Morgunblaðið - 31.03.2007, Síða 32

Morgunblaðið - 31.03.2007, Síða 32
lifun 32 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ V ið vorum fyrst til að flytja í hverfið,“ segir Edda þegar hún gengur með blaðamanni um nýja heimilið sitt, sem stend- ur við Hjálmakur í Garðabæ. Að utan berast hamarshögg og hljóð í vinnu- vélum enda allt á fullu á lóðunum í kring. „Vinnumennirnir eru rosalega iðnir – byrja klukkan sjö á morgnana og eru oft að til tólf á kvöldin. Maður sefur ekkert út um helgar,“ heldur hún brosandi áfram. Húsið er hannað af Baldri Svavars- syni hjá arkitektastofunni Úti og inni en Edda flutti inn ásamt eiginmanni og þremur börnum um miðjan des- ember síðastliðinn eftir tæplega átta mánaða byggingaferli. „Við fengum reyndar mjög góða hjálp frá fjöl- skyldum okkar beggja en aðallega þó frá pabba mínum sem er pípari. Við vissum náttúrulega ekkert hvað við vorum að fara út í – höfðum aldrei byggt áður eða komið nálægt slíku svo það var rosalega gott að hafa ein- hvern til að redda iðnaðarmönnum og leiðbeina um hvað væri næsta skref hverju sinni. Ég lærði a.m.k að þolin- mæði er númer eitt, tvö og þrjú þeg- ar kemur að húsbyggingum.“ Eitt það fyrsta sem blasir við þeg- ar gengið er inn er hversu opin rýmin eru og björt enda stórir gluggar á flesta kanta. Hjarta heimilisins er í eldhúsinu enda er það vel rúmgott auk þess sem hátt er til lofts í þessum hluta hússins, heilir 3,7 metrar. „Við erum alltaf hérna,“ segir Edda en borðstofan er í raun hluti af eldhús- inu. Innréttingin og borðplatan nær eftir öllum veggnum endilöngum, hvorutveggja í hvítum lit en á móti koma brúngráar flísar á gólfi og veggur málaður í svipuðum tón. „Eldhúsið ber alveg þennan lit því það er svo opið og þetta hefði verið svo litlaust annars út af innrétting- unni.“ Margnota afdrep í kjallara Opið er milli eldhúss, borðstofu og stofu, þótt frístandandi veggur skilji aðalrýmin að. Yfir sófanum í stofunni blasir við risastórt listaverk sem við fyrstu sýn virðist vera hefðbundið málverk, en þegar betur er að gáð kemur í ljós að það er málað beint á vegginn og setur mikinn svip á stof- una. „Verkið gerði vinkona mín, Ing- unn Fjóla Ingþórsdóttir í samvinnu við kennara sína í Listaháskóla Ís- lands. Ég er mjög ánægð með þetta því verkið kemur með lit í húsið sem er annars svolítið svarthvítt að öðru leyti.“ Húsgögnin fluttu þau flest með sér en Edda hannaði sjálf og sérsmíðaði ferhyrningslaga leðurbekk fyrir eitt hornið í stofunni. Í ljós kemur að fleiri leðurhúsgögn í húsinu eru runn- in undan hennar rifjum sem og nokk- ur listaverk á veggjum. Hún gerir þó lítið úr þessari listsköpun sinni: „Þetta hefur bara verið dundur hjá mér í gegn um tíðina,“ segir hún hóg- vær. Lýsingahönnun var í höndum Lú- mex en sett var upp kerfi, sem breyt- ir lýsingu í stofunni samkvæmt fyr- irfram ákveðnum aðstæðum. Þannig er hægt með einu handtaki að stilla inn á sjónvarpslýsingu, kvöldverðar- lýsingu og jafnvel þrifalýsingu ef því er að skipta. Frístandandi veggur skilur stof- una og sjónvarpsstofu að og handan hennar er svo svefnherbergisálman, en gengið er í hana upp nokkrar tröppur. Þar eru þrjú jafnstór barna- herbergi, rúmgott baðherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi inn af sem húsfreyjan segir hið mesta þarfaþing. Úr sjónvarpsholinu er líka Andstæður Svart og hvítt kallast á í stofunni. Stóllinn og leðurhnallurinn taka sig vel út undir einföldum, svörtum hillum á hvítum, fríttstandandi vegg sem skilur að stofuna og sjónvarpsholið. Miðrými Úr sjónvarpsholinu er bæði gengið niður í kjallara og upp í svefnherbergisálmuna. „Það er svolítil sólarvörn í rúðunum svo hitinn verði ekki óbærilegur en að auki völdum við „screening gluggatjöld“ sem sést út um en ekki inn.“ Hjarta heimilisins „Ég vildi hafa stórt eldhús og tengja það borðstofunni,“ segir Edda sem hér situr með arkitekt- inum, Baldri Svavarssyni. „Mér finnst frábært að hafa svona gott borðpláss og sömuleiðis skápapláss. Þar kem ég öllu fyrir og líka smáhlutum eins og gjafapappír, kertum, servíettum og öðru slíku.“ Elstu íbúarnir í nýjasta hverfinu Einn af öðrum gægjast þeir upp úr húsþökum og steyptum grunnum, byggingakranarnir í Akralandi í Garðabæ. Þrátt fyrir að enn séu lóðir ófrágengnar og malarvegir upp að húsum leynast raunveruleg heimili inn á milli þar sem fjölskyldur hafa hreiðrað um sig. Meðal frumbyggja er Edda Björk Kristjánsdóttir sem sýndi Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur splunkuný húsakynni sín í vikunni. Stofan Verkið er eftir vinkonu Eddu, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir sem mál- aði það beint á vegginn. Gegnumgangandi form í verkinu eru ferhyrningar af ýmsum stærðum og gerðum en þeir eru gerðir úr fjölum sem festar eru á vegginn. Allar stærðir á kössunum eru reiknaðar út frá litla glugganum í vinstra horninu á veggnum. „Hana langaði að gera abstrakt verk og ég gaf henni bara frjálsar hendur,“ útskýrir Edda. Einfalt Þrír efri skápar úr Ikea eld- húsinnréttingu. Ofan á er gler sem Edda málaði svart að neðanveðru.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.