Morgunblaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 37
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MÝRAMAÐURINN
- höf. og leikari Gísli Einarsson
14/6 kl. 20 síðasta sýning
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
15/6 kl 18, 20/6 kl 20 uppselt,
29/6 kl 20, 1/7 kl 20, 5/7 kl 20,
13/7 kl. 20, 14/7 kl. 20,11/8 kl. 20,
12/8 kl. 20, 18/8 kl. 20, 19/8 kl. 20,
30/8 kl. 20, 31/8 kl. 20
SVONA ERU MENN (KK og Einar)
Aukasýning 16. júní kl. 20
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fös 15/6 kl. 20 UPPS.
BELGÍSKA KONGÓ
Í kvöld kl. 20
Mið 13/6 kl. 20 UPPS.
Fim 14/6 kl. 20 UPPS.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Mið 20/6 kl. 20 UPPS.
Fim 21/6 kl. 20 UPPS.
Fös 22/6 kl. 20 UPPS.
Lau 23/6 kl. 20
Sun 24/6 kl. 20
Fim 28/6 kl. 20
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
-hágæðaheimilistæki
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík
Baldursnes 6, Akureyri
Sími 588 0200 - www.eirvik.is
Aðrir söluaðilar: Kokka, Laugavegi, Egg, Smáratorgi
og Líf og list, Smáralind
Törfa
tæki
Magimix matvinnsluvélin er
óvenjulega stílhreint, kraft-
mikið og endingargott töfra-
tæki fyrir alla þá sem kunna
að meta gæði og góðan mat.
Vélin er sérstaklega auðveld í
notkun og hárbeittir stálhníf-
ar tryggja fullkominn skurð.
Verð frá: kr. 21.500 stgr.
Magimix
matvinnsluvélin
léttir þér lífið
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Fyrsti konsert er frír
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
í boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar
Í KVÖLD, ÞRIÐJUDAGSKVÖLD KL.19.30 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Einsöngur ::: Eivør Pálsdóttir og Herdís Elín Lárusdóttir (Dísella)
tónleikar í háskólabíói
Klassísk íslensk dægurlög
Manstugamladaga
Í fyrra seldist upp á svipstundu á tvenna tónleika.
Nú er enn hægt að tryggja sér gott sæti.
FÖSTUDAGINN 29. JÚNÍ KL.19.30
stórtónleikar í laugardalshöll
Roger Waters (Pink Floyd) ::: The Wall
Eitt mesta stórvirki rokksögunnar í flutningi
Sinfóníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta.
KVIKMYNDIN Gabbið eða The
Hoax fjallar um sannsögulegt föls-
unarmál sem átti sér stað á 8. ára-
tugnum og er lygasögu líkast. Clif-
ford Irving var misheppnaður
rithöfundur sem þráði velgengni og
tók upp á því að skrifa falsaða ævi-
sögu viðskiptajöfursins og sérvitr-
ingsins Howards Hughes. Hughes
hafði þá að mestu lokað sig af frá
umheiminum og efuðust margir um
geðheilsu hans. Irving ákvað að
nýta sér þetta ástand og sannfærði
eitt af stærstu bókaforlögum
Bandaríkjanna um að Hughes hefði
falið sér það verk að skrifa ævisögu
sína, með því skilyrði að rithöfund-
urinn yrði eini milliliðurinn í sam-
skiptum við mógúlinn. Forlagið beit
á agnið og úr varð eitt frægasta
fölsunarmál Bandaríkjanna. Þessu
efni hafa áður verð gerð skil af ekki
ómerkari leikstjóra en Orson Wel-
les, en hann fjallaði um föls-
unarmálið í heimildarmyndinni F
for Fake sem snýst um blekkingar
og tálsýnir bæði í efni og formi.
Kvikmyndin sem hér um ræðir, sem
leikstýrt er af Lasse Hallström og
er m.a. byggð á bók sem Clifford
Irving skrifaði sjálfur um föls-
unarmálið, er hins vegar þétt og
vafningalaus frásögn af málinu sem
grípur áhorfandann frá fyrstu mín-
útu. Þar er dregin upp mögnuð
mynd af siðlausum spjátrungi sem
þó er of einfaldur og e.t.v. of veru-
leikafirrtur til þess að átta sig á því
hvenær hann er komin of langt út í
djúpu laugina. Richard Gere á frá-
bæran leik í hlutverki Irvings og
aðrir leikarar eru sömuleiðis fyrsta
flokks. Aðstandendur myndarinnar
varpa að sama skapi fram djörfum
tilgátum um ástæður þess að málið
gekk svona langt, og tengja það
m.a. við það pólitíska andrúmsloft
sem ríkti undir lok Nixon-tímans.
Gabbið er vel gerð mynd um for-
vitnilegt efni og enn viðbótin við
þær fjölmörgu góðu myndir sem
sýndar eru á vegum Græna ljóssins.
Nýju fötin keisarans
KVIKMYNDIR
Regnboginn – Græna ljósið
Leikstjórn: Lasse Hallström. Aðalhlut-
verk: Richard Gere, Alfred Molina,
Marcia Gay Harden, Hope Davis og Stanl-
ey Tucci.
Gabbið (The Hoax) Frábær Richard Gere á frábæran leik í hlutverki Irvings.
Heiða Jóhannsdóttir
og eina en Matt Damon og Al Pacino
ná þó að skapa sér örlítið olnboga-
rými, einkum er gaman að fylgjast
með þeim síðarnefnda. Pacino er ný
persóna í söguheimi myndaseríunnar
en frammistaða hans er lágstemmd-
ari en oft á síðari árum og nær hann
að blanda saman kankvísi og þunga.
Soderbergh er hugsanlega til-
raunakenndasti leikstjóri stórmynda
í Hollywood og þessi mynd er ágætt
dæmi um það. Í stíl og litanotkun, svo
ekki sé minnst á tónlistina, vísar hann
meðvitað aftur til fortíðar (með æp-
andi litasamsetningu sem og ofur-
áherslu á ákveðna liti, t.d. rauðan og
bláan) og hann brýtur frásögnina
óhikað upp í ofursmáar og ókrónólóg-
ískar einingar. Þetta gerir myndina
ólíka þeim sumarsmellum sem við
höfum fengið að kynnast hingað til,
og að mörgu leyti áhugaverðari.
Stundum varð mér reyndar hugsað
til þess að hin fagurgerða mynd sem
hér birtist af Las Vegas – þeir sem
þar hafa verið vita að hún er langt í
frá jafnfáguð og hér er gefið í skyn –
virkaði sem ein stór auglýsing fyrir
borgina.
ÞRIÐJA myndin í röðinni um Ocean,
sem er leikinn á sjarmerandi hátt af
George Clooney, og vini hans er án
efa sú lakasta hingað til. Líkt og í
fyrri myndunum er mikið lagt í út-
leggingu á gríðarlega vandasömu
ráni og hverju viðviki sem tengist
skipulagningunni er fylgt eftir á allt
að því blætiskenndan hátt. Hér
bregst þó Soderbergh og félögum
bogalistin hvað það varðar að skipu-
lagningin er svo fullkomin að ekkert
getur farið úrskeiðis – og ekkert fer
úrskeiðis – sem þýðir að spennan er
svo gott sem engin. Leikaraliðið er
hins vegar afbragðsgott. Samband og
samleikur Clooney og Pitt er ákveðið
akkeri fyrir myndina, lipurlegt og
skemmtilegt, og jafnan tilefni fyndn-
ustu brandaranna. Reyndar úir svo
og grúir af persónum að myndinni
gefst lítill tími til að fjalla um hverja
Síst Soderbergh tekst ekki að slá fyrri myndunum við.
Glansmynd af Vegas
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Steven Soderbergh. Aðal-
hlutverk: George Clooney, Brad Pitt,
Matt Damon, Elliot Gould, Al Pacino,
Don Cheadle. BNA, 122 mín.
Þrettán vinir Oceans (Ocean’s Thirteen)
Heiða Jóhannsdóttir
ÞAÐ var geggjað stuð á DOMO er
léttblúsaður djass úr penna Sig-
urðar Flosasonar kætti hlust-
endur, enda ekki í kot vísað þar
sem Pétur Östlund var í heimsókn
og með gamla vopnabræður sér við
hlið; Jón Pál á gítar og Þóri Bald-
urs á hammond, og tónsmiðurinn
var með altsaxófóninn í fram-
herjastöðu. Að vísu var heldur
dauft yfir tveimur fyrstu ópus-
unum af Blakey-ættinni, menn
voru að ná sambandi hver við ann-
an og salinn, en þegar kom að
blúsuðu ballöðunni um tómu
flöskuna small allt saman og mjúk
sóló Sigurðar, Jóns Páls og Þóris
snertu hverja taug. Oft var gaman
að heyra Jón Pál spinna einfaldar
línur í óhagganlegri ró sinni milli
trylltra sólóa Sigurðar og Þóris.
Pétur var frábær með burstana í
ballöðu sem Sigurður byggir á
Parker-blúsum tileinkuðum Alice
og Þórir var með „sándið“ hans
Fats Wallers. Fyrir hlé fengum við
einn Killer Joe, og Stígum á stokk,
og meira að segja Jón Páll brá sér
í blúshaminn. Pétur Östlund var sá
klettur er hrynurinn byggði á og
dúettar hans og Sigurðar voru
makalaus skemmtun. Pétur túlkaði
einnig frábærlega undirölduna í
MS Herjólfi og tónleikunum lauk á
Kvíabryggjublús sem tileinkaður
var alþýðulistamanninum sem þar
dvaldi og er byggður á Brother
Can You Spare a Dime. Góður
endir á kraftmiklum tónleikum þar
sem leikin voru þrettán lög úr
penna Sigurðar, bæði blús sem
hljómaði eins og eitthvað allt ann-
að og lög sem hljómuðu eins og
blús en voru það ekki, svo vitnað
sé í lagasmiðinn.
Vernharður Linnet
Geggjað stuð
TÓNLIST
Múlinn á DOMO
Fimmtudaginn 6.6. 2007.
Kvartett Sigurðar Flosasonar
ÉG GET ekki sagt annað en að
Sverrir Stormsker hafi komið mér
á óvart þegar ég brá There Is Only
One á fóninn. Í stað þess að vera
uppfull af fyndnum og jafnvel
dónalegum
textum (eins
og ég er skil-
yrt til þess að
búast við af
Sverri) er
platan einlæg-
ur og tilfinn-
ingaþrunginn
óður til ástarinnar. Lagasmíðar
Sverris eru afskaplega vandaðar,
hann hefur góðan skilning á tón-
fræði og getur látið lögin sín
hljóma kunnuglega og frumlega í
senn. Af þessum sökum er auðvelt
að hrífast með í stemningunni sem
hann framkallar.
Helsti galli plötunnar er þó sá að
textarnir eru á ensku. Sverrir er
ágætur á ensku en hann er bara
svo miklu betri á íslensku. Það er
eins og persónuleiki hans nái ekki í
gegn á sama hátt og hann gerir á
móðurmálinu. Auk Sverris syngja
á plötunni þau Myra Quirante og
Gregory Carroll – flutningur
þeirra er afar fallegur og þá sér-
staklega eftirtektarverð rödd Car-
rolls sem gefur lögunum dýpri
merkingu. Í heildina er There Is
Only One ágætisplata en fremur
einsleit og því miður aðeins skuggi
af fyrri verkum Sverris Storm-
skers.
Helga Þórey Jónsdóttir
Erlendur
Stormsker
TÓNLIST
Sverrir Stormsker –
There Is Only One
SÖNGVARINN
Pete Doherty er
sagður hafa falið
sig í runna og
öskrað: „Djöfl-
arnir eru að koma
að sækja mig!“ Þá
stökk hann upp á
vélarhlíf bifreiðar
ljósmyndarans Sam Kelley, heim-
ildamanns slúðurfréttaveitunnar
Bang Showbiz fyrir þessu. Doherty
mun hafa misst stjórn á skapi sínu
nokkru áður þegar leigubílstjóri
neitaði honum um far, en hann fékk
far með ljósmyndaranum.
Doherty sat í bílstól fjögurra ára
dóttur ljósmyndarans á leiðinni og
sagðist stefna á frekari afrek í tón-
listarheiminum en Paul McCartney.
Doherty stökk svo skyndilega út úr
bílnum þegar hann var kyrrstæður
á götuhorni og lét sig hverfa.
Doherty faldi sig í
runna fyrir djöflum
Pete Doherty