Morgunblaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Engar áhyggjur, góði, þegar ekkert verður eftir af þorski til að skera, þá snúum við okkur bara að skjátunum, ég er nú líka rollumálaráðherra. Framsóknarflokkurinn er búinn aðkoma sér upp nýrri forystu eftir nokkrar hremmingar. Áður hafði Guðni Ágústsson tekið við sem for- maður flokksins, þegar Jón Sigurðs- son sagði af sér.     Um helgina var svo ValgerðurSverrisdóttir kjörin nýr varafor- maður. Þar með hafa framsókn- armenn end- urskipulagt forystu sína og ganga nú fram til orustu.     Morgunblaðiðhefur áður lýst þeirri skoð- un, að þau Guðni og Valgerður séu býsna öflugt teymi til þess að takast á við vanda- mál og verkefni Framsóknarflokks- ins.     Það finnast ekki sannari þjóðlegiríhaldsmenn en Guðni Ágústsson og Valgerður Sverrisdóttur óx mjög í starfi utanríkisráðherra og er víg- reif í stjórnmálastörfum sínum.     En eitt vantar þau til þess að getaunnið það verk, sem þau hafa tekizt á hendur fyrir Framsókn- arflokkinn. Þau eru ekki búin að finna hinn rétta tón.     Þau hafa bæði sagt ýmislegt frá þvíað ný ríkisstjórn var mynduð en í þeim textum er ekki að finna þann nýja grundvöll fyrir endurreisn Framsóknarflokksins, sem er lífs- nauðsynlegt fyrir þau að finna.     Þetta er flókið verkefni og það ererfitt fyrir þau að finna hinn eina sanna tón. En á því veltur mikið.     Að þau finni þann þráð í rótumFramsóknarflokksins, sem getur tengt hann við nýja tíma með eðlileg- um hætti. STAKSTEINAR Valgerður Sverrisdóttir Hinn rétti tónn                      ! " #$    %&'  (  )                    *(!  + ,- .  & / 0    + -                 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                  :  *$;<                            !  "##        *! $$ ; *!   ! "   "   #" $# =2 =! =2 =! =2 "! % & ' ()*%#+  <2>         /    # #  *%%%, -#  .* # #/*%0# # '1 2    %1 =    87  # !% ,  *%     %%,  - 0# # '12 + 3     1   2!% # !% + 3  % *%  " $ #", '   4 ' # /*%  ' 1 2    %1 53%% #66  %#"7 # *#& ' 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B 1 , 1   1 1 1  1 1 / /  / /    , , , , , , , , , , , , , ,           Jón Agnar Ólason | 11. júní 2007 Met í ljótleika Það er með eindæmum að sú borg sem jafnan er af eigin íbúum skip- uð sú svalasta í heimi, London, skuli ekki hafa komist betur frá því að hanna merki fyrir ól- ympíuleikana sem þar verða 2012. Það er ekkert sem segir „Swingin’ London“ í þessu afleita lógói; mér dettur í hug að kalla þetta lógóleysu, sbr. orðið mannleysa sem notar er um mann sem er almennt glataður og til fárra hluta gagnlegur. Meira: jamesblond.blog.is Anna Ólafsdóttir Björnsson | 10. júní Hvað nú Framsókn? Hvort sem okkur í VG líkar betur eða verr verðum við [og Fram- sókn] saman í stjórn- arandstöðu. Ég efast ekki um að það mun ganga vel að græða sárin eftir málefnalega ósamstöðu í stóriðjumálum. Oft eru flokkar sam- an í stjórnarandstöðu sem eiga ekk- ert annað sameiginlegt en að veita sitjandi ríkisstjórn aðhald og það er einmitt það sem ég sé þessa flokka eiga sameiginlegt. Meira: annabjo.blog.is Sigurður G. Tómasson | 10. júní 2007 Sleppti honum! Það var eiginlega krók- urinn sem gaf þetta mest, landaði fimm bleikjum, missti eina fyrir óþolinmæði og kæruleysi. Svo tók ég reyndar einn urriða, ekki stóran, og sleppti honum. En þetta var kvöld við vatnið eins og þau gerast best, himbriminn söng ástarsöng suður undir Arnarfelli, toppandapar synti hjá og stokkönd var á brauðskógi innst í víkinni. Guði sé þökk fyrir svona daga. Meira: einherji.blog.is Sigríður Laufey | 11. júní 2007 Hraðakstur – uppeldisvandamál og agaleysi? Hins vegar vekur það upp spurningar. Hvers vegna eru menn svona innstilltir, að aka á ofsahraða, geta ekki virt lög, vantar ábyrga siðferðilega vitund fyr- ir öðrum í samfélaginu? Oft er um drykkjuskap að ræða, oftast eru það ungir karlmenn sem eru haldnir þeirri ástríðu að fá einhvers konar útrás fyrir frelsi. Hvar á að leita orsakanna? Í upp- eldinu, þar með talinni grunnskóla- göngunni? Er agaleysið í uppeldinu orsakavaldur? Hafa foreldrar ekki tíma til uppeldis vegna vinnu? Vant- ar skólana öðruvísi stefnumörkun þar sem fyrst og fremst er lögð áhersla á samskipti, að taka siðferði- lega afstöðu með samræðum og per- sónulegum samskiptum við börnin? Bókleg og verkleg fög eru vissulega mikilvæg en ef mannleg samskipti eru ekki innrætt með nægilegum siðferðilegum gildum, vantar þá þann grunn sem framtíð samfélags- ins byggir ætíð á? Sigla börnin í gegnum grunnskóla án mannlegra gilda með afskiptaleysi/stefnuleysi stjórnvalda þar sem skólinn er meira eins og „köld geymsla“ fyrir börnin þegar almennri kennslu hef- ur verið sinnt, þ.e. bóklegri? Þáttur íþróttafélaga barna er einnig vissu- lega mikill og hvernig íþróttaand- anum er komið á framfæri þar. Ekki vantar menntað fólk, sál- fræðingar og félagsfræðingar eru vissulega til staðar, en frekar til að leysa sérstök tilfelli, sem upp koma, þeir eru ekki nógu stór almennur þáttur í skólastefnunni að því er virðist. Ekki hefur mátt viðurkenna guðfræðimenntað fólk sem fastan þátt í skólauppeldinu þótt boðskapur Krists sé frambærilegur óháð því hverrar trúar menn eru, kristin gildi gætu bætt verulega uppeldisþáttinn án þess að um innrætingu væri að ræða. Alls ekki væri nauðsynlegt að kirkjan kæmi þar að með beinum hætti. Að þegja umrætt vandamál í hel án umræðu og aðgerða að hálfu skóla, stjórnvalda og foreldra er að fresta hæfilegum aga í uppeldi kom- andi kynslóða áfram. Meira: logos.blog.is VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ BLOG.IS UNDANFARNA daga hefur verið sannkallað sumarveður og sól- argeislarnir leikið við landann á flestum stöðum á landinu. Mannfólkið fagnar sumrinu með mismunandi hætti en þessi unga dama sem sést á myndinni hafði gert sér blómakrans úr fífl- um og sat fyrir við tjörnina. Sýndi stúlkan fyrirsætutakta á meðan vinkona hennar tók mynd- ir í gríð og erg. Gæti yfirskrift myndarinnar verið „velkomið sumar“ enda breiðir stúlkan faðminn á móti einhverju en hvort það er sumarið sjálft eða eitthvað allt annað skal látið ósagt. Morgunblaðið/Ásdís Blómarós niðri við Tjörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.