Morgunblaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Neskaupstaður | Í gær vígði Siv
Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra
ný- og endurbyggingu Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað (FSN).
Þar munu innan skamms verða
teknar í notkun fullkomin endurhæf-
ingardeild og tólf rúma hjúkr-
unardeild aldraðra, en einnig eru í
þessum húshluta endurbætt eldhús,
mötuneyti starfsmanna og nýbygg-
ing með anddyri, setustofum,
fræðslu- og fundaherbergjum. Jafn-
framt var hálfrar aldar afmælis
stofnunarinnar minnst en henni var
komið á fót 18. janúar árið 1957.
„Máttarstólpar sjúkrahússins
hafa frá fyrstu tíð verið skurðlækn-
ingar og fæðingardeild, auk þess
sem lyflækningar og öflug end-
urhæfing eiga hér um aldarfjórð-
ungssögu,“ sagði Björn Magnússon
yfirlæknir FSN við vígsluna. Nú sé
sérfræðiþjónusta viðameiri en
nokkru sinni áður og nýr og fullkom-
inn tækjabúnaður veiti mikið öryggi.
„Enn er brotið blað með opnun lang-
þráðrar hjúkrunardeildar og full-
kominnar þjálfunar- og endurhæf-
ingaraðstöðu,“ sagði Björn.
„Hér var öldrunar- eða vistheim-
ili, en nú höfum við loks hjúkr-
unarheimili með alvöru þjónustu,“
segja þær Friðgerður Maríasdóttir,
sjúkraliði með sérnám í öldr-
unarhjúkrun, og Ingibjörg Árna-
dóttir sjúkraliði. „Aðstaða er öll önn-
ur. Biðlistar munu eitthvað tæmast
en þetta eru auðvitað bara tólf rúm.
Það hefði verið hægt að fylla þessa
deild tvisvar með sjúklingum héðan
af svæðinu. Það er afar mikil þörf
fyrir hjúkrunarrými og þessi nýja
deild er strax orðin of lítil.“
Nýbygging og endurnýjun FSN
kostaði um 300 milljónir króna.
Starfsemi deildanna tveggja á að
hefjast n.k. mánaðamót og er tækja-
búnaður að tínast inn.
FSN hafa borist margar góðar
gjafir á afmælisárinu, m.a. gáfu í
gær hjónin Stefán Þorleifsson og
Guðrún Sigurjónsdóttir 100 þúsund
krónur og Samtök útgerðarmanna í
Neskaupstað blöðruskanna að verð-
mæti 700 þúsund krónur.
FSN er hluti af Heilbrigð-
isstofnun Austurlands, en undir
hana heyra þrjú sjúkrahús, eitt
hjúkrunarheimili, átta heilsugæslu-
stöðvar og fjögur heilsugæslusel.
Starfsmenn eru um 330 og þjónar
stofnunin nú um 14 þúsund manns.
Aldrei verið öflugra
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Vígsla Siv Friðleifsdóttir sagði við vígsluna að mikið hefði verið lagt í heilbrigðisþjónustuna á Austurlandi.
Gjörbreytir hjúkr-
unaraðstöðu og öldr-
unarþjónustu Fjórð-
ungssjúkrahússins
AUSTURLAND
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ísafjörður | „Þetta var mjög
skemmtilegt, það er engin spurning.
Ég hafði samband við ýmsa góða og
skemmtilega menn,“ segir Jón Páll
Halldórsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins
Norðurtangans á Ísafirði. Sem ung-
ur maður var hann fréttaritari
Morgunblaðsins á Ísafirði og blaða-
maður fyrir Vesturland. Byggðasafn
Vestfjarða hefur nú sett upp sýn-
ingu á myndum hans frá fréttarit-
araárunum, 1950 til 1960.
Jón Páll tók að sér að vera frétta-
ritari Morgunblaðsins
um 1950, fljótlega eftir
að hann lauk námi.
Hann segir að það hafi
getað verið erilsamt
þegar eitthvað athygl-
isvert hafi verið í gangi
og tækifæri gafst til að
fara á staðinn. Á þess-
um tíma vann Jón Páll
hjá Togarafélaginu Ís-
firðingi hf.
Váleg tíðindi
Válegir atburðir svo
sem sjóslys koma fyrst
í upp í hugann þegar
Jón Páll er spurður um
eftirminnilegustu frétt-
irnar frá þessum árum. „Ég lærði
strax hvað það er mikill vandi að
segja frá slíku og þegar þannig mál
komu upp leitaði ég alltaf í smiðju
vinar míns, Sverris Þórðarsonar
[blaðamanns á Morgunblaðinu],
hann vissi alltaf hvað mátti segja og
hvað ekki,“ segir Jón Páll.
Einn af minnisstæðustu atburð-
unum er frækileg björgun 29 skip-
verja af togaranum Agli rauða sem
strandaði við Grænuhlíð í byrjun árs
1955. Vegna óveðurs rofnaði síma-
samband og rafmagn á Ísafirði og
ekki hægt að koma fréttum til Morg-
unblaðsins með venjulegum hætti.
Jón Páll fann þó leiðina. Hann fylgd-
ist með björgunaraðgerðum í talstöð
um borð í togara í Ísafjarðarhöfn og
gat komið upplýsingunum jafnóðum
til Sverris Þórðarsonar í gegnum
talstöðina, eins og rifjað var upp hér
í blaðinu fyrir tveimur árum. Þetta
gerði það að verkum að Morg-
unblaðið var eini fjölmiðillinn sem
birti fréttir af slysinu og björgunar-
aðgerðum fyrstu dagana. En Jón
Páll fékk tiltal hjá Loftskeytastöð-
inni því ekki mátti nota talstöðvar
skipa þegar þau voru í höfn.
Margt hefur breyst frá þessum
tíma. Jón Páll skrifaði
fréttirnar yfirleitt og
sendi með skeyti hjá
ritsímanum. Film-
unum þurfti hann að
koma í flug. Ekki var
nóg að koma filmunni
suður því Ólafur
Magnússon, ljósmynd-
ari Morgunblaðsins,
þurfti að framkalla
hana og stækka mynd-
irnar og síðan þurfti að
láta gera myndamót.
Þetta gat tekið langan
tíma og stundum urðu
myndirnar úreltar,
sérstaklega þegar um
var að ræða stóra fréttaatburði en
flug stopult vegna veðurs.
Yfirlit um breytingar
Sýning Byggðasafnsins, „Með
augum fréttaritarans“, er í Safna-
húsinu á Eyrartúni á Ísafirði og
stendur út mánuðinn. Samkvæmt
upplýsingum Björns Baldurssonar
safnvarðar stendur til að sýna
myndirnar einnig í sumar í Tjöru-
húsinu í Neðstakaupstað.
Á sýningunni eru tuttugu ljós-
myndir frá árunum 1950 til 1960 og
við hlið hverrar myndar er sett upp
frétt úr Morgunblaðinu eða Vest-
urlandi sem tengist viðkomandi
mynd.
Jón Páll segist hafa lánað Byggða-
safninu filmur sínar en val á mynd-
um og uppsetning sé verk starfs-
manna safnsins. Segir hann að
myndirnar hafi verið valdar með það
að markmiði að sýna þjóðfélags-
breytingarnar sem orðið hafa á þeim
tíma sem liðinn er frá því myndirnar
voru teknar. Segir hann að sjá megi
mörg dæmi þess. Nefnir sem dæmi
að á þessum tíma hafi fyrsta dag-
heimilið fyrir börn verið opnað á Ísa-
firði.
Morgunblaðið/Jón Páll Halldórsson
Margt hefur breyst Una Thoroddsen skólahjúkrunarkona gefur barni lýsi
í Barnaskóla Ísafjarðar fyrir fimmtíu árum eða svo.
„Með augum
fréttaritarans“
Í HNOTSKURN
»Jón Páll Halldórsson fædd-ist á Ísafirði 1929.
»Hann var lengi fram-kvæmdastjóri Hraðfrysti-
hússins Norðurtangans og
driffjöður í atvinnu- og menn-
ingarlífi Ísfirðinga í meira en
hálfa öld.
»Eftir hann liggja rit umsögu fiskveiða og fiskverk-
unar á Ísafirði og hann er að
leggja síðustu hönd á bók um
sögu verslunar.
Jón Páll Halldórsson
LANDIÐ
LEIKFÉLAG Akureyrar leitar að
börnum á aldrinum 7–14 ára til
að leika við hlið atvinnuleikara í
fyrstu frumsýningu haustsins
2007. Þar er á ferðinni fjöl-
skylduleikritið Óvitar eftir Guð-
rúnu Helgadóttur í leikstjórn Sig-
urðar Sigurjónssonar.
Jón Ólafsson semur nýja tónlist
fyrir sýninguna og stýrir hljóm-
sveit. Skráning í áheyrnarpruf-
urnar fer fram í leikhúsinu á Ak-
ureyri, föstudaginn 20. apríl milli
kl. 14 og 15. Áheyrnarprufur
fara svo fram 5. og 6. maí. Leik-
húsáhugi ungra Eyfirðinga er
mikill ef marka má gríðarlega
þátttöku í leiklistarnámskeiðum
LA undanfarin misseri. Því má
gera ráð fyrir mikilli þátttöku í
prufunum.
Leikfélagið
leitar barna
NORÐLENSKA fjölmiðlafyrirtæk-
ið N4, sem hefur aðsetur á Akur-
eyri, kannar nú réttarstöðu sína
vegna nafns og firmamerkis N1 –
hins nýja fyrirtækis sem varð til á
dögunum við samruna Bílanausts,
Olíufélagsins ESSO og dótturfélaga.
Í frétt frá N4 segir að bæði nafn
og firmamerki N1 séu sláandi lík
N4 og til þess fallin að rugla neyt-
endur. Stjórnendur N4 harma að
hagsmunir neytenda hafi í þessu til-
liti ekki verið hafðir að leiðarljósi
við nafngift og hönnun firmamerkis
N1. Að auki hafi N4 nýverið til-
kynnt að innan skamms hefjist
dreifingar á N4 Sjónvarpi Norður-
lands á landsvísu. Bæði firmamerk-
in verði því afar áberandi um allt
land.
„N4 hefur þegar borist fjöldi sím-
hringinga og athugasemda frá al-
menningi sem furðar sig á því hve
lík umgjörð fyrirtækjanna er, en
fyrirtækin eru á engan hátt tengd
hvað varðar eignarhald,“ segir í
fréttatilkynningu sem N4 sendu frá
sér síðdegis í gær.
Þar er haft eftir Steinþóri Ólafs-
syni, stjórnarformanni N4: „Það er
afar ósvífið af þeim að koma fram
og kynna merki sem líkist okkar svo
mikið auk þess sem það hljómar líkt
í framburði. Við teljum þetta sið-
laust og ætlum að leita réttar okkar
í málinu.“
N4 var stofnað þann 1. maí 2006
þegar fjögur fyrirtæki, sem komið
höfðu að sjónvarpsrekstri, kvik-
myndagerð og útgáfu á Norður-
landi, sameinuðust undir einn hatt.
Fyrirtækið er staðsett á Akureyri, í
Amaróhúsinu í Hafnarstræti og
rekur miðlana N4 Extra dagskrána
og N4 Sjónvarp Norðurlands auk
hönnunardeildar, auglýsinga- og
markaðsráðgjafar og framleiðslu-
deildar þar sem framleitt er innlent
sjónvarpsefni, kynninga- og auglýs-
ingaefni, en að auki sér framleiðslu-
deild um upptökur og beinar út-
sendingar á viðburðum víða um
land. Útibú Stöðvar 2 og Frétta-
blaðsins á Norðurlandi eru einnig
með aðsetur í fjölmiðlahúsi N4.
„N1, siðlaust og ósvífið“
SAMTAKA, svæðisráð foreldra
nemenda í grunnskólum Akureyr-
arbæjar, hefur með bréfi til stjórn-
ar Fasteigna Akureyrarbæjar og
íþróttaráðs Akureyrar farið fram á
að settar verði skýrar reglur um
notkun sparkvalla í bænum og að
forgangur barna til notkunar vall-
anna verði ótvíræður.
Fréttir hafa verið sagðar af því
að dæmi séu um að fullorðnir hafi
rekið börn í burtu af sparkvöllum
og „einnig hefur heyrst af því að
menn hafi keypt börn burt af
sparkvöllunum með sælgæti og
peningum. Þetta ástand er að sjálf-
sögðu með öllu óviðunandi,“ segir í
yfirlýsingu frá Samtaka, en stjórn-
in bendir á, með tilvísun í gögn um
sparkvelli sem finna má á vef
Knattspyrnusambands Íslands, að
ótvírætt sé að sparkvöllunum er
einkum ætlað að ýta undir knatt-
spyrnuiðkun æskufólks.
Samtaka bendir á að setja þurfi
upp merkingar við vellina þar sem
umgengnisreglur koma skýrt fram.
„Í öðru lagi þurfa starfsmenn
skólanna, nágrannar við sparkvell-
ina, foreldrar barna sem nota vell-
ina og aðrir að vera vakandi yfir
atburðum eins og þeim sem lýst
hefur verið í fréttum. Þegar vart
verður við bílaumferð á skólalóðum
og leiksvæðum ætti fólk ekki að
hika við að kalla til lögreglu. Hið
sama á við um yfirganginn sjálf-
an.“
Forgangur barna á
velli verði ótvíræður