Morgunblaðið - 14.06.2007, Page 46
... hvíslar örvænting-
arfullur í eyra hennar:
„Vaknaðu! Vaknaðu!“ … 50
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
SINGLE Drop er heitið á nýju sóló-
verkefni gítarleikarans Birkis Rafns
Gíslasonar sem smalaði saman góð-
um hópi tónlistarmanna og hefur
gefið út plötu með lögum eftir sig.
„Þetta er nýtt sólóverkefni hjá mér,
sólóplata sem ég gef út í samstarfi
við mína bestu vini,“ segir Birkir, en
á meðal þessara vina hans eru Sign-
liðarnir og bræðurnir Ragnar Zol-
berg og Egill Örn Rafnssynir, og
Ásta Sveinsdóttir sem hefur meðal
annars sungið með Gus Gus. „Ég
samdi fullt af lögum og ákvað í kjöl-
farið að gefa þessa plötu út. Ég er
búinn að vera í eitt og hálft ár að
vinna hana,“ segir Birkir. „Þetta er
svona tilraunakennt popp-rokk, það
er pínu „mistík“ yfir þessu, en svo
getur þetta farið yfir í ljúfar og létt-
ar tónsmíðar.“
Birkir spilar á gítar í öllum lög-
unum og segir verkefnið vissulega
óvenjulegt. „Það er svolítið erfitt að
kynna þetta, maður veit ekki alveg
hvernig á að útskýra þetta,“ segir
hann, en það er ekki á hverjum degi
sem gítarleikari smalar í hljómsveit
og gefur út „sólóplötu“. „Ég er í
hljómsveitum en þetta var einhver
þörf sem ég fékk. Ég var búinn að
semja fullt af lögum en hafði aldrei
náð að koma þeim frá mér,“ segir
Birkir. Hann hefur meðal annars
spilað með Fabúlu og auk þess ýms-
um djass- og rokktónlistarmönnum.
Spurður um nafn plötunnar segir
Birkir að það vísi til þess þegar hann
sat einn heima og samdi lögin – einn
dropi í hafinu. „Þetta er líka allt mik-
ið tengt hafinu, textar og svona.“
Útgáfutónleikar Single Drop eru í
Tjarnarbíói í kvöld og hefjast kl. 21.
Miðaverð er 1.000 kr. Platan verður
fáanleg í verslunum á næstu dögum.
Einn einasti dropi í hafið
Morgunblaðið/Eyþór
Birkir Rafn „Ég var búinn að semja fullt af lögum, en aldrei náð að koma
þeim frá mér.“ Heyra má í Single Drop á www.myspace.com/singledrop.
Útgáfutónleikar Single Drop verða í Tjarnarbíói í kvöld
Björk Guð-
mundsdóttir kom
fram í hinum
virta tónlist-
arþætti Jools Hol-
land á dögunum
og fór á kostum,
eins og nú má
kynna sér á vef-
síðunni YouTube-
.com. Björk flutti lögin „Anchor
Song“, „Earth Intruders“ og hið
magnaða pönk-teknólag „Declare
Incependence“. Meðal annarra
gesta í þættinum var Sir Paul
McCartney og er ekki annað að sjá
á myndskeiðinu en að honum hafi
líkað flutningur Bjarkar á síðast-
nefnda laginu, enda stígur hann
taktinn og klappar Björk lof í lófa
að laginu loknu.
Björk fer á kostum í
þætti Jools Holland
Rokksveitirnar Morðingjarnir,
Skátar, Bertel! og K A Bear troða
upp á Gauki á stöng í kvöld. Morð-
ingjarnir eru alltaf hressir, eins og
segir í fréttatilkynningu, en Skátar
eru í þann mund að leggja í tón-
leikaferð hálfan hringinn í kringum
landið. Staldra þeir m.a. við á Ak-
ureyri, Borgarfirði eystri og Egils-
stöðum um helgina. Von er á nýrri
skífu frá Bertel! en áhugamenn um
íslenskt rokk ættu sér í lagi að
kynna sér K A Bear sem er glænýtt
band … og hresst, eins og segir í til-
kynningu. Tónleikarnir á Gauknum
hefjast kl. 21 og frítt inn.
Rokk og ról á Gauki
á stöng í kvöld
Þeir félagar í
hljómsveitinni
Sigur Rós fara
iðulega ótroðnar
slóðir en auk
þess að leika tón-
list berjast þeir
fyrir verndun
Kvosarinnar, út-
skrifast úr
listaháskólum og halda myndlist-
arsýningar. Nú síðast hefur spurst
út að Jónsi söngvari sé búinn að
festa kaup á einu stykki torfbæ í ná-
grenni Stokkseyrar og hyggist
gera hann upp með hjálp góðra
vina. Hvað svo er ekki vitað.
Jónsi kaupir torfbæ
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„MIG LANGAÐI til að gera eitthvað æðislega
girnilegt og það fyrsta sem kom í huga mér
voru vaxtarræktarkarlar og rjómaís. Mér
fannst smellpassa saman þessi bleiki rjómaís
lekandi yfir gljáandi líkamana,“ segir Guð-
mundur Thorodds myndlistarmaður sem opnar
sína fyrstu einkasýningu, Rjómaísland, í 101
Gallery í dag.
„Ég byrjaði að vinna með girnileikann sem
smátt og smátt þróaðist út í þetta Rjómaísland
sem ég er nokkurn vegin búinn að skilgreina
sem einhvers konar lítið land mjög hliðstætt Ís-
landi og líkt að mörgu leyti. Þar eru fjöll,
vöðvafjöll og ísbreiður, rjómaísbreiður, svolítið
eins og Ísland á sterum, allt ýkt í botn. Ég er í
raun að vinna með það umhverfi sem við lifum
í núna, poppkúltúrinn og úrkynjunina í kring-
um hann. Úrvinnslan er öll þessi innihaldslausa,
bleika froða. En þetta er líka ádeila á mig, því
ég tek þátt í þessum poppkúltúr eins og aðrir,“
segir Guðmundur.
Guðmundur ætlar að sýna tólf málverk og
níu minni blýantsteikningar í 101 Gallery.
Hann segist vonast til að fólk átti sig á ádeil-
unni í verkunum á sýningunni og fái hálfgerða
sykurógleði. „Ég vonast til þess, ef fólk er inni
í galleríinu í svolítinn tíma, að það fái svolítinn
viðbjóð á þessu bleika ógeði, finni fyrir því að
sá möguleiki sé fyrir hendi að það kæfi allt,
leki yfir allt landið og stroki út alla merkingu.“
Reiknaði verðgildi hluta í rjómaís
Guðmundur útskrifaðist úr myndlistardeild
Listaháskóla Íslands árið 2003 og hefur alltaf
notað akrýlmálningu og blýantsteikningar í
verk sín.
„Ég hef alltaf málað mikið bleikt og ég kann
best við mig í málverkinu, þó ég hafi líka að-
eins verið að fikta með skúlptúra,“ segir hann
og viðurkennir að sumum finnist hann stundum
fastur í fortíðinni með því að mála.
„Sumir álíta mig fornaldarmann vegna þess
að ég mála, það þykir nefnilega stundum gam-
aldags en auðvitað tel ég ekk svo vera. Þó ég
sé að mála fjöll þá hef ég ekki sérstakan áhuga
á gömlum landslagsmálverkum sjálfur en finnst
samt sniðugt að við búum að þessari landslags-
hefð hér á Íslandi. Ég er þá kannski enn og aft-
ur að vísa svolítið til föðurlandsins í verkum
mínum. Ég sé annars fram á að halda áfram
með þennan stíl, með þessa liti og þetta mótíf,
ég er ekki búinn með bleika þemað,“ segir
Guðmundur. Honum þykir rjómaís svo góður
að hann reiknaði eitt sinni verðgildi hluta í
rjómaís.
Rjómaísland er sölusýning og stendur til 19.
júlí í 101 Gallery sem er að Hverfisgötu 18a.
„Æðislega girnilegt“
Guðmundur Thoroddsen opnar sýninguna Rjómaísland í 101 Gallery í dag
Hann deilir á poppkúltúrinn með vöðvafjöllum og rjómaísbreiðum
Morgunblaðið/ ÞÖK
Rjómaísland Myndlistarmaðurinn Guðmundur Thoroddsen um það bil að verða kaffærður af rjómaíssflóðbylgju, að því er virðist.