Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.IS OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4:15 - 6:15 - 8:15 B.i. 10 ára DIGITAL ZODIAC kl. 10 B.i. 16 ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:30 LEYFÐ DIGITAL 3D MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 LEYFÐ / KRINGLUNNI OCEAN'S 13 kl. 6 - 8 - 9 - 10:40 - 11:30 B.i.7.ára OCEAN'S 13 VIP kl. 8 - 10:40 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 4 ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára THE REAPING kl. 11:30 B.i.16.ára BLADES OF GLORY kl. 6 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ GOAL 2 kl. 3:50 B.i.7.ára / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee H.J. MBL. eeee F.G.G. FBL. VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFNDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM ERTU KLÁR FYRIR EINA SKEMMTILEGUSTU MYND SUMARSINS? Aldrei hef ég heyrt nokkra konu segja aðVictoria Beckham sé fyrirmynd hennar.Victoria var þó nýlega kosin kona ársins af glanstímaritinu Glamour og sagði ritstjóri blaðs- ins, Jo Elvin, að Victoria væri ímynd nútímakon- unnar og fyrirmynd annarra kvenna. Hún hélt mikla lofræðu um frú Beckham þar sem hún sagði m.a. að síðustu tíu ár hefði Victoria verið aðdáun- arverð, með góðum árangri hefði hún farið frá því að vera poppstjarna yfir í að vera eiginkona og móðir, farsæl í hönnun og viðskiptum. „Hún er til marks um nútímakonuna sem hefur farsællega náð jafnvægi á milli heimilislífs og vinnu, og er fyrirmynd í öllu því sem hún tekur sér fyrir hend- ur,“ sagði Elvin. Victoria var að vonum ánægð með verðlaunin og sagði við afhendinguna að hún fyndi ekki leng- ur þörf fyrir að vera fræg en frægðin gæfi henni möguleikana á því að gera það sem hún hefði mesta unun af, hvort sem það væri að búa til ilm- vatn, sólgleraugu eða gallabuxur.    Einhver gárungur lét hafa eftir sér að eftir þvísem fatastærð Victoriu minnkaði stækkaði viðskiptaveldi hennar og er nokkuð til í þeim orð- um, því með árunum hefur Victoria farið minnk- andi og ekki er hægt að segja að hún sé góð fyr- irmynd í holdafari, grindhoruð með gervibrjóst. Á sjálfa Glamour-verðlaunaafhendinguna mætti hún klædd litlu öðru en korseletti, einum versta óvini kvenna í árhundruð, með brjóstin hálf upp úr og þrengt að mittinu og í um 15 sm hælaskóm, hálf- glyðruleg greyið. Að mínu mati er Victoria furðuverk, hún er eins og steypt í mót Barbie-dúkku með stút á munn- inum. Hún er alltaf eins en þó aldrei í sömu föt- unum, aldrei nást myndir af henni ótilhafðri með hárið aðeins úfið eða fötin krumpuð. Hún virðist ekki hafa neinn persónuleika og er því líklega um að kenna að hún heyrist aldrei tjá sig, rödd henn- ar er óþekkjanleg, og hún sést aldrei brosa eða setja upp annan svip en „pósið“. Victoria varð fyrst fræg fyrir að vera einn með-lima Spice Girls og síðar fyrir að vera eig- inkona fótboltakappans Davids Beckham. Ekki verður séð að hún hafi þurft að berjast áfram til að fá sitt, hún kemur úr vel efnaðri fjölskyldu og giftist vellauðugum manni sem gerir það að verk- um að hún getur leikið sér að því sem hún vill gera. Þegar ljóst var að hún ætti ekki vísan sóló- frama sem tónlistarkona sneri hún sér að tískunni. Hún hefur nú sett á laggirnar eigin fatalínu, skrif- að eina bók um tísku og er að vinna að annarri um innanhússhönnun, því hún vill deila reynslu sinni af því að innrétta nýtt heimili fjölskyldunnar í Bandaríkjunum. Tískubókin, That extra half an inch, var reyndar gagnrýnd fyrir það að Victoria virtist ekki gera sér grein fyrir því að flestir væru ekki jafn vel efnaðir og hún. Því ættu ráðin ekki erindi við venjulegar konur og má búast við því að svo verði líka með næstu bók.    Victoria hefur komist langt og vakið athyglifyrir það sem hún hefur gert, engum blöðum er um það að fletta, en hún hefði líklega ekki kom- ist svona langt án peninganna sem hún hefur á bak við sig, vegna þeirra gat hún gert áhugamál sitt að vinnu. Glamour er ágætis tískublað en með því að verðlauna Victoriu fyrir að vera góð fyrirmynd féll það í áliti. Mér finnst kona sem gerir allt til að líta út eins og Barbie-dúkka, kemst áfram á auð sínum einum saman og reynir ekki að nota völd sín til að bæta heiminn, ekki vera góð fyrirmynd. Viðurkennast verður þó að Victoria er samt betri fyrirmynd en t.d. Kate Moss, Lindsey Lohan og Paris Hilton. Hún hagar sér vel enda hefur hún það fram yfir hinar að hún er eiginkona og þriggja barna móðir og hefur viljann til að skapa sér ímynd hinnar „fullkomnu“ konu og halda í hana. En það er einmitt þessi „fullkomnun“ sem gerir hana að persónulausu furðuverki. Fyrirmyndin er furðuverk Fyrirmynd Victoria mætti léttklædd á verðlaunaafhendingu Glamour. AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir »Einhver gárungur lét hafa eftir sér að eftir því sem fatastærð Victoriu minnkaði stækkaði viðskiptaveldi hennar ingveldur@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.