Morgunblaðið - 06.05.2007, Síða 100
SUNNUDAGUR 6. MAÍ 126. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 10° C | Kaldast 2° C
Norðaustan 3–10
m/s. Léttir til sunnan-
og vestanlands. Stöku
él n- og austan. » 8
ÞETTA HELST»
Úttekt á öryggisþáttum
Farið hefur verið fram á það við
forstöðumenn sundlauga Reykjavík-
urborgar að þeir geri úttekt á örygg-
isþáttum í kjölfar hörmulegs slyss
sem varð í Sundlaug Kópavogs.
Meðal annars verður farið yfir hvort
endurnýja þurfi tækjabúnað. »2
Ókeypis forvarnaskoðun
Í gær var skrifað undir sam-
komulag á milli fulltrúa samninga-
nefnda heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra og Tannlæknafélags
Íslands um fyrirkomulag tann-
læknaþjónustu og ókeypis for-
varnaskoðun þriggja og tólf ára
barna. Tannlæknafélagið lét jafn-
framt bóka að miklu meira þurfi til
eigi að bæta almenna tannheilsu
ungmenna á landinu. »2
Geislaplötur vinsælar
Geislaplötusala jókst töluvert hér
á landi í fyrra frá árinu 2005 og seld-
um eintökum fjölgaði um meira en
hundrað þúsund á tveimur árum.
Telst þetta sérstaklega til tíðinda
þegar litið er til þess að á heimsvísu
hefur plötusala dregist saman á und-
anförnum árum. »10
Hrapaði í Kamerún
Óvíst er um afdrif 114 manns sem
um borð voru í nýlegri Boing 737-
800 þotu flugfélagsins Kenya Air-
ways sem hrapaði skömmu eftir
flugtak í Kamerún í gær. Vélin var á
leið frá Fílabeinsströndinni til Nai-
robi í Kenía. »2
Kosið í Frakklandi
Síðari umferð forsetakosninganna
í Frakklandi fer fram í dag. Sam-
kvæmt nýjustu könnunum virðist
sem Nicolas Sarkozy hafi enn aukið
forskot sitt á keppinautinn Ségolène
Royal. »6
SKOÐANIR»
Ljósvaki: ... að Kompás berji á fólki?
Til þrautar?
Forystugrein: Nýr tónn og fersk
hugsun í heilbrigðismálum
UMRÆÐAN»
Um samkeppnishæfni þjóða
ReykjavíkurAkademían 10 ára
Orgel eða ópera?
Friðun Alliance-húss fagnaðarefni
FÓLK»
Kate Moss vill eignast
barn með Pete. 92
Arnar Eggert Thor-
oddsen ræddi við
Josh Groban, sem
sagðist meðal ann-
ars vilja vinna með
Björk. 90
TÓNLIST»
Vill vinna
með Björk
KVIKMYNDIR»
Kóngulóarmanninum
leiðist slúður. 95
FÓLK»
Paris Hilton hefur verið
dæmd í fangelsi. 97
Hljómsveitin Jak-
obínarína hefur
skrifað undir samn-
ing við EMI um út-
gáfu fyrstu plötu
sveitarinnar. 94
Sömdu við
risann EMI
TÓNLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Paris Hilton í 45 daga fangelsi
2. Myndar útúrdrukkinn föður sinn
3. Breskri stúlku rænt?
4. Ellý hissa á bloggvinsældum
Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur
rsv@mbl.is
UNNIÐ er að margvíslegum rann-
sóknum á sviði nanótækni hér á
landi. Viðar Guðmundsson, prófess-
or í eðlisfræði við Háskóla Íslands,
segir möguleika nanótækni ótal
marga. Hann nefnir sem dæmi, að ef
heimurinn skipti venjulegum ljósa-
perum út fyrir ljósdíóður, með rækt-
uðum kristöllum, yrði orkusparnað-
urinn gríðarlegur.
Til marks um hversu smá við-
fangsefni nanótækninnar eru má
nefna, að menn víla ekki fyrir sér að
skoða eitt atóm í einu og jafnvel raða
saman atómum. Rannsóknarhópur
Sveins Ólafssonar, vísindamanns við
Raunvísindastofnun, hefur þróað og
smíðað nokkrar smugsjár, en svo
nefnist búnaðurinn sem þarf til þess-
ara rannsókna.
Fleiri rannsóknarhópar fást við
nanótækni hér á landi. Rannsóknar-
hópur Kristjáns Leóssonar leitar að-
ferða til að leiða ljós eftir örsmáum
rásum örgjörva, í stað rafboða og
rannsóknarhópur Snorra Þ. Ingv-
arssonar, dósents við HÍ, rannsakar
hitamyndun í örgjörvum.
Grafín nefnist eitt af töfraefnum
framtíðarinnar, að mati Viðars Guð-
mundssonar. Grafín er aðeins eitt
atómlag af kolvetni, minna en einn
nanó-metri á þykkt. Smári úr efninu
er svo lítill, að hægt er að stýra einni
rafeind í gegnum hann. Viðar segir
nanó-tæknina smám saman ryðja
sér til rúms og á hinum fjölbreytileg-
ustu sviðum. „Eðlisfræðin er rétt að
byrja og áherslusviðin alltaf að
breytast. Það er kolrangt að við
séum komin að einhverjum endi-
mörkum.“
Risastór tækifæri í
örsmárri tækni
Í HNOTSKURN
»Forskeytið „nanó“ vísar tilhluta sem eru nokkrir
nanó-metrar að stærð, en einn
nanómetri er einn milljarðasti
úr metra.
»Smugsjár gera mönnumkleift að skoða eitt atóm í
einu og jafnvel að raða þeim
saman.
Stóra | 42
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„ÞAÐ sem kom okkur mest á óvart
var að allt var eins og þegar við vor-
um í skólanum,“ segir Sigrún V. Ás-
grímsdóttir, sem heimsótti Mela-
skólann í Reykjavík ásamt
bekkjarsystkinum sínum í tilefni
þess að þau útskrifuðust frá skól-
anum fyrir 50 árum.
Krakkarnir í 12 ára C 1957 komu
saman í tilefni 40 ára afmælis Mela-
skóla 1986 og svo aftur fyrir 10 ár-
um en þeir höfðu ekki komið í skól-
ann frá því þeir luku barnaskóla-
prófi fyrr en nú. Sigrún segir að
haldið hafi verið upp á daginn og
byrjað á því að fara í skólann. Kenn-
ararnir Hróðmar Margeirsson og
Sveinn Víkingur Þórarinsson voru
með og settust nemendur í gömlu
kennslustofuna. 32 nemendur voru í
bekknum fyrir 50 árum. 25 þeirra
tóku þátt í fagnaði dagsins, sem lauk
með kvöldverði, og þar af mættu 13 í
skólann. „Ragna Ólafsdóttir skóla-
stjóri og Karen Tómasdóttir skrif-
stofustjóri tóku afskaplega vel á
móti okkur og þetta var mjög gam-
an, allir voru svo glaðir að hittast.“
Sigrún segir stórkostlegt hvað
Melaskóli sé vandaður að allri gerð.
„Það eru sömu gólfdúkarnir og
sama klæðning á veggjum. Reynt
hefur verið að halda sama litavali en
það sem er öðruvísi er að nú er mjög
mikið af munum eftir nemendur upp
um alla veggi á skólastofunni og
nemendasýningar í anddyrinu stóra
þar sem nemendur söfnuðust saman
áður en gengið var upp í stofurnar.
Þetta tíðkaðist ekki þegar við vorum
en er mjög skemmtilegt.“
12 ára C 1957 Sveinn V. Þórarinsson kennari með útskriftarbekknum fyrir hálfri öld. Sigrún er fjórða frá vinstri.
Morgunblaðið/Kristinn
50 árum síðar Nemendurnir og kennararnir rifja upp liðna tíð í skólastofunni sinni.
Allt eins í Melaskóla og fyrir hálfri öld
RAUÐHEGRI hefur verið að spóka
sig í nágrenni Elliðavatns. Það var
Hafsteinn Björgvinsson, starfs-
maður Vatnsveitunnar, sem fann
þennan sjaldgæfa fugl við Hellu-
vatn, þar sem hann hefur haldið sig
síðan og einnig hefur hann sést við
Kirkjuhólmatjörn. Hann hefur að-
eins einu sinni áður fundist hér á
landi en það var við Kópasker 5.
október 1983. Þessi rauðhegri er
fullorðinn fugl og skrautlegur, með
mikla fjaðraskúfa á hálsinum og
síðan hnakkaskúf. Fuglinn er ætt-
aður sunnan úr löndum.
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Sjaldséður gestur