Morgunblaðið - 12.06.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 12.06.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 158. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is A-VERK HALLDÓRS HANN ÆTLAÐI SÉR ALLA ORÐABÓKINA EN KOMST EKKI LENGRA EN AÐ A-INU >> 36 LÚRIR Á HÖNNUNINNI EINS OG ORMUR Á GULLI KÚLAÍKÚLU ÚTSKURÐARMEISTARI >> 20 Björgunarsveitinni Bræðraband- inu var við það að skutla félögum sínum í sveitinni heim snemma í gærmorgun en Björgunarsveitin Tálkni hóf leit í stað þeirra. „En ég einhvern veginn kunni ekki við „OKKUR óraði ekki fyrir því að leit stæði yfir og við töldum sam- skiptin í stakasta lagi,“ segir Greg Stamer, annar tveggja kaj- akræðara sem um 200 björg- unarsveitarmenn og Landhelg- isgæslan leituðu að á sunnudag og fram á mánudagsmorgun. Þegar samskiptin voru könnuð nánar reyndist skeyti ræðaranna um landtöku sent á rangt netfang. Þegar Morgunblaðið náði tali af Greg var hann staddur á bænum Melanesi á Rauðasandi, og var að prófa samskiptabúnaðinn. Hann biðst afsökunar á öllu umstanginu sem varð í kringum fyrsta hluta ferðalags hans og Freyu Hoff- meister og segir að fullvíst sé að samskiptin verði í góðu lagi það sem eftir lifir ferðalagsins – en þau ætla að fara hringinn í kring- um landið. Það var bóndinn á Melastöðum, Ástþór Skúlason, sem kom auga á kajakræðarana þegar þau komu að landi á milli Melaness og eyði- býlisins Sjöundár. Ástþór sem er í að fara að sofa fyrr en ég sæi hvernig málinu lyktaði og þvæld- ist þarna niður á sanda líka. Ég kom síðan auga á þau þegar þau komu að landi og fóru að reisa tjald. Þá fórum við saman til þeirra til að ganga úr skugga um hvort þetta væri ekki örugglega rétta fólkið og svo reyndist vera,“ segir Ástþór sem bundinn er hjólastól eftir alvarlegt bílslys fyrir fjórum árum. | 6 Biðjast afsökunar á umstangi Misskilningur varð í samskipt- um kajakræðara og tengiliðar Ljósmynd/Óðinn Sverrisson Á ströndinni Kajakræðararnir Greg Stamer og Freya Hoffmeister ræða við Ástþór Skúlason, björg- unarsveitarmann og bónda á Melanesi. Ástþór kom að þeim þegar þau komu að landi. FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÞAÐ er ólíklegt að hraðar breytingar verði gerðar á landbúnaðarkerfinu með valdatöku nýrrar ríkisstjórnar, en það verða breytingar. Það er t.d. ljóst að bú- vörulögum verður breytt á næsta þingi og markmið breytinganna verður að taka af skarið um að samkeppnislög gildi í verslun með landbúnaðarvörur. Hins vegar má leiða rök að því að stærsta breytingin verði í lok kjörtímabilsins þegar fulltrúar bænda og ríkisins reyna að ná samkomulagi um gerð nýrra búvörusamninga. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir: „Unnið verði að endurskoðun land- búnaðarkerfisins með það fyrir augum að auka frelsi, bæta stöðu bænda og lækka verð til neytenda.“ Bændur hafa eins og aðrir velt því fyrir sér hvað þetta þýðir. Einn bóndi svaraði spurningunni eftir að hafa klórað sér í höfð- inu. „Þetta getur þýtt allt frá því að leggja eigi landbúnaðinn í rúst yfir í að greiða eigi fyrir ættliðaskiptum í sveitum.“ Ekki heljarstökk Stefna stjórnvalda í landbúnaðarmálum birtist með skýrustum hætti í búvörusamn- ingum við bændur sem gerðir eru til nokk- urra ára í einu. Þar er tekin ákvörðun um það hversu miklir peningar fara í styrki til landbúnaðarins og fjallað er um ytra um- hverfi greinarinnar. Í vetur gerði ríkið samning við kúabændur sem gildir til árs- ins 2012 og samning við sauðfjárbændur til ársins 2013. Forsætisráðherra hefur tekið skýrt fram að þessir samningar verði ekki endurskoðaðir. Þó að samningarnir gildi fram yfir kjörtímabil nýrrar ríkisstjórnar má ganga út frá því að reynt verði að gera nýja samninga undir lok kjörtímabilsins. Það líða tvö ár frá því kálfur fæðist þar til hann verður kýr sem hægt er að mjólka og bændur hafa því lagt mikla áherslu á að vita tímanlega hvað er framundan í um- hverfi greinarinnar. Þess vegna hafa bú- vörusamningarnir verið gerðir 1–2 árum áður en eldri samningar renna út. Þegar rætt er um landbúnaðarkerfið er nauðsynlegt að hafa í huga að þetta kerfi hefur verið að breytast á undanförnum ár- um. Það er hins vegar annað mál að margir telja að breytingarnar hafi verið of hægar. Ólíklegt er að tekin verði einhver helj- arstökk undir forystu Einars K. Guðfinns- sonar, nýs landbúnaðarráðherra. Það hefur þó lengi verið rætt um að breytingar kunni að verða með tilkomu nýs WTO-samnings sem fjallar m.a. um tolla og styrki. Engin leið er að vita fyrir hvort samningarnir nást á þessu ári eða eftir 10 ár. Breytist eitthvað? Ríkisstjórnin vill auka frelsi í landbúnaði Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson „ÞAÐ stendur ekki til að leggja niður Íbúða- lánasjóð sem slíkan,“ sagði Björgvin G. Sigurðs- son viðskiptaráðherra, þegar leitað var við- bragða hjá honum við gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íbúðalánasjóð. Í áliti sínu ítrekar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þá skoðun sína sem kom fram í skýrslu hans um íslensk efnahagsmál á síðasta ári, að tilvist Íbúðalánasjóðs skuli tekin til endurskoðunar. Samkeppni bankanna og Íbúðalánasjóðs hindri stýrivexti Seðlabankans í að draga úr innlend- um eftirspurnarþrýstingi með skilvirkum hætti, og það komi meðal annars fram í því að skamm- tímavextir séu hærri en þeir þyrftu að vera. Þetta kom fram í gær þegar sendinefnd á veg- um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kynnti álit sitt í kjölfar reglulegra viðræðna við fulltrúa ís- lenskra stjórnvalda og atvinnulífs. Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir ábendingu sjóðsins um nauðsyn þess að endurskoða Íbúðalánasjóð til að auka skilvirkni peningastefnunnar sérstaklega þýðingarmikla. „Álit sjóðsins varðandi Íbúðalánasjóð endur- speglar í raun að stjórnvöldum hafi verið mis- lagðar hendur hvað varðar Íbúðalánasjóð og af- komu ríkisins á húsnæðislánamarkaði síðustu ár,“ segir Guðjón Rúnarsson, formaður Sam- taka fjármálafyrirtækja. Strangt aðhald í ríkisfjármálum Alþjóðagjaldeyrisnefndin telur strangt að- hald í ríkisfjármálum nauðsynlegt þrátt fyrir trausta stjórn á þeim, þar sem skattalækkanir í byrjun árs hafi leitt til ótímabærrar slökunar í ríkisfjármálunum. Endurskoða þurfi starfsemi Íbúðalánasjóðs og sé horft til framtíðar þyrftu banka- og eftirlitsstofnanir að fylgjast sérstak- lega með útlánaáhættu. Sé vel haldið á málum eru efnahagshorfur á Íslandi enn öfundsverðar til lengri tíma litið, er mat sjóðsins sem hvetur jafnframt til aðhalds í peningamálum svo draga megi úr verðbólguþrýstingi og verðbólguvænt- ingum. Í álitinu er gert ráð fyrir að verðbólgan verði áfram yfir markmiðum Seðlabankans. Sjóðurinn spáir 2–3% hagvexti í ár sem minnki síðan í 1% á næsta ári. Hamlar Íbúðalána- sjóður hagvexti? Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur brýnt að endurskoða tilvist Íbúðalánasjóðs, sem hann telur hindra að stýrivextir Seðlabankans virki sem skyldi Í HNOTSKURN »Sendinefndin leggur til að hámarkslánÍbúðalánasjóðs verði lækkuð án tafar sem og lánshlutföll hans. »Nefndin segir Íbúðalánasjóð í opinberrieigu bjaga innlendan fjármálamarkað og ríkisstjórnin verði að grípa til aðgerða. »Taka eigi upp sértækar aðgerðir fyrirfasteignafjármögnun á landsbyggðinni.Björgvin G. Sigurðsson IngimundurFriðriksson Guðjón Rúnarsson Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur sigrunrosa@mbl.is  Brýnt að herða aðhald | 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.