Morgunblaðið - 28.03.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 49
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
BLOOD & CHOCOLATE kl.5:50 - 8 B.i.12 .ára
THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 4 - 6:10 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR... m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:30 B.i.7.ára
300 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
300 VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30
SMOKIN' ACES kl. 10:30 B.i.16.ára
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
WILD HOGS kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
300 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
/ KEFLAVÍK
WILD HOGS kl. 10:10 B.i. 7 ára
300 kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
NORBIT kl. 8 LEYFÐ
STÆRSTA MYND ÁRSINS
Í BANDARÍKJUNUM
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDIFRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
eeee
V.J.V.
eeee
FBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
eee
S.V. - MBL
eeee
VJV, TOPP5.IS
RSTA GRÍNMYNDIN Í
RÍKJUNUM Á ÞESSU ÁRI SÝND Í SAMBÍÓ
KRINGLUNNI
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST TIL KAUPS
Við höfum verið beðnir um að útvega 800-1200 fermetra
skrifstofu- og þjónusturými á svæðinu frá Borgartúni
og að Fossvogi. Fleiri staðir koma til greina.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Við höfum verið beðin um að útvega fjársterkum kaupanda
hús í Fossvogi. Staðgreiðsla fyrir réttu eignina.
Nánari upplýsingar veita
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST
EINBÝLI Á SELTJARNARNESI ÓSKAST
Fjárhagslega mjög traustur aðili hefur óskað eftir því við
Eignamiðlun ehf. að við útvegum honum einbýlishúsi á
sunnanverðu Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
lögg. fasteignasali. Sverrir
Kristinsson
MILLI þess sem lögreglumenn
gæta laga og réttar íbúanna í
Seattle-borg, missa gísla úr höndum
sér, fást við hátæknibúið bankarán
og efast hver um annars heiðarleika
vitna þeir í Búdda og háreistar
heimspekikenningar. M.a. þá sem
myndin dregur nafn sitt af.
Annað er ekki að finna sem frum-
legt getur talist í ofbeldisfullri has-
armynd þar sem atburðarásin minn-
ir lengi vel ískyggilega mikið á
Inside Man (’06), eftir Spike Lee, en
kúvendir síðan í þreytulega sögu af
tveimur löggufélögum, Quentin
(Statham) og Shane (Philippe). Sá
fyrrnefndi er endurráðinn í raðir
lögreglunnar að ósk bankaræningj-
anna, en hann var brottrækur ger
nokkru áður fyrir afglöp í starfi.
Shane er á hinn bóginn nýgræð-
ingur, rétt skriðinn úr námi, og una
báðir félagsskapnum illa.
Rannsókn þeirra á ráninu fær há-
vaðasama en hversdagslega af-
greiðslu, atburðarásin og árekstr-
arnir á milli lögreglumannanna
innbyrðis og eltingaleikurinn við
Carter (Snipes), heilann á bak við
glæpinn, er kunnuglegur úr mýgrút
mynda og sjónvarpsþátta. Statham
er brattur sem fyrr, Snipes er Wash-
ington fátæka kvikmyndaframleið-
andans, það er helst að Philippe
komi á óvart með leikrænum til-
burðum.
Chaos reynir að breyta út af venj-
unni með því að bæta við óværum
lokakafla sem er ekki aðeins óþarfur
heldur til skaða, ef eitthvað er.
Þeirri litla samúð sem maður var
farinn að hafa með persónunum er
rústað í hliðarfléttu, sem verður að-
eins aulaleg í höndum leikstjórans/
handritshöfundarins Giglios.
Kenningar og kúlnaregn
Óreiða „Þeirri litla samúð sem maður var farinn að hafa með persónunum
er rústað í hliðarfléttu,“ segir í dómi Sæbjörns Valdimarssonar.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
Leikstjóri: Tony Giglio. Aðalleikendur:
Jason Statham, Ryan Philippe, Wesley
Snipes, Henry Czerny, Justine Waddell,
John Cassini. 105 mín. Kanada/
England/Bandaríkin 2007.
Óreiða/Chaos Sæbjörn Valdimarsson
BRESKA hljómsveitin Hot Chip
mun hita upp fyrir Björk á tón-
leikum hennar í Laugardalshöll hinn
9. apríl næstkomandi. Sveitin hefur
notið mikilla vinsælda hér á landi
sem og í Bretlandi að undanförnu og
þótti platan The Warning ein sú
besta sem kom út á síðasta ári. Þá
hefur lagið „Over and Over“ verið
eitt það vinsælasta á dansgólfum
skemmtistaða Reykjavíkur und-
anfarna mánuði, auk þess sem lagið
„Colours“ hefur hljómað töluvert á
öldum ljósvakans. Sveitin þykir sér-
staklega skemmtileg á tónleikum en
hún hefur spilað á Íslandi í tvígang –
fyrst á Iceland Airwaves-hátíðinni
árið 2004 og svo á NASA í mars árið
2005, en þá var sveitin að fylgja eftir
sinnu fyrstu plötu, Coming on
Strong. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar og er nú svo komið
að Hot Chip er ein vinsælasta hljóm-
sveitin í bresku tónlistarlífi, en hún
leikur elektróníska popptónlist.
Miðasala á tónleikana hefst stund-
víslega klukkan 12 í dag og fer hún
fram í verslunum Skífunnar í Kringl-
unni, Smáralind og Laugavegi, í BT
á Egilstöðum, Selfossi og Akureyri
og á Midi.is. Miðaverð er 3.900 krón-
ur í stæði en 6.900 krónur í stúku.
Miðasala á tónleika Bjarkar í Laugardalshöll hefst í dag
Hot Chip
hitar upp
Heitir Meðlimir Hot Chip á Iceland Airwaves árið 2004.
Morgunblaðið/Árni Torfason
HLJÓMSVEITIN Leaves heldur
veglega tónleika í Iðnó í kvöld. Til-
efni tónleikanna er að hljómsveitin
er langt komin með upptökur á
þriðju hljómplötu sinni og nýtt lag,
„Kingdom come“, er farið að hljóma
í útvarpinu. Undanfarna mánuði
hefur hljómsveitin verið að semja og
taka upp nýtt efni í hljóðveri sínu
hér í Reykjavík og hefur hún alfarið
séð um upptökurnar sjálf. Þeir fé-
lagar stefna á að gefa plötuna út
seint á þessu ári. Miðaverð á tón-
leikana er 1.000 krónur. Dyrnar
verða opnaðar 20:30 og munu tón-
leikarnir hefjast klukkutíma síðar.
Leaves á Iðnó í kvöld