Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 14

Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Í HNOTSKURN »Hlutabréfavísitölur lækk-uðu víða um heim í gær. »OMX-vísitölurnar, FTSE-og DAX- lækkuðu allar. »Ekki liggur fyrir hvortskýrsla Morgan Stanley hefur haft þar áhrif. »Spár þeirra hafa ræst íþau fimm skipti sem þeir hafa spáð lækkunum á hluta- bréfamörkuðum. HLUTABRÉF í Evrópu munu falla um 14% á næstu sex mánuðum og hugsanlega töluvert meira. Þetta kemur fram í óvenjulegri aðvörun frá fjárfestingarbankanum Morgan Stanley til fjárfesta. Í frétt í danska viðskiptablaðinu Børsen kemur fram að það sé mat Morgan Stanley að í fyrsta skipti frá árinu 2000 séu aðvörunarljós farin að blikka samtímis í tengslum við þá þrjá meginþætti er varða hlutabréfa- markaðinn og sem bankinn skoðar sérstaklega. Þetta gefur að mati bankans til kynna að þörf sé orðin á leiðréttingu á hlutabréfaverði í Evr- ópu á næsta hálfa árinu. Segir í frétt Børsen að til þessa hafi rauð ljós Morgan Stanley blikk- að í tengslum við grunnþætti hag- kerfisins í Evrópu. Það sama hafi einnig átt við um áhættusækni fjár- festa í álfunni. Nú sé hins vegar svo komið að þriðji þátturinn, sem áhrif hafi á hlutabréfaverð, sé einnig farinn að segja til sín. Þar sé um að ræða að vextir hafi hækkað hratt að undan- förnu. Þeir séu nú komnir að krítísku hámarki og því sé þriðja aðvörunar- ljósið farið að blikka. Frá því var greint í fyrradag að Seðlabanki Evrópu hefði hækkað stýrivexti sína um 0,25 prósentustig upp í 4,0%, þar sem verðbólguþrýst- ingur á evrusvæðinu hefði aukist. Haft er eftir Teun Draaisma, sér- fræðingi hjá Morgan Stanley, í frétt Børsen, að hin þrjú aðvörunarljós sem bankinn fylgist með, hafi ein- ungis fimm sinnum blikkað öll sam- tímis frá því á árinu 1980. Segir hann að í öll skiptin hafi hlutabréf að jafn- aði fallið um 15% í verði í kjölfar þess, nema árið 1987, þá hafi þau fallið um rúm 25%. Yngvi Örn Kristinsson, fram- kvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans, hafði ekki kynnt sér efni viðvörunarinnar en sagði hana ekki koma sér á óvart. Vaxtahækk- anir hefðu yfirleitt áhrif til lækkunar á hlutabréfaverði. „Það er alltaf sniðugt að segja úlf- ur, úlfur ef allt er á niðurleið og geta síðan sagt að maður hafi sagt það,“ sagði Yngvi sem taldi ólíklegt að þessi aðvörun hefði sterk áhrif á markaðinn hér heima. Markaðurinn hefði hækkað gríðarlega það sem af væri árinu og því líklegra að lækkun úrvalsvísitölunnar mætti rekja til þess að verið væri að innleysa hagn- að. Í sama streng tekur Ólafur Ísleifs- son hagfræðingur og lektor við Há- skólann í Reykjavík. „Það kemur ekki á óvart að ákveð- in viðvörunarljós blikki við aðstæður eins og eru núna en þetta er bara ein skýrsla,“ segir Ólafur. „Svona spár rætast stundum og stundum ekki. Mikill hagvöxtur víða um heim, t.d í Evrópu og Kína, mikið lausafé og lágir vextir hafa lagst á eitt við að ýta hlutabréfaverðinu upp. Ef fjárfestar víða um heim hrökkva í baklás gæti það haft áhrif hér en á móti kemur að vextir hér eru í sögulegu hámarki og því líklegra að þeir lækki á komandi tíð frekar en hitt. Þessi spá gefur hins vegar ekki tilefni til þess að það hlaupi glímuskjálfti í menn hér heima.“ Rauðar tölur sem gáfu til kynna lækkun sáust í flestum vísitölum við lokun markaða í gær. Vara við lækkunum á hluta- bréfamörkuðum í Evrópu Lítil ástæða til að óttast um íslenska markaðinn að sögn sérfræðinga Hlutabréf Verða methækkanir vísi- talna úr sögunni næstu mánuði? ÞETTA HELST ... ● HEILDARVELTA viðskipta í kaup- höll OMX á Íslandi nam rúmum 15,8 milljörðum króna í gær. Þar af var velta með hlutabréf skráð á aðallista rúmir 5,5 milljarðar. Velta með skuldabréf var tæpir 10,3 milljarðar króna. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,59% og stóð í tæpum 8.039 stigum við lokun markaðar. Eina hækkunin á hlutabréfum í gær var á bréfum Marels, sem hækkuðu um 0,47%. Mest lækkun varð á bréfum Atlantic Petroleum, 2,37%, og FL Group, 2,08%. Úrvalsvísitalan lækkar ● TRYGGVI Jóns- son hefur fest kaup á ríflega 28% hlutabréfa í Humac ehf., sem á og rekur Apple á Íslandi og á Norðurlöndunum. Félag í eigu Tryggva, Sand- erson ehf., kaupir út hluthafana F. Bergsson Holding ehf. og Hlunn ehf. Kaupverð er ekki gefið upp. Eftir við- skiptin eru Sanderson ehf., Baugur Group ehf. og Grafít ehf. með sam- tals um 87% hlutdeild í félaginu. Í fréttatilkynningu er Humac sagð- ur stærsti sölu- og dreifingaraðili Apple í Norður-Evrópu með 19 versl- anir í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á Íslandi. Velta fyrirtæk- isins árið 2006 var um sex millj- arðar króna og gert er ráð fyrir að velta þessa árs verði um níu millj- arðar króna. Tryggvi tekur sæti í stjórn félagsins en aðrir í stjórn eru Þórdís Sigurðardóttir stjórnar- formaður, Árni Pétur Jónsson og Þor- móður Jónsson. Framkvæmdastjóri Humac er Bjarni Ákason. Tryggvi Jónsson kaup- ir 28% hlut í Humac iPodinn Ein vin- sælasta vara Apple. ● SAGA Capital Fjárfestingarbanki hefur samið við Icelandair Group um að gerast viðskiptavaki með hluta- bréf félagsins í kauphöll OMX á Ís- landi, fyrir eigin reikning Saga Capi- tal. Í tilkynningu til kauphallar segir að tilgangurinn með viðskiptavakt- inni sé að efla viðskipti með hluta- bréf í Icelandair Group og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun bréfanna. Samningurinn hefur þegar tekið gildi, er ótímabundinn en upp- segjanlegur með eins mánaðar fyr- irvara. Saga með viðskipta- vakt fyrir Icelandair ● NÝ samsetning úrvalsvísitölunnar í kauphöll OMX á Íslandi verður til- kynnt eftir lokun markaða í dag. Vegvísir Lands- bankans spáir því að Alfesca og Atl- antic Petroleum komi til með að falla úr henni. Í staðinn komi þá Exista og Ice- landair inn í vísitöluna. Vegvísir bendir einnig á að bæði Actavis og Mosaic Fashions gætu fallið úr vísitölunni ef formleg yf- irtökuskylda myndast áður en búið er að tilkynna um valið. Ný úrvalsvísitala mun svo taka gildi 2. júlí. Reyndar má telja líklegt að Actavis falli út vegna yfirtöku og spáir Veg- vísir Teymi sæti þeirra. Detti Actavis út eykst vægi við- skiptabankanna þriggja auk Straums-Burðaráss og Exista í rúm 82% í stað rúmlega 75%. Exista og Icelandair inn í úrvalsvísitöluna? ÍSLAND er í mestri hættu á fjár- málakreppu ef marka má Demóklesar vísitölu fjárfestingarbankans Lehman Brothers. Vísitalan metur líkurnar á að áhrif ytri fjár- málamarkaða muni valda hruni á nýmörk- uðum. Ísland er í efsta sæti með 89 stig en Rúmenía kemur næst á eftir með 67 stig. Bent er á að Ísland sé minnsta hagkerfi heimsins með fljótandi gengi og há einkunnin komi því ekki á óvart. Áhættan hefur minnk- að undanfarið og spáir bankinn batnandi stöðu, enda sé gjaldmið- illinn ekki í hættu. Skýrsla greiningar- deildar Lehman Broth- ers segir áhættu á ný- mörkuðum aldrei hafa verið minni, meðaltalið í ár er 16 en var 30 fyrir ára- tug. Einkunnin 75 gefur til kynna þriðj- ungslíkur á fjár- málakreppu en einkunn- in 100 helmingslíkur. Ísrael fær ekkert stig á Demóklesarkvarða Lehman- bræðra og er þar með áhættu- minnsti nýmarkaðurinn þrátt fyrir óstöðugt stjórnmálaástand. Mest áhætta hér „ÞETTA er mjög stór samningur sem markar í raun tímamót fyrir EFTA. Einn svona lykilsamningur þýðir það að nálæg ríki verða að end- urskoða afstöðu sína til okkar. Samn- ingurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Ísland og við sjáum þarna mikil tækifæri á öllum sviðum viðskipta,“ segir Grétar Már Sigurðsson, ráðu- neytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, um samkomulag sem hefur verið áritað milli EFTA-ríkjanna og Kan- ada um fríverslunarsamning milli ríkjanna. Hann segir samninginn sigur fyrir samstarf ríkjanna og lík- legan til að vekja Bandaríkin til um- hugsunar varðandi fríverslunar- samning. Samningurinn verður undirritaður við fyrsta tækifæri og til að hann komi til framkvæmda þarf síðan að fullgilda hann í EFTA-ríkjunum og Kanada, segir í fréttatilkynningu. Samkomulag varð um niðurfell- ingu tolla á öllum iðnaðarvörum og ýmsum öðrum vörum sem Ísland framleiðir og flytur út. Ísland mun í staðinn veita Kanada tollfrjálsan að- gang fyrir iðnaðarvörur og sambæri- legan aðgang fyrir landbúnaðarvörur og Ísland hefur veitt Evrópusam- bandinu. Að frumkvæði Íslands er nýtt ákvæði í samningnum sem á að liðka fyrir tímabundnum aðgangi og dvöl lykilstarfsmanna fyrirtækja og starfsmanna sem vinna við þjónustu í tengslum við vöruviðskipti. Fríverslunarsamningur- inn sigur fyrir EFTA-ríkin Morgunblaðið/Árni Sæberg Halifax Væntanlega fagna Vestur-Íslendingar því að geta bráðum keypt landbúnaðarvörur á við skyr frá gamla heimalandinu í Kanada. DAVID Trads, ritstjóri Nyheds- avisen, sagð á ársþingi alþjóða- samtaka dagblaða í Suður-Afríku að blaðið væri tilbúið að verja frá 100 til 200 milljónum evra, eða 8,5 til 17 milljörðum króna, í uppbygg- ingu blaðsins til ársins 2010. Er þetta haft eftir blaðamanni breska dagblaðsins Guardian sem situr nú þingið. Forstjóri 365 Media Scandinavia, Svenn Dam, kvaðst þó ekki kannast við þessar ráðagerðir og nefndi 406 milljónir danskra króna eða 4,6 milljarða króna í samtali við Jyl- lands-Posten. Ráðamenn Nyhedsavisen hafa ákveðið að fara í þriggja vikna sumarfrí líkt og önnur fríblöð í Danmörku. Morten N. Nielsen, for- stjóri blaðsins, segir fríið ekki vera vegna sparnaðar. Blaðamenn Nyhedsavisen voru 100 við upphaf útgáfu blaðsins í fyrra en eru 80 nú. Nielsen segir hreyfingar sem þessar eðlilegar á lifandi fjölmiðli en vill ekki tjá sig um frekari mannabreytingar. Nyhedsavisen í sumarfrí                                                          ! "##        !"#$%& '( ) ! ") "$!* "& ) '+*, " &-%& '( --#.&%& '( /%& '( %)$" $&0 -$ 1 $+-$(2)34)  5'(6$ 30 -$ / 0 -$4)  & )  $! $  "&'+'&7'&8&9 :9& 0  ;'&       <$" )3%& '( =! ) $&%& '(1 ) $ 3 =! ) $!%& '( > &:$  ?+$ &?33$ 3+$8".8$  @$ )'".8$    !  )9"'&2)3'8'&) #    "  # $ 1%& $ 1+($8:  %  ! & ' (                                                                 1 $) &7 #$8-$("$ 3$  $)0 8A) - 3B 5'()  C  DE  C 7 D  C F FE D  FF CFC F D  E CD FE    E FE  CDF CF C  D D E E D  C  E DE F ECD  7  C EF D D C 7 E FF  D C 7 7 7 GE CG GED G DGE EGE FCG FCG GE DCG GE CGD G FGE G GF FG FDGC G GEC EG CG GD CG G DG DGED DG FCG FCG GF CG DG CG DG FG G G FG FDGE GE EGD G EGF FG DG @$8-$("$A-&H '+  1 I"'3' &)$"$ :.) $ #$8-$("  F 7   FF   C D DD F  CC F E 7 D  7 E F 7 7 7 3 " $ 3 #$8- # &8 D  FD D  FD   FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD D  FD   FD D  FD D  FD   FD   FD D  FD D  FD   FD F  FD   FD F  FD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.