Morgunblaðið - 17.04.2007, Qupperneq 19
|þriðjudagur|17. 4. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Kennd er jákvæð hegðun í
átta grunnskólum í Reykja-
vík og reynt að finna nýjar
leiðir til að stýra hegðun
nemenda. »20
menntun
Það hefur verið í mörg horn að líta hjáHeiðrúnu Pálsdóttur á undanförnumárum því áhugamálin eru mýmörg ogþeim hefur auðvitað þurft að sinna í
gegnum tíðina. Heiðrún var níu ára þegar hún
fór á sitt fyrsta siglinganámskeið hjá siglinga-
félaginu Knerri, sem hefur aðsetur í Grófinni í
Keflavík. Hún fékk siglingabakteríuna í æð, er
nú með pungaprófið upp á vasann og ákvað að
halda ótrauð áfram. Hún er nú sjálf farin að
aðstoða kennara við að kenna siglingar og mun
að öllum líkindum hafa umsjón með siglinga-
námskeiðunum í Keflavík í sumar auk þess
sem hún áformar að taka þátt í þriggja vikna
skútuævintýri í útlöndum í sumar.
Heiðrún, sem á 18 ára afmæli á fimmtudag-
inn og býr á bænum Norðurkoti rétt fyrir utan
Sandgerði, er á öðru ári í Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, á náttúrufræðibraut.
Passlegur vindgangur og öldur
„Ég er ákveðin í að halda áfram í skóla, en
er ennþá mjög óráðin í því á hvað ég stefni.
Maður spáir og spekúlerar helling án þess að
fá lausn í framtíðarplönin enda getur nátt-
úrufræðibrautin verið góður grunnur undir
hvað sem er,“ segir Heiðrún, sem er líka að
starfa með björgunarsveitinni, skátunum og
KFUM og K.
Heiðrún hefur tekið þátt í fjölda sigl-
ingakeppna vítt og breitt um landið, en segir
að keflvískir siglingakappar nái ekki nógu góð-
um árangri í logni, sem oft einkennir pollinn á
Akureyri og Fossvoginn. „Við erum nefnilega
miklu vanari passlegum vindgangi og öldum
fyrir utan Grófina sem eru skemmtilegustu að-
stæðurnar fyrir skútusiglingar. Það er aldrei
logn úti fyrir Keflavík. Við þurfum því að læra
betur að beita skútunum í nánast logni og nýta
þann litla vind, sem kann að gefast á slíkum
stöðum.“
Skúturnar, sem krakkarnir sigla á, eru eins
manns, en kennararnir, sem leiðbeina, sigla
um á gúmmíbátum til aðstoðar. Þegar Heiðrún
er spurð hvað góður siglingamaður þurfi að
hafa til að bera svarar hún því til að áhuginn
þurfi vissulega að vera fyrir hendi svo og tíðar
æfingar enda skapi æfingin meistarann. Að
auki þurfi góður siglingamaður að hafa tilfinn-
ingu fyrir samspili vinds og segla.
Mikilvægt er að siglingamenn séu búnir flot-
vestum því þeir lenda í sjónum svona endrum
og sinnum. „Á námskeiðunum lærum við
nefnilega að snúa bát við sem hefur oltið. Það
er nauðsynlegt að kunna það, ef illa fer úti á
rúmsjó,“ segir Heiðrún.
Skútuævintýri í útlöndum
Heiðrún siglingakona ætlar í ævintýraferð
til Evrópu í júlí í sumar ásamt tíu öðrum ís-
lenskum ungmennum á vegum KFUM og K.
„Við ætlum að vera í áhöfn á tveimur skútum
sem eru í Kiel í Þýskalandi og kristileg syst-
ursamtök okkar eiga þar. Þetta eru rosalega
flottar eikarskútur, byggðar 1900 og 1905, á og
eru tólf og sextán manna.
„Við erum ekki búin að fá nákvæma útlistun
á því hvað við eigum að gera, en fylgjum auð-
vitað bara skipunum. Lagt verður úr höfn í
Kiel í Þýskalandi. Siglt verður til Borgund-
arhólms og þaðan til Visby í Gotlandi, svo til
Saaremaa, sem er eyja sem tilheyrir Eistlandi
og endastöðin er svo Tallinn í Eistlandi.
Ég var sko ekki lengi að hugsa mig um þeg-
ar ég heyrði um ferðina og var fljót að skrá
mig til leiks. Ég er ekki í nokkrum vafa um að
þetta verður geggjað ferðalag enda eru skútu-
siglingar alveg rosalega skemmtilegt sport,“
segir Heiðrún að lokum.
Ferðaþráin Heiðrún Pálsdóttir ætlar að taka þátt í þriggja vikna skútuævintýri í sumar. Lagt verður upp frá Kiel í Þýskalandi og endastöðin verður í Tallinn í Eistlandi.
Öryggið Siglingamenn þurfa að vera búnir
flotvestum lendi þeir í sjónum.
„Kemst ekkert
áfram í logni“
Aðeins níu ára fór hún á sitt
fyrsta siglinganámskeið og
fékk siglingabakteríuna í æð.
Jóhanna Ingvarsdóttir
ræddi við Heiðrúnu Páls-
dóttur sem tekið hefur þátt í
fjölda siglingakeppna. Áhugamálið Tíðar æfingar í bland við mikinn áhuga skapa meistarann.
join@mbl.is