Morgunblaðið - 10.06.2007, Side 1
Í HNOTSKURN
» Opnunarhátíð álvers AlcoaFjarðaáls var haldin á Reyð-
arfirði í gær. Bæjarhátíð stóð
fram eftir degi.
» Geir H. Haarde sagði aðdraumur Austfirðinga til
margra áratuga væri að verða að
veruleika.
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
á Reyðarfirði
„HÉR er að rætast draumur sem fólk
á þessu svæði hefur haft svo áratug-
um skiptir,“ sagði Geir H. Haarde
forsætisráðherra í ræðu sinni á opn-
unarhátíð Alcoa Fjarðaáls á Reyðar-
firði í gær. Hann fullvissaði forsvars-
menn Alcoa um að ný ríkisstjórn
myndi halda áfram að starfa með fyr-
irtækinu í sama anda og áður.
Alain Belda, stjórnarformaður Al-
coa, sagði við sama tækifæri að það
væri góð tilfinning að standa að fram-
kvæmd sem hefði svo mikil áhrif fyrir
fólkið á svæðinu og landinu öllu.
Stjórnvöld hefðu sýnt hugrekki og
framsýni með þeirri ákvörðun að ál-
verið fengi að rísa. „Á næstu mán-
uðum mun verkefnið þróast úr bygg-
ingaframkvæmd í rekstur álvers. Við
munum mynda tengsl við samfélagið
og byggja á þeirri reynslu sem við
höfum frá rekstri sem þessum á fjöl-
mörgum stöðum í heiminum.“
Geir H. Haarde sagði að fram-
kvæmdin væri lýsandi dæmi um að
samkeppnisstaða og velsæld íslensku
þjóðarinnar réðist fyrst og fremst af
getu hennar til að horfa fram á veginn
og koma auga á tækifæri. „Ég er
sannfærður um að þetta stóra álver,
eitt af mörgum í Alcoa-fjölskyldunni,
á eftir að verða gríðarleg lyftistöng,
ekki bara fyrir þetta svæði heldur
einnig fyrir allan okkar þjóðarbú-
skap. Þetta verður gríðarlega mikil-
væg viðbót sem á eftir að skila betri
lífskjörum um margra áratuga
skeið.“
Geir beindi orðum sínum til for-
svarsmanna Alcoa og Bechtel. „Það
hefur verið sönn ánægja að vinna með
ykkur og við erum ánægð með að þið
hafið reist hér samkeppnishæfan
vinnustað sem byggist á hátækni, ál-
ver sem mun starfa hér næstu áratugi
og færa störf og þekkingu á svæðið.“
Velsæld byggist á framsýni
Morgunblaðið/Árni Torfason
Opnunarhátíð Geir H. Haarde forsætisráðherra og Alain Belda, stjórn-
arformaður Alcoa, við hátíðarhöldin á Reyðarfirði í gærmorgun.
Stjórnvöld sýndu hugrekki og framsýni með þeirri ákvörðun að álverið fengi að rísa Samkeppn-
ishæfur vinnustaður sem byggist á hátækni Gríðarleg lyftistöng fyrir svæðið og þjóðarbúskapinn
Trompin eru | 38
STOFNAÐ 1913 156. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
GUÐ ER
NÁLÆGUR
VON OG ÞJÁNING
GUÐFRÆÐINGS
ODDNÝ HELGAD́TTIR
JAFNRÆÐ-
ISREGLAN
SVANDÍS OG ENDA-
LOK R-LISTANS
ORRI PÁLL ORMARSSON
HVER ER
LEXÍAN?
RÉTTLÆTING OG
RÁÐSMENNSKA
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
MARÍA Ellingsen hefur látið að sér kveða á mörgum sviðum síð-
ustu ár. Hún hefur vakið athygli fyrir leik í sjónvarpi og kvik-
myndum, sest í leikstjórastólinn og stigið fram sem baráttukona
í umhverfisvernd, en hún er formaður í Framtíðarlandinu.
Ákveðinn hópur hefði gjarnan viljað sjá Maríu stíga fram í
pólitík fyrir síðustu kosningar en hún kaus að gera það ekki.
„Mér finnst mínir skapandi kraftar nýtast ágætlega við að brjóta
upp orðræðuna og fá fólk til að fara í loftbelginn og sjá hlutina í
víðara samhengi. Ákvörðunin var mjög meðvituð. Mér fannst
ekki að það ætti að breyta Framtíðarlandinu í stjórnmálaflokk
því félagið er mikils virði í sjálfu sér með því að vera hafið yfir
flokkslínur og stundarhagsmuni.“
Eiga að fá tilfinningu fyrir landinu
Einn af draumum Maríu er að koma upp náttúruskóla fyrir
börn og nýbúa. „Kannski getur Framtíðarlandið komið þessu
verkefni af stað og aðrir tekið svo við keflinu. Börn þurfa að
finna að þau eigi þetta land og fólk sem er nýbúið að setjast hér
að þarf að vita að náttúran er hluti af því sem það er að eignast
með því að flytja hingað.“
Í Morgunblaðinu í dag ræðir María um lífið í Hollywood, nátt-
úruvernd, trúmál, fjölskylduna og ýmislegt sem veitir henni inn-
blástur. „Kvikmyndin er spennandi og sterkur miðill en leik-
húsið er heimili leikarans þar sem hann þroskast og vex,“ segir
María, sem var í Hollywood í fjögur ár og lék í þremur kvik-
myndum. Á endanum kallaði Ísland hana til baka þegar hún
fékk tilboð um að leika Agnesi í samnefndri mynd. Segist hún
ekki sjá eftir þeirri ákvörðun. | 10
Vill setja
náttúru-
skóla á fót
Meðvitað að fara ekki í pólitík
Framtíðarlandið verði óbreytt
Morgunblaðið/RAX
María Ellingsen „ ... leikhúsið er heimili leikarans þar sem hann þroskast og vex.“
Í Noregi undirbúa stjórnvöld nú
lög, sem eiga að tryggja sjálfstæði
ritstjórna gagnvart eigendum sín-
um og kveða á um skil á milli frétta
og skoðana.
Ritstjórnarlög
undirbúin í Noregi
Vefsíðan Facebook býður upp á
margs konar samskiptamöguleika
og notendum hennar fjölgar með
ljóshraða. Þar má finna gamla
kunningja og rækta áhugamálið.
Vefsíðan Face-
book vex hratt
Dómstóll á Ítalíu sýknaði í vikunni
fimm menn af ákæru um að hafa
myrt Roberto Calvi, sem stýrði
Ambrosiano-bankanum og bar við-
urnefnið „bankastjóri Guðs“.
Ráðgátan er
enn óleyst
VIKUSPEGILL