Morgunblaðið - 14.06.2007, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 53
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
FANTASTIC 4: RISE OF THE SILVER SURFER kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
eee
S.V. - MBLA.F.B - Blaðið
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
WWW.SAMBIO.IS
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Mesta ævintýri fyrr og síðar...
...byrjar
við
hjara
veraldar
„Besta Pirates
myndin í röðinni!“
tv - kvikmyndir.is
„SANNUR SUMAR-
SMELLUR... FINASTA
AFÞREYINGARMYND“
Trausti S. - BLAÐIÐ
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
eee
LIB, Topp5.is
48.000
GESTIR
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
„ÞAÐ sem er kannski skemmtileg-
ast við þetta hjá okkur, og eitt að-
alsmerki þessa bands, er að við
semjum allir tónlistina,“ segir Andr-
és Þór Andrésson djassgítarleikari,
en hann mun í kvöld halda útgáfu-
tónleika ásamt þeim Eyjólfi Þor-
leifssyni saxófónleikara, Þorgrími
Jónssyni saxófónleikara og Scott
McLemore trommara. Hljómsveitin
kallast BonSom og blandar að sögn
saman rokki, pönki og þjóðlaga-
tónlist.
Allir eru aðal
„Það er yfirleitt þannig með djass-
tónlistarmenn að einhver einn situr
við stjórnvölinn í hverju verkefni,
semur tónlist og skipuleggur, og hó-
ar loks í aðstoð. Hjá okkur var tekin
meðvituð ákvörðun um að fara þessa
leið tónlistarlega. Við erum hljóm-
sveit, allir leggja í púkkið, allir eru
aðal,“ segir Andrés. „Tónlistina út-
setjum við svo fyrir hefðbundna
djassuppstillingu.“ Inntur eftir
áhrifavöldum segir hann að þeir fé-
lagar hafi í raun aldrei rætt þau mál
sérstaklega, en þegar hann hallar
sér frá símanum og spyr hina með-
limina heyrast ýmis nöfn: Led Zep-
pelin, Hendrix, Doors, Sex Pistols,
Anthrax, Billy Idol. „Við erum í raun
að prófa hvað við komumst langt
innan djassmengisins,“ segir Andr-
és. „Við köllum fram ýmsar leifar af
því sem við höfum hlustað á í gegn-
um tíðina, jafnt poppi sem rokki.“
Útkoman er því forvitnileg blanda af
rokkskotnum djassbræðingi sem
sækir áhrifin víða að.
Samræmdur og
sérstæður hljómur
BonSom hefur áður haldið fun-
heita tónleika á Café Rósenberg, og
þóttu þeir afar vel heppnaðir, enda
hefur hljómsveitin náð að skapa
samræmdan og sérstæðan hljóm. Í
kjölfar tónleikanna var farið að huga
að upptökum; fyrsta hljómplata
sveitarinnar var hljóðrituð í Heita
pottinum í Reykjavík í mars síðast-
liðnum. Þess má geta að einkar
glæsilegt umslag plötunnar hannaði
trommuleikari sveitarinnar, Scott
McLemore. Það er Dimma sem gef-
ur diskinn út.
Útgáfutónleikarnir hefjast klukk-
an 21 í kvöld og eru haldnir á Domo-
bar að Þingholtsstræti 5.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bonsom Hljómsveitin heldur útgáfutónleika á Domo í kvöld.
Úr öllum áttum
Í BonSom fær enginn að skara fram úr
www.myspace.com/bonsom
BANDARÍSKA leikkonan Jennifer Aniston mun framleiða og hugsanlega leika í
söngvamyndinni Goree Girls, sem byggð er á sönnum atburðum. Í kvikmyndinni segir
af kvenföngum í Goree-fangelsinu í Texas á 5. áratug seinustu aldar, sem stofnuðu
eina fyrstu kvenna-kántríhljómsveitina í Bandaríkjunum og urðu afar vinsælar. Þær
voru á endanum náðaðar. Verið er að leita að leikstjóra að myndinni.
Hugmyndina að kvikmyndinni fengu Aniston og meðframleiðandi hennar, Kristin
Hahn, þegar þær lásu grein í tímaritinu Texas Monthly árið 2003, sem fjallaði um fyrr-
nefnda fangelsiskvennahljómsveit. Aniston hefur nóg á prjónunum þessa dagana,
nokkur kvikmyndaverkefni eru í vinnslu. Hún stofnaði kvikmyndafyrirtækið Plan B
með leikaranum Brad Pitt, í þá tíð er þau voru gift.
Kvikmynd um kvenna-
fangelsishljómsveit
Reuters
Framleiðandi Jennifer An-
iston er með mörg kvik-
verkefni á sinni könnu.
UMBOÐSSKRIFSTOFA hótelerf-
ingjans Paris Hilton, Endeavor,
hefur hætt öllum viðskiptum við
hana. Hilton afplánar nú fangels-
isdóm í Los Angeles sem hún hlaut
fyrir að rjúfa skilorð vegna ölv-
unaraksturs. Talsmaður Endeavor,
Michael Donkis, greindi frá þessu í
fyrradag. Hilton er nú sögð „milli
umboðsmanna“.
Losar sig
við Hilton
Reuters
Umboðsskrifstofulaus Paris Hil-
ton situr í fangelsi þessa dagana.