Morgunblaðið - 08.06.2007, Side 1

Morgunblaðið - 08.06.2007, Side 1
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „AUGNABLIKIÐ var langt,“ segir Helga Garðarsdóttir, skálavörður í Langadal í Þórsmörk, sem bjargaði 14 ára dreng úr Krossá í fyrradag með því að elta hann meðfram ánni á dráttarvél og keyra svo út í. Hún segir atvikið frekar óraunverulegt í minningunni. ,,Hann gat ekki fótað sig, straum- urinn tók hann. Ég komst niður fyrir hann og náði honum, en missti hann einu sinni. Þá fór hann undir traktor- inn, það var frekar svakalegt. En þá hélt ég bara áfram niður eftir. Í einni beygjunni náði ég að smeygja trakt- ornum út í þannig að strákurinn gat gripið í dekkið. Ég vissi að ef ég færi sjálf út í ána þá tæki straum- urinn mig líka. Þá fór ég út, skorðaði mig við brettið á traktornum og gat gripið í höndina á honum. Ég notaði líkamsþyngdina til að toga hann að mér svo hann gæti gripið í eitthvað, en hann var orðinn ansi þreyttur og máttlaus. Svo hélt ég honum þangað til okkur var bjarg- að,“ segir Helga, en nærstaddur bíl- stjóri kom til hjálpar, tók við pilt- inum og dró hann að landi. Pilturinn jafnaði sig fljótt að sögn Helgu, var bara með nokkrar skrám- ur eftir grjót í ánni. Hann bar sig vel síðar um kvöldið og var mjög þakk- látur fyrir björgunina. ,,Þetta fór ótrúlega vel,“ segir Helga að lokum og játar því að tilfinningin sé góð að hafa getað hjálpað til. Hún er reyndur leiðsögumaður og beinir þeim tilmælum til ferðamanna að fara varlega við straumharðar ár og vara aðra við hættum sem þeim fylgja. „Hann gat ekki fótað sig, straumurinn tók hann“ Í HNOTSKURN »Töluvert vatn var íKrossá þegar ungur pilt- ur lenti í ánni. »Fjölmennur hópur stóðhinum megin við ána og varð vitni að atvikinu. At- burðarásin tók sennilega ekki nema 3-4 mínútur. »Helga segir Íslendinga al-mennt þekkja þær hættur sem fylgja jökulám, en upp- lýsa þurfi útlendinga mun betur um þessi mál. Helga Garðarsdóttir STOFNAÐ 1913 154. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is DRENGIR DANNYS FÉLAGARNIR Í OCEAN’S 13 ERU FALLEGIR AÐ UTAN OG INNAN OG TIL Í TUSKIÐ >> 51 EKUR ÚR STRESSINU VIÐ RAUÐAVATN Í HVERAGERÐI GRETA FIÐLULEIKARI >> 24 26 79 / IG 12 Þú færð IG-veiðivörur á næstu þjónustustöð FRÉTTASKÝRING Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is LÖG um fæðingarorlof, er tóku gildi árið 2001, hafa náð því markmiði sínu að tryggja barni samvistir við báða foreldra að því er fram kemur í skýrslu Ingólfs V. Gíslasonar, um þróun fæðingar- og foreldraorlofs á Íslandi eftir lagasetninguna árið 2000. Breytingin er líklega meiri hvað feður varðar enda lögunum fyrst og fremst ætlað að hafa áhrif á möguleika þeirra til að taka sér fæðingarorlof. Áður en lögin tóku gildi áttu feður tveggja vikna rétt til fæðingarorlofs sam- kvæmt lögum um almannatrygging- ar, en orlofsrétturinn var lítið sem ekkert nýttur á þeim tíma. Lögbund- inn fæðingarorlofsréttur er nú í heild- ina níu mánuðir: Þrír mánuðir fara til móður og þrír til föður en síðustu þremur mánuðum geta foreldrar ráð- stafað sín á milli. Hlutfall karla sem nýta orlofið að hluta til eða öllu leyti nú er samkvæmt nýjustu tölum 90% og eyða feður að meðaltali 96 dögum með barni sínu, samanborið við 182 daga mæðra. Íslenskir feður eru dug- legastir allra feðra á Norðurlöndum þegar kemur að nýtingu réttarins til fæðingarorlofs og fjölda daga sem þeir eyða með börnum sínum. 85% Íslendinga telja það jákvætt að karlar nýti sér rétt sinn til fæðing- arorlofs, en hlutfall jákvæðra at- vinnurekenda er nokkuð lægra, eða 73,7%. 63% atvinnurekenda telja það mjög eða frekar erfitt fyrir karla á vinnustað að taka fæðingarorlof í allt að sex mánuði en 27% þeirra töldu erfitt fyrir konur á vinnustaðnum að taka fæðingarorlof. Svo virðist því vera sem auðveldara sé fyrir mæður að taka langt fæðingarorlof en feður. Yngri stjórnendur fyrirtækja virðast hafa jákvæðustu viðhorfin til feðraor- lofs, en þeir sem voru 50 ára og eldri voru hvað neikvæðastir í garð orlofs- ins. Þeim sem fara í fæðingarorlof hef- ur fjölgað verulega á síðustu árum. Á tímabilinu 2000 til 2005 fjölgaði or- lofsþegum úr 4.706 í 12.458. Samhliða jukust greiðslur úr fæðingarorlofs- sjóði úr 1.478 milljónum í 6.594 millj- ónir. Morgunblaðið/Kristinn Viðhorf Margir atvinnurekendur eru neikvæðir út í feðraorlof. Feðraor- lofið um- deildara Orlofsgreiðslur aukist mikið frá 2001 FARIN var fyrsta fimmtudags- kvöldganga þjóðgarðsins á Þing- völlum í gærkvöldi. Í fyrstu göngu- ferð sumarsins var konungskoman 1907 og konungsglíman, sem háð var í tilefni heimsóknarinnar, tekin fyrir. Helgi Skúli Kjartansson sagn- fræðingur rifjaði upp konungs- heimsóknina og tildrög hennar og fjallaði einnig um konungs- heimsóknina sem áfanga í sam- skiptasögu Íslands og Danmerkur og bar hana saman við aðrar stórhátíðir sem haldnar hafa verið á Þingvöllum. Jón M. Ívarsson lýsti konungs- glímunni og þeim sem tóku þátt í henni og þá sérstaklega Jóhannesi Jósefssyni glímukappa. Jóni til full- tingis voru 2 glímukappar, annars vegar Jóhannes Sveinbjörnsson, þrefaldur glímukóngur og hins veg- ar Stefán Geirsson sem varð í öðru sæti í síðustu Íslandsglímu. Þeir sýndu glímubrögð og rifjuðu upp konungsglímuna með hjálp Jóns. Morgunblaðið/Sverrir Söguleg glíma Frábær árangur Íslendinga í Mónakó ÍSLENSKA fimleikafólkið vann til þrettán verðlauna í gær á Smáþjóða- leikunum sem haldnir eru í Mónakó. Þar fór Viktor Kristmannsson fremst- ur í flokki en hann vann til fimm verð- launa og Fríða Rún Einarsdóttir fékk þrenn verðlaun. Viktor og Fríða Rún sigruðu í fjölþraut í fyrradag þar sem íslensku sveitirnar sigruðu einnig í liðakeppni. Það gekk einnig vel í sundinu þar sem Örn Arnarson setti Íslandsmet í 50 metra skriðsundi en Íslendingar unnu fimm gullverðlaun í sundkeppn- inni og sjö verðlaun alls. | Íþróttir Viktor Kristmannsson Fríða Rún Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.