Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 35

Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 35 ✝ Sesselja Zop-honíasdóttir fæddist á Merk- isteini við Eyr- arbakka 3. desem- ber 1930. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 31. maí síðastliðinn. For- eldrar Sesselju voru Zophonías Jónsson, f. 12.3. 1897 frá Bakka í Svarf- aðardal, d. 2.12. 1984, og Anna Theo- dórsdóttir, f. 29.4. 1899 frá Botni í Grýtubakkahreppi, d. 18.2. 1987. Systkini Sesselju eru: Jón Sig- tryggur, f. 15.9. 1925, d. 16.10. 2005, Sigurlaug Svanhildur, f. 4.10. 1929, og Kristinn Björgvin, f. 4.12. 1936. Hinn 22. janúar 1966 giftist Sess- elja Ólafi Þ. Jónssyni sjómanni frá Hafnarfirði, f. 3.10. 1927, d. 14.3 1992. Foreldrar Ólafs voru: Jón Sumarliðason frá Bolungarvík, f. 28.6. 1896, og Guðrún Ólafsdóttir frá Þórisstöðum í Grímsnesi, f. 15.11. 1900. Börn Sesselju og Ólafs eru: 1) Hafsteinn, f. 11.2. 1952, Odberg, f. 17.1. 1964, eru: Jakob Alf, f. 6.6. 1994, og Anný Björk, f. 26.12. 1996. Margrét Elín á soninn Óskar Má, f. 30.3. 1998. 4) Theodór, f. 3.8. 1965, kvæntur Huldu Snorra- dóttur, f. 10.11. 1965. Börn þeirra eru: Snorri Rafn, f. 26.11. 1994, og Vigdís Ólöf, f. 14.3. 1997. Sesselja fluttist til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum árið 1932 og bjó á Óðinsgötu 14a. Hún fluttist til Hafnarfjarðar árið 1950 og bjó fyrst á Melabraut 7 en lengst af á Brekkugötu 14. Síðustu árin bjó hún á Fjarðargötu 17. Sesselja stundaði nám í Héraðsskólanum á Laugum í Þingeyjarsýslu veturinn 1947-1948. Veturinn á eftir stund- aði hún nám í Húsmæðraskólanum á Laugum. Ásamt því að sinna hús- móðurstörfum vann hún ýmis störf, m.a. við fiskvinnslu hjá Íshúsi Hafnarfjarðar og Norðurstjörn- unni, þrif hjá Bæjarfógeta Hafn- arfjarðar og sem forstöðukona í þvottahúsi Sólvangs. Sesselja var virk í félagsstörfum og sinnti m.a. stjórnarstörfum hjá slysavarna- deildinni Hraunprýði. Útför Sesselju verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. kvæntur Þóru Braga- dóttur, f. 18.9. 1953. Börn þeirra eru: Hrafnhildur Ýr, f. 22.7. 1975, gift Frið- riki Árnasyni, f. 6.4. 1977. Börn þeirra: a) Sindri, f. 1.8. 2000, b) Logi, f. 2.9. 2006. Brynhildur Sesselja, f. 22.3. 1977, gift Árna Klemens Magn- ússyni. Börn þeirra: a) Steingrímur Magn- ús, f. 13.12. 1995, b) Þórarinn Halldór, f. 25.7. 1998. Hanna Lísa, f. 1.1. 1988, unnusti Sigurður Jens Sigurðsson, og Jónas Bragi, f. 19.5. 1990. 2) Jón, f. 11.2. 1954, kvæntur Þórhildi Sig- urjónsdóttur, f. 30.5. 1955. Börn þeirra eru: Sigurjón Marteinn, f. 26.8. 1970, Berglind Mjöll, f. 1.2. 1976, gift Óskari Sigurðssyni, f. 4.11. 1972. Börn þeirra: a) Eyþór Orri, f. 21.7. 1997, b) Hjördís Anna, f. 14.12. 2003, og Ólafur Már, f. 19.3. 1985, unnusta Sólrún Drop- laug Hafþórsdóttir, f. 26.6. 1985. 3) Örn, f. 22.2. 1964, í sambúð með Margréti Elínu Egilsdóttur, f. 29.4. 1977. Börn Arnar og Ann-Helen Hún móðir mín, Sesselja, var okk- ur bræðrunum góð fyrirmynd, sú besta sem hægt er að hugsa sér. Mannkostir hennar og virðing fyrir öðru fólki einstök, dugnaðarforkur til allrar vinnu á heimili sem og utan þess. Hún var ákveðin og vildi stjórna en án þess að gera á hlut annarra. Hún stjórnaði fimm karlmönnum með sinni einstöku ró og glaðværð. Það var engin lognmolla við mat- arborðið á Brekkugötunni eða þar sem hann Óli Summ og strákarnir hennar Lellu voru. Því þurfti með lagni að hafa góða stjórn. Mínar fyrstu minningar um mömmu er við áttum heima í Rauðu myllunni eru hve glöð hún var alltaf. Pabbi var alltaf á sjónum og við sáum hann oft ekki svo vikum skipti. Það má því segja að við eldri bræð- urnir hefðum lítið af honum að segja fyrr en hann fór að vinna hjá ÍSAL árið 1974. Sem sjómannskona þurfti mamma að sjá um öll innkaup til heimilisins, fjármál, viðhald á húseignum, eltast við að ná inn aurunum hans pabba, sem oft þurfti í þá daga að toga út úr útgerðinni, og vinna úti svo endar næðu saman. Nokkur ár vann mamma hjá Íshúsi Hafnarfjarðar. Þar vann samhentur hópur og góður og hafði hún mikla ánægju af að fara í Íshússferðalögin. Þegar yngri bræðurnir fæddust og tveir táningar að vaxa úr grasi var allt sprungið í Myllunni. Mamma fór þá og fjárfesti í nýju húsi undir Hamrinum í hjarta Hafnarfjarðar, Brekkugötu 14. Þau lögðu mikið á sig til að eignast það hús. Pabbi fór á síld á mb. Auðun og mamma vann í Norð- urstjörnunni og skúraði hjá Bæjar- fógetaembættinu í Hafnarfirði þar sem hún eignaðist frábæran vinnu- félaga og vin, hana Jóhönnu hans Hössa. Eftir nokkurra ára strit fór hagur þeirra að vænkast og móður minni fannst kominn tími til að fjárfesta í bíl handa pabba, Fiat 145 special, og gátu þau þá leyft sér að fara með yngri strákana í útilegur og veiði- túra. Sjómannsblóðið í karli föður mín- um var sterkt. Hann fjárfesti í bát, nýjum plastara frá Finnlandi sem fékk nafnið Haukur og er enn í eigu fjölskyldunnar. Stóð mamma vel við bakið á pabba í því eins og öðru. Út- gerðin gekk vel og gátu þau nú leyft sér að fara í utanlandsferðir, þá sér- staklega mamma, því honum Óla Summ þótti best að vera að stússast við höfnina eða niðri á Kænu. Er sýslótímabilið rann sitt skeið fór mamma að vinna í þvottahúsinu á Sólvangi. Þar eignaðist hún eins og annars staðar góðar vinkonur. Henni var treyst fyrir ábyrgðarstöðu, að leiða vinnuna í þvottahúsinu, og leysti hún það verkefni vel af hendi. Er pabbi greindist með alvarlegan sjúkdóm hlúði mamma vel að honum í ein fimm ár, þar til hann lést 14. mars 1992. Það var stór ákvörðun og erfið hjá mömmu að selja á Brekkugötunni þar sem þau höfðu átt sín bestu ár saman. En móðir mín var vön að taka ákvarðanir og fjárfesti hún í íbúð í miðbænum, við Fjarðargötu 17, og líkaði vel enda búin að vera með ann- an fótinn í miðbænum í hálfa öld. Mamma ákvað að vinna til sjötugs þrátt fyrir að vera farin að finna fyrir heilsuleysi. Hún kvartaði aldrei því gleðin yfir að vera til var alltaf yf- irsterkari, fara á Slysófundi, í saumó, Hraunsel, út að borða með vinkonum sínum og að kíkja í búðir með Sillu systur eða heimsækja ættingjana en frændræknin var einn af hennar mörgu kostum. Með kveðju og þökk fyrir allt, Jón Ólafsson (Nonni). Lífshlaupi merkrar og mikilhæfr- ar konu er lokið. Við kveðjum elsku- lega móður, tengdamóður og ömmu, Sesselju Zophoníasdóttur. Okkur langar að minnast hennar með nokkrum fátæklegum orðum. Það er okkur ómetanlegt veganesti í lífinu að hafa fengið að njóta leiðsagnar hennar. Hún var okkur svo kær. Mamma var kjarnakona og passaði vel upp á sína. Fjársjóður hennar voru synirnir fjórir og fjölskyldur þeirra. Hún var iðulega tilbúin til að láta sínar þarfir víkja til að geta létt undir með sínu fólki. Hún hélt fjöl- skyldunni saman og alltaf var nota- legt að hittast hjá henni, spjalla yfir kaffi og fá fréttir af öðrum í fjölskyld- unni. Hún hélt fast í hefðir fram á síð- asta dag, t.d. var hún alltaf með sjó- manndagskaffi og jólaboð svo eitthvað sé nefnt. Mamma sýndi ávallt mikinn áhuga á því sem fjölskyldan var að gera og vildi fá að taka þátt í lífi okkar bæði í gleði og sorg. Það var yfirleitt enginn stoltari en hún á tónleikum hjá barnabörnunum eða þegar henni voru sýndar einkunnir barnanna. Hvað þá núna í janúar þegar við hjónin útskrifuðumst þá lét hún sig ekki muna um að koma og taka þátt í gleðinni með okkur nýkomin heim af spítala. Sú spurning kom upp hér á heimilinu hver ætti að koma á tón- leika fyrst amma væri dáin. En við vitum að amma heldur áfram að fylgjast með okkur og hlusta eftir fögrum tónum. Það voru þung skref fyrir mömmu að fara í hjartaaðgerðina núna 16. maí. Í raun var hún aldrei alveg ákveðin í að fara í aðgerðina. Hún hafði beyg í hjarta um að hún myndi ekki lifa aðgerðina af sem síðan varð raunin en hún barðist hetjulega eins og hennar var von og vísa. Hún bjó svo um hnútana eins og hún vissi að hún myndi ekki koma heim aftur. Það er sárt að geta ekki fylgt mömmu aftur heim af spítalanum í nýmálaða og hreina íbúðina. Söknuð- urinn er mikill en sárindin mest. Hana langaði svo mikið til þess að lifa lengur því mikið var fram undan í fjölskyldunni. Nafnan að gifta sig í júní og í haust bætast nýir fjölskyldu- meðlimir í hennar stóra hóp, eitt barnabarn og tvö langömmubörn. Minningin um frábæra móður og ömmu sem var okkur mikil og góð fyrirmynd mun lifa alla tíð. Hún sýndi okkur hversu mikilvægt og yndislegt það væri að vera umvafin hlýju og ástúð. Með sárum söknuði kveðjum við þessa góðu hetju og biðjum góðan Guð að varðveita sálu hennar. Minn- inguna geymum við í hjörtum okkar. Theodór, Hulda, Snorri Rafn og Vigdís Ólöf. Það er sárt að kveðja þig kæra mamma mín. Til þín hef ég alltaf get- að leitað hvort sem sjórinn hefur ver- ið lygn eða úfinn. Kærleikur og ást þín var takmarkalaus. Orð úr Spá- manninum eiga vel við þig: „Að gefa af eigum sínum er lítil gjöf. Hin sanna gjöf er að gefa af sjálfum sér.“ Fjölskyldan og vinir hafa sannarlega notið gjafa frá þér hvort sem þær hafa verið í formi ástar, kossa eða veraldlegra hluta. Það verður erfitt að geta ekki komið til þín, slegið á þráðinn til að ræða um daginn og veginn eða til að fá góð ráð úr visku- brunni þínum. Kæra mamma, ég veit samt að þú hefur með visku þinni og kærleik gefið okkur sem næst þér standa ómetanlegar undirstöður til að takast á við lífið. Ég veit líka að það hefur verið tekið vel á móti þér þar sem þú ert núna og við sjáumst við næstu krossgötur. Örn. Hún elsku amma Lella er dáin. Það er erfitt að trúa þessari stað- reynd jafnvel þó að við hefðum vitað að heilsa hennar væri farin að bila. Það var erfitt fyrir 76 ára gamla konu að taka þá ákvörðun hvort hún ætti að þiggja að fara í stóra hjarta- aðgerð og vona að það gæfi henni ein- hver ár í viðbót með fjölskyldu og vinum eða láta almættið ákveða sinn dvalartíma hér á jörð. Það var ekki hennar stíll að sitja heima og láta sér leiðast og ekki átti það við hana að geta ekki farið í göngutúra, ferðalög og heimsóknir til barnabarnanna ef þau áttu heima á þriðju hæð í blokk og engin lyfta. Hún valdi það að fara í aðgerð og sýndi enn og aftur hversu mikill kar- akter hún var. Hún var lifandi og áhugasöm um svo margt og hafði svo gaman af því að vera til. Hún naut þess að fara í Hraunsel með vinkonum sínum og hitta þar hresst og skemmtilegt fólk eins og hún sagði enda átti hún marga og góða vini. En fjölskyldan var henni allt. Hún var svo stolt af strákunum sínum, svo ánægð með tengdadætur sínar og elskaði barna- börnin og barnabarnabörnin sín meira en orð fá lýst. Þau fengu alltaf að heyra hvað þau væru dugleg og góð. Aldrei aðfinnslur. Hún sá alltaf það besta í fari hvers og eins. Hjá Lellu voru jólaboð, 1. maí kaffi, sjómannadagskaffi, 17. júní kaffi og allir mættu. Síðastliðin jól var hún með sitt ár- lega jólaboð, næstum öll fjölskyldan, u.þ.b. tuttugu og fimm manns og eng- an grunaði að hún væri eins veik og hún var orðin. Það vita allir sem hafa haft fyrir þeim fjölda í mat að það er ekki gert án fyrirhafnar. Ég vil þakka fyrir að hafa átt hana Lellu fyrir tengdamömmu og bið Guð að geyma hana og varðveita. Þórhildur Sigurjónsdóttir (Dódó). Það verður skrítið að koma í Fjörðinn og engin Lella amma á Fjarðargötunni. Amma var svo góð og skemmtileg, örugglega besta amma í heimi, hún tók alltaf á móti okkur með stóru fallegu brosi, gaf okkur stóran, stóran knús og spurði hvort við værum ekki svöng. Hún vildi líka vita hvort við hefðum það ekki gott því amma vildi að öllum liði vel. Amma vildi líka fá að vita hvernig okkur gekk í íþróttum og skólanum og hún hrósaði okkur alltaf því hún vissi að þá myndum við verða ánægð. Ef allir hugsuðu svona vel hver um annan þá væri heimurinn ennþá betri staður. Við söknum þín mikið elsku amma okkar en við vitum að þú hefur það gott þar sem þú ert núna hjá öll- um hinum fallegu englunum. Takk fyrir allt, elsku besta amma Lella. Anný Björk og Jakob Alf. Í dag kveð ég móðursystur mína, hana Lellu eins og hún var alltaf köll- uð. Ég er svo lánsöm að Lella frænka mín hafði mótandi áhrif á mig í bernsku og er ég þakklát fyrir það. Þegar ég lít til baka leita minning- arnar á hugann. Mín fyrsta minning tengist Lellu. Ég var tæplega þriggja ára og sat í hlýjum faðmi hennar í græna svefnsófanum og hún huggaði mig og gaf mér rautt konuveski. Símanúmerið sem ég lagði fyrst á minnið og hringdi í var til hennar og ég man enn hvað ég var glöð þegar hún svaraði. Fyrstu ferðina mína alein í strætó fór ég til hennar í Hafn- arfjörðinn og hún stóð á svölunum í gulu blokkinni á Holtinu og veifaði mér. Þessar ferðir urðu síðan marg- ar, því til Lellu var ég alltaf velkomin. Minningarnar um Lellu eru allar fallegar, bjartar og hlýjar, því þannig manneskja var hún. Seinna á lífsleið- inni áttum við góðar stundir og ræddum oft um menn og málefni. Lella hafði ákveðnar skoðanir og var óhrædd við að láta þær í ljós. Það var ekki hennar háttur að hafa óþarflega mörg orð um hlutina eða flækja mál- in, en þess í stað átti hún til að hækka róminn eins og henni einni var lagið til að leggja áherslu á sitt mál. Hún var talsmaður réttlætis og jafnaðar eins og hún átti kyn til. Lella var skemmtileg og góð og mér leið alltaf vel þegar hún var nálæg. Takk fyrir allt elsku frænka, þín er sárt saknað. Hvíl þú í friði. María Gunnarsdóttir. Það var alltaf sól í Hafnarfirði í gamla daga. Það fannst alltént okkur systkinunum sem bjuggum og ól- umst upp í Kópavoginum fyrir hart- nær fimm áratugum. Lækurinn þeirra var líka svo miklu fallegri en lækurinn okkar í Kópavogi. Svo áttu þeir líka sundhöll í þá daga sem við Kópavogsbörn nutum við nám og leik. Blár strætisvagn ók á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar þessi ár, með viðkomu í Kópavogi, og var nefndur „Hafnarfjarðarstrætó“. Ekki voru það einungis frændurn- ir, gula blokkin og sundhöllin sem drógu okkur systkinin til Hafnar- fjarðar, því einstaklega kært var og mikill samgangur alla tíð á milli þeirra systra Sillu móður okkar og Lellu, enda aðeins eitt ár sem skildi þær að í aldri. Áttu þær kærar minn- ingar um uppvöxt sinn og uppruna sem þær ræktuðu á aðdáunarfullan hátt gagnvart öllum sínum nánustu. Hér nutu allir góðs af, hvort sem um var að ræða foreldra þeirra sem nú eru gengin til feðra sinna fyrir all- mörgum árum eða okkur systkinin sem tengdumst Lellu móðursystur sterkum böndum strax frá barn- æsku. Óli var sjómaður og einkenndist sambúð þeirra Lellu af þeim tíðar- anda sem var allsráðandi er þau hófu búskap og fjölskyldan ung. Vinna og brauðstrit og þess á milli góð tíð með blóm í haga. Ekki er laust við að í minningunni sé örlítill ævintýraljómi yfir ógnar- stóru fallegu dúkkunni sem Óli keypti handa Lellu sinni í einni sigl- ingunni og sat ávallt keik í stórum „tjull“kjól á vel uppbúnu hjónarúmi þeirra. Dúkkan kom í staðinn fyrir stelpuna, sögðu þau hjónin alsæl við okkur fjórar systurnar, þegar tveir synir voru þeim fæddir til viðbótar og þau flutt úr gulu blokkinni í fallega húsið undir hamrinum að Brekku- götu 14. Ekki þarf að fara mörgum orðum í eftirmælum um elskulega móður- systur okkar. Þvílík mannkostakona er sjaldgæf, það eitt er víst, og heim- urinn okkar væri betri ef fleiri væru eins og hún. Söknuður móður okkar er mikill enda undu þær systur sér vel saman, ekki síst hin síðari ár. Þær voru duglegar að finna sér eitt og annað til dægrastyttingar. Lella var með eindæmum mikil félagsvera og hafði yndi af söng, tónlist og hann- yrðum og ekki síst var hún sannkall- að náttúrubarn, enda hafði hún á unga aldri verið í sveit á sumrum og allt sem þjóðlegt var heillaði hana. Hún var jafnframt ómælt stolt af af- komendum sínum og veitti þeim af elsku sinni svo eftir var tekið. Við kveðjum með söknuði kæra frænku og okkur finnst vel við hæfi að minnast hennar með ljóði eftir mágkonu hennar, Heiði Gestsdóttur, en hún er eftirlifandi ekkja elsta bróður þeirra systkina, Jóns Zóp- haníassonar, sem lést fyrir tveimur árum. Blessuð sé einnig minning hans. Undir fjalli dúnmjúkur dýjamosi í dalverpi unir sér. Hlustar á hjalið í læknum sem hljóðlega framhjá fer. Til himins sig tindurinn teygir í tign með sinn drifhvíta skjöld Í lotningu höfuð sitt hneigir himbriminn þetta kvöld. Systkinin úr Hrauntungunni. Okkur í saumaklúbbnum langar að minnast hennar Sesselju sem við kölluðum ávallt Lellu nú þegar hún hefur haldið í ferðina sem við munum öll fara að lokum. Við höfum haldið saman nú í nær hálfa öld og alltaf fylgst hver með annarri. Við vorum í upphafi átta en nú hafa fjórar haldið á braut. Í byrjun maí var klúbbur hjá Lellu á hennar fallega heimili þar sem yngsti sonur hennar sá um veitingar fyrir mömmu sína og þær voru ekki af verri endanum og stjanaði hann við okkur kellurnar. Lella var afar myndarleg húsmóðir og dugleg kona. Eins og nærri má geta var mikið tal- að um börnin okkar og kom þá greinilega í ljós hvað allir synir henn- ar voru henni kærir og seinna tengdadæturnar og barnabörnin og barnabarnabörnin og öll sýndu þau henni sömu hlýjuna. Lella var mjög lífsglöð og naut þess að ferðast og fór margar ferðir utan með Óla sínum og eftir að hann lést með systur sinni og vinkonum. Hún var alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt. Nú þegar Lella hefur kvatt verður hennar sárt saknað. Við sendum sonum hennar og tengda- dætrum og öllum hennar ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim blessunar. Saumaklúbburinn, María, Hanna, Erla og Hafdís. Sesselja Zophoníasdóttir  Fleiri minningargreinar um Sess- elju Zophoníasdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.