Morgunblaðið - 08.06.2007, Side 50
Ekki er hægt að segja
að hún sé góð fyrir-
mynd í holdafari, grindhoruð
með gervibrjóst… 56
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
„AUGLÝSINGALEIKSTJÓR-
INN Ivan Zacharias var staddur hér
á landi fyrir um það bil ári. Okkur
grunar að þá hafi hann uppgötvað
okkur,“ segir Magnús Leifur úr
hljómsveitinni Úlpu. Nefndur Zach-
arias er einn þeirra leikstjóra sem
gera munu auglýsingu fyrir herferð-
ina Staying Alive, AIDS awareness
campaign, á vegum sjónvarpsstöðv-
arinnar MTV. Leikstjórinn óskaði
sérstaklega eftir því að nota tónlist
Úlpu í verkefninu, og valdi lagið
„Yeah, That’s Right“, af nýjustu
plötu hljómsveitarinnar, Attempted
Flight by Winged Men.Nefndur
leikstjóri, Ivan Zacharias, er senni-
lega ekki maður sem sést daglega á
slúðursíðum íslenskra dagblaða.
Engu að síður er hann einn virtasti
auglýsingaleikstjóri í heimi. Þetta er
því sérdeilis prýðileg kynning fyrir
Úlpu, enda verður herferðinni sjón-
varpað á heimsvísu. Lag Úlpuliða er
því í góðum höndum.
Ný plata
Úlpumenn eru með ýmis járn í
eldinum þessa dagana. Áðurnefnd
plata Úlpu, Attempted Flight by
Winged Men, kom nýverið út á veg-
um þýska útgáfufyrirtækisins Nor-
dic Notes í Þýskalandi, Austurríki
og Sviss. Þá undirbúa þeir upptökur
að nýrri hljóðversplötu.
„Við erum búnir að vera að semja
og eigum fullt af hugmyndum,“ segir
Magnús Leifur. „Þetta verður
„Úlpu-plata“, það er allavega ljóst,
en ef ég á að lýsa henni eitthvað nán-
ar, þá held ég að hún verði meira
„upp-beat“, og hugsanlega harðari
en fyrri plötur.“
Rökkurlopi
Útgáfa nýju plötunnar er fyr-
irhuguð síðar á þessu ári. Áhuga-
samir geta þó lagt leið sína inn á
Kaffi Hljómalind laugardaginn 16.
júní næstkomandi, en þar munu þeir
Magnús Leifur og Bjarni Guðmann,
Úlpufélagar, leika í senn nýtt efni og
gamalt. Magnús og Bjarni munu
mæta til leiks vopnaðir kassagít-
urum og spila lög sín í berstrípuðum
útgáfum.
„Hljómsveitin hefur áður leikið
órafmagnaðar útgáfur af lögum okk-
ar, en við höfum aldrei áður verið
bara tveir. Það verður gaman að
prófa það,“ segir Magnús. Tónleik-
arnir eru hluti af tónlistarhátíðinni
Rökkurlopa, en hún verður haldin
14.-17. júní, og leggur áherslu á ró-
lega og þægilega stemningu.
Úlpa gerir víðreist
Morgunblaðið/Eyþór
Úlpulegir Magnús Leifur og Bjarni Guðmann, Úlpufélagar, troða upp órafmagnað á Kaffi Hljómalind, laugardaginn 16. júní næstkomandi
Lag sveitarinnar notað í alþjóðlegri auglýsingaherferð á vegum MTV
Merki leikanna kom fyrir almenn-
ingssjónir síðastliðinn mánudag og
þykir mörgum það herfilegt. Unnið
var út frá ártalinu 2012 við gerð
merkisins og hafa 50.000 manns sett
nafn sitt á beiðni á Netinu, þegar
þetta er skrifað, þess efnis að búið
verði til nýtt merki.
Breytingum háð
Talsmaður skipuleggjenda sagði í
samtali við BBC í fyrradag að merk-
ið væri breytingum háð og myndi
þróast næstu fimm árin, þ.e. fram að
leikunum. „Merkið verður að vera
nýmóðins, djarft, sveigjanlegt og
eiga jafn vel við í dag og eftir fimm
ár,“ sagði talsmaðurinn. „Merkið
verður að ná til unga fólksins.“ Það
hefur það gert í einhverjum til-
fellum, t.d. þykir 17 ára æskulýðs-
fulltrúa í Waltham Forest í austur-
hluta Lundúna, Ashley Mitchell,
merkið táknrænt fyrir borgina.
„Það er mikil myndlíking fyrir mér
hvernig merkið breytir um lit,“
sagði Mithcell í samtali við BBC.
Borgin sé síbreytileg og alltaf lífleg.
Sebastian Coe, formaður stjórnar
ÓL 2012, svipti hulunni af merkinu
og er sáttur við það, segir ekkert
merki þeirrar gerðar að allir séu
sáttir við það og að það muni á end-
anum verða sátt um það. Merkið
hannaði Wolff Olins-auglýs-
ingastofan og kostaði hönnunin
400.000 pund, tæpar 50 milljónir
króna.
SKIPULEGGJENDUR Ólympíu-
leikanna sem haldnir verða í Lund-
únum 2012 hafa sætt harðri gagn-
rýni seinustu daga vegna merkis
leikanna og auglýsingar, þar sem
svo mikið gengur á að fjöldi floga-
veikra fékk kast við að horfa á það.
Sérstakt próf var gert í kjölfarið á
auglýsingunni, próf sem sker úr um
hvort hún er meinlaus flogaveikum
og kolféll hún á því og hefur verið
tekin úr umferð.
Ken Livingstone, borgarstjóri
Lundúna, segir það „hörmuleg mis-
tök“ að slítk myndband hafi verið
sýnt í sjónvarpi. Þá hafa þingmenn
margir hverjir lagt það til í neðri
málstofu breska þingsins að hönnun
merkisins verði endurskoðuð.
Umdeilt ólympíumerki og blikkandi
auglýsing sem olli flogaköstum
Associated Press
Ósáttur Ken Livingstone, borg-
arstjóri Lundúnaborgar.
Reuters
Gagnrýnt Menn eru ekki á einni
skoðun um merki ÓL 2012.
Myndir Ragnars seljast
eins og heitar lummur
Ljósmyndagalleríið Fótógrafí
við Skólavörðustíg hefur farið vel
af stað. Að sögn Ara Sigvaldason-
ar, framkvæmdastjóra og eiganda,
hafa um 1.000 manns heimsótt
galleríið á þeim tæpu þremur vik-
um sem liðnar eru frá opnun. Þá
hafa átta af tólf myndum á sýn-
ingu Ragnars Axelssonar í gall-
eríinu selst, en hver mynd kostar
90.000 krónur. Það er því ljóst að
þeir sem vilja verða sér úti um
mynd á sýningunni þurfa að hafa
snör handtök áður en allar mynd-
irnar klárast.
Dansleikur með breska plötu-
snúðnum Desyn Masiello sem vera
átti fyrir 16 ára og eldri þann 16.
júní á NASA hefur verið blásinn af. Í
tilkynningu frá Flex Music sem stóð
að tónleikunum segir: „Vegna af-
skipta yfirvalda og foreldrafélaga
varðandi dansleikinn [...] hefur okk-
ur verið fyrirskipað að hætta við við-
burðinn.“ Eftir sem áður spilar Mas-
iello á Akureyri 15. júní og fyrir 20
ára og eldri á NASA þann 16. júní.
Hætt við dansleik fyrir
16 ára og eldri
Sala pakkaferða á G!-tónlist-
arhátíðina, sem haldin verður í
Færeyjum 19.-21. júlí, er hafin á
vefsíðunni www.greengate.fo. Há-
tíðin er sú stærsta og fjölbreyttasta
sinnar tegundar í Færeyjum og er
haldin á ströndinni í Götu. Dr.
Spock og Pétur Ben verða þar með-
al flytjenda.
Pakkaferðir í boði á G!-
hátíðina í Færeyjum