Morgunblaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 52
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Mikið fiskirí
Línubáturinn Gísli Súrsson frá
Grindavík setti Íslandsmet í afla
smábáta þegar aflinn var ríflega
17.000 tonn á 13.000 króka, en mikil
veiði hefur verið í vikunni eftir langa
brælu. » Forsíða
Sex milljarða kr. munur
Ístak kemst að því að hægt er að
tvöfalda Suðurlandsveg fyrir 7,5
milljarða króna en nýleg kostnaðar-
áætlun Vegagerðarinnar var upp á
13,5 milljarða. » Forsíða
Línur í jörðu
Skipulagsstofnun telur mikilvægt
að við mat á umhverfisáhrifum há-
spennulína frá Hellisheiði að
Straumsvík sé lögð áhersla á sam-
anburð þess að leggja línur í jörðu
og leggja þær sem loftlínu. „Stofn-
unin leggur það til í úrskurði sínum
að við skoðum frekar að leggja línur
í jörðu,“ segir Þórður Guðmundsson,
forstjóri Landsnets. » 2
Ferðasjóður stofnaður
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að
koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga
og er stefnt að 90 milljóna kr. fram-
lagi í sjóðinn á ári. » 4
Ný höfuðborg byggð
Ný höfuðborg, Naypyidaw, hefur
verið byggð frá grunni í miðju
Búrma og tekur hún við hlutverki
Rangoon, syðst í landinu. » 15
SKOÐANIR»
Ljósvaki: Heftað á striga
Staksteinar: Vel heppnuð ráðning
Forystugreinar: Stjórnmálaflokkar
og auglýsingar | Á Litla-Hrauni?
UMRÆÐAN»
Er lýðræði í Breiðdalshreppi?
Veðurfræði heimskautasvæðanna
Hafnfirðingar kjósa
Hvar er harðasti andstæðingur…?
3 #7 $
-" *"#
8 "! %" "! . 0 0
0 0
0 0 0 0 0
0 0
,
96 $
0
0
0
0 0 0 0 0 0
:;112<=
$>?<1=@8$AB@:
92@2:2:;112<=
:C@$9 9<D@2
@;<$9 9<D@2
$E@$9 9<D@2
$/=$$@. F<2@9=
G2A2@$9> G?@
$:<
?/<2
8?@8=$/*$=>212
Heitast 7 °C | Kaldast -1 °C
Hægviðri eða norð-
vestlæg átt og víða
bjart veður. Hiti 1 til 7
stig að deginum,
annars vægt frost. » 8
Raularinn er árleg
söngkeppni í Vík þar
sem umboðsmenn
eru verðlaunaðir
sem og besti raul-
arinn. » 44
SÖNGUR»
Raularinn í
Vík í Mýrdal
LEIKHÚS»
Lífið-Notkunarreglur er
óvenjuleg sýning. » 46
Árni Matthíasson
skrifar um met-
sölulista bóka, nyt-
semi þeirra, áhrif og
leyndarmálið á bak
við þá. » 48
BÆKUR»
Metsölu-
listar bóka
FÓLK»
Michael Jackson er upp-
risinn. » 46
KVIKMYNDIR»
Kvikmyndin Chaos fær
tvær stjörnur. » 49
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Handtaka átti Spaugstofumenn
2. Grillaði kærustuna á veröndinni
3. Lík breskrar konu …
4. Miklar aukaverkanir svefnlyfs
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MUNURINN á því sem greiða þarf tannlæknum
fyrir tannlækningar barna undir 18 ára aldri og
gjaldskrá heilbrigðisráðherra, sem Trygginga-
stofnun ríkisins (TR) ber að miða greiðsluþátttöku
sína við, hefur vaxið umtalsvert, að sögn TR. Sig-
urjón Benediktsson, formaður Tannlæknafélags
Íslands, gagnrýnir aðferðir TR og segir forsendur
vanta fyrir útreikningum stofnunarinnar.
TR greiðir 75% af tannlæknakostnaði vegna
barna undir 18 ára aldri og miðar stofnunin endur-
greiðslurnar við gjaldskrá ráðherra sem síðast var
hækkuð 2004. Tölurnar eru fengnar úr reikning-
um tannlækna frá árinu 2006.
Einn sérfræðingur fékk greitt 57 milljónir
Hæsta greiðsla vegna vinnu einstaks sérfræð-
ings var tæpar 57 milljónir á því ári, hæsta
greiðsla vegna einstaks almenns tannlæknis var
rúmlega 20 milljónir og hæsta greiðsla vegna
tannsmiðs 12,5 milljónir króna. Ekki er um laun
viðkomandi einstaklinga að ræða heldur greiðslur
vegna þjónustu fyrir tryggða skjólstæðinga TR.
Mikill munur er á gjaldskrám einstakra tann-
lækna samkvæmt frétt TR og bendir stofnunin á
að tannlæknum sé óheimilt að auglýsa þjónustu
sína sem torveldi forráðamönnum barna að velja
þá tannlækna sem bjóða lægsta verðið.
Sigurjón Benediktsson, formaður Tannlækna-
félags Íslands, sagði að félagið myndi krefja TR
skýringa á frétt stofnunarinnar. „Það er ekkert
við það að athuga að gjaldskrá tannlækna sé skoð-
uð, en það er sérkennilegt að Tryggingastofnun sé
að gera verðlagskannarnir á stétt sem er ekki með
neinn samning við stofnunina og hefur ekkert um
styrkveitingar hennar að segja. Eins að þessi
stofnun birti niðurstöður um verðlagningu sem
engar forsendur eru gefnar fyrir.“ Taldi Sigurjón
ýmsa aðra en TR betur fallna til að gera slíkar
kannanir og benti á að á reikningum tannlækna
væru gjarnan margir liðir sem ekki kæmu til end-
urgreiðslu hjá TR. Hvort þeir væru með í úttekt-
inni vissi hann ekki. „Tannlæknar eru á sam-
keppnismarkaði, en mér finnst sá verðmunur sem
þarna kemur fram vera ótrúverðugur.“ Vildi Sig-
urjón hvetja sjúklinga tannlækna til að kynna sér
og bera saman verð og gæði tannlæknaþjónustu.
Misdýrar tannviðgerðir
Tannlæknafélagið mun krefja Tryggingastofnun skýringa á frétt stofnunar-
innar um tannlæknakostnað og segir forsendur vanta fyrir útreikningunum
Morgunblaðið/Sverrir
Verðmunur Þjónusta tannlækna getur verið
130% dýrari en verðskrá ráðherra, segir TR.
Í HNOTSKURN
»Gjaldskrá sérfræðinga í hinum ýmsugreinum tannlækninga var 2006 að með-
altali 44,3% yfir gjaldskrá ráðherra.
»Verð dýrasta sérfræðingsins var 73% yfirgjaldskrá ráðherra en þess ódýrasta 12,5%
yfir henni. Þá var tekið tillit til allt að 20% sér-
fræðiálags, að sögn TR.
»Gjaldskrá almennra tannlækna var aðmeðaltali 34% yfir gjaldskrá ráðherra. Sá
dýrasti var 130% yfir gjaldskránni en sá ódýr-
asti rúmlega 6% undir henni.
„ÞESSI styrkur
skiptir okkur
miklu máli til að
ná að vinna í
þessu af ein-
hverju viti mark-
aðslega,“ segir
Sveinn Rúnar
Sigurðsson, höf-
undur íslenska
Evróvisjónlags-
ins, um samstarfssamning sem hann
undirritaði við SPRON í gær. Með
samningnum verður SPRON bak-
hjarl Evróvisjónhópsins og er mark-
miðið að auðvelda undirbúning og
þátttöku í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í Helsinki í maí nk.
Styrktarfyrirkomulagið er grunn-
styrkur upp á 1.500.000 kr. og auk
þess áheit um aukna styrki eftir vel-
gengni í keppninni; þ.e. fyrirheit um
500.000 kr. ef lagið kemst áfram upp
úr undankeppninni 10. maí og svo
aftur fyrirheit um 500.000 kr. ef lagið
verður ofar en í 16. sæti í úrslita-
keppninni.
„Þetta er í rauninni dropi í hafið
miðað við það sem við þurfum. Evró-
visjón er ekki ferð til fjár en RÚV
styður líka við bakið á okkur,“ segir
Sveinn.
Hafa heitið
á Eirík
Hauksson
Eiríkur Hauksson
MEÐ blóm í hári og bros á vör dönsuðu tugir ungra
ballerína um svið Borgarleikhússins í gær. Með ýmsum
svipbrigðum og tignarlegum handahreyfingum túlk-
uðu þær dansinn og vöktu tilþrifin mikla kátínu meðal
viðstaddra.
Hér eru á ferðinni ungir dansarar sem tóku þátt í ár-
legri nemendasýningu Ballettskóla Eddu Scheving.
Þær eiga augljóslega framtíðina fyrir sér, þessar
ungu dömur og höfðu æft stíft fyrir sýninguna. Upp-
skáru þær mikið lófaklapp áhorfenda.
Morgunblaðið/Sverrir
Brosmildar ballerínur