Morgunblaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 22
|fimmtudagur|14. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Páfuglaeyjan í ánni Havel í Berl-
ín er fræg fyrir fallegar og sér-
stæðar byggingar og fjölskrúð-
ugt dýralíf. » 26
ferðalög
Margir nota sjónlinsur en hver
er munurinn á að nota dagsl-
insur, mánaðarlinsur og svo-
kallaðar silíkonlinsur? » 24
neytendur
É
g hef sjálf mjög gaman
af hundum en á engan
ennþá, en ég er búin
að panta mér einn æð-
islegan hund hjá henni
Ástu í Dalsmynni sem ræktar fjöl-
breytta hunda. Ég fæ hann fljótlega
en ég fer þangað í hverri viku að
heimsækja hundana, mér finnst þeir
svo yndislegir,“ segir Salika Pisp-
lern sem nýlega opnaði verslun í bíl-
skúr á Seltjarnarnesinu með föt fyr-
ir hunda.
„Ég hef fengið mjög góð viðbrögð
og fólki finnst skemmtilegt að klæða
hundana sína upp við ólík tækifæri.
Þeir verða svo krúttlegir í svona föt-
um, ég er til dæmis með gallabuxur
og skyrtur fyrir strákahunda og svo
kjóla og skvísuföt fyrir stelpurnar.
Sum fötin eru sérstaklega hlý og
veita gott skjól fyrir kulvísa hunda,
en smáhundum verður fljótt kalt ef
þeir eru úti í köldu veðri. Ég er bæði
með sumarföt, vetrarföt og partíföt.
Svo er ég líka með hundaskó, en
hundarnir eru ekki mjög hrifnir af
því að vera í skóm, þeir eiga erfitt
með að ganga í þeim. Skórnir eru
meira hugsaðir sem skraut,“ segir
Salika og hlær en á æskuslóðum
hennar í Taílandi er mikið um
hunda.
„Taílendingar eru mjög hrifnir af
hundum og þar er mjög algengt að
fólk klæði þá í föt, því það þarf líka
að klæða hitann af þeim, rétt eins og
við mannfólkið gerum. Ég kaupi
mikið af þessum fötum frá Taílandi
en líka frá Bandaríkjunum, þar sem
hundatískan er flott, enda eiga
frægu stjörnurnar smáhunda sem
þær klæða í falleg föt.“
Betra að máta fötin á hundana
áður en þau eru keypt
Salika er ekki aðeins með föt fyrir
hunda, hún er líka með mjúk hús
fyrir þá, bæli, ólar og sérstakar tösk-
ur sem hannaðar eru til að bera
hundana í og eru með góðum loftgöt-
um. Hún segist vera spennt að fara
út í viðskipti þótt í litlum mæli sé
enn sem komið er, en hún ætlar þó
að bæta einhverju við ef vel gengur
og jafnvel bjóða upp á hundamat og
fleira sem tengist hundum. Hún tal-
ar ágæta íslensku enda hefur hún
búið hér á landi í sjö ár.
„Ég kom hingað vegna þess að
frænka mín bjó hér og henni líkaði
vel. Ég vann fyrst á Droplaug-
arstöðum, fékk svo fljótlega börnin
mín tvö til mín og núna vinn ég í
Laugaskjóli.“
Salika segir að ef fólk ætli að
kaupa föt á hund sé best að taka
hann með í búðina og máta fötin til
að vera viss um að þau passi og að
hundurinn sé sáttur við að klæðast
þeim. Hún reynir að vera alltaf í
versluninni eftir klukkan fjögur á
daginn, þegar hún hefur lokið vinnu
sinni í Laugaskjóli.
Morgunblaðið/Sverrir
Partýljón Gaman að vera flottur í
tauinu þegar haldið er til veislu.
Sumarkjóll Létt og skemmtileg föt fyrir bjarta sólardaga.
Fögur
klæði fyr-
ir hvutta
Hundavinur Salika er mjög hrifin af hundum og hér hefur hún klætt einn
þeirra sem hún fékk lánaðan hjá Ástu vinkonu sinni, í litríka skó.
Vísindamenn hafa nú aðsögn fundið þann hlutaheilans sem stjórnar þvíhvort einstaklingur kem-
ur til með að verða eigingjarn eða
óeigingjarn, sjálfselskur eða fórn-
fús.
Fórnfýsin felst í því að ein-
staklingur hefur tilhneigingu til að
hjálpa öðrum án þess að hugsa um
eigin hagsmuni sérstaklega. Með
hjálp heilaskanna var hægt að stað-
setja þetta svæði í rannsókn á 45
sjálfboðaliðum við Duke-háskóla í
Bandaríkjunum. Greint var frá
rannsókninni í læknatímaritinu
Nature og á vefmiðli BBC fyrir
skömmu.
Þátttakendur voru beðnir um að
segja frá því hve oft að jafnaði þeir
réttu hjálparhönd, til dæmis með
sjálfboða- og góðgerðarstarfi, auk
þess sem þeir voru beðnir um að
spila tölvuleik, sem er hannaður til
að mæla fórnfýsi og ósérhlífni.
Sérfræðingar telja að rannsóknin
geti gefið mikilvægar vísbendingar
þó þeir séu enn að finna leiðir til að
átta sig á því hvernig þetta heila-
svæði starfar og þróast á yngri ár-
um. „Þótt við komumst nær sann-
leikanum um hvernig þetta svæði
starfar þýðir það ekki endilega að
við skiljum til hlítar hvað rekur ein-
staklinga á borð við móður Teresu
áfram í sinni fórnfýsi.“ Rannsóknin
getur hins vegar gefið ákveðnar
vísbendingar um uppruna fé-
lagslegrar hegðunar á borð við
fórnfýsi og ósérhlífni. Að sögn sér-
fræðinga er sönn ósérhlífni bæði fá-
gæt og fremur torræðin því flestir
líta á óeigingirnina sem gagn-
kvæma fórnfýsi. Maður gerir eitt-
hvað fyrir einhvern annan og býst
svo við einhverju á móti um síðir.
heilsa
Fórnfúsa
heilasvæð-
ið fundið
Morgunblaðið/Kristján
Rannsókn Gefur vísbendingar um
uppruna félagslegrar hegðunar.
Buxur Töffari í gallabuxum með
rassvösum rétt eins og hjá fólki.
Hundatíska Fornaströnd 5
Seltjarnarnesi s: 845-6633
www.123.is/hundatiska