - 9
HORS DE PRIX ísl. texti kl. 6 - 8
TELL NO ONE kl. 10:20
SCENE DE CRIMES kl. 5:40
MICHEL BUTOR kl. 10:15
ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU
VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA:
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
VAR VALINN BESTA MYND
ÁRSINS Í FRAKKLANDI
eeee
VJV, TOPP5.IS
eee
„Meinfyndin!“
- S.V., Mbl
eee
„Velheppnuð
gamanmynd!“
- K.H.H., Fbl
ÞAÐ má færa til sanns vegar að
hvergi hafi fræði Sigmunds
Freuds náð betri fótfestu en í
Bandaríkj-
unum. Þar var
honum þó tek-
ið með tor-
tryggni þegar
hann koma
þangað í heim-
sókn 1909 með
þá Sándor Fe-
renczi og Carl
Gustav Jung
með sér. Jed
Rubenfeld nýt-
ir sér þessa heimsókn sem um-
gjörð um nokkuð hefðbundna (og
býsna ótrúlega) spennusögu með
ágætum árangri.
Í bókinni tekur einn af læri-
sveinum Freuds, bandarískur, að
sér stúlku sem orðið hefur fyrir
hrottalegri árás, en skömmu áður
hafði ung stúlka verið myrt á
áþekkan hátt. Lærisveinninn
kemst snemma að því að ekki er
allt með felldu, það er margt í
frásögn stúlkunnar sem ekki
gengur upp og hefst nú hin æsi-
legasta flétta.
Heimsókn Freuds er prýðileg
leið til að gæða fléttuna lífi og
fátt er betur til þess fallið að
gera bók læsilega en góður
skammtur af kynórum, sem voru
Freuds og Jungs ær og kýr. Ru-
benfeld nær að draga upp trú-
verðuga mynd af New York í
upphafi tuttugustu aldar, þó ekki
fari hann alltaf rétt með (til að
mynda voru Astor-óeirðirnar
vegna Makbeð uppfærslu, en ekki
Hamlet), en það er til að gefa
sögunni aukna dýpt, geri ég ráð
fyrir. Ágæt skemmtun.
Góður
skammtur
af kynórum
Árni Matthíasson
Jed Rubenfeld – The Interpretation of
Murder. Headline gefur út 2006.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
METSÖLULISTAR eru til margs
brúklegir, aðallega nýtast þeir þó til
að áhugasamir geti áttað sig á hvað
er helst nýtt á seyði í heimi bókanna
og komist að því hvaða nýjar bækur
eru forvitnilegastar að mati al-
mennra lesenda; þeir eru ekki eins
upp á gagnrýnendur með við-
urkenndan smekk komnir. Það get-
ur þó verið snúið að koma saman
metsölulista sem mark er á takandi
og sannast kannski helst á því að það
eru ekki margir slíkir listar sem
mönnum finnst mark á takandi. Með
vaxandi tölvuvæðingu hefur met-
sölulistum líka fjölgað, enda auð-
veldara að safna saman upplýs-
ingum beint úr sölukerfum. Til að
mynda heldur Amazon-netverslunin
úti slíkum sölulista, en þeir gefa þó
ekki alltaf rétta mynd af bóksölu, þó
endalaust megi deila um hvaða
mælikvarða eigi að nota. Sá listi sem
mestrar virðingar hefur notið í
gegnum tíðina er sölulisti banda-
ríska stórblaðsins New York Times,
sem birtur er í blaðinu
Umdeildur listi
Metsölulisti New York Times,
sem birtur er hér til hliðar, er um-
deildur og hefur oft verið milli tann-
anna á fólki á þeim 72 árum frá því
fyrsti listinn var birtur. Frægt varð
þegar William Blatty, höfundur The
Exorcist, fór í mál við blaðið fyrir
tveimur áratugum og sakaði það um
að hafa spillt sölu á nýrri bók hans,
Legion. Hann hélt því fram að bókin
hefði selst svo vel að hún hefði átt að
rata inn á metsölulistann en blaðið
tekið ákvörðun um að hunsa bókina.
Ýmsir hafa líka gagnrýnt það hve
metsölulistinn sé áhrifamikill; að
hann stýri í raun smekk manna –
rannsóknir hafi sýnt að það eitt að
lenda á listanum getur aukið sölu á
viðkomandi bók um ríflega 50% sé
höfundur nýr, en 10–15% ef hann er
ráðsettur og þekktur metsöluhöf-
undur. Það er því til nokkurs að
vinna að lenda á listanum, en ekki
fara allar bækur þar inn jafnvel þó
þær nái að seljast í bílförmum.
Aðferðafræðin leyndarmál
Málið er nefnilega það að aðferða-
fræðin á bak við metsölulistann er
leyndarmál, viðskiptaleyndarmál
segja menn hjá New York Times, og
enginn utan blaðsins veit í raun hvað
bók þarf að uppfylla til að komast
inn á listann, þó það sé ljóst að miðað
er við sölu hjá 3.000 bókaverslunum
bandarískum og bókaheildsölum og
til viðbótar 28.000 sölustöðum bóka,
til að mynda stórmörkuðum og al-
mennum verslunum. Magnsala telst
líka ekki með, enda á listinn að sýna
fram á hvað einstaklingar séu að
kaupa.
Sá listi sem birtur er hér til hliðar
er listi yfir sölu á innbundnum skáld-
sögum til að gefa mynd af því sem
nýjast er í sölu á því sviði vestan
hafs, en einnig er birtur í blaðinu um
hverja helgi listi yfir mest seldu
skáldsögur í kilju, mest seldu barna-
bækur, mest seldu sjálfshjálp-
arbækur innbundnar, mest seldu
sjálfshjálparbækur í kilju, mest
seldu fræðirit og ævisögur inn-
bundnar, mest seldu fræðirit og ævi-
sögur í kilju. (listi New York Times
sem hér birtist er listi yfir inn-
bundnar skáldsögur, en aðrir listar,
frá Eymundsson og Waterstone’s,
eru blandaðir listar.)
Ekki er þessi skipting klöppuð í
stein, þar er til að mynda ekki langt
síðan barnabókalistinn bættist við
en það var vegna óánægju útgefenda
og rithöfunda með það hve bæk-
urnar um Harry Potter voru frekar
til fjörsins á listanum. Skömmu áður
en fjórða bókin kom út var því tekin
ákvörðun um að búa til sérstakan
metsölulista fyrir barnabækur, enda
sáu aðstandendur blaðsins fyrir sér
að Harry Potter yrði í efstu fjórum
sætum listans – fyrstu bækurnar
þrjár voru í þrem efstu sætunum og
fjórða bókin væntanleg.
Forvitnilegar bækur: Bóksölulisti New York Times
Helsti metsölulistinn
The Exorcist Peter Blatty, höfundur The Exorcist og Legion sakaði New
York Times um óheilindi við gerð lista yfir söluhæstu bækurnar.
1. Whitethorn Woods – Maeve
Binchy
2. At Risk – Patricia Cornwell
3. Readers Digest Atlas of the
World
4. Philip’s Atlas of the World
5. Dirty Blonde – Lisa Scottoline
6. Like the Flowing River – Paulo
Coelho
7. True Evil – Greg Iles
8. Insight Pocket World Atlas
9. Piece of my Heart – Peter Rob-
inson
10. The Cold Moon – Jeffery Dea-
ver
Eymundsson
1. Harry Potter and the Deathly
Hallows (fullorðinsútgáfa) –
J.K. Rowling
2. Harry Potter and the Deathly
Hallows (barnaútgáfa) – J.K.
Rowling
3. The Interpretation of Murder –
Jed Rubenfeld
4. Restless – William Boyd
5. Suite Francaise – Irene Nem-
irovsky
6. Heart-shaped Box – Joe Hill
7. The Tenderness of Wolves –
Stef Penney
8. This Book Will Save Your Life –
A.M. Homes
9. Half of a Yellow Sun – Chimam-
anda Ngozi Adichie
10. Anybody Out There? – Marian
Keyes
Waterstones
1. Nineteen Minutes – Jodi Picoult
2. Shopaholic & Baby – Sophie
Kinsella
3. Daddy’s Girl – Lisa Scottoline
4. Whitethorn Woods – Maeve
Binchy
5. Step On A Crack – James Pat-
terson And Michael Ledwidge
6. Sisters – Danielle Steel
7. The Double Bind – Chris Bo-
hjalian
8. The Watchman – Robert Crais
9. Innocent In Death – J. D. Robb
10. For One More Day – Mitch Al-
bom
New York Times
RESTLESS segir frá Evu Delec-
torskayu, Rússa sem býr í París 1939. Í
upphafi heimsstyrjaldarinnar síðari er
hún ráðin í bresku leyniþjónustuna af
dularfullum manni sem síðar verður
elskhugi hennar. Undir hans hand-
leiðslu verður hún framúrskarandi
njósnari, lærir að dylja tilfinningar sín-
ar, vera vægðarlaus og undir það síð-
asta lærir hún að treysta engum, alls
engum og allra síst þeim sem hún elsk-
ar.
Eftir dularfullt atvik lætur Eva sig
hverfa og birtist síðan aftur eftir stríð
sem önnur persóna með aðra sögu,
dæmigerð ensk ung kona, síðar móðir
og húsmóðir. Fortíðin lætur þó á sér
kræla, þar er ýmislegt óuppgert, og
Eva ákveður að grípa til sinna ráða með
aðstoð uppkominnar dóttur sinnar.
Þessi bók Williams Boyds er einkar
vel skrifuð, í senn klassík njósnasaga
eins og þær gerðust bestar á árum áð-
ur, sannkölluð noir-saga, en líka
skemmtileg skoðun á samskiptum, til-
finningum og trúnaði. Enginn er ey-
land, sagði Donne á sínum tíma, og þarf
sterk bein til að standast það að verða
að gleyma öllu, fortíð sinni og sögu,
nafni og þjóðerni, ástvinum og vinum,
til þess að komast af.
Sagan gerist annars vegar á árunum
fyrir stríð og svo 1976 og sjónum ýmist
beint að hinni ungu Evu eða Ruth Gilm-
artin dóttur hennar. Það kemur þeim
sem þekkja til Boyds ekki á óvart að
hann er fær penni, en hann fer á kost-
um hvort sem hann er að lýsa svart/
hvítum heimi njósnastúlkunnar eða lífi
dóttur hennar sem hefur í sig og á með
því að kenna erlendum nemendum
ensku og lendir í sálarkreppu þegar
einn þeirra verður ástfanginn af henni.
Svart/hvítur heimur
Árni Matthíasson
William Boyd – Restless. Bloomsbury
gefur út 2007.
METSÖLULISTAR»BÆKUR»