Morgunblaðið - 30.03.2007, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílarTilboðsdagar
FORD EXPLORER XLT 4WD. Árgerð 2005,
ekinn 52 þ. km, bensín, sjálfskiptur. Verð 3.450
þús. Lán 2.850 þús. Á TILBOÐSDÖGUM 2.980
þús. Rnr. 150129
BMW Z4 3,0I. BLÆJUBÍLL, UMBOÐS. Árgerð
2003, ekinn 36 þ. km, bensín, sjálfskiptur. Verð
4.390 þús. Lán 3.700 þús. Á TILBOÐSDÖGUM
4.250 staðgreitt. Rnr. 122895
CADILLAC CTS. Árgerð 2005, ekinn 5 þ. km,
bensín, sjálfskiptur. Verð 4.490 þús. Lán 2.900
þús. Á TILBOÐSDÖGUM 3.850 þús. Rnr. 123282
CADILLAC ESCALADE ESV PLATINUM. Ár-
gerð 2005, ekinn 48 þ. km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 8.250 þús. Á TILBOÐSDÖGUM 7.750
þús. Rnr. 123044
BMW X5 4.4 I. Árgerð 2000, ekinn 176 þ.
km, bensín, sjálfskiptur. Verð 3.290 þús. Lán
2.500 þús. Á TILBOÐSDÖGUM. 2990 STAÐ-
GREITT. Rnr. 123023
BMW 7 730D SHADOWLINE. Árgerð 2004,
ekinn 89 þ. km, dísel, sjálfskiptur. Verð 6.900
þús. GOTT ÚRVAL BMW Á SKRÁ. Rnr. 123314
BMW 530 I. Árgerð 2001, ekinn 132 þ. km,
bensín, sjálfskiptur. Verð 2.490 þús. Glæsilegur
bíll á góðu verði. Rnr. 122424
BMW 5 530D. Árgerð 2005, ekinn 58 þ. km,
dísel, sjálfskiptur. Verð 5.900 þús. Lán 5.100
þús. Rnr. 122939
TOYOTA COROLLA XLI. Árgerð 1993, ekinn
250 þ. km, bensín, 5 gírar. Verð 195 þús. Á TIL-
BOÐSDÖGUM. VÍSA RAÐGREIÐSLUR. Rnr.
150176
TOYOTA AYGO H/B. Árgerð 2006, ekinn 22 þ.
km, sjálfskiptur. Verð 1.290 þús. Lán 1150 þús.
Fæst fyrir 45 þúsund út og yfirtaka, 15 þús. á
mánuði. Á TILBOÐSDÖGUM. Rnr. 122903
Fosshálsi 27, 110 Reykjavík.
Sími 577 4747
hofdabilar@hofdabilar.is
ALLIR BÍLARNIR
Á STAÐNUM
N
ýr jeppi frá Ford sem
nefnist Edge verður
Evrópufrumsýndur
hjá Brimborg um
helgina og var hann
prufukeyrður af blaðamanni í vik-
unni. Hér er á ferðinni afar vel út-
lítandi millistærðar sportjeppi en
hann vakti fyrst athygli á bílasýn-
ingunni í Detroit fyrr á þessu ári. Á
markaðnum keppir hann hugsan-
lega við bíla eins og Hyundai Santa
Fe og Nissan Murano.
Það fyrsta sem grípur athyglina
við þennan bíl er sterkur framsvip-
urinn. Grillið er ansi gróft og svip-
mikið, grípur augað og gerir bílinn-
töluvert sérstakan. Það mætti
jafnvel lýsa hönnuninni sem djarfri
því það er óneitanlega eitthvað sem
grípur mann við útlitið og það á
góðan hátt. Svo er einnig eitthvað
djarft og ögrandi við nafnið „Edge“
samanber að lifa á brúninni.
Sportlegur lúxus
Þegar sest er inn í hann mætir
maður miklu rými, fallega hvítu
áklæði og vel heppnaðri hönnun á
mælaborði. Lúxus-yfirbragðið er
nokkuð mikið en þó eru sportleg-
heitin fyrirferðarmeiri.
Bíllinn sem undirritaður prófaði
var ansi vel græjaður en það er
nokkuð ljóst að þessi bíll á líka að
höfða til yngra fólks ásamt því að
vera prýðilegur fjölskyldubíll.
Hljómkerfið fær stóran plús en bíll-
inn er búinn sex diska geislaspilara
með fjarstýringu í stýri. Það gerðist
ósjaldan í reynsluakstrinum að tek-
inn var aukahringur áður en bílnum
var lagt til að klára lag sem var í
spilun þá stundina. Afskaplega góð-
ur hljómur sumsé og mjög góð
hljóðeinangrun.
Þægilegur
Jeppinn er afskaplega þægilegur
í akstri og sex þrepa sjálfskiptingin
mjög fín og rennileg. Þó verð ég að
viðurkenna að ég átti í smávegis
erfiðleikum með rafstýrða sætis-
stillinguna; náði aldrei að stilla sæt-
ið fullkomlega að mér svo að þæg-
indin yrðu sem mest. Þó gat sætið
farið í allar mögulegar áttir – hugs-
anlega var stillibúnaður of tækni-
legur, en það verður væntanlega
ekki á allt kosið. Engu að síður er
vellíðanin mikil í bílnum og það er
greinilega hugað vel að öllu því sem
getur aukið þægindin. Allur stjórn-
búnaður í mælaborði er mjög að-
gengilegur og auðvelt að vinna með
hann.
Ford Edge er augljóslega einn sá
bíla sem ætlað er að sameina afl og
þægindi og tekst honum það vel því
að aflið vantar ekki. Hann er knú-
inn 265 hestafla, 3,5 lítra V6 vél,
sem er nokkuð hljóðlát. Þó æpir
hún svolítið þegar stigið er vel á
bensíngjöfina en hún kemur bílnum
í 100 km/klst á um sjö sekúndum.
Og það er vel hugað að öryggi í
bílnum og fékk hann fyrir vikið við-
urkenninguna „Top Safety Pick“ frá
bandarísku samtökunum IIHW. Ör-
yggispúðar eru að framan og í hlið-
um framsæta og loftpúðagardínur
með veltiskynjun eru í hliðarrúðum.
Af öðrum staðalbúnaði í bílnum
má nefna ABS-bremsukerfi, Stöð-
ugleikastýrikerfi, RSC-veltivörn,
rafstýrða útispegla, 17" álfeglur,
mjóbaksstilli og fjórar 12V inn-
stungur.
Krókaleiðir
Eins og lesa má var undirritaður
hæstánægður með bílinn þrátt fyrir
vandræðin með rafstilltu sætin.
Hann er svo sannarlega þægilegur
að öðru leyti og máttlaus er hann
ekki. Mér leið vel og nánast svolítið
voldugum að keyra þennan bíl og
tók ég yfirleitt krókaleiðir þangað
sem ég var að fara. Þá má vel ætla
að hann eigi eftir að falla vel í
kramið hjá yngri sem eldri kaup-
endum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ford verður bíllinn ekki fáanlegur
annars staðar í Evrópu fyrr en eftir
nokkra mánuði vegna eftirspurnar í
N-Ameríku. Að sögn Gísla Jóns
Bjarnasonar, sölustjóra Ford hjá
Brimborg, hefur talsverð eftirspurn
myndast eftir kaupum á bílnum.
Sem fyrr segir verður bíllinn
Evrópufrumsýndur á laugardaginn
(á morgun) hjá Brimborg í Reykja-
vík og á Akureyri milli klukkan 12
og 16 og verða reynsluakstursbílar
á staðnum.
Ánægjulegar króka-
leiðir með Ford Edge
Wieck
Svipsterkur Hönnun Ford Edge er vel heppnuð, svolítið japönsk, en bíllinn er framleiddur í verksmiðju Ford í Kanada.
Morgunblaðið/Ásdís
Ferðalangur Farangursrýmið rúmar 908 lítra.
Morgunblaðið/Ásdís
Lúxus Bílstjórarýmið er veglegt og stýribúnaður er aðgengilegur.
Vél: 3,5 l Duratec V6
Hámarksafl: 265 hestöfl
Snerpa: 7 sek. úr kyrr-
stöðu upp í 100 km/klst
Eldsneytisnotkun:
13,9 l innanbæjar –
9,8 l utanbæjar
Farangursrými: 908 l
Staðalbúnaður: ABS-
bremsukerfi, stöð-
ugleikastýrikerfi, RSC-
veltivörn, fjarstýrðar
samlæsingar og fleira
Verð: Frá 4.590.000
Umboð: Brimborg
Ford EdgeREYNSLUAKSTUR
Ford Edge
Þormóður Dagsson