Morgunblaðið - 08.06.2007, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 08.06.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 51 Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali Kleifakór - Kóp. Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is Hóll fasteignasala kynnir; í einkasölu, glæsilegt, tveggja hæða einbýli við Kleifakór í Kópavogi, með frábæru útsýni. Um er að ræða 282,8 fermetra einbýlishús, þar af bílskúr 35,8 fm. Eignin skilast rúmlega fok- held að innan og fullbúin að utan sjá nánar skilalýsingu. Einstök eign á þessum frábæra stað í kórahverfinu. Verð 58,0 milljónir. tákn um traust Nánari upplýsingar og skilalýsing á www.holl.is Sölumaður Stefán Bjarni, 694 4388 OPIÐ HÚS sunnudaginn 10. júní FRUMSÝNING» Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Þó svo að aðalsmerki kvik-myndahátíðarinnar í Can-nes eigi að vera óháð kvik-myndagerð sem og alþjóðleg varð allt vitlaust þar í borg þegar fjölmennt lið aðalleikara Ocean’s 13 mætti á svæðið með þá Matt Damon, Ceorge Clooney og Brad Pitt í broddi fylkingar. Blaðamannafundurinn að sýningu lokinni var sá mest sótti á hátíðinni í ár og ekki komust allir að sem vildu. Geðshræringaróp ungmeyja skáru í eyru þegar hersingin mætti á stað- inn og myndavélablossar blinduðu augun. Fundinn sátu leikararnir George Clooney, Matt Damon, Brad Pitt, Don Cheadle, Andy Garcia, Scott Caan, Elliott Gould, Shaobo Qin, Eddie Jemison og Ellen Barkin ásamt leikstjóranum Steven Soder- bergh og framleiðandanum Jerry Weintraub. Pitt með sítt hár á ný Myndin er keimlík númer 11 og 12. Drengirnir hans Dannys Oceans eru mættir til leiks til í tuskið. Pitt og Clooney klára setningar hvor annars íklæddir afar smart jakkafötum. Pitt er símaulandi eitt- hvert góðgæti og Matt Damon reyn- ir að styrkja stöðu sína innan klík- unnar góðu. Þess á milli talar Shaobo Qin kínversku svo allir skilja og flestir skipta þeir um gervi oftar en einu sinni og oftar en tvisv- ar. Pitt skartar meira að segja síðu hári í einu atriðinu og fór maður ósjálfrátt aftur í tímann þegar Pitt var að festa sig í sessi sem eitt mesta kyntákn síðustu aldar með faxið flaksandi í allar áttir. Rán myndarinnar er persónulegs eðlis. Einn klíkumeðlima leggst í rúmið vegna fólskulegra svika sól- brúns hóteleiganda (Als Pacinos). Félagarnir leggja á ráðin til að hefna fyrir óréttlætið og hafa að vanda ráð undir rifi hverju. Grín er ekkert grín Sem fyrr sagði var talsvert skrif- að um stöðu svokallaðra „Holly- wood-mynda“ á kvikmyndahátíð- inni. Hvort hátíðin sé viðeigandi staður fyrir sýningu slíkra mynda og hvort þær steli athyglinni frá myndum frá öðrum þjóðlöndum sem eiga að fá að blómstra á hátíðinni. Leikstjórinn Soderbergh bætti við að andstætt því sem margir teldu væri að mörgu leyti erfiðara að gera gamanmynd og hasarmynd en „listræna“ kvikmynd. „Í Ocean’s 13 er ég með 13 aðal- leikara sem allir þurfa sitt vægi og tækifæri til að koma persónu sinni til skila. Gamanleikur er heldur ekk- ert grín, það þarf allt að ganga upp til að grín verði fyndið,“ sagði hann. Clooney tók undir með félaga sín- um. „Það er pláss fyrir allar gerðir af kvikmyndum í heiminum. Ég held að við öll hér getum verið sammála um að það er gaman að vinna bæði að stærri verkefnum sem þessu og eins óháðum smærri myndum. Báð- ir flokkar kvikmynda eru nauðsyn- legir,“ sagði Clooney. Hinn óöruggi Pacino Weintraub hafði annars mikið orðið fyrir hinum fjölmenna hópi og auðsýnilegt að hann hefur marga fjöruna sopið í bransanum. Hann afsakaði fjarveru Als Pac- inos en hann var upptekinn í öðrum erindagjörðum meðan á hátíðinni stóð. Weintraub lét fylgja með sögu af þátttöku Pacinos í myndinni og sagði hann í upphafi hafa verið eitt- hvað óöruggan um stöðu sína innan hópsins. „Hann spurði mig hvað strákun- um fyndist um sig eftir fyrsta töku- daginn. Hann hafði áhyggjur af því að hann passaði ekki inn í hópinn þar sem allir hinir hefðu unnið svo lengi saman. Ég sagði honum að þeim þætti það sama um hann og honum sjálfum hefði þótt um Mar- lon Brando við tökur á Guðföðurn- um. Það var engu logið um það,“ sagði Weintraub. Í takt við áðurnefnda örtöð og „píkuskræki“ við komu aðalleik- aranna á blaðamannafundinn voru greinilega margir viðstaddir með hjartað í buxunum yfir útsýninu í herberginu og lögðu fjölda misgáfu- legra spurninga fyrir leikarana. Mest mæddi á þeim Pitt, Clooney og Damon sem þurftu að svara spurningum á borð við: Hvernig er að vera Brad Pitt, George Clooney og Matt Damon?! Clooney notaði tækifærið og kom á framfæri hugðarefni þeirra félaga sem er að nota alla þá athygli sem Ocean’s 13 fær til að vekja athygli á bágu ástandi íbúa Darfur-héraðs. „Við komum meðal annars hingað til Cannes til að vekja athygli á mál- staðnum því við vissum að hér yrðu samankomnir fjölmiðlar frá flestum heimshornum,“ sagði hann. „Við Don, Brad og Matt höfum allir verið á þessu svæði og hugur okkar er hjá íbúum þess. Mér finnst ástandinu í Darfur ekki vera sýnd nóg athygli hér í Evrópu. Ég held að Bandaríkjamenn séu meðvitaðri um ástand mála þar og því fannst okkur mikilvægt að vekja athygli á því.“ Þess má einnig geta að allur ágóði af frumsýningu myndarinnar í Bandaríkjunum rennur óskiptur til uppbyggingar í Darfur. Þeir félagar eru sem sagt bæði fallegir að utan og innan. Drengirnir hans Dannys Ocean’s 13 er frumsýnd hér á landi í dag en myndin var forsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum Reuters Stjörnufans Leikarar myndarinnar ásamt framleiðandanum Jerry Weintraub í sínu fínasta pússi fyrir frumsýninguna í Cannes. Lagt á ráðin Söguþráður myndarinnar minnir víst á fyrri kvikmyndirnar tvær eins og þessi mynd ber með sér. Guðfaðirinn Al Pacinu var víst svolítið óöruggur með sig þegar tökur á Ocean’s 13 hófust, vildi fá að vita hvað hinum leikurunum fyndist um hann. ERLENDIR DÓMAR Variety: 80/100 Empire: 80/100 Hollywood Reporter: 70/100 The New Yorker: 50/100 (allt skv. Metacritic) Föstudagur <til fjár> Prikið Búðabandið / DJ Kári Players Sixtíes Q-Bar Maggi Legó Café Oliver DJ JBK Vegamót DJ Simmi Sólon DJ Brynjar Már NASA Sunrise Bonansa Barinn DJ Skeletor / DJ Bjarki Gaukur á Stöng Ína Idol og Out Loud Laugardagur <til lukku> Café Oliver DJ JBK Prikið Kvikindi / Gulli Ósóma Players Karma Vegamót DJ Kári og Raggi bassi Barinn Barcode / DJ Ernir Q-Bar DJ Natalie NASA SSSól stórdansleikur Sólon DJ Rikki / DJ Brynjar Már Gaukur á Stöng Ingó Idol og Veðurguðirnir Morgunblaðið/Eggert Holy B SS Sól spilar á NASA annað kvöld. ÞETTA HELST UM HELGINA»

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.