Morgunblaðið - 14.06.2007, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BRANDARAKARLARNIR!
Fyrir krakkana,
mömmurnar,
pabbana
og öll hin
Sumardiskurinn
í ár.
Stútfullur af
bröndurum.
Hentar hvar og
hvenær sem er,
ekki síst
í ferðalagið.
FÆST Í BÓKABÚÐUM
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞESSI knái körfuknattleiksmaður
rekur út úr sér tunguna þegar hann
býr sig undir að skjóta boltanum á
körfuna. Það gæti verið til heiðurs
Michael Jordan sem þekktur var
fyrir sama tiltæki enda er bolurinn
vel merktur körfuboltagoðinu og
númerinu 23 sem var númer hans.
Michael Jordan er fyrrverandi leik-
maður bandaríska liðsins Chigaco
Bulls og er greinilega enn í miklum
metum hjá unga fólkinu.
„Ég flýg eins og Michael Jordan“
Morgunblaðið/Golli
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FUNDUR Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur utanríkisráðherra og
Nicholas Burns, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, um tvíhliða
samstarf þjóðanna í öryggis- og varn-
armálum, sem hefst í dag fyrir há-
degi, er haldinn í því skyni að leggja
pólitískan þunga á nauðsyn þess að
ganga frá þeim málum á varnar- og
utanríkissviðinu sem Ísland og
Bandaríkin eru með í vinnslu en er
ólokið. Málefni ratsjárstöðva, sem
Bandaríkjaher hefur rekið hér á landi
um áratugaskeið, verða einnig rædd
og sömuleiðis lofthelgiseftirlit við Ís-
land.
Bandaríkjaher hefur fjárveitingu
til reksturs ratsjárstöðvanna til 15.
ágúst og því ligg-
ur nokkuð ljóst
fyrir hvenær ís-
lenska ríkið tekur
við stöðvunum, en
verið er að vinna í
ýmsum útfærslu-
atriðum vegna
skiptanna og
sömuleiðis huga
að framtíðarsam-
vinnu við Bandaríkjamenn vegna
málsins.
Ingibjörg Sólrún og Burns ræða á
fundi sínum í dag ýmis hagnýt mál
sem varða varnarsamstarf ríkjanna
og í framhaldinu verða rædd öryggis-
mál á ýmsum svæðum heimsins á al-
mennum nótum. Einnig verða rædd
öryggismál í norðri, s.s. í tengslum við
Rússland, Írak og Afganistan.
Ræða ratsjár-
stöðvar og eftirlit
Nicholas Burns
HALLDÓR Blön-
dal verður að öll-
um líkindum
næsti formaður
bankaráðs Seðla-
banka Íslands.
Hann var ásamt
Ernu Gísladóttur
og Hannesi
Hólmsteini Giss-
urarsyni kosinn í
nýtt bankaráð Seðlabankans fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins í hlut-
bundinni kosningu á Alþingi í gær.
Hannes Hólmsteinn hefur setið í
ráðinu undanfarin ár og Erna
Gísladóttir hefur verið varamaður í
ráðinu. Fyrir Samfylkingu voru
þeir Jón Sigurðsson og Jón Þór
Sturluson kosnir í ráðið, en sá síð-
arnefndi hefur átt sæti í ráðinu.
Jónas Hallgrímsson og Ragnar
Arnalds halda sæti sínu í ráðinu
fyrir hönd Framsóknarflokks og
Vinstri grænna.
Halldór líklega
nýr formaður
bankaráðs SÍ
Halldór Blöndal
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
framlengingu gæsluvarðhalds yfir
karlmanni sem grunaður er um að-
ild að umfangsmiklu fíkniefnamáli.
Rétturinn stytti varðhaldið þó og
mun maðurinn sæta gæsluvarðhaldi
allt til 13. júlí nk.
Maðurinn hefur sætt varðhaldi frá
10. febrúar sl. vegna gruns um aðild
að innflutningi á 3,7 kg af kókaíni
sem falið var í bifreið sem kom til
landsins frá Þýskalandi í nóvember
á sl. ári. Í greinargerð ríkissaksókn-
ara kemur fram að ákærði hafi ann-
ast tollafgreiðslu bifreiðarinnar og
tekið hana í sína vörslu.
Aðalmeðferð málsins átti að hefj-
ast 4. júní sl. en vegna beiðni ákærða
um dómskvaðningu matsmanna til
að meta geðheilbrigði hans, var að-
almeðferðinni frestað um einn mán-
uð.
Áframhaldandi
gæsluvarðhald
ÞRJÚ herskip eru væntanleg til
hafnar í Reykjavík í dag. Tvö koma
inn í Sundahöfn og eitt í Reykjavík-
urhöfn, en skipin eru hér á vegum
NATO. Stærst er beitiskipið USS
Normandy, sem hefur 364 manna
bandaríska áhöfn og leggst við
Skarfabakka. Hin eru SPS Patino
með 140 manna spænskri áhöfn og
FGS Sachsen með 202 manna
þýskri áhöfn. Skipin þrjú mynda
heild sem kallast Standing NATO
Maritime Group 1.
Þrjú herskip
í Reykjavík
FYRSTA hollið er nú við veiðar í
Þverá í Borgarfirði og um miðjan
dag í gær höfðu tveir laxar veiðst.
Jón Ingvarsson veiddi þann
fyrsta, sem var tveggja ára fisk-
ur, við Kaðalstaði. Tók hann
svartan Frances. Hallgrímur
Gunnarsson náði hinum laxinum
við Bása en það var þó smálax.
Voru fiskarnir ekki lúsugir og
höfðu þeir því verið í ánni í ein-
hvern tíma.
Að sögn Jóns Ólafssonar, leigu-
taka Þverár–Kjarrár, var minnk-
andi vatn í ánni í gær, en þó nóg
vatn engu að síður og sagði hann
einnig að laxar hefðu sést á
nokkrum stöðum í ánni.
Veiði hefst á efri hluta vatna-
svæðisins, í Kjarrá, á föstudaginn
næstkomandi.
Tveir laxar
veiddir í Þverá
EKKI verður annað séð en að lítill munur sé á al-
mennu verði sem í boði er hjá þeim flugfélögum
sem fljúga til og frá Íslandi, að minnsta kosti fyrir
þá sem eru ekki mjög forsjálir og eru nú að leita
leiða til að komast út fyrir landsteinana á næstu
vikum. Lausleg athugun á verði sem í boði er hjá
þeim flugfélögum sem fljúga frá Íslandi til ann-
arra staða í Evrópu leiðir í ljós að munurinn þar á
er ekki ýkja mikill
Óhætt er að segja að tilkoma Iceland Express
hafi skapað samkeppni á flugmarkaði til og frá Ís-
landi sem áður þekktist ekki, þegar starfsemi fé-
lagsins hófst í febrúar árið 2003. Hins vegar hefur
verðmunur á milli Iceland Express og Icelandair
minnkað stöðugt og er það í samræmi við það sem
þeir er til þekktu spáðu fljótlega eftir að lágfar-
gjaldaflugfélagið Iceland Express hóf að fljúga til
og frá Íslandi fyrir rúmum fjórum árum.
„Eins og önnur hefðbundin flugfélög þá höfum
við horft á lágfargjaldaflugfélögin og þeirra að-
ferðir og tekið eitthvað af þeim upp. Það sama
hafa lágfargjaldaflugfélögin reyndar einnig gert,“
segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair.
Möguleikar á flugi til og frá Íslandi hafa hins
vegar aukist mikið á umliðnum árum og er nú svo
komið að fimm flugfélög bjóða upp á reglubundn-
ar flugferðir til og frá öðrum Evrópulöndum á
þessu sumri. Þetta eru Icelandair, Iceland Ex-
press, SAS, British Airways og þýska félagið
LTU.
Ódýrustu flugsætin sem í boði eru hér á landi
eru væntanlega hjá Iceland Express. Það á sér-
staklega við þegar opnað er fyrir sölu á
ákveðnum flugleiðum. Þá eru allajafna nokkur
sæti í boði fyrir um átta þúsund krónur aðra leið-
ina, með sköttum. Dýrustu sætin hjá Iceland Ex-
press eru hins vegar síðustu sætin sem seld eru í
vél, en þá getur verðið farið allt upp í um 24 þús-
und krónur aðra leiðina, án skatta.
Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, spá því að
þegar á heildina er litið muni flugfélögin í heim-
inum skila hagnaði í ár, í fyrsta skipti frá því á
árinu 2000.
Hækkun á eldsneytisverði og aukin samkeppni
frá lágfargjaldaflugfélögum setti strik í reikning-
inn hjá mörgum af hefðbundnu flugfélögunum.
Giovanni Bisignani, framkvæmdastjóri IATA,
sagði á aðalfundi samtakanna í Vancouver í Kan-
ada í síðustu viku, að niðurskurður á rekstrar-
kostnaði flugfélaganna og hagræðing í starfsemi
þeirra væru farin að skila árangri. Því væri útlit
fyrir að fluggeirinn í heild mundi skila um fimm
milljarða Bandaríkjadollara hagnaði á þessu ári.
Munur á verði minnkar
Fimm félög fljúga reglulega á milli Íslands og annarra landa í Evrópu í sumar
Verð hefðbundnu flugfélaganna hefur færst nær lágfargjaldaflugfélögunum
Í HNOTSKURN
»Horfur í flugrekstri í heiminum erubetri um þessar mundir en þær hafa
verið í langan tíma.
»Er það rakið til þess að hefðbundnumflugfélögum hefur tekist að laga rekst-
ur sinn að breyttum aðstæðum.
Viðskipti
FRESTUR vegna umsókna um 115
lóðir í Úlfarsárdal í Reykjavík er út-
runninn. Alls hafa 374 umsóknir bor-
ist um lóðirnar sem hafa bygginga-
rétt fyrir 388 íbúðir.
Reykjavíkurborg auglýsti þann 24.
maí síðastliðinn eftir umsóknum um
fjórar lóðir fyrir fjölbýlishús, 38 par-
og raðhúsalóðir og 73 einbýlishúsa-
lóðir í Úlfarsárdal, alls 388 íbúðir.
Lóðirnar verða seldar á föstu verði
sem borgaryfirvöld segja að sé
kostnaðarverð. Fyrst um sinn létu
viðbrögðin á sér standa og aðeins 15
sóttu um lóðir fyrstu vikuna.
Ágúst Jónsson er skrifstofustjóri
Framkvæmdasviðs Reykjavíkur-
borgar. Í samtali við netútgáfu
Morgunblaðsins sagði hann tregð-
una hafa verið ósköp eðlilega vegna
þess mikla magns upplýsinga og
gagna sem umsækjendur þurftu að
leggja fram. Þá sagði Ágúst einnig
að samanburður á lóðaumsóknum í
Úlfarsárdal við umsóknir um lóðir
við Lambasel í Reykjavík, þegar á
sjöunda þúsund umsóknir bárust,
væri ekki sanngjarn því þá hefði fólk
fyrst sótt um og síðan þurft að af-
henda ýmis gögn ef svo fór að það
var dregið úr pottinum.
374 sóttu
um í Úlf-
arsárdal