Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 28

Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 28
matur 28 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Þetta er nýstárlegur mat-arklúbbur, sem á að kennafólki að matreiða rétti fráöllum heimshornum. Áhersla verður lögð á girnilegar uppskriftir og skýrar leiðbeiningar og því ættu matreiðslubækurnar að nýtast vel, bæði byrjendum sem og reynslumeiri matargerðarmönnum,“ segir Rut Helgadóttir, ritstjóri mat- arklúbbsins „Lærum að elda“ sem Vaka-Helgafell hefur nýverið hleypt af stokkunum. Í hverjum mánuði fá félagar senda innbundna matreiðslubók, sem eingöngu er fáanleg í klúbbn- um. Nú þegar eru komnar út fjórar bækur. Í fyrstu bókinni er kennt að elda taílenska rétti. Önnur bókin hefur að geyma ítalska matreiðslu. Sú þriðja fjallar um heilsusamlega rétti hvaðanæva að úr heiminum, sú fjórða lýtur að mexíkóskri mat- reiðslu og farið er alla leið til Ind- lands í þeirri fimmtu. Auk þess er fjallað um matarmenningu og þau hráefni, sem einkennandi eru fyrir þá matreiðslu, sem fjallað er um hverju sinni. Næstu bækur munu hafa að geyma brauðrétti, japanska og kínverska matargerð. Hverri bók er skipt upp í tíu kafla eða tíu svokallaðar kennslustundir, sem þyngjast eftir því sem nær dregur lokakaflanum, sem unnin er af gestakokkum frá viðkomandi löndum. Bókin kostar 1.790 kr. Til að bjóða bragðlaukunum í heimsreisu fékk Daglegt líf leyfi til birtingar á nokkrum uppskriftum úr nýju bókunum. Jógúrtís með ástaraldini (fyrir fjóra) 4 dósir lífræn mangójógúrt 1-2 tsk. hunang 2 eggjahvítur 3 ástaraldin 1 ástaraldin til skrauts Þeytið saman jógúrtina og hun- angið og setjið í frostþolna skál eða form. Frystið í 2-3 klukkustundir. Stífþeytið eggjahvíturnar. Takið jógúrtblönduna úr frysti, setjið í skál og hrærið í ískrapinu þar til blandan er slétt og eins og þykkur rjómaís. Bætið eggjahvítunum í jóg- úrtísinn. Skerið 3 ástaraldin í tvennt og skafið kjötið innan úr þeim og bætið út í ísinn. Frystið fram að framreiðslu, berið fram í glösum og skreytið með kjötinu úr einu ást- araldini. Steiktar taílenskar núðlur (fyrir fjóra) 400 g hrísgrjónanúðlur 2-4 hvítlauksrif 3-4 vorlaukar 1 dl ristaðar jarðhnetur 5-6 msk. olía 1 stórt egg 4 msk. sítrónusafi 3 msk. fiskisósa 1 tsk. sykur 200-250 g rækjur, einnig má nota svína- eða kjúklingakjöt ½-1 tsk. chili-duft 1 dl baunaspírur Til skrauts: 1 grein fersk kóríanderlauf nokkrir sítrónubátar Byrjið á því að leggja núðlurnar í vatn í 20 mín. Látið síðan vatnið renna vel af núðlunum í sigti. Setjið til hliðar. Fínsaxið hvítlaukinn og leggið til hliðar. Skerið vorlaukinn í bita og setjið til hliðar. Grófsaxið jarðhneturnar og leggið til hliðar. Ef kjöt er notað í staðinn fyrir rækjurn- ar, steikið kjötið á pönnu, skerið í bita og leggið til hliðar. Hitið olíu á wok-pönnu eða venju- legri steikingarpönnu. Steikið hvít- laukinn þar til hann verður gullinn. Brjótið eggið yfir pönnunni og blandið saman við hvítlaukinn. Hrærið strax og eldið í nokkrar sek- úndur. Setjið núðlurnar saman við. Hrærið vel svo núðlurnar, hvítlauk- urinn og eggið blandist vel saman. Setjið út á pönnuna sítrónusafa, fiskisósu, sykur, vorlauk, chili-duft og helminginn af hnetum, bauna- spírum og rækjum (eða kjöti). Hrærið rækilega í á meðan hráefnin fara hvert á fætur öðru út á pönn- una. Setjið núðluréttinn á fat. Dreif- ið restinni af hnetum, rækjum og baunaspírum yfir. Saxið kóríander- laufin gróft. Skreytið réttinn með þeim og sítrónubátum. Apríkósukjúklingur (fyrir fjóra) 4 meðalstórar kjúklingabringur safi úr hálfri sítrónu ½ tsk. cayenne-pipar 3 tsk. garam masala-kryddblanda 2 msk. rifin engiferrót 3 hvítlauksrif 100 g þurrkaðar apríkósur 2 msk. olía salt og pipar eftir smekk 2 laukar 1 dós (400 g) niðursoðnir tómatar 1-2 msk. hrásykur eða hunang 2 msk. hvítvínsedik 2 msk. möndluflögur Þerrið kjúklingabringurnar og setjið þær í skál. Rífið engiferrótina, pressið hvítlaukinn og kreistið saf- ann úr sítrónunni. Blandið þessu saman og bætið cayenne-pipar og garam masala út í. Dreifið krydd- blöndunni yfir bringurnar. Látið standa í kæli í 2-3 tíma. Leggið aprí- kósurnar í bleyti í 1-2 tíma. Ristið möndluflögurnar á þurri pönnu og setjið til hliðar. Takið bringurnar úr kæli og kryddið með salti og pipar. Hitið olíuna á pönnu og snöggsteikið bringurnar við frekar mikinn hita í 5 mín. Lækkið hitann, takið bring- urnar af pönnunni og leggið á fat. Skerið laukinn frekar smátt og látið hann krauma á pönnunni þar til hann mýkist. Setjið bringurnar aftur á pönnuna og hellið tómötunum yfir ásamt safanum. Ef tómatarnir eru heilir er gott að grófsaxa þá áður en þeir eru notaðir. Látið suðuna koma upp, bætið hrásykrinum og edikinu út í og sjóðið við meðalhita í 12-15 mín. Hellið vatninu af apríkósunum og bætið þeim út í. Sjóðið áfram í 10- 12 mín. Dreifið ristuðu möndlunum yfir réttinn þegar hann er borinn fram með hrísgrjónum og t.d. naan- brauði. Fiski-taco með kaldri lím- ónusósu og kryddlauk (fyrir sex) Kryddlögur fyrir fiskinn: lúkufylli af kóríander 5 dl ab-mjólk eða súrmjólk 2 tsk. sterk piparsósa, t.d. tabasco 1 tsk. gróft salt 1 msk. límónusafi Annað: 1 kg ýsa eða þorskur 2 tsk. gróft salt 300 g hveiti ½ dl matarolía til steikingar 12-18 hveititortillur Saxið kóríander smátt. Blandið saman í stórri skál ab-mjólk, pip- arsósu, salti og límónusafa ásamt kóríander. Skerið fiskinn í litla munnbita og bætið út í skálina. Hrærið vel í svo kryddlögurinn þeki alla fiskbitana. Setjið plastfilmu yfir og geymið í kæli í eina klukkustund. Blandið hveiti og salti saman. Takið fiskinn upp úr kryddleginum og dýf- ið í hveitið. Þekið vel. Hitið ofninn í 150°C. Pakkið tortil- lunum í álpappír. Setjið í ofninn í smástund eða þar til þær eru volgar. Hitið olíuna á pönnu. Steikið fiskinn þar til hann er gullinn að lit. Þerrið með eldhúspappír. Geymið í ofni á lágum hita þar til allur fiskur hefur verið steiktur. Berið fram fiskinn og tortillurnar með kaldri límónusósu og kryddlegnum lauk. Köld límónusósa 1 tsk. límónubörkur safi úr 1 límónu 1 dl majónes 1 dl sýrður rjómi salt Rífið límónubörk fínt niður Kreistið safa úr límónunni og hrærið vel saman við allt sem á að fara í sósuna. Saltið eftir smekk. Geymið í kæli. Kryddleginn chili-laukur 1 rauðlaukur 5 stk. jalapeno-pipar eða annar grænn chili-pipar 2,5 dl edik með kryddbragði, t.d. estragon safi úr 2 límónum 1 msk. gróft salt. Afhýðið lauk og skerið í tvennt. Skerið helmingana í þykkar sneiðar og setjið í eldfast mót. Bætið heilum jalapeno-pipar út í. Setjið edik ásamt límónusafa og salti í pott. Lát- ið suðuna koma upp og látið malla þar til saltið er uppleyst. Hellið yfir laukblönduna og látið standa við stofuhita í a.m.k. eina klukkustund. Mexíkóskt Fiski-taco með kaldri límónusósu og kryddlegnum lauk. Indverskt Apríkósukjúklingur. Hollmeti Jógúrtís með ástaraldini. Bragðlaukunum boðið í heimsreisu Taílenskt Steiktar núðlur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.