Morgunblaðið - 08.06.2007, Síða 29
meistaramatur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 29
RAGNAR Ómarsson matreiðslu-
meistari eldar þessa vikuna á vef-
varpi mbl.is rauðsprettu og kartöflu-
og sveppagratín.
Hitið sveppaostinn og mjólkina í
örbylgjunni þar til hann bráðnar.
Steikið laukinn og sveppina ásamt
hvítlauknum í smá olíu á pönnu þar til
að laukurinn er orðin mjúkur, og hell-
ið svepparjómanum út á ásamt stein-
seljunni. Smakkið til með salti og pip-
ar (ekki gleyma því að kartöflur þurfa
frekar mikla kryddun). Hellið þessu í
eldfast mót, stráið rifna ostinum yfir
og bakið í 200°C heitum ofni í um 20
mínútur eða þar til osturinn er farinn
að brúnast aðeins.
Ofnbakaðar spergil-
og Camenbert-fylltar
rauðspretturúllur
800 g rauðspretta, flökuð, roðflett
og beinhreinsuð. Biðjið fisksalann
um að sjá um þessa vinnu fyrir
ykkur.
8 ferskir sperglar (einnig má nota
spergla úr dós ef erfitt er að fá þá
ferska)
8 sneiðar Camenbert (ca. 250 g)
1 msk. sítrónusafi
1 hvítlauksrif, saxað gróft
1/3 laukur, saxaður gróft
Stilkur af estragon, eða annað gott
krydd eins og timian, rósmarín
eða dill
1 dl hvítvín (má sleppa,
en þá þarf vatn í staðinn)
salt og pipar
Byrjið á því að sjóða spergilinn í
söltu vatni í um 2 mínútur. Setjið
hann síðan í kalt vatn og þerrið loks á
pappír. Leggið rauðsprettuna á bretti
með roðhliðina upp (samt er ekkert
roð) og sláið létt á flakið þannig að
það fletjist aðeins út. Stráið salti og
pipar yfir, setjið einn spergil ásamt
einni sneið af Camenbert ofan á flakið
og rúllið upp í snyrtilega rúllu. Legg-
ið rúllurnar í eldfast mót og hellið
hvítvíninu eða vatninu yfir ásamt
hvítlauknum, lauknum, sítrónusaf-
anum og kryddstilkunum. Saltið og
piprið rúllurnar og setjið álpappír yf-
ir formið. Bakið í 200°C heitum ofni í
um 20 mínútur, eða þangað til fisk-
urinn er orðinn eldaður. Það fer eftir
ofninum hversu langan tíma þarf til
að elda fiskinn.
Kartöflu- og sveppagratín
400 g kartöflur (soðnar, skrældar og
sneiddar gróft)
200 g ferskir sveppir (fínt sneiddir),
hægt er að nota hvaða uppáhalds-
sveppi sem er
½ laukur (fínt saxaður)
1 hvítlauksgeiri (fínt saxaður)
150 g léttsmurostur með
villisveppum
2 dl mjólk
2 msk. steinselja (söxuð,
má sleppa)
salt og pipar
50 g rifinn ostur (einhver góður
eftir smekk)
Freistandi Ofnbakaðar spergil- og camenbertfylltar rauðspretturúllur.
Ljúffengt Kartöflu- og sveppagratín
Ofnbökuð
fiskmáltíð
mbl.is/folk
,
Kringlunni,
sími 533 4533
Smáralind,
sími 554 3960
Tax-free-bomba
Fríhafnarverð
fimmtudag til sunnudags
Fríhafnarverð á öllum vörum
í verslunum okkar þessa helgi
Verið velkomin
Fréttir í
tölvupósti