Morgunblaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 152. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is HILTONISMI STANSLAUST STUÐ, ALLTAF Í SVIÐSLJÓSINU EN INNIHALDIÐ SKIPTIR ENGU MÁLI >> 45 FJÖRUGT TÓNLISTAR- SUMAR AÐ BYRJA HÁTÍÐIR MENNING >> 19 FRÉTTASKÝRING Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is SAMTÖK atvinnulífsins hafa hvatt stjórnvöld til þess að taka á þeim hag- stjórnarvanda sem nú ríkir og segja þau Seðlabankann vera kominn í sjálfheldu með peningastefnu sína. Sú sjálfhelda felst í því að stýrivextir bankans, hans eina stjórntæki, hafa ekki virkað sem skyldi en þrátt fyrir það getur hann ekki hafið vaxtalækkunarferli. Til þess er undirliggj- andi verðbólga alltof há. Jafnframt hafa nær allar aukaverkanir sem notkun stýri- vaxta geta fylgt orðið að veruleika og hafa þeir í raun snúist upp í andhverfu sína og eru orðnir hluti af vandamálinu frekar en lausn. Ennfremur hafa aðgerðir stjórn- valda á síðasta kjörtímabili orðið til þess að slæva stýrivexti, t.d. þegar kynt var verulega undir eftirspurn í hagkerfinu með stóriðjuframkvæmdum og auknu aðgengi almennings að fjármagni til húsnæðis- kaupa. Stýrivextir hér á landi eru með því hæsta sem gerist í Evrópu og óumflýj- anlegt er að erlendir fjárfestar beini sjón- um hingað í leit að góðri ávöxtun til skamms tíma. Til þess að geta fjárfest í ís- lenskum skuldabréfum verða fjárfestar að eiga íslenskar krónur og þegar spurn eftir krónum eykst hækkar gengi hennar. Þá er spurningin hvað gerist þegar Seðlabankinn hefur ferli vaxtalækkana, sem gerist fyrr eða síðar. Munu erlendir fjárfestar draga fjármagn sitt héðan og selja krónurnar sínar og leita á ný mið og veldur það gengishrapi? Ljóst er að ein- hvern tíma munu einhverjir fjárfestar leita á önnur mið en þó virðist sem töluvert svigrúm sé til vaxtalækkana áður en flótti brestur á. Erfitt er þó að segja fyrir um við hvaða vaxtastig sársaukamörkin liggja en hafa ber hugfast að hinir sömu gætu leitað á aðra markaði þrátt fyrir að vextir lækki ekki neitt og jafnvel þótt vextir hækkuðu enn frekar. Allt fer það eftir þró- un vaxta á öðrum mörkuðum. Jafnvel í venjulegu árferði hafa vextir, í sögulegu samhengi, verið hærri hér en gengur og gerist annars staðar í heiminum og lítil ástæða er til að ætla að það breytist. Þess vegna munu einhverjir þeirra fjárfesta sem nú hafa tekið sér stöðu hérlendis halda þeirri stöðu þrátt fyrir að vextir lækki töluvert. Í ljósi þessa spyrja eflaust einhverjir hvort Seðlabankinn geti ekki hafið vaxta- lækkunarferli þar sem ljóst sé að vextirnir bíta ekki á verðbólguna, en þó er svo ekki. Allt snýst þetta um trúverðugleika og það er ekki gott til afspurnar að gefast upp í slíkri baráttu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í sjálfheldu Stýrivextir Seðlabankans hafa ekki bitið eins vel og þeim er ætlað. Bitsljóir stýrivextir Vaxtalækkanir ólíklegar á næstunni Eftir Andra Karl og Rúnar Pálmason SEXTUGUR öryrki, Ómar Önfjörð Kjartansson, skaðbrenndist er hann fékk yfir sig allt að 80°C heitt vatn þegar hann var í sturtu í íbúð sinni í Hátúni 10b um miðjan maí sl. Húsið er í eigu Brynju – hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands. Aðkoman var hræðileg. Heitt vatn lá yfir allri íbúðinni og náði raunar fram á gang en Ómari hafði tekist að komast af sjálfsdáðum bandalagsins ætti þegar í stað að lagfæra heitavatnskerfi í öllu sínu húsnæði. „Manni finnst hræðilegt að stofnun sem tekur að sér þá sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og vanhæfir um að bregðast rétt við skuli ekki hafa húsnæði sem er bet- ur búið. Mér finnst það bara alveg stórfurðulegt,“ sagði hann. Á öllum stofnunum, s.s. elliheim- ilum og dvalarheimilum fyrir fatl- aða, ætti að koma í veg fyrir að vatn fari yfir 55°C.| 2 barist fyrir því að hitinn á heita vatninu verði lækkaður áður en það er tekið inn á neysluvatnskerfi hí- býla, úr 80°C í 55°C. Jens sagði að hússjóður Öryrkja- upp í rúm. Alls óvíst er hversu lengi hann var undir brennheitu vatninu. Djúp annars og þriðja stigs brunasár þekja um 20% líkama Ómars og jafnast sárin á við að ungur og hraustur maður hefði brennst með sama hætti á 60% lík- amans, að mati Jens Kjartansson- ar, yfirlæknis lýta- og brunadeildar spítalans. „Hann er á batavegi en það er engan veginn víst hvort hann lifir þetta af,“ sagði Jens. Jens er meðal þeirra sem hafa Skaðbrenndist í sturtunni  Sextugur öryrki hlaut lífshættuleg brunasár  „Engan veginn víst hvort hann lifir þetta af,“ segir yfirlæknir og skellir skuldinni á tækjabúnaðinn Í HNOTSKURN » Ef vatnið í sturtunnihefði ekki verið heitara en 55°C hefði maðurinn að öllum líkindum getað sloppið við að brennast. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is DAVÍÐ Oddsson seðlabankastjóri fagnar gagnrýni Samtaka atvinnu- lífsins í garð bankans en kveður það hins vegar ekki mjög trúverð- ugt hjá samtökunum að halda því fram að vaxtastefna bankans hafi engin áhrif, um leið og þau kvarti sáran yfir því að vextirnir séu farn- ir að bíta. Þá segir hann það mjög annað en að berjast gegn því.“ Í bréfi Samtaka atvinnulífsins, sem lagt var fyrir forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar á mánudag, er farið hörðum orðum um Íbúða- lánasjóð og segir Vilhjálmur Eg- ilsson, framkvæmdastjóri samtak- anna, það ekki að ósekju. „Það voru herfileg hagstjórnarmistök að hækka lánshlutföll og upphæðir á nýjan leik í mars,“ segir Vil- hjálmur. | Miðopna ofmælt að bankinn sé fastur í víta- hring stýrivaxta, þvert á móti séu vaxtaákvarðanir bankans farnar að hafa áhrif og verðbólgan sé á niðurleið, þótt undirliggjandi verð- bólga sé enn veruleg. „Það er nú þannig að stór hluti landsmanna skuldar mjög mikið í verðtryggð- um krónum og það er gríðarlegt atriði fyrir þetta fólk að verðbólg- an fari ekki úr böndum og við höf- um ekkert leyfi til þess að gera Bankinn ekki fastur í vítahring stýrivaxta „EINHVERN tíma hefði þessi farið á grillið,“ sagði Bjarni Júlíusson, for- maður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, um leið og hann sleppti fyrsta laxi sumarsins aftur út í Norðurá í gærmorgun. Það tók Bjarna ekki nema tíu mínútur að setja í þessa níu punda hrygnu. Þrír laxar veiddust í Norðurá í gærmorgun en einn á seinni vaktinni í gær. Þórarinn Sigþórsson veiddi fyrsta laxinn í Blöndu, 11 punda hrygnu. | 6 Morgunblaðið/Einar Falur Fyrsti laxinn var níu punda hrygna ELSA Guðrún Jóns- dóttir, Íslandsmeist- ari í skíðagöngu, fékk blóðtappa í lunga í vetur vegna notkunar getn- aðarvarnarpillu. Þetta kom fram í Morgunblaðinu eftir Skíðamót Ís- lands og hún staðfestir að það var Yasmin-pillan, sem fjallað hefur ver- ið um í fréttum. Læknir sinn hafi þó ekki vitað hvaða tegund hún notaði. Elsa segist nú við góða heilsu. | 4 Elsa tók Yasmin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.