Morgunblaðið - 01.05.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2007 45
TIL STENDUR að gera Há-
skólabíó að heimavelli íslenskrar
kvikmyndagerðar, segir í tilkynn-
ingu frá Senu sem nýverið tók yfir
rekstur bíósins við Hagatorg.
Frá og með deginum í dag verð-
ur áhorfendum boðið að kaupa tvo
miða á verði eins á íslensku mynd-
irnar Kalda slóð og Mýrina.
Þessar tvær myndir eru best
sóttu íslensku bíómyndir undanfar-
inna ára en hvorki meira né minna
en 85 þúsund manns hafa séð Mýr-
ina.
Mýrin hefur verið valin í að-
alkeppni kvikmyndahátíðarinnar í
Karlovy Vary sem fram fer um
mánaðamótin júní/júlí. Hátíðin er
ein svokallaðra A-hátíða, sem
haldnar eru ár hvert, en aðrar slík-
ar hátíðir eru t.d. Kvikmyndahá-
tíðin í Berlín, Cannes-kvik-
myndahátíðin auk árlegra hátíða í
Sundance, Toronto og San Sebast-
ian.
Köld slóð var sýnd á markaðs-
sýningum á kvikmyndahátíðinni í
Berlín og þá seld til Austurríkis,
Brasilíu, Danmerkur, Finnlands,
Mexíkó, Noregs, Sviss, Svíþjóðar
og Þýskalands. Tvær sýningar fyrir
væntanlega kaupendur verða á
myndinni á kvikmyndahátíðinni í
Cannes um miðjan í maí.
Heimavöllur við
Hagatorg
Mýrin Um 85 þúsund manns hafa þegar séð hana. Köld slóð Á leið til Cannes.
COURTNEY Love, ekkja Kurts
heitins Cobain, hyggst selja meiri-
hluta eigna hans á uppboði í náinni
framtíð.
Love og Cobain gengu í hjóna-
band árið 1992 og eignuðust dótt-
urina Frances Bean sama ár. Tveim-
ur árum síðar fyrirfór Cobain sér
eins og frægt er orðið.
„Dóttir mín hefur ekkert að gera
við fulla poka af skyrtum,“ sagði
Love um málið. „Hún erfir hins-
vegar gítarana hans og textann við
„Smells Like Teen Spirit“. Allt
aukadót sem við þurfum ekki á að
halda seljum við.“
Náttföt af Kurt eru þó eitthvað
sem helst í eigu mæðgnanna en
Love segist enn sofa í náttfötunum
hans.
„Ég veit ekki hvernig ég á að
hefja annað ástarsamband á meðan
ég sef enn í náttfötunum hans Kurt.“
Love segir ákvörðunina um upp-
boð tekna í mesta bróðerni við félaga
Cobains og vini.
Cobain Ætli þessi peysa verði boð-
in upp?
Skyrtur Coba-
ins á uppboði
ÁHUGASAMIR geta á næstunni
fjárfest í bók sem inniheldur alla
texta og ljóð sem tónlistarmaðurinn
Sting hefur nokkurn tímann párað
niður á sinni 55 ára ævi.
Bókin ber hinn borðliggjandi titil
Lyrics by Sting, eða Textar eftir
Sing, og kemur hún út með haust-
inu.
Auk allra texta Sting frá sólóferli
hans og áranna með Police hefur
bókin að geyma frásagnir Sting af
hinu og þessu í kringum textana
sjálfa.
Reuters
Sting „Vei, allir textarnir mínir
komnir saman í eina bók.“
Textar eftir
Sting Debenhams í Smáralind er nýr samstarfsaðili Vildarkorts Icelandair og Visa. Frá og með 1. maí fá handhafar Vildarkorts Icelandair og
Visa, Vildarpunkta, í hvert skipti sem kortið er notað, þegar greitt er
hjá Debenhams.
TVÖFALDIR PUNKTAR Í MAÍ
Við bjóðum Debenhams velkomið í hóp samstarfsfyrirtækja okkar
í verslun og þjónustu og vekjum sérstaka athygli á að í maí fá
viðskiptavinir tvöfalda Vildarpunkta hjá Debenhams.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
73
44
0
4.
2
0
0
7
MADRID
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
REYKJAVÍK
AKUREYRI BERGEN
GAUTABORG
NÚ GETUR ÞÚ SAFNAÐ
VILDARPUNKTUM HJÁ DEBENHAMS