Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÍLAR nota fæturna til að „heyra“
köll frá öðrum hjörðum en við-
brögð þeirra við köllunum eru mest
þegar þau koma frá fílum sem þeir
þekkja, að því er fram kemur í
grein í tímaritinu New Scientist.
Vitað er að fílar geta gefið frá
sér lágtíðnihljóð til að koma boðum
til fíla í nokkurra kílómetra fjar-
lægð. Rannsóknarmenn við Stan-
ford-háskóla í Bandaríkjunum
komust að því að þessi gnýr veldur
líka jarðbylgjum sem fjarlægar fíla-
hjarðir greina með fótunum. Þeir
eru svo næmir að undrum sætir.
Rannsóknarmennirnir hljóðrit-
uðu viðvörunarköll fíla í Namibíu
og Kenýa þegar ljón nálguðust.
Þeir notuðu síðan hljóðin til að
koma af stað
jarðbylgjum við
vatnslindir í
Namibíu.
„Viðbrögð fíl-
anna voru mikil,
fyrst urðu þeir
grafkyrrir og
síðan söfnuðust
þeir saman í
þétta hópa, með
yngstu fílana í
miðjunni,“ segir í greininni. Við-
brögð hjarðanna voru minni ef
hljóðrituðu köllin voru frá fjar-
lægum fílum. Því lengra sem hjarð-
irnar voru frá fílunum, sem gáfu
frá sér köllin, þeim mun minni voru
viðbrögðin.
Fílar nota fæturna til að
„heyra“ viðvörunarköll
Afríkufíll með
ofurnæma fætur.
BORGARYFIRVÖLD í Moskvu
hyggjast gera ráðstafanir til þess
að fækka erlendu farandverkafólki
í borginni.
Júrí Lúzhkov borgarstjóri sagði
að draga þyrfti úr eftirspurninni
eftir erlendu vinnuafli með því að
nýta „okkar eigið verkafólk“.
Alþjóðabankinn segir að í Rúss-
landi séu fleiri erlendir far-
andverkamenn en í nokkru öðru
landi að Bandaríkjunum und-
anskildum, að því er fram kom á
fréttavef BBC. Farandverkafólkið
vinnur oft erfiðustu, óþrifalegustu
og stundum hættulegustu verkin.
Vilja fækka erlendum farand-
verkamönnum í Moskvu
Vinnuafl Aserskur farandverka-
maður á útimarkaði í Moskvu.
SAMTÖK olíuútflutningsríkja,
OPEC, hóta nú að stöðva nýjar fjár-
festingar í olíuvinnslu ef vestræn
ríki veðji á etanól til að minnka
notkun á olíu og bensíni með það að
markmiði að draga úr útblæstri
gróðurhúsalofttegunda. Talsmenn
OPEC segja að aukin áhersla á et-
anól geti þannig valdið geysimikl-
um hækkunum á olíu vegna minna
framboðs en samtökin ráða yfir um
40% heimsframleiðslunnar. Banda-
ríkjamenn telja að aukin notkun
etanóls, sem unnið er m.a. úr maís,
muni hafa þau jákvæðu áhrif að
gera þjóðina minna háða olíu-
innflutningi en ella.
Bregðast við
etanólinu
Reuters
LÖGREGLAN í Naíróbí, höfuðborg
Kenýa, skaut tólf manns til bana í
leit að vopnum og glæpamönnum í
illræmdum sértrúarhópi, Mungiki.
Nokkrum dögum áður varð lög-
reglan 21 að bana í skotbardaga við
fylgismenn sértrúarhópsins.
Blóðbað í Naíróbí
SAKSÓKNARI við hæstarétt Chile
lagði til í gær að Alberto Fujimori,
fyrrverandi forseti Perú, yrði fram-
seldur til heimalandsins. Fujimori
hefur verið ákærður þar fyrir spill-
ingu og mannréttindabrot þegar
hann var forseti 1990-2000.
Mælt með framsali
AHMED Gheit,
utanríkis-
ráðherra
Egyptalands,
fordæmdi í gær
ummæli George
W. Bush Banda-
ríkjaforseta í að-
draganda leið-
togafundar
G8-fundarins en
hann hvatti þá til þess að pólitískir
andófsmenn víða um heim yrðu
látnir lausir úr fangelsi. Meðal
þeirra sem hann nafngreindi var
Ayman Nur, einn af leiðtogum
stjórnarandstæðinga í Egyptalandi,
en hann hefur sætt margvíslegum
ofsóknum af hálfu stjórnar Hosni
Mubaraks forseta. Gheit sagði um-
mæli Bush vera „óþolandi afskipti“
af innanlandsmálum Egypta og
blað sem styður Mubarak, kallaði
Bush „bjálfa“.
Egyptar reiðir
Bush forseta
Ayman Nour
MINNST 25 manns hafa farist af
völdum fellibyls í Persaflóaríkinu
Óman og 26 til viðbótar er saknað.
Er þetta mesti fellibylur á svæðinu í
þrjá áratugi. Flestir þeirra sem fór-
ust drukknuðu í flóðum af völdum
hellirigningar sem fylgdi bylnum.
Skæður fellibylur
Í SKÝRSLU sem skrifuð var fyrir Evrópuþingið er lagt til að bílar sem
komist hraðar en nemur 161 kílómetra á klukkustund verði bannaðir innan
Evrópusambandsins, að sögn fréttavefjar BBC. Væri þetta liður í aðgerð-
um Evrópusambandsins til þess að minnka útblástur koltvísýrings frá bif-
reiðum, en höfundur skýrslunnar, Evrópuþingmaðurinn Chris Davies, seg-
ir að þetta hraðatakmark sé 25% hærra en flest evrópsk ákvæði um
hámarkshraða. Bílar hafa á liðnum árum bæði þyngst og vélar þeirra orðið
öflugri, þó að óvíða sé það löglegt að nýta allan þennan aukalega kraft.
Kosið verður um áætlun ESB í haust.
Hraðskreiðir bílar bannaðir?
NÝ SÆNSK rannsókn gefur til
kynna að fjölgun fellibylja síðustu ár
sé ekki afleiðing hlýnunar sjávar,
heldur eðlileg þróun.
Fjölgun fellibylja undanfarin ár
hefur vakið ugg. Margir hafa talið að
þetta sé afleiðing loftlagsbreytinga,
því hitastig sjávar er nátengt mynd-
un fellibylja.
En sænskir vísindamenn telja að
skýringin liggi heldur í því að virkni
fellibylja sé bundin hringrás, og að
lægð síðustu ára hafi verið und-
antekning, og hin mikla aukning
tákni að hringrásin sé aftur að ná
eðlilegum hæðum.
Eðlilegt að fellibyljir séu tíðir
Það hefur verið nokkrum erfið-
leikum bundið fyrir vísindamenn að
kanna eðli hringrásar þeirrar sem
fellibyljir lúta, sökum þess að ekki
eru til áreiðanleg gögn um þá nema
frá árinu 1944.
En Johan Nyberg og lið hans hjá
Sænsku jarðfræðistofnuninni telja
sig hafa fundið leið til að nálgast
upplýsingar um fyrri hegðun felli-
bylja. Kóralar í Karíbahafinu bera
merki um fellibylji fortíðarinnar og
Nyberg og félagar hafa áætlað tíðni
fellibylja allt aftur til ársins 1730. Á
grundvelli þeirra gagna segja þau
líklegt að fjölgunin sé endurhvarf til
eðlilegrar tíðni.
Það er engu að síður ekki ólíklegt
að hlýnun loftlags hafi einhver áhrif
á myndun hvirfilbylja. Verkefnið
sem loftlagsfræðingar standa nú
frammi fyrir er að greina á milli þess
hvað eru eðlilegar tíðnisveiflur, og
hvað er afleiðing hækkandi hitastigs
sjávar.
Uppgötvun hinna sænsku vísinda-
manna snýr einnig að áhrifum vind-
breytingar með hæð, vindhvarfa, á
myndun fellibyljanna. Þegar felli-
bylur tekur að myndast getur hann
verið kæfður í fæðingu ef slíkur
vindur truflar hringiðuna sem skap-
ast yfir yfirborði sjávar. Rannsóknin
gefur til kynna að áhrif vindhvarfa á
tíðni fellibylja kunni að vera jafnvel
meiri en áhrif hitastigs sjávar.
Fjölgun fellibylja talin
ótengd hlýnun lofts
Reuters
Hvirfill Íbúum Karíbahafsins og suðausturríkja Bandaríkjanna stafar
hætta af fellibyljum. Hér má sjá mannskaðafellibylinn Katrínu árið 2005.
Í HNOTSKURN
» Fellibyljir myndast ekkinema hitastig sjávar nái
27°C.
» Síðustu tólf ár hefur aðmeðaltali 4,1 stórstormur
af þessum toga magnast ár-
lega.
» Á árabilinu 1971 til 1994var meðaltal árlegra
stórra fellibylja 1,5.
» Fellibyljir myndast helst íAtlantshafi, á milli Karíba-
hafsins og Vestur-Afríku.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MEIRI árangur virðist ætla að
verða af leiðtogafundi G8 í Þýska-
landi en horfur voru á í aðdraganda
fundarins. Samkomulag hefur nú
náðst um að stefna að umtalsverðri
minnkun á útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda og að samþætta áætlun
Bandaríkjanna aðgerðum Samein-
uðu þjóðanna í umhverfismálum.
Fundinum lýkur í dag.
„Við erum því staðráðin í að grípa
til öflugra og tafarlausra aðgerða
gegn loftslagsbreytingum með það í
huga að koma á jafnvægi í magni
gróðurhúsalofttegunda þannig að
það verði ekki svo mikið að mann-
legar athafnir valdi hættulegu inn-
gripi í loftslagskerfið,“ segir í drög-
um að lokayfirlýsingu fundarins.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta tókst að koma í veg fyrir til-
raunir kanslara Þýskalands, Angelu
Merkel, og annarra Evrópuleiðtoga
sem vildu setja fram ákveðin mark-
mið um tímasettar skuldbindingar
um að minnka útblástur gróðurhúsa-
lofttegunda um að minnsta kosti
helming fyrir árið 2050.
Merkel ánægð með málamiðlun
En Merkel var samt sigurreif í
gær, andstaða Bush við aðgerðir
sem hann til skamms tíma hefur talið
annaðhvort óþarfar eða jafnvel
byggðar á lélegum vísindum hefur
linast mjög. „Við náðum besta ár-
angri sem við gátum náð,“ sagði
Merkel. Hún bætti við að samkomu-
lagið myndi ryðja brautina fyrir við-
ræður sem hefjast á Balí í Indónesíu
í desember um framhald Kyoto-bók-
unarinnar gegn losun gróðurhúsa-
lofttegunda en gildistími hennar
rennur út 2010.
Eitt óvæntasta útspilið á leiðtoga-
fundinum kom í gær frá Vladímír
Pútín Rússlandsforseta. Hann lagði
til að hatrammar deilur um fyrirhug-
að gagnflaugavarnarkerfi sem
Bandaríkjamenn vilja setja upp í
Austur-Evrópu, yrði leyst með því
að gagnflaugaskjöldurinn yrði settur
upp í Aserbaídsjan við Kaspíahaf en
ekki í Póllandi og Tékklandi eins og
ætlunin er núna. Aserbaídsjan á
landamæri að Íran en meintar kjarn-
orkuvopnatilraunir Írana eru ein-
mitt helsta kveikjan að gagnflauga-
kerfinu, að sögn Bandaríkjamanna.
Pútín setti þó ýmis skilyrði, fyrst og
fremst að tekið yrði fullt tillit til
þeirra áhyggna sem Rússar hefðu af
nýjum vopnabúnaði við landamæri
þeirra, einnig að „allir hagsmunaað-
ilar“ hefðu jafnan aðgang að gagn-
flaugakerfinu og upplýsingar um
þróun þess yrðu aðgengilegar. Bush
sagði tillögu Pútíns athyglisverða og
stakk upp á því að hún yrði rædd af
sérfræðingum ríkjanna.
Féllust á málamiðlun
í loftslagsmálunum
Reuters
Átök Særður ljósmyndari leiddur á brott frá vegatálma í grennd við Heil-
igendamm í gær. Þúsundir manna héldu áfram mótmælum við fundarstað
leiðtoga G8-ríkjanna í gær og kom sums staðar til harkalegra slagsmála.
Andstaða Bush
forseta að linast