Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES Árleg MA-hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 16. júní Miðapantanir á Netinu til 13. júní - www.bautinn.muna.is - en tekið verður við greiðslu og miðar afhentir í Höllinni 15. og 16. júní kl. 13.00-17.00. Verð á hátíðina er 7.500 kr. nema fyrir eins árs stúdenta, þeir greiða 4.500 kr. Húsið verður opnað kl. 18.00. Fordrykkur frá 18:00-18:45 Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi. Miðar á dansleik verða seldir við innganginn, verð kr. 2.500. Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna. Samkvæmisklæðnaður. 25 ára júbílantar MA - stúdentar 1982 - www.ma1982.blog.is FJÖLMENNUM Á MA-HÁTÍÐ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Mótmæli Karólína Einarsdóttir og Anna Sofia Wahlstöm afhenda Hirti Zakaríassyni bæjarritara mótmæli 400 íbúa í Innri-Njarðvík. Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | Bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ hafa verið afhentir undirskriftalistar þar sem íbúar í Innri-Njarðvík hafna auglýstum til- lögum að breytingum á aðal- og deiliskipulagi Hákotstanga, Njarð- víkurbraut 43-66. Hátt í 400 manns höfðu ritað nöfn sín á listana. Mótmælin eru tvenns konar. Ann- ars vegar höfnuðu íbúarnir breyttu skipulagi og hins vegar settu þeir fram ákveðin skilyrði vegna aug- lýstra tillagna að breytingunum. Það var Hjörtur Zakaríasson bæjarritari sem tók við listunum úr höndum Karólínu Einarsdóttur og Önnu Sofiu Wahlström en þær stóðu að söfnun undirskriftanna ásamt Guð- björgu Leifsdóttur, Ingu Birnu Kristinsdóttur, Önnu Meyvants- Kervin og Söru Harðardóttur. Fjögur þrettán hæða hús Steinþór Jónsson, formaður skipulagsnefndar Reykjanesbæjar, segir engar ákvarðanir hafi verið teknar. „Við munum skoða þetta mál í heild sinni með jákvæðum hug og engar ákvarðanir verða teknar nema að vel athuguðu máli,“ sagði Stein- þór í samtali við Morgunblaðið. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar auglýsti fyrir skömmu breytingar á aðal- og deili- skipulagi Hákotstanga í Innri- Njarðvík og gafst íbúum tækifæri til að koma með athugasemdir vegna breytinganna til föstudagsins 8. júní. Íbúar í Innri-Njarðvík voru margir mjög ósáttir við auglýstar breyting- ar eins og fram kom á undirskrifta- listunum og einnig á íbúafundi sem haldinn var í hverfinu 22. maí sl. Þar voru tillögurnar kynntar, íbúar ósk- uðu eftir skýringum og þeim var gef- inn kostur á að tjá sig. Samkvæmt nýju aðal- og deili- skipulagi á Hákotstanga er gert ráð fyrir stækkun íbúasvæðis til norðurs og suðurs með fjórum 13 hæða há- hýsum, ásamt lágreistari þjónustu- byggingu með tengingu við húsin fjögur. Í rammaskipulagi Reykja- nesbæjar frá september 2003 er hins vegar gert ráð fyrir lágreistri rað- húsabyggð á tanganum og í aðal- skipulagi til ársins 2015 segir að gert sé ráð fyrir að ný byggð verði felld að þeirri byggð sem fyrir er í hverf- um og nýtingarhlutfall nýrrar byggðar verði svipað þeirri eldri. Þessi ákvæði höfðu forsprakkar undirskriftasöfnunarinnar til hlið- sjónar við mótmælin, ásamt skipu- lags- og byggingalögum. Að sögn Karólínu Einarsdóttur og Önnu Sofiu Wahlström er einkum þrennt sem aðstandendur undir- skriftalistanna vilja mótmæla og byggja höfnun sína á. Gert sé ráð fyrir aðkomu að Hákotstanga um rótgrónar íbúagötur, Njarðvíkur- braut og Tjarnargötu, sem myndi leiða til mikillar aukningar á bílaum- ferð og ógna öryggi barna á leið til og frá skóla og leiksvæðum. Þá verði sjónræn áhrif mikil þar sem bygg- ingarnar falli ekki að núverandi byggð og háhýsin standi nálægt frið- uðum byggingum og vernduðum svæðum. Þær Karólína og Anna Sofia sögðu við afhendingu undirskriftanna að þeim fyndist að íbúar hefðu mátt koma meira að breytingatillögunum. „Ég bý við Njarðvíkurbrautina og þegar ég heyrði um þessa hugmynd fékk ég algjört áfall. Mín fyrsta hugsun var að flytja burtu héðan. Svo fór ég að hugsa um hversu vænt mér þykir um staðinn og hversu gott mér þykir að búa hérna svo til að vera sátt þá verð ég að gera allt sem í mínu valdi stendur til að koma í veg fyrir þessar byggingar. Auðvitað er þetta tilfinningatengt en sjónræn áhrif og umferð vega líka stórt,“ sagði Anna Sofia. Í svipaðan streng tók Karólína en hún tók fram að hún væri alls ekki á móti háhýsum sem slíkum. Sér fynd- ist þau einfaldlega ekki eiga heima á þessum stað. „Við fjölskyldan tókum þá ákvörðun að flytja til Innri- Njarðvíkur m.a. vegna þess hversu sjarmerandi byggðin er. Ég fagna uppbyggingu en uppbygging er ekki bara upp,“ sagði Karólína. Þörf er á uppbyggingu Steinþór Jónsson, formaður skipulagsnefndar Reykjanesbæjar, sagði í samtali við blaðamann að ástæðan fyrir breyttu skipulagi væri einfaldlega sú að hugmynd að upp- byggingu Hákotstinda hefði borist inn á borð nefndarinnar. „Við feng- um inn erindi frá einkaaðila og hann kynnti þessar hugmyndir sínar. Okkur ber að taka jákvætt í öll er- indi og nefndin gerði það. Uppbygg- ingar er þörf á þessu svæði og við sáum þetta sem tækifæri til að gera svæðið smekklegt. Það hafa engar ákvarðanir verið teknar og við mun- um skoða þau mótmæli sem hafa borist og hlusta á þau. Við þurfum að sjá að hverju þau beinast og taka ákvarðanir út frá því,“ sagði Stein- þór. Ekki er ólíklegt að málið verði tekið fyrir á bæjarráðsfundi í næstu viku og rætt í bæjarstjórn 19. júní næstkomandi. „Ákvarðanir ekki teknar nema að vel athuguðu máli“ Mótmæli afhent vegna háhýsabyggðar á Hákotstanga Hákotstangi Gert er ráð fyrir fjórum 13 hæða húsum ásamt lágri þjón- ustubyggingu í hugmyndum Kristins Ragnarssonar arkitekts. Eftir Björn Björnsson Sauðárkrókur | Ungur og efnilegur harmónikkuleikari, Jón Þorsteinn Reynisson, lauk í vor framhalds- námi og er sá fyrsti sem það gerir á hnappaharmónikku. Hélt hann útskriftartónleika frá Tónlistar- skóla Skagafjarðar í Frímúr- arasalnum á Sauðárkróki. Jón Þorsteinn, sem fæddur er 1988, hóf tónlistarnám 5 ára gam- all, en sneri sér síðar alfarið að harmónikunni, og eftir eins árs nám lék hann einleik með Sinfón- íuhljómsveit Íslands á tónleikum hennar á Hofsósi. Þegar Jón Þor- steinn var 10 ára gamall tók hann þátt í hæfileikakeppni á vegum FHUR í Reykjavík og sigraði í sín- um aldurshópi, og 13 ára sigraði hann í einleikarakeppni á vegum MENOR sem haldin var á Ak- ureyri. Þá hefur Jón Þorsteinn oft komið fram meðal annars á lands- mótum harmónikkuleikara og víða um land. Fram til vors 2006 lék Jón Þorsteinn eingöngu á píanóharm- óniku, en skipti þá yfir á hnappa- harmóniku og á það hljóðfæri lauk hann fyrstur hérlendis framhalds- námi í harmónikkuleik í áfanga- kerfi tónlistarskólanna nú í vor. Jón Þorsteinn stundar jafnhliða tónlistarnámi nám í Fjölbrautaskól- anum á Sauðárkróki, á hag- fræðibraut, og býst til að ljúka þeim áfanga næsta vor. Aðspurður hvað væri framundan sagði Jón Þorsteinn að fyrst væri nú að ljúka framhaldsskólanum, áður en aðrar ákvarðanir yrðu teknar. Hann sagðist búast við að hann mundi æfa upp fleiri verk, reyna að halda tónleika og sjá svo til. Sagði hann að óneitanlega væri freistandi að hugsa til framhalds- náms í tónlist í Þýskalandi eða Finnlandi, en Rússarnir væru góðir líka. Sveinn Sigurbjörnsson, skóla- stjóri Tónlistarskólans, sagðist sannanlega vona að Jón Þorsteinn léti hér ekki staðar numið, því hér væri á ferð einstaklega hæfi- leikaríkur hljóðfæraleikari, og sagði hann Jón Þorstein sérstakt einleikaraefni. Benti Sveinn á að einstakt væri hversu mikilli færni Jón Þorsteinn hefði náð á hnappa- harmónikkuna á aðeins einu ári. Fjöldamargir vinir og aðstand- endur hins unga listamanns, ásamt harmónikkuunnendum víða að, skipuðu þéttsetinn sal Frímúr- arahússins, og var Jóni Þorsteini vel fagnað að loknum tónleikum. Kennarar Jóns Þorsteins eru Stefán R. Gíslason á píanó og harmónikku frá upphafi og Thom- as R. Higgerson sem kennt hefur honum bóklegar greinar. Morgunblaðið/Björn Björnsson Áfangi Stefán R. Gíslason, kennari Jóns, Jón Þorsteinn Reynisson og Sveinn Sigurbjörnsson, skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar. Freistandi að fara í framhald á nikku Landsveit | Minnisvarði hefur verið reistur á Leirubakka á Landi um Guðna Jónsson magister. Þar ólst Guðni upp og kynntist Íslendinga- sögum, Eddukvæðum og öðrum ís- lenskum fræðum er lögðu grunn að áhuga hans á þessu efni og þar með ævistarfi hans. Guðni var hinn eini úr hópi 16 systkina sem gekk menntaveginn og þakkaði hann það uppeldi meðal vandalausra á menn- ingarheimili á Leirubakka. Guðni var einn áhrifamesti og mikilvirkasti sagnfræðingur og út- gefandi íslenskra fræða á 20. öldinni og vann meðal annars það þrekvirki að gefa út Íslendingasögurnar, Sturlungu, Biskupasögur, Ridd- arasögur, Fornaldarsögur Norð- urlanda og Eddu, sem voru til á þorra íslenskra heimila á 20. öldinni. Einnig var Guðni stórtækur í söfnun og útgáfu á þjóðsögum og hvers kyns þjóðlegum fróðleik. Minnisvarðann gerði Helgi Gísla- son myndhöggvari. Heklusetrið á Leirubakka hafði forgöngu um verkið, og markar það upphaf að rekstri fræðaseturs þar. Minnisvarðinn var afhjúpaður að viðstöddu fjölmenni á fyrsta degi þriggja daga ráðstefnu Félags þjóð- fræðinga og Sagnfræðingafélagsins á Leirubakka. Meðal fyrirlestra á ráðstefnunni var yfirlitserindi um líf og starf dr. Guðna, sem Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, flutti. Afhjúpun Nokkrir afkomenda dr. Guðna Jónssonar við minnisvarðann. Minnisvarði reistur um Guðna Jónsson LANDIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.