Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 59
BANDARÍSKA leikkonan Sarah
Jessica Parker, þekktust fyrir leik
sinn í þáttunum Beðmál í borginni,
Sex in the City, hefur nú hrint af
stað fatalínu.
Hundruð kvenna biðu í röðum við
verslun á Manhattan í New York í
gær í von um að berja Parker augum
og næla sér í flíkur hennar, undir
merkinu Bitten. Parker segir það
„óvefengjanlegan rétt kvenna“ að
eiga fataskáp fullan af glæsilegum
fötum sem sýni sjálfsöryggi þeirra,
en eiga þó nóg eftir í buddunni fyrir
salti í grautinn.
Parker lék hina ráðvilltu Carrie
Fisher í Beðmálum í borginni, rit-
höfund með fata- og skódellu. Carrie
klæddist dýrum flíkum heims-
þekktra hönnuða í þáttunum en föt
Bitten-línunnar munu ódýrari.
Aðdáendur Parker, nær eingöngu
konur, biðu sumir hverjir í margar
klukkustundir við verslunina í gær
og fóru hlaðnir fatapokum frá inn-
kaupaævintýrinu.
Reuters
Vinsæl Sarah Jessica Parker ræðir
við aðdáanda sinn í gær.
Parker með
fatalínu
HÚN VAR skjót
fangelsisvistin
hjá hótelerfingj-
anum og sam-
kvæmisljóninu
Paris Hilton, að-
eins þrír dagar.
Hilton var veitt
lausn í gær úr
Century Regio-
nal Detention
Centre í Kaliforníu af heilsufars-
ástæðum. Hilton er þó ekki laus við
refsivist því hún verður að dúsa í
stofufangelsi heima hjá sér í 40
daga með staðsetningarbúnað fast-
an við fót sér í úlnliðsbandi.
Ekki hefur nánar verið greint frá
því hvers kyns heilsubrestur hrjáði
Hilton dagana þrjá. Fangelsisdóm-
inn hlaut hún fyrir að aka undir
áhrifum áfengis og brjóta skilorð.
Fangelsisyfirvöld munu hafa ráð-
fært sig við lækna og komist að
þeirri niðurstöðu að best væri að
sleppa Hilton lausri. Það verður því
lítið um samkvæmisleiki hjá Hilton
næstu daga.
43 daga fangelsisdómur yfir Hil-
ton var styttur um helming fyrir af-
plánunina en er nú aftur orðinn 43
dagar, vegna stofufangelsisins.
Hilton laus
úr fangelsi
Paris Hilton
ÞAÐ VERÐA Lay Low, Ampop,
Benni Hemm Hemm, Shogun, Gord-
on Riots, Spooky Jetson, Hress/
Fresh og <3 Svanhvít sem spila á
tónleikum á Arnarhóli kl. 20 að
kvöldi lýðveldisdagsins 17. júní.
Dagskrá hátíðarhalda í höfuðborg-
inni í tilefni 17. júní er óðum að skýr-
ast og verður mikið um að vera. Fyr-
ir utan tónleikana á Arnarhóli
verður dansleikur á Ingólfstorgi kl.
18 þar sem Heimilistónar, Salsa Ice-
land og Milljónamæringarnir leika
fyrir dansi. Um leið og tónleikarnir
fyrir yngri kynslóðina hefjast á Arn-
arhóli kl. 20 hefst líka Harm-
ónikuball í Ráðhúsinu þar sem Létt-
sveit Harmónikufélags Reykjavíkur
leikur fyrir dansi.
Hin hefðbundna hátíðardagskrá á
Austurvelli er kl. 10.40 um morg-
uninn, kl. 14.30 verða tónleikar í
Ráðhúsinu þar sem Englakórinn,
Stúlknakór KFUK, Tríólurnar,
Söngsveitin Fílharmonía, Paradís-
Tónaregn í Reykjavík og Dixiel-
andhljómsveit Árna Ísleifs koma
fram.
Allan daginn verður svo mikið að
gerast í Hljómskálagarðinum, á
Arnarhóli og Austurvelli og víðar um
miðbæinn.
Stórstjörnur
spila 17. júní
Morgunblaðið/Eggert
Doktorinn Frá tónleikum á 17. júní í fyrra. Dr. Spock fór í sparifötin og skemmti landanum.