Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 33
-hágæðaheimilistæki vi lb or ga @ ce nt ru m .is GJAFABRÉF Með Magimix safapressunni má töfra fram girnilega og heilsusamlega drykki með lágmarks fyrirhöfn. Verð frá kr.: 23.500 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 -www.eirvik.is Aðrir söluaðilar:Kokka, Laugavegi, Egg, Smáratorgi Villeroy&Boch, Kringlunni, Líf og list, Smáralind Maður lifandi, Borgartúni og Hæðarsmára Fyrir heilsuna Safapressa MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30. Kirkjuferð í Áskirkju 6. júní kl. 14. Kaffiveitingar í boði sóknarnefndar og kvenfélags kirkjunnar. Brottför frá Aflagranda kl. 13.30. Verð 300 kr. Allir velkomnir. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 8-16 handavinna, kl. 9- 16.30 smíði/útskurður, kl. 9 leikfimi, kl. 9.45 boccia. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leiðbein- andi verður til kl. 17. Jóga kl. 10.50. Ganga kl. 14. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl. 9.30 jóga og myndlist, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádeg- isverður, kl. 18.15 jóga. Aðstaða til að taka í spil. Kaffi og meðlæti. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línudans í Kirkjuhvoli kl. 12. Spilað í Kirkjuhvoli kl. 13. Æfing í Ásgarði kl. 13 fyrir landsmót í Boccia. Lokað í Garða- bergi. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 9 op- in vinnustofa. Kl. 10 boccia (Bergþór). Kl. 11 leikfimi (Bergþór). Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15 versl- unarferð (Bónus). Kl. 13-14 pútt (Bergþór). Kl. 14-15 kubb (Bergþór). Kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Helgistund kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar, söngstund á eftir. Blöðin liggja frammi. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverk og bóka- stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Hárgreiðslustofa s. 552-2488. Fótaaðgerðastofa s. 552-7522. Dag- blöðin liggja frammi. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9-15.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádeg- isverður. Kl. 13-16 frjáls spil. Kl. 14.30-15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Vorferð Vitatorgs verður farin fimmtudaginn 7. júní kl. 13. Farið verður um Álftanes í Heiðmörk og nágrenni. Veitingar veittar í Kríunesi við Elliðavatn, síðan keyrt um Rauðhóla og Hafravatn. Allir velkomnir óháð aldri. Uppl. í síma 411-9450. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu- og fótaaðgerð- arstofur opnar frá kl. 9, handavinnustofan opin allan daginn, félagsvist kl. 14 allir velkomnir óháð aldri. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 9 hjúkrunarfræðingur (fyrsta þriðjudag í mán.). Kl. 10 bænastund og samvera. Kl. 12 Bónusbíllinn. Kl. 16.45 bókabílinn. Kirkjustarf Áskirkja | Göngum til góðs. Kl. 10.30 göngum við inn í Laugardalinn frá Áskirkju. Við bjóðum upp á tvær mismunandi göngur (ólíkur hraði) og verður göngu- stjóri með báðum. Allir velkomnir. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 18. Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30. Beðið er fyrir bænarefnum sem berast kirkjunni sem og hverjum þeim bænarefnum sem liggja á hjörtum fólks. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Vídalínskirkja, Garðasókn | Opið hús í sumar í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, á þriðjudögum, kl. 13-16. Við spilum lomber, vist og brids. Röbbum saman og njótum samverunnar. Kaffi á könnunni. Vettvangs- ferðir mánaðarlega, auglýstar að hverju sinni. Akst- ur fyrir þá sem vilja, upplýsingasími: 895-0169. Allir velkomnir. Áskirkja. 80ára afmæli. Í dag, 5.júní, verður Geir Valdimarsson, Sandabraut 10, Akranesi, áttræður. Þau hjónin taka á móti vinum og vandamönnum laugardaginn 9. júní kl. 17 í félagsheimilinu Miðgarði. 50ára afmæli. Í dag erHelga Gunnardóttir fimmtug. Hún er búsett í Kali- forníu. Símanúmer Helgu er 001-916-485-2213. Heimilis- fang hennar er: 2308 St. Mark’s Way, Sacramento, CA 95864, USA. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569 1100, senda til- kynningu og mynd á net- fangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja lið- inn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er þriðjudagur 5. júní, 156. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Ég er Drottinn, Guð yðar, lifið eftir boðorðum mínum og haldið lög mín og breytið eftir þeim. Krabbameinsfélagið Framförstendur fyrir fyrirlestrumum áhrif mataræðis ákrabbamein í blöðruháls- kirtli og brjóstum dagana 7. og 8. júní en þar flytja erindi Jane Plant og Kristín Vala Ragnarsdóttir. Fyrri fyrirlesturinn er ætlaður almenningi og er haldinn í aðalsal Háskólabíós kl. 12. en seinni fyrirlesturinn er ætlaður starfsfólki á heilbrigðissviði og fer fram í stofu 101 í Odda kl. 10 til 12. Á fyrri fyrirlestrinum mun jafnframt Laufey Tryggvadóttir fjalla um faraldsfræði krabbameina og áform um rannsóknir. „Ástæða er til að hafa áhyggjur af notkun eiturefna í landbúnaði og smitun skaðlegra efna í jarðveg og grunnvatn,“ segir Kristín Vala. „Allt bendir til að krabbameinstilfellum hafi byrjað að fjölga um miðja síð- ustu öld og er fjölgun tilfella meiri en svo að hana megi skýra með lengri lífslíkum eða bættum grein- ingaraðferðum. Þegar leitað er að orsök aukinnar tíðni krabbameina er aukin notkun eitrandi efna af mörg- um talin líklegasti sökudólgurinn.“ Kristín Vala segir einnig þurfa að huga að þeim efnum sem notuð eru við matvinnslu og geymslu: „Rann- sakendur hafa vaxandi áhyggjur af m.a. áhrifum rotvarnarefna og bragðefna. Bendir þannig margt til að sætuefnið aspartam tengist mynd- un heilakrabbameina. Hormóna- hermandi efni úr skordýraeitri sem t.d. er að finna í matvælum og plast- umbúðum sem eru notaðar við geymslu, eru talin geta haft svipuð áhrif á frumur líkamans og horm- ónar og örvað vöxt frumna.“ Erindi Jane Plant skoðar einkum áhrif mjólkur á krabbameinsvöxt: „Reynsla Jane sjálfrar og rannsóknir hafa leitt í ljós að efni í mjólk og mjólkurvörum sem kallast vaxt- arþættir geta örvað vöxt krabba- meinsæxla,“ útskýrir Kristín Vala en segir þó ekki ástæðu til að óttast all- an mat: „Jane heldur því ekki fram að mjólk valdi krabbameinum, en vaxtarþættirnir í mjólkinni geta hins vegar örvað vöxt krabbameinfrumna eftir að þær hafa myndast. Um önn- ur matvæli gildir að gæta hófs og skynsemi. Fólk þarf ekki að hætta að borða sinn uppáhaldsmat, en gott er að hafa í huga að auka neyslu á lítið meðhöndluðum mat og nátt- úrulega ræktuðum eins og kostur er. Það er einkum ef fólk er hrjáð af heilsuleysi eða veikindum eins og gigt, síþreytu eða beinþynningu, að róttækar breytingar í mataræði geta verið nauðsynlegar.“ Heilsa | Fyrirlestrar 7. og 8. júní um skaðleg efni í matvælum Mataræði og krabbamein  Kristín Vala Ragnarsdóttir fæddist í Reykja- vík 1954. Hún lauk BS-gráðu í jarð- fræði frá HÍ 1979 og doktorsnámi frá Nortwestern University í Chi- cago 1984. Krist- ínVala hefur fengist við ráðgjaf- arstörf, rannsóknir og kennslu. Árið 1989 tók hún við kennslustöðu við Há- skólann í Bristol þar sem hún er nú prófessor í umhverfissjálfbærni. Kristín Vala á tvö börn. Mannfagnaður Múlalundur, vinnustofa SÍBS | Vífill, félag ein- staklinga með kæfisvefn. Aðalfundur 6. maí kl. 20. Dagskrá: 1. Ávarp formanns, Frímanns Sigurnýasarsonar. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Fræðsluerindi: Halla Helgadóttir, sálfræðingur. Tilgangur og uppbygging svefns. Minni og svefn. 4. Önnur mál. 5. Kaffiveitingar, 500 kr. Fjölmennið og takið með gesti. Fyrirlestrar og fundir Endurmenntun Háskóla Ís- lands | 6. júní kl. 12. „Að mörgu er að hyggja á langri leið: Ef stuðningur er vís er leiðin greið?“ er yfirskrift uppskeruhátíðar þar sem kynntar verða niðurstöður úr tólf nýjum rannsóknum meistaranema í náms- og starfsráðgjöf við HÍ. Hátíðin er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Dagskrá er að finna á www.hi.is. Hugleiðslu- og frið- armiðstöðin | Þriðjudaginn 5. júní kl. 20 flytur Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, hug- leiðslukennari, fyrirlestur er nefnist „Hugleiðsla og ham- ingja“ sem er hinn fyrsti í röð fjögurra. Fyrirlesturinn verður á Grensásvegi 8, 4. hæð, suðurgafl, og er öllum opinn. Aðgangur er ókeypis en tekið á móti framlögum. FRÉTTIR FUNDUR um vaktavinnu hjá ríki og sveitarfélögum verður haldinn í dag, þriðjudaginn 5. júní, kl. 9-11 í BSRB- húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Kynnt verður skýrsla um aðbúnað og viðhorf vaktavinnufólks, sem unnin var af Rannsóknarstofu í vinnuvernd. Fundurinn er á vegum Starfshóps fulltrúa BHM, BSRB, rík- isins, Reykjavíkurborgar og Launa- nefndar sveitarfélaga. Allir eru vel- komnir. Ræða skýrslu um vaktavinnu HÁTÍÐARHÖLD í tilefni af þjóðhá- tíðardegi Svíþjóðar verða haldin 6. júní í Norræna húsinu. Hátíð- arhöldin hefjast kl. 17.15 með því að sendiherra Svíþjóðar, Madeleine Ströje Wilkens, dregur fána Sví- þjóðar að húni og flytur ávarp. Dagskráin samanstendur m.a. af söng Hamrahlíðarkórsins, sænskri þjóðlagatónlist og barnaleikjum. Knattspyrnuleikur Svíþjóðar og Ís- lands í undankeppni Evrópumóts landsliða verður sýndur á breið- tjaldi. Sendiráð Svíþjóðar og Sænska félagið á Íslandi standa fyr- ir herlegheitunum. Þjóðhátíðardag- ur Svíþjóðar Rangt nafn undir mynd Þau mistök urðu við vinnslu viðtals við Katrínu Stellu Briem í Morg- unblaðinu á sunnudag að rangt var farið með nafn manns á mynd frá skírn Katrínar. Lengst til hægri á myndinni er Pétur Ólafsson Johnson, en milli Stellu Briem og Snæfríðar Egilson sést í Þorstein Egilson. LEIÐRÉTT HINN þriggjá ára gamli Yang Yang smellir kossi á beluga hval, sem á íslensku nefnist mjaldur, í Qingdao sædýrasafninu í Shandong héraði í austurhluta Kína á laugardaginn. Rembingskoss Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.