Morgunblaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 160. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ÍSLAND Á STERUM EKKI FJÖLL, HELDUR VÖÐVAFJÖLL, EKKI ÍSBREIÐUR, HELDUR RJÓMAÍSBREIÐUR >> 46 VELKLÆDDUR ER VOFFINN SÆLL HUNDATÍSKA FÖGUR KLÆÐI >> 22 Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is GLÆSILEG þakíbúð í fjölbýlishúsi 101 Skuggahverfis nýtur eindæma útsýnis til allra átta, staðsetningar rétt við miðbæinn auk nútímalegrar hönnunar. Spurningin er hins vegar hvort raunhæft sé að meta 312 fermetra íbúð á tæpar 230 milljónir líkt og viðmiðunarverð gerir ráð fyrir. Skiptar skoðanir eru um þetta meðal fasteignasala sem rætt var við í gær. Sverr- ir Kristinsson, hjá Eignamiðlun, segir verð- ið byggjast m.a. á því að jafn glæsilegar íbúðir í þessari hæð og svo nærri mið- bænum séu ekki til. Eignamiðlun hefur íbúðirnar til sölu. Sverrir bendir á að íbúða- verð í miðbæjum stórborga Evrópu sé farið að hækka verulega og eðlilegt sé að sú þró- un verði einnig hér á landi. Jón Guðmundsson, hjá Fasteignamark- aðnum, telur verðið vera afar hátt. „Þetta er upp undir helmingi hærra verð en við er- um að selja fyrir í nágrenninu. Þar eru gæðin kannski ekki sambærileg en þegar þetta er orðið allt að því 100% dýrara þá er það orðið úr takti við markaðinn.“ Hann tel- ur þá, sem áhuga hafa á að flytja inn í ný- byggingar í miðbænum, hljóta að líta til þess að úrvalið eigi eftir að aukast þar sem til standi að byggja mikið í næsta nágrenni á allra næstu mánuðum. Fermetrinn á 730.000 kr. Ingibjörg Þórðardóttir hjá Híbýlum tek- ur í svipaðan streng. Fermetraverð þak- íbúðarinnar verður um 730 þúsund krónur og segir hún verðið slá allt út, þar á meðal dýrustu einbýlishús í Þingholtunum og við sjávarsíðuna. „Gott útsýni er lífsgæði og fólk er líka tilbúið að borga fyrir að búa í miðbænum. Hins vegar bregður fólki í brún þegar verðið er orðið tvöfalt á við það sem þekkist í kring,“ segir Ingibjörg. „Þetta segir bara að íslenski fasteigna- markaðurinn er að ná nýjum hæðum í verði og kemur ekki á óvart,“ segir Guðrún Árna- dóttir hjá Húsakaupum. Hún segist ekki vera viss um að íbúðin seljist á 230 milljónir en þegar haft sé í huga að hér á landi hafi fjölgað mjög fólki með góð peningaráð þá sé þetta alls ekki óeðlilegt verð. „Í miðbænum er nú verið að byggja tónlistarhús og íbúðir á fleiri stöðum. Miðbærinn er að breyta mjög um svip og íbúðir þar sem nú er verið að byggja eiga eftir að verða mjög dýrar.“ Morgunblaðið/Arnaldur Lúxus Byrjað er að taka við tilboðum í efstu hæðir 2. áfanga í Skuggahverfi. Þakíbúð fyrir 230 milljónir? Skiptar skoðanir um raunhæfi verðsins LEIKSKÓLABÖRN frá leikskólanum Laufskálaborg léttu lund manna í Hljómskálagarðinum í gær en hiti á landinu verður frá 10° næstu daga og mun fara upp í 20° þann 17. júní og því næg ástæða til að fagna. Morgunblaðið/Ásdís Sápukúlur blásnar af sannri list Íslensk mjólk og ítalskt kaffi Kvillinn hrjáir milljónir Fótaóeirð tengist háum blóðþrýstingi Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is DR. DAVID Rye, prófessor við Emory háskólann í Bandaríkjunum, kynnti nýverið niðurstöður fjögurra ára langrar rannsóknar sem hann stýrði í samstarfi við Kára Stefáns- son og Íslenska erfðagreiningu. Með henni var samband á milli algengs svefnkvilla, fótaóeirðar (e. Restless legs syndrome), og langvarandi hás blóðþrýstings staðfest. Þetta kemur fram á fréttasíðunni sciencedaily- .com, en samkvæmt fréttatilkynn- ingu frá Emory er fótaóeirð svefn- röskun sem veldur ómótstæðilegri þörf sjúklings fyrir að hreyfa fætur sína vegna óþæginda á borð við brunatilfinningu, náladofa eða kláða. Einkennin koma fram jafnt í vöku og svefni, en sjúkdómurinn hrjáir um það bil 10% bandarísku þjóðarinnar og tugi milljóna fólks um allan heim. 50% meiri líkur á háþrýstingi 900 Íslendingar tóku þátt. Þeir skráðu upplifanir sínar af fótahreyf- ingum í svefni og stýrt var fyrir áhrifum aldurs, kyns og þyngdar- stuðuls. Rannsóknin leiddi í ljós að líkurnar á háþrýstingi jukust um 50% við það að einstaklingur upplifði meira en 30 fótahreyfingar á klukku- stund. Áhrif fótahreyfinganna voru metin óháð áhrifum annarra þátta. Þegar dr. Rye kynnti niðurstöð- urnar sagði hann mikilvægi fóta- hreyfinga af þessu tagi sennilega snerta fleira en svefnraskanir, enda tengdust þær aukinni losun adrena- líns hjá sjúklingum. Auk þess að meðhöndla fótaóeirðina sjálfa þyrftu læknar því að veita henni athygli hjá sjúklingum sem eru í áhættuhópum fyrir hjarta- og æðasjúkdómum, til dæmis reykingamönnum og fólki úr fjölskyldum með sögu um hjarta- og æðasjúkdóma. ÍSLENSKA fyrirtækið 09 Mobile, sem sérhæfir sig í að bjóða lág far- símagjöld á milli landa, hefur gengið frá reikisamningum sem tryggja eiga viðskiptavinum fyrir- tækisins allt að 80% lægri farsíma- gjöld frá 190 löndum en gengur og gerist í dag. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu er ekki aðeins um að ræða lægri farsímagjöld því not- endur þjónustu 09 þurfa ekki held- ur að greiða fyrir móttöku símtala í 140 löndum. Þá hefur 09 einnig sóst eftir því að fá tíðniheimild hér á landi en Póst- og fjarskiptastofn- un tilkynnir niðurstöður útboðs á næstunni. Hrannar Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Vodafone, segist fagna nýjum keppinautum. „Við hjá Vodafone ætlum okkur hér eftir sem hingað til að leiða sam- keppnina á markaðnum og teljum okkur vel í stakk búin til þess,“ segir Hrannar og bætir við að Vodafone sé með afar samkeppn- ishæfa vöru fyrir ferðalanga, Vodafone passport, sem hann reiknar með að muni halda vin- sældum sínum. Hjá Símanum fengust þau svör að þjónusta 09 yrði skoðuð. „Við áttum okkur ekki á þessu fyrr en við sjáum um hvaða tölur er verið að ræða. Fyrirtækið virðist greini- lega vera með aðra viðskiptaáætl- un en önnur farsímafyrirtæki, þannig að við eigum eftir að skoða hvernig þetta er lagt upp,“ segir Linda Björk Waage, upplýsinga- fulltrúi Símans. Bjóða 80% ódýrari símtöl frá 190 löndum  09 Mobile hyggst tryggja ódýrari símtöl á milli landa  Síminn og Vodafone fagna samkeppni og skoða málið ÁTTA lög voru samþykkt á Al- þingi á sumarþingi sem lauk í gær. Á meðal þeirra eru lög sem varða viðaukasamning um ál- bræðsluna við Straumsvík, sam- einingu ráðuneyta, verðbréfa- viðskipti, kauphallir og fjármálafyrirtæki. Tillaga forsætisráðherra um að fresta fundum Alþingis var samþykkt samhljóða og tekur Alþingi að öllu óbreyttu til starfa að nýju 1. október. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, spurði ráð- herra hvort til stæði að kalla Alþingi fyrr saman til að vinna að mik- ilvægum málum á borð við fjárlög en Geir H. Haarde forsætisráð- herra sagði að engin sérstök áform væru um það. | 8 Átta lög voru samþykkt á sumarþinginu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.