Morgunblaðið - 08.06.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 41
✝ Einar Sigur-vinsson flug-
vélstjóri fæddist í
Ólafsvík 6. júlí
1927. Hann lést á
hjartadeild Land-
spítalans 31. maí
síðastliðinn. For-
eldrar Einars voru
hjónin Sigurvin
Einarsson, alþing-
ismaður og kenn-
ari, f. 30. október
1899, d. 23. mars
1989, og Jörína
Guðríður Jóns-
dóttir kennari, f. 30. september
1900, d. 4. september 2001 Systk-
ini Einas eru: Rafn (látinn), Sig-
urður Jón (látinn), Ólafur, Elín,
Björg og Kolfinna.
Einar kvæntist 1. febrúar 1953
Sigrúnu Jónu Lárusdóttur sjúkra-
liða, f. á Akureyri 16. apríl 1929.
Hún er dóttir hjónanna Lárusar
Hinrikssonar bifreiðastjóra og
Guðnýjar Hjálmarsdóttur verka-
konu. Börn og afkomendur Ein-
ars og Sigrúnar eru: 1) Lárus raf-
magnsverkfræðingur, f. 7. janúar
1953, Börn hans og k.h. Sólveigar
Þórhallsdóttur hjúkrunarfræð-
23. júní 1968. Langafabarn Ein-
ars er Aron Daði Valdimarsson, f.
2006.
Einar lauk prófi frá Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann stundaði
svo flugvirkjanám við Spartan
School and Aeronautics í Tulsa í
Oklahoma í Bandaríkjunum 1946-
1947 og sótti síðan námskeið í
viðhaldi Link-blindflugsþjálfunar-
tækja. Hann var flugvirki hjá
Flugfélagi Íslands 1947-1950, var
síðan við síldarleitarflug frá
Höfðavatni í Skagafirði og Kefla-
víkurflugvelli. Einar vann við
skurðgröft hjá Vélasjóði ríkisins
og stundaði síðan búskap í þrjú ár
á Saurbæ á Rauðasandi.
Einar var flugvirki hjá hjá
Flugfélagi Íslands 1957-1967,
flugvirki í hjálparflugi í Biafra á
vegum Flughjálpar 1969 og flug-
vélstjóri hjá Flugfélaginu og síð-
ar Flugleiðum 1967-88. Hann
starfaði hjá viðhaldsdeild Flug-
leiða á Keflavíkurflugvelli 1988-
1995. Einar var formaður Flug-
virkjafélags Íslands í tvö ár og
formaður lífeyrisdeildar félagsins
í þrjú ár. Hann stundaði sund-
knattleik með KR á sínum yngri
árum og var í Lionshreyfingunni
í Kópavogi áður fyrr.
Útför Einars verður gerð frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
ings eru Elísabet
Björney, f. 1978, Ein-
ar Þór, f. 1982, Elín
Mjöll, f. 1984, Lárus
Ingi, f. 1987, Sigrún,
f. 1990, og Þórhall-
ur, f. 1993. 2) Sig-
urvin flugstjóri, f.
15. febrúar 1954.
Börn hans og k.h.
Kristínar Reimars-
dóttur skrifstofu-
manns eru Daði, f. 7.
október 1974, d. 20.
febrúar 1989, Erna,
f. 1980, í sambúð
með Valdimar Valssyni, og Einar,
f. 1992. 3) Magnús Geir, kennari í
Svíþjóð. Börn hans og k.h. Frið-
bjargar Einarsdóttur sjúkraliða
eru Margrét Lilja, f. 1977, Einar
Víðir, f. 1983, og Hlynur, f. 1988.
4) Kristján Einar, ljósmyndari og
nemi, f. 29. apríl 1958. Synir hans
og Ruthar Melsteð lyfjatæknis
eru Hjalti, f. 1982, og Bjarki, f.
1992. 5) Auður hjúkrunarfræð-
ingur, f. 3. nóvember 1963. Dætur
hennar og Gunnars Þórs Grétars-
sonar vélamanns eru Sigrún
Arna, f. 1985, og Íris Huld, f.
1989. 6) Arnar verslunarmaður, f.
Elsku pabbi minn.
Nú hefur þú kvatt þennan heim
og enn trúi ég því ekki alveg að þú
sért farinn frá okkur. Ég sakna þín
sárt en veit að nú líður þér vel.
Ótal minningar streyma fram í
hugann og rifjast upp á stundum
sem þessum Ég naut nú ákveðinna
forréttinda að vera eina stelpan í
hópnum og allt gerðir þú fyrir mig.
Það var sama hvað ég bað þig um,
þú varst alltaf reiðubúinn. Ég og
stelpurnar mínar, Sigrún Arna og
Íris Huld, erum búnar núna síðustu
daga að vera að rifja upp ótal atvik
og minningar sem við eigum um
stundir með þér og höfum hlegið
mikið á meðan, vegna þess að það
voru svo skemmtilegar stundir og
væri of langt mál að fara að telja
það allt upp hér en ég veit að við
eigum eftir að tala oft um þessar
stundir.
Nú síðustu ár fylgdist þú vel með
því sem ég var að gera, hrósaðir
mér og hvattir mig áfram og varst
alltaf ánægður fyrir mína hönd. Á
morgun erum við þrjú í fjölskyld-
unni sem erum að ljúka ákveðnum
áfanga, þá hefðir þú nú átt að vera
á staðnum og fagna með okkur, en
svona geta hlutirnir breyst fljótt.
En við vitum það að þú verður
samt með okkur og stoltur af okkur
öllum.
Elsku mamma, megi góður guð
gefa þér styrk í sorginni. Þið pabbi
hafið verið lífsförunautar í rúmlega
hálfa öld og því eru viðbrigði þín og
tómleiki mikill núna.
Elsku pabbi. Síðustu ár hafa ekki
alltaf verið þér auðveld, heilsu
þinnar vegna. Oft hefur þú orðið al-
varlega veikur og komið okkur öll-
um á óvart með því að ná þér af
veikindum þínum. Enn og aftur
gastu komið okkur öllum á óvart og
nú var það með því að kveðja svona
snöggt þegar við áttum ekki von á
að það mundi gerast. Ég trúi að nú
líði þér vel og það hafi verið vel
tekið á móti þér á þeim stað sem þú
ert á núna. Ég er þakklát fyrir að
hafa fengið að vera hjá þér þegar
yfir lauk. Það var gott að geta setið
hjá þér og talað við þig og ég veit
að þú heyrðir allt sem ég sagði við
þig.
Takk elsku pabbi fyrir að hafa
alltaf verið til staðar með styrka
hönd fyrir mig og stelpurnar mín-
ar.
Ég sakna þín ótrúlega mikið,
minningarnar um ánægjulegar
stundir með þér munu lifa og ylja
okkur um ókomin ár.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Guð blessi þig, elsku pabbi minn.
Þín dóttir
Auður.
Nú þegar Einsi bróðir er farinn
hringir enginn lengur og segir
„Bútsý mín“ en þetta nafn gaf hann
mér, litlu systur, þegar hann var
úti í Ameríku við flugvirkjanám.
Hann kallaði mig aldrei annað og
enginn annar kallaði mig það.
Af sjö börnum foreldra okkar,
Jörínu Jónsdóttur og Sigurvins
Einarssonar, erum við fjögur eftir,
Óli og við systurnar þrjár. Ekki
ætla ég að rekja æviferil Einsa, það
læt ég aðra um. Mig langar aðeins
að þakka honum samfylgd í 63 ár.
Alltaf jafn sætur með svo fallegt
bros sem náði til augnanna, já svo
breitt bros að augun hurfu. Hann
hló líka á sérstakan máta, hristist
allur en heyrðist ekkert hljóð.
Ógleymanlega smitandi hlátur.
Einsi var lánsamur í einkalífinu,
átti frábæra og skemmtilega eig-
inkonu sem studdi hann með ráðum
og dáð í meðlæti og mótlæti. Þau
áttu líka barnaláni að fagna, eign-
uðust fimm syni og eina dóttur.
Elsku Einsi minn, nú er loks
margra ára baráttu lokið, mörg
áföll en alltaf reistu upp – nema
núna – og aðeins mánuður í áttræð-
isafmælið þitt. Það er gott fyrir
sjúka og þreytta að fá hvíld.
Elsku Sirra, börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn, við
Sverrir og dætur okkar biðjum
góðan Guð að blessa ykkur öll og
styrkja.
Blessuð sé minning Einars Sig-
urvinssonar.
Dísa systir, „Bútsý“
Kolfinna.
Einar Sigurvinsson
Samúðar og
útfaraskreytingar
Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300
Hafnarfirði
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
HENNING FREDERIKSEN
skipstjóri,
Stjörnusteinum 12,
Stokkseyri,
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugar-
daginn 9. júní kl. 14.00.
Ingibjörg Jónasdóttir,
Jónas Henningsson, Katrín Jónsdóttir,
Vilhelm Henningsson, Anna Kristín Ingvarsdóttir
og barnabörn.
✝
Okkar elskulega, eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og systir,
ANNA M. VILHJÁLMSDÓTTIR,
Vallengi 4,
áður til heimilis í Lyngholti 15,
Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11-E, 27. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sveinn Sæmundsson,
Sigríður Gísladóttir,
Júlíana Sveinsdóttir, Jón Jóhannesson,
Vilhjálmur Sveinsson, Hulda Fríða Berndsen,
Sveinn Daði Einarsson,
Berglind Anna Einarsdóttir,
Ísak Vilhjálmsson,
Svanlaug Vilhjálmsdóttir.
✝
Okkar ástkæri,
SIGFÚS STEFÁNSSON,
Dalsgerði 7e,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 5. júní.
Áslaug Þorleifsdóttir,
Gunnhildur Hilmarsdóttir, Guðbjörn Jónsson,
Gylfi Hilmarsson, María Ýr Donaire,
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
EINAR SIGURVINSSON
flugvélstjóri,
Vogatungu 65,
Kópavogi,
sem lést þann 31. maí verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju í dag, föstudaginn 8. júní, og hefst
athöfnin kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjartaheill, landsamband hjartasjúklinga.
Fyrir hönd aðstandenda
Sigrún J. Lárusdóttir.
✝
EIRÍKUR JÚLÍUSSON,
Kirkjubraut 12,
Höfn í Hornafirði,
lést miðvikudaginn 6. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðný Sigrún Eiríksdóttir,
Magnús Ástvald Eiríksson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HALLDÓRA GÍSLADÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 3. júní.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn
12. júní kl. 13.00.
Bragi Benediktsson, Kristín Eiríksdóttir,
Gísli Benediktsson, Erna Kristín Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
GUÐRÚN RÓSA SIGURÐARDÓTTIR
frá Hælavík,
Löngubrekku 47,
Kópavogi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
fimmtudaginn 31. maí, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju mánudaginn 11. júní kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Sunnuhlíðar.
Fyrir hönd aðstandenda:
Karl Hjartarson , Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir,
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir,
Lilja Hjartardóttir,
Sigrún Hjartardóttir
Guðmundur Hjartarson, Þórhalla Jónsdóttir,
Stefanía Hjartardóttir, Helgi Hrafnsson,
Gunnhildur Hjartardóttir,
Ingibjörg Hjartardóttir,
Skarphéðinn Þór Hjartarson, Guðrún Sigríður Loftsdóttir,
Fríða Á. Sigurðardóttir, Gunnar Ásgeirsson,
Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað verður í dag föstudaginn 8. júní vegna útfarar ELÍNAR
SIGURÐARDÓTTUR.
Vörubretti ehf.,
Óseyrarbraut 6, Hafnarfirði.