Morgunblaðið - 14.06.2007, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 165. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Eðlileg þróun eða
of hátt íbúðaverð?
Skoðanir fasteignasala á verði nýju
þakíbúðanna í Skuggahverfi eru
skiptar að því er fram kemur í sam-
tölum við Morgunblaðið. Sumir segja
verðið slá allt út en öðrum finnst það
ekki koma á óvart. » Forsíða
Álit rektora HR og HA
Rektor Háskólans í Reykjavík og
staðgengill rektors Háskólans á Ak-
ureyri hafa ýmislegt að athuga við
úttekt Ríkisendurskoðunar á fjórum
háskólum landsins. Þeir útskýra fyr-
ir hönd skóla sinna ýmis atriði er
koma fram í úttektinni. »3
Ísland hrapar áfram
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta
er nú í fyrsta sinn neðar en í 100. sæti
á styrkleikalista FIFA. „Leiðin
verður að liggja upp á við og ég ætla
rétt að vona að botninum sé náð,“
segir Geir Þorsteinsson formaður
KSÍ » Íþróttir
SÞ stöðva hjálparstarf
Tveir liðsmanna hjálparstofnunar
SÞ á Gaza létu lífið í gær í átökum
milli Hamas og Fatah. Óttast er að
borgarastyrjöld brjótist út og mann-
rétttindasamtökin Human Rights
Watch saka bæði Fatah og Hamas
um stríðsglæpi. »14
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Skemmtilegt í skóla
Staksteinar: Malbikið og Kr. Möller
Forystugreinar: Háskólarnir próf-
aðir | Bræðravíg Palestínumanna
UMRÆÐAN»
Umfjöllun um einstaklingsíþróttir
Hver á Samvinnutr. og Andvöku?
Óbeislaður jarðvarmi
Tímabundið bakslag?
Bilið milli flugf. stöðugt minna
Vafningar loka hringrásinni
Gullnu fallhlífarnar skotnar niður
VIÐSKIPTI»
.
)9!"
- &!(
&)
:
&'
&&'!! ! &! 0
80 8 0 0 088
8 08 80
0
80 8 0
0 0 8 08 80 0
80
+; 7 "
80
808
0 0
0 8 08 0 6<22=>?
"@A>2?3:"BC36
;=3=6=6<22=>?
6D3";!;>E3=
3<>";!;>E3=
"F3";!;>E3=
"1?""3 !G>=3;?
H=B=3";@!HA3
"6>
A1>=
:A3:?"1("?@=2=
Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C
Hæg SV-átt. Skýjað
vestantil og fer að
súlda síðdegis. Annars
víða léttskýjað. »10
Meðlimir djass-
hljómsveitarinnar
BonSom semja allir
tónlistina sem hún
flytur, sem er sér-
stakt. »53
TÓNLEIKAR»
Semja allir
tónlistina
SJÓNVARP»
Lokaþáttur Sopranos
gekk ekki vel í alla. »51
„Fólk er ágætlega
sammála um flest en
reiknar með að vera
meira sammála sum-
um en öðrum,“ segir
í listapistli. »50
AF LISTUM»
Ástand
þjóðarinnar
TÓNLISTINN»
Íslensk tónlist frá 9. ára-
tugnum vinsæl. »52
HÖNNUN OG MYNDLIST»
Dándimannajakkar og
bókverk í Liborius. »48
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ný vísbending um Madeleine
2. Æla og smokkar blöstu við
3. Eitt stærsta skemmtifs. í Rvík
4. „Glöð og pínu montin“
HÖFUÐBORGARSTOFA Reykja-
víkur hlaut í gær sérstaka við-
urkenningu á ársþingi samtakanna
European Cities Marketing, fyrir
gott markaðs-
starf og kynningu
á borginni.
Tvenns konar
verðlaun voru
veitt, annars veg-
ar fyrir ferða-
málastofu Evr-
ópuborgar og
hins vegar fyrir
borg sem áfanga-
stað. Höfuðborg-
arstofa var tilnefnd sem ein af fimm
ferðamálastofum borga og hlaut
Gautaborg þau verðlaun. York hlaut
síðarnefndu verðlaunin. 130 borgir
eiga aðild að samtökunum.
Dómnefnd þótti þó ekki annað
hægt en að veita Höfuðborgarstofu
sérstaka viðurkenningu fyrir sín
störf, fyrir að hafa náð frábærum
árangri umfram það sem menn gætu
búist við af borg af þessari stærð, að
sögn Svanhildar Konráðsdóttur,
sviðsstjóra menningar- og ferða-
málasviðs Höfuðborgarstofu, sem
tók við viðurkenningunni í Aþenu.
„Þetta er gríðarleg hvatning fyrir
okkur og starfsfólk Höfuðborg-
arstofu sem hefur unnið frábært
starf og náð árangri umfram það
sem búast mátti við, miðað við stærð
skrifstofunnar,“ sagði Svanhildur.
„Gríðarleg
hvatning“
Svanhildur
Konráðsdóttir
BARNAHEILL efndu til fjáröflunarhádegisverðar í
Iðnó síðastliðinn fimmtudag þar sem um 40 konur úr ís-
lensku athafnalífi komu saman til að styðja starfsemi
samtakanna. Kona sem ekki vildi láta nafns síns getið
gaf 500.000 kr. til menntaverkefnis í Úganda eftir há-
degisverðinn.
Þarna voru staddar m.a. Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra, Valgerður Bjarnadóttir, varaþing-
maður Samfylkingarinnar, Bryndís Schram, Steinunn
Þórarinsdóttir myndlistarkona, sem einnig gaf verk
eftir sig sem selt verður til fjáröflunar, og Elaine
Mehmet, sendiherrafrú Bretlands, en hún er einn af
stuðningsaðilum samtakanna og einnig sjálfboðaliði.
Þórunn vann einn af happdrættisvinningum hádeg-
isverðarins og afhenti Petrína Ásgeirsdóttir henni
vinninginn í gær, silfurhálsmen frá Carat.
Ljósmynd/Arnaldur
Ónefnd kona gaf hálfa milljón
Íslenskar athafnakonur leggja Barnaheillum lið
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
„ÉG held að það sé svo til víst að ég spili ekki
meira með á þessu tímabili,“ sagði Eiður Smári
Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, við Morgun-
blaðið í gær, nýkominn úr skoðun hjá lækni en
hann meiddist á æfingu Börsunga í fyrrakvöld.
,,Skoðunin leiddi í ljós að það eru bólgur í liðþóf-
anum og ég þarf að taka mér hvíld en aðgerðar er
ekki þörf. Ég fann fyrir þessu fyrst í landsleiknum
á móti Liechtenstein og þetta ágerðist í leiknum á
móti Espanyol um síðustu helgi. Það er auðvitað
hundfúlt að geta ekki tekið þátt í síðasta leiknum
en meiðsli fylgja víst þessu sporti.“
Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð
Eiðs hjá Barcelona og meðal annars sló spænska
blaðið Dario Sport því upp að hann væri einn átta
leikmanna liðsins sem yrðu seldir í sumar. „Ég
veit í sjálfu sér ekkert um framhaldið. Það eru
endalausar sögur í gangi en það hefur enginn hjá
Barcelona sagt neitt um það að ég sé eða verði
settur á sölulista. Ég veit ekki hvaðan þær fréttir
koma. Frá minni hálfu og eins og þetta lítur út í
dag verð ég áfram hjá Barcelona. Ég er ekki að
leita eftir neinu öðru en ég kem til með sjá hvernig
hlutirnir þróast í sumar,“ sagði Eiður.
Það ræðst í lokaumferðinni á sunnudaginn
hvort Real Madrid eða Barcelona hreppir meist-
aratitilinn. Liðin eru jöfn að stigum en Madríd-
arliðið stendur betur að vígi þar sem það hefur
betur í innbyrðisleikjum og það ræður úrslitum ef
liðin verða jöfn en ekki markatala. ,,Ég held að við
vinnum okkar leik en það er ömurlegt að þurfa að
treysta á önnur lið. Við fengum kjörið tækifæri til
að ná frumkvæðinu um síðustu helgi en fari svo að
við missum af titlinum þá tapaðist hann ekki í
leiknum á móti Espanyol. Það hafa verið of margir
leikir á tímabilinu sem við höfum gefið eftir og í
síðustu leikjum höfum við misst unna leiki niður í
jafntefli og það hefur reynst dýrt.“
„Endalausar sögur í gangi“
Meiðsli Eiðs eru ekki alvarleg en hann missir af síðasta deildaleik tímabilsins
Eins og þetta lítur út verð ég áfram hjá Barcelona, segir Eiður Smári
Morgunblaðið/Golli
Rólegur Eiður Smári Guðjohnsen reiknar með
því að spila áfram með Barcelona næsta vetur.
Í HNOTSKURN
»Eiður Smári meiddist á hné á æfinguBarcelona í fyrradag. Meiðslin eru ekki
alvarleg eins og spænskir fjölmiðlar töldu.
»Eiður hefur ekki átt fast sæti í byrj-unarliði Barcelona seinni hluta tíma-
bilsins og verið orðaður við mörg ensk fé-
lög en hann lék áður á Englandi um árabil.
»Barcelona leikur við Gimnastic í síðustuumferð spænsku 1. deildarinnar og
Real Madrid leikur við Mallorca. Barcelona
verður að sigra og treysta á að Real vinni
ekki sinn leik.