Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 83
þeir elstu um sjötugt og var keppendum skipt
í flokka eftir því hversu vanir dansarar þeir
eru.
Dagskráin hófst með því að Samúel Örn
Erlingsson hélt tölu og rifjaði upp þegar hann
sótti dansnám sem ungur maður. Sagði hann
ástæðuna fyrir því að hann fór að læra dans
ekki endilega gífurlegur áhugi á dansi heldur
á ungri snót sem sótti danstímana. Síðan setti
hann mótið. Byrjað var á yngstu flokkunum
en einnig voru nokkur sýningaratriði þar sem
sýndur var samkvæmisdans og línudans. Það
setti skemmtilegan svip á mótið að margar
stúlkur dönsuðu í íslenskum þjóðbúningi og
drengir í íslenska hátíðarbúningnum. Mér
fannst mótið ganga nokkuð vel fyrir sig. Út-
gefin tímatafla gerði ráð fyrir því að keppnin
ætti að hefjast kl. 14 en þar sem byrjað var að
afhenda númer heldur seint, þá hófst mótið
töluvert á eftir áætlun. Einnig gleymdist að
setja inn sýningaratriði í dagskrána þannig að
keppnin sem átti að taka eina og hálfa klukku-
stund auk verðlaunaafhendingar var tæpri
klukkustundu lengri en á útgefinni tímatöflu.
Í Vetrargarðinum eru ekki bestu aðstæður
til dansiðkunar. Dansað er á steinflísum sem
SUNNUDAGINN 22. apríl var haldið í
Vetrargarðinum í Smáralind, Íslandsmeist-
aramót í gömlu dönsunum. Þetta er í fyrsta
sinn sem dansmót er haldið þar og var þetta
skemmtileg tilbreyting frá íþróttahúsunum
sem hafa hýst dansmótin hingað til. Það var
mótanefnd Dansíþróttasambands sem hafði
veg og vanda af mótinu en fimm danskenn-
arar frá Dansráði Íslands fengu það hlutverk
að dæma mótið. Það voru þau Erla Haralds-
dóttir, Harpa Pálsdóttir, Gerður Harpa Kjart-
ansdóttir, Hólmfríður Þorvaldsdóttir og Guð-
mundur Karlsson.
Það var fyrir nokkrum árum að danskenn-
arar á Íslandi fóru að hafa áhyggjur af því að
íslensk ungmenni höfðu ekki áhuga á því að
læra gömlu dansana. Var þá brugðið á það ráð
að fara af stað með keppni í þessum dönsum
til þess að gera það spennandi fyrir unga fólk-
ið að læra dansana. Það voru 98 pör skráð til
keppni að þessu sinni, þeir yngstu 6 ára og
er kannski ekki besta gólfefnið til þess að
dansa á. Það hefði mátt skipuleggja betur
svæði fyrir áhorfendur, t.d. nýta tröppurnar
betur og hafa fleiri stóla.
Mér finnst það alveg ganga að halda svona
mót á stað eins og í Vetrargarðinum þó að að-
staða þar sé ekki sú ákjósanlegasta. Ef halda
á dansmót þar aftur í framtíðinni ættu móts-
haldarar að gefa sér meiri tíma í að skipu-
leggja umgjörðina. Það sem þó mestu skiptir
er að dansinn fái að njóta sín og tel ég að
hann hafi gert það. Ég vil að lokum óska öll-
um keppendum, hvort sem þeir voru sigur-
vegarar eða ekki, til hamingju með það að
hafa tekið þátt í keppninni. Næsta og jafn-
framt síðasta dansmót þessa keppnisárs verð-
ur haldið í Laugardalshöllinni 5. og 6. maí. Þá
verður haldið Íslandsmeistaramót í sam-
kvæmisdönsum þar sem dansað verður með
grunnaðferð auk bikarmóts fyrir keppendur
sem dansa með frjálsri aðferð. Hvet ég fólk til
þess að mæta í Höllina og sjá dansara á öllum
aldri spreyta sig á dansgólfinu. Gleðilegt sum-
ar.
Keppni í gömlu dönsunum
Dansinn stiginn Keppendur í flokki 10-11 ára barna. 98 pör voru skráð til leiks að þessu sinni.
Í þjóðbúningi Pétur Fannar Gunnarsson og Aníta Lóa Hauksdóttir Ís-
landsmeistarar í flokki barna.
Davíð Chiorlanzio og Fjóla Dögg Alfreðsdóttir
Ungur nemur, gamall temur Unglingar í flokki byrjenda. Elstu þátttakendur voru um sjötugt.
DANS
ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í DANSI
Íslandsmeistaramót í gömlu dönsunum.
Kara Arngrímsdóttir, danskennari.