Morgunblaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30.
Boccia kl. 10.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16.30 handavinna.
Kl. 9-16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 boccia. Kl. 11
leikfimi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður kl.
9.15. Handavinnustofan opin og heitt á könnunni til
kl. 16. Á sunnudaginn, 17. júní, verður hátíðardag-
skrá í Gjábakka kl. 15-16. Á dagskrá nokkur tónlist-
aratriði, m.a. sungin revíulög. Hátíðarhlaðborð.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna,
kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handa-
vinna. Munið að skrá ykkur í grillveisluna 16. júní.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Æfing í Ás-
garði kl. 13 fyrir landsmót í boccia. Handa-
vinnuhorn í Garðabergi kl. 13, opið til kl. 16.30.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Laugar-
daginn 23. júní verður ferð norður í V-Húnavatns-
sýslu og farið í kringum Vatnsnes. Lagt af stað frá
Hlaðhömrum kl. 10. Skráning stendur yfir í s.
586 8014 og 692 0814.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er opið
kl. 9-16. Þriðjud. 19. júní kl. 13 verður púttvöllur við
Breiðholtslaug formlega tekinn í notkun, með
áherslu á þjónustu við eldri borgara, í samstarfi
við Vinnuskóla Reykjavíkur. Leiðsögn þriðjud. kl.
13-15 og fimmtud. kl. 10-12. S. 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin, opin
vinnustofa. Kl. 10 boccia (Bergþór). Kl. 10-16 pútt.
Kl. 11 leikfimi (Bergþór). Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14
félagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl.
9-16. Boccia kl. 10-11. Félagsvist kl. 13.30, góðir
vinningar, kaffi og meðlæti í hléi. Böðun fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Allir velkomnir. Gönguferðir alla
morgna kl. 9 á laugardögum kl. 10. Listasmiðjan
opin. Tölvusveitin hittist á þriðjud. og miðvikud. kl.
13-15. Púttvöllurinn opnar 20. júní. Kennsla í pútti
alla miðvikudaga í sumar kl. 17-18. Hádegismatur,
síðdegiskaffi. Kíkið við og fáið alla dagskrána. S.
568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia karlaflokkur
kl. 10.30. Handverks- og bókastofa kl. 13. Boccia
kvennakl. kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerð-
ir. Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-15.30 handa-
vinna. Kl. 9-10 boccia, Sigurrós (júní). Kl. 11.45-
12.45 hádegisverður. Kl. 13-14 leikfimi, Janick (júní-
ágúst). Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, handavinnustofa opin, hárgreiðslu
og fótaaðgerðarstofur opnar allan daginn, frjáls
spilamennska kl. 13-16.30.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera.
Kl. 13 leikfimi (Bergþór). Kl. 14 boccia (Bergþór).
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni. Kvöldbænir kl. 20. Verið velkomin.
Áskirkja | Göngum til góðs frá Áskirkju. Val er á
milli tveggja gönguhraða og leiða göngustýrur
hvorn hóp. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 14. Allir vel-
komnir.
Háteigskirkja | Taizé-messur. Lágstemmdir
söngvar, bænir og Guðs orð lesið alla fimmtudaga
kl. 20.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðarstund. Gunnar
Gunnarsson leikur á orgelið og sr. Hildur Eir Bolla-
dóttir eða Sigurbjörn Þorkelsson hugleiða stutt-
lega texta dagsins og leiða fyrirbænir. Máltíð í boði
í safnaðarheimilinu á eftir. Allir velkomnir. Kl. 21
AA-fundur í safnaðarheimilinu.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrða- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í Vídalínskirkju kl.
21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna.
Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar.
Demantsbrúðkaup | Heið-
urshjónin Cýrus Danelíusson
og Guðríður Þorkelsdóttir,
Dagsbrún, Hellissandi, eiga í
dag, 14. júní, 60 ára brúð-
kaupsafmæli, demantsbrúð-
kaup.
50ára. Í dag, 14. júní, erSigrún Jóhanna Þor-
steinsdóttir fimmtug. Af því
tilefni tekur hún á móti gest-
um á heimili sínu í Brúnahlíð
8 í Eyjafjarðarsveit laug-
ardaginn 16. júní frá klukkan
15 og fram eftir kvöldi.
40ára. Kjartan Magnús-son, sölustjóri og
plötusérfræðingur hjá Tibnor
AB, er fertugur í dag. Hann er
búsettur í Landskrona í Sví-
þjóð með konu sinni Anette og
dætrunum Emelie og Nathalí
ásamt svíninu Míní.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að ber-ast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 14. júní, 165. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Annað er þetta: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessu meira.“ (Mark. 12, 31.)
Alþjóðlegi blóðgjafardagurinner í dag, 14. júní. Margt verð-ur um að vera í tilefni dagsinseins og Sigríður Ósk Lár-
usdóttir, deildarstjóri hjá Blóðbank-
anum, segir frá: „Tekið verður á móti
blóðgjöfum í Blóðbankanum frá 8 til 19,
en en við bjóðum almenningi að koma í
heimsókn milli 8 og 16 og kynnast starf-
semi Blóðbankans í nýju húsnæði við
Snorrabraut 60. Veitt verður leiðsögn
um húsið og boðið upp á léttar grillveit-
ingar í hádeginu,“ segir Sigríður Ósk. „Í
Laugardal hefst kl. 18 Blóðbankahlaup-
ið. Um er að ræða skemmtilegt skokk
fyrir alla fjölskylduna, 3 km hlaupaleið,
og er öllum þátttakendum boðið í sund á
eftir.“
Góður hópur blóðgjafa myndar að
sögn Sigríðar Óskar eina af und-
irstöðum heilbrigðiskerfisins: „Gjafa-
blóð er ómissandi við aðgerðir og slysa-
móttöku, og einnig nauðsynlegt við
ýmsa meðferð, t.d. krabbameins-
meðferð. Eins og slagorð bankans
minnir á, þá er blóðgjöf lífgjöf,“ segir
Sigríður. „Til að anna eftirspurn þarf að
meðaltali um 70 blóðgjafa dag hvern.
Þótt blóðbankinn geti stólað á stóran
hóp reglulegra blóðgjafa þarf árlega allt
að 2.000 nýja blóðgjafa í hópinn.“
Sigríður segir alla jafna ganga ágæt-
lega að anna eftirspurn eftir blóði, en
gangi þó verr á sumum tímum árs. „Í
sumarbyrjun og kringum jólin vilja
blóðgjafar oft gleyma í dagsins amstri
að líta inn og þarf þá Blóðbankinn oft að
minna sérstaklega á sig.“
Þeir sem vilja nota tækifærið á blóð-
gjafardeginum og gefa blóð í fyrsta
skipti geta litið inn í Blóðbankanum
hvenær sem er á afgreiðslutíma: „Blóð-
gjafar þurfa að vera orðnir 18 ára, vera
heilsuhraustir og ekki taka nein lyf.
Þeir sem t.d. þurfa að nota ofnæmislyf
að staðaldri yfir sumartímann verða að
bíða til haustsins áður en þeir geta gefið
blóð,“ segir Sigríður Ósk. „Við fyrstu
komu fylla blóðgjafar út heilsufars-
skýrslu, mældur er blóðþrýstingur og
tekin sýni þar sem m.a. er athugað blóð-
magn og blóðflokkur, og ef ekkert er at-
hugavert við niðurstöðurnar getur við-
komandi bæst í hóp blóðgjafa.“
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Blóðbankans á slóðinni
www.blodbankinn.is.
Góðverk | Opið hús hjá Blóðbankanum í dag til kl. 16 á blóðgjafardeginum
Blóðgjöf er lífgjöf
Sigríður Ósk
Lárusdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1957. Hún lauk
námi í hjúkr-
unarfræði frá
Hjúkrunarskóla Ís-
lands 1979. Hún
starfaði við
Sjúkrahúsið á
Sauðárkróki 1979 til 1981 og hefur
síðan starfað við Landspítalann, nú
LSH. Hún hefur verið hjá Blóðbank-
anum síðan 1998 og er nú deild-
arstjóri. Sigríður Ósk er gift Þorsteini
Alexanderssyni kennara og eiga þau
tvö börn.
Tónlist
B5 | Biggo kl. 21.
Gaukur á Stöng | Skátar, KAbear,
Bertel og Morðingjarnir. Húsið
opnað kl. 21. Aðgangur ókeypis.
Hallgrímskirkja | Á vegum tón-
leikaraðarinnar Alþjóðlegt org-
elsumar leikur Jón Bjarnason,
organisti Seljakirkju, á hádegis-
tónleikum tónlist eftir Bach og
Buxtehude. Tónleikarnir hefjast
kl. 12.
Hjallakirkja | Kór Egilsstaða-
kirkju heldur upp á 50 ára afmæli
sitt um þessar mundir. Kórinn er
á leið í tónleikaferð til Noregs og
mun halda tónleika í kvöld kl. 20.
Stjórnandi er Torvald Gjerde.
Norræna húsið | Karis-kórinn frá
Finnlandi ásamt kvennakvartett-
inum Alla Breve og Västkvart-
etten, sem er lítill karlakór, syngja
í sal Norræna húsins, 14. júní kl.
15. Allir velkomnir.
Söfn
Seltjarnarnesbær | Ljósmynda-
sýningin „Systir með sjóhatt“
sem sett var upp í tilefni Menn-
ingarhátíðar Seltjarnarness mun
standa á Bókasafni Seltjarnar-
ness til 15. ágúst nk. Sýningin
hefur að geyma ljósmyndir úr
fjölskyldualbúmi einnar fjölskyldu
á Nesinu frá því fyrir aldamótin
1900 og fram yfir seinni heims-
styrjöld.
Fyrirlestrar og fundir
Hugleiðslu og friðarmiðstöðin |
Fimmtudaginn 14. júní kl. 17.30
heldur Lama Yeshe Rinpoche
fyrirlesturinn The Importance of
Compassion and Loving Kindness
í Norræna húsinu. Allir velkomnir.
Frjáls framlög. Sjá nánar á
www.hugleidsla.is.
Frístundir og námskeið
www.ljosmyndari.is | Ljós-
myndanámskeið, Ísafirði 30.
júní-1. júlí kl. 13-17 í Þróunarsetri
Vestfjarða. Farið í helstu stilling-
aratriðin á stafrænni myndavél,
ýmis góð ráð gefin til að ná betri
myndum. Tölvumálin tekin fyrir
o.fl. Námskeiðið kostar 12.900 kr.
Skráning á www.ljosmyndari.is.
Leiðbeinandi Pálmi Guðmunds-
son.
Útivist og íþróttir
Skógræktarfélag Íslands | Önnur
skógarganga skógræktarfélag-
anna í sumar er fimmtudaginn 14.
júní kl. 20. Upphaf göngunnar er
við bílaplan vestan Vífilsstaða-
vatns.
Nánari upplýsingar á heimasíðu
Skógræktarfélags Íslands –
www.skog.is.
MEÐ valhnotu yfir auga og logandi lauf á
bambus í eyrum var reynt að lækna þennan
mann af meinum sínum á sjúkrahúsi í Jinan,
höfuðborg Shandong-héraðs, í Kína í fyrra-
dag. Maðurinn er lamaður í andliti að hluta
en ekki fylgir sögunni hvort árangur varð.
Kínverjar hafa um aldir iðkað óhefðbundnar lækningaaðferðir
Valhnota og logandi lauf
Reuters
Árlegt mót Bridsfélags Mennta-
skólans að Laugarvatni 16. júní
Það styttist í hið árlega mót Brids-
félags Menntaskólans að Laugar-
vatni, sem fer fram 16. júní. Nú verð-
ur spilaður „árshátíðar“-tvímenn-
ingur en ekki einmenningur eins og í
fyrra. Tilvalið er að draga gamla
meðspilarann frá Laugarvatni með
sér, nú eða hvern sem er. Þeir sem
mæta tímanlega geta jafnvel fundið
félaga á staðnum. Mótið er öllum op-
ið. Það verður haldið á Grand Hóteli
í Sigtúni 38 og hefst spilamennska
kl. 14. Áætlað er að spilamennsku
ljúki um kl. 18.30. Keppnisgjaldi
verður stillt í hóf, 1500 kr. á mann
eins og í fyrra. Verðlaun verða veitt
fyrir 3 efstu sætin ásamt því að af-
hent verða sérstök Kjartansverð-
laun. Léttar innákomur og léttar
veitingar verða leyfðar í hófi, enda er
hér um hóf að ræða. Vissara er að
skrá sig sem fyrst til að tryggja þátt-
töku og auðvelda skipulagningu.
Skráning er hjá Ómari Olgeirs-
syni í síma 869 1275 eða á netfanginu
icearif@hotmail.com Endilega
minnið félagana á mótið og að skrá
sig í tíma áður en salurinn fyllist en
salurinn er mun stærri en í fyrra.
Sjáumst í stuði 16. júní!
Ómar „Sharif“ Olgeirsson,
bridsnefndarformaður
úr árgangi ’94.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni sem fór fram í
Ásgarði, Stangarhyl 4, fimmtud. 7.
júní 2007.
Spilað var á 13 borðum. Meðalskor
var 312 stig.
Árangur N-S:
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 360
Björn E. Pétursson – Gísli Hafliðason 346
Eysteinn Einarss. – Ragnar Björnsson 342
Árangur A-V:
Bjarni Ásmundss. – Þröstur Sveinsson 393
Jón Lárusson – Örn Sigfússon 389
Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímss. 388
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 8. júní var spilað á 11
borðum. Meðalskor var 216.
Úrslit urðu þessi í N/S
Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinsson 249
Ragnar Björnss. – Gísli Víglundsson 244
Jens Karlsson – Skarphéðinn Lýðss. 234
Sverrir Gunnarss. – Einar Markússon 234
A/V
Oddur Jónsson – Eyjólfur Ólafsson 253
Sigfús Jóhannss.– Ingólfur Þórarinss. 249
Magnús Oddsson – Óli Gíslason 243
Slakt gengi á NM
í Lillehammer
Ísland gerði jafntefli við Dani í
opnum flokki í síðustu umferð Norð-
urlandamótsins sem dugði ekki til að
lyfta liðinu úr fimmta sæti keppn-
innar, til þess þurfti Ísland 18 stig.
Finnar tryggðu sér öruggan sigur
með 25-1 sigri á Færeyjum í síðustu
umferð. Óhætt er að segja að
frammistaða liðins í opnum flokki
hafi valdið vonbrigðum. Kvennaliðið
þurfti að bíta í það súra epli að detta
úr þriðja sætinu í það fjórða með
slæmu tapi, 5-25 gegn liði Dana. Þar
urðu norsku konurnar Norðurlanda-
meistarar með sex stiga forystu á lið
Svíþjóðar. Kvennaliðið stóð sig ann-
ars framar vonum og hefði getað náð
verðlaunasæti með farsælni í loka-
umferðunum.
Lokastaðan í opnum flokki:
1. Finnland 196
2. Danmörk 170
3. Svíþjóð 156
4. Noregur 145
5. Ísland 143
6. Færeyjar 75
Lokastaðan í kvennaflokki:
1. Noregur 191
2. Svíþjóð 185
3. Danmörk 163
4. Ísland 146
5. Finnland 133
6. Færeyjar 70
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
norir@mbl.is
Fréttir á SMS