Morgunblaðið - 30.04.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÍBÚÐ ÓSKAST TIL LEIGU
Traustur aðili óskar eftir 4ra herbergja íbúð til leigu nú
þegar og fram til áramóta. Æskileg stærð ca 100-115 fm.
Æskileg staðsetning, miðborg, Þingholt,
Skerjafjörður og Seltjarnarnes.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Sverrir
Kristinsson
SÍÐASTLIÐIÐ haust brydd-
aði Geirlaug Þorvaldsdóttir,
eigandi Hótels Holts, upp á
þeirri nýbreytni að bjóða al-
menningi að koma og skoða
fjölbreyttan listaverkakost
hótelsins undir leiðsögn Að-
alsteins Ingólfssonar listfræð-
ings. Sýningarnar eru nú mán-
aðarlega á hótelinu og hinn 1.
maí næstkomandi er komið að
næstu leiðsögn.
Á þriðjudaginn geta gestir og gangandi mætt á
Hótel Holt klukkan 17 og fengið að skoða lista-
verk hótelsins. Einnig geta hópar sett sig í sam-
band við hótelið og pantað sér leiðsögn.
Leiðsögn
Listaverkakostur
Holtsins
Geirlaug
Þorvaldsdóttir
LEIKLISTARVEISLA
Listar án landamæra
verður í Borgarleikhús-
inu í kvöld klukkan 20.
Kynnar eru Björgvin
Franz Gíslason og Ása
Björk Gísladóttir. Meðal
þeirra sem fram koma
eru leikhópurinn Perlan,
Dansklúbbur Hins húss-
ins, Tjarnarleikhópurinn,
Blikandi stjörnur ásamt
KK og Halaleikhópurinn
auk þess sem sýnt verður atriði úr Þjóðarsálinni
Frítt er inn í Borgarleikhúsið á meðan húsrúm
leyfir.
Leiklist
Fjölbreytt
leiklistarveisla
Úr Þjóðarsálinni.
ÁRLEGT Söngvaraball í Ís-
lensku óperunni verður haldið
í kvöld.
Húsið verður opnað kl. 20
með fordrykk og kl. 21 hefj-
ast tónleikar á sviði Óp-
erunnar þar sem nokkrir af
ástsælustu söngvurum lands-
ins koma fram. Að loknum
tónleikum leikur strengja-
sveitin Sardas fyrir dansi.
Heiðursgestir á ballinu eru hjónin Sieglinde
Kahmann og Sigurður Björnsson en þau hafa
komið víða við í íslensku tónlistarlífi síðastliðin
þrjátíu ár.
Veislustjóri er Davíð Ólafsson óperusöngvari.
Tónlist
Söngvaraball
í Óperunni
Davíð Ólafsson
EINN þekktasti fulltrúi kvikmynda-
iðnaðarins í Hollywood, Jack Val-
enti, lést í síðastliðinni viku. Bana-
mein hans var hjartaáfall.
Valenti var í forsvari fyrir Kvik-
myndafélag Bandaríkjanna (Motion
Picture Association of America,
MPAA) í næstum fjóra áratugi en
lét af störfum fyrir þremur árum.
Hans verður trúlega oftast minnst
fyrir að hafa sett á fót það kerfi sem
ákvarðar aldurstakmörk að kvik-
myndum, kerfi sem enn er notað til-
tölulega lítt breytt í dag, um 40 árum
síðar.
Valenti var jafnframt aðstoð-
armaður bæði John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta og eftirmanns
hans, Lyndon Johnson.
Valenti var í bílalestinni þegar
Kennedy var skotinn til bana árið
1963.
Kempur á borð við Steven Spiel-
berg og Kirk Douglas hafa síðustu
daga sent frá sér yfirlýsingar þar
sem þeir minnast Valenti með hlýju
og segja hann hafa verið „góðan og
merkan mann“.
Reuters
Merkur maður Jack Valenti.
Jack Valenti
látinn
Upphafsmaður
aldurstakmarka
á kvikmyndir
ÍSLENSKI dansflokkurinn er á far-
aldsfæti um þessar mundir og tróð
upp í gær í Sjanghaí.
Fullt var út úr dyrum, samkvæmt
tilkynningu frá dansflokknum, og
komust færri að en vildu.
„Sjanghaí er af mörgum talin
íhaldssömust af kínversku stór-
borgunum hvað listir varðar, og
kom það þvi skipuleggjendum tals-
vert á óvart hversu vel sýningunni
var tekið,“ segir meðal annars í til-
kynningu.
Að sýningu lokinni settust Katrín
Hall, listrænn stjórnandi ÍD, Ása
Richards framkvæmdastjóri og
dansararnir niður á sviðinu og
svöruðu fjölmörgum spurningum
um dans, dans á Íslandi, Ísland og
margt fleira.
Í dag heldur flokkurinn til Gu-
angzhou, þar sem hann mun opna
stærstu nútímadanshátíð Kína, Gu-
angdong Modern Dance Festival.
Þar sýnir flokkurinn verk Helenu
Jónsdóttur, Open Source, sem og
verkið Gleðilegt nýtt ár.
Dansflokkur-
inn í Kína
SJÓNLISTADAGUR verður haldinn
í Reykjavík á þriðjudaginn, 1. maí. Þá
verða vinnustofur listamanna og
hönnuða opnaðar almenningi á Korp-
úlfsstöðum og Seljavegi 32. Vinnu-
stofurnar eru 87 talsins, og verður því
nóg í boði fyrir þá sem áhuga hafa á
myndlist og hönnun.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arstjóri Reykjavíkur, opnar Sjón-
listamiðstöðina á Korpúlfsstöðum kl.
13. Þar eru 32 myndlistarmenn með
vinnustofur og 8 hönnuðir.
Handhafar Íslensku sjónlistaorð-
unnar 2006, myndlistarmennirnir
Magnús Pálsson og Hildur Bjarna-
dóttir og hönnuðurinn Guðrún Lilja
Gunnlaugsdóttir, sýna verk sín í
gömlu hlöðunni og afrakstur vetr-
arstarfs nemenda Myndlistarskólans
í Reykjavík verður einnig til sýnis.
Skólinn hefur rekið útibú að Korp-
úlfsstöðum í vetur. Opið verður á
Korpúlfsstöðum til kl. 17.
Gamalt hlöðuloft notað
Áslaug Thorlacius, formaður Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna,
SÍM, segir að verið sé að gera gamalt
hlöðuloft á Korpúlfsstöðum hæft til
sýningahalds, en það er 760 fermetr-
ar að flatarmáli.
„Hildur verður með einhver mál-
verk í sínum anda, striga og text-
ílverk. Guðrún Lilja ætlar að sýna
sófa, borð og fleira úr sinni hönn-
unarlínu og Magnús ætlar að vera
með myndband og hljóð,“ segir Ás-
laug. Hugmyndin hafi verið að setja
eitthvað í þennan sal, hlöðuloftið, þar
sem hann hafi staðið tómur.
Áslaug segir að til standi að búa til
hönnunarsetur á Korpúlfsstöðum þar
sem hönnuðir muni vinna saman í
hópum í samstarfi við ákveðin fyr-
irtæki. Á fyrrnefndu hlöðulofti verði á
ákveðnu svæði verkstæði fyrir hönn-
uði.
Vinnustofur SÍM í Listamannahús-
inu að Seljavegi 32, í byggingu sem
áður hýsti Landhelgisgæsluna, verða
einnig opnar á Sjónlistadaginn, milli
kl. 15 og 18. Listamannahúsið var
opnað í fyrrasumar. Þar eru 47 vinnu-
stofur myndlistarmanna og sex her-
bergja gestaíbúð.
Vinnustofur listamanna verða opn-
ar þannig að almenningur getur skoð-
að það sem listamennirnir eru að
gera.
Eldri meistarar sýna
Í sýningarsal Listamannahússins
verður opnuð sýning á verkum fjög-
urra listamanna sem hafa unnið mik-
ilvægt starf í myndlistarkennslu í
gegnum tíðina.
Þetta eru listmálararnir Bragi Ás-
geirsson, Einar Hákonarson, Haf-
steinn Austmann og Kjartan Guð-
jónsson. Kristján Davíðsson gæti
bæst í þann hóp, en það er ekki ljóst
að svo stöddu.
Áslaug segir spennandi að sýna
verk málaranna fjögurra.
„Það hefur ekki verið svo mikið
samneyti milli þeirra og okkar af
yngri kynslóðinni,“ segir Áslaug og
því skemmtilegt að þeir sýni í húsinu.
„Þeir eru með tvö til fjögur verk
hver og eru að sýna okkur stuðning
með þessu.“
Einar Hákonarson, sem er yngstur
málaranna, fagnar því að leitað hafi
verið til þeirra félaga og telur það
bera vott um vaxandi áhuga hér á
landi á málverkinu.
„Þetta er jákvæð þróun, að samtök
myndlistarmanna vilji muna eftir því
að það eru til fleiri en þeir ungu,“ seg-
ir Einar. Málverkið hafi verið út-
undan seinustu 20 ár eða svo í ís-
lenskri myndlist en það sé nú að
koma aftur.
Sjónlistadagur í Reykjavík á morgun
Hönnunar-
setur á Korp-
úlfsstöðum
Morgunblaðið/Ómar
Púðalist Örn Smári ætlar að fylla portið hjá Korpúlfsstöðum af púðum skreyttum ýmsum myndum.
Dura Hildur Inga Björnsdóttir fatahönnuður við eitt verka sinna.
Áttatíu og sjö myndlistarmenn og
hönnuðir opna vinnustofur sínar
Sýningin verður opin milli kl. 14 og
17 fimmtudaga, föstudaga og
laugardaga til loka maí.
♦♦♦