Morgunblaðið - 18.06.2007, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 18.06.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 9 Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Bleikar peysur „STJÓRNUNARHUGMYNDIR í heilbrigðiskerfinu sem fela í sér að allt eigi að geta gengið kaupum og sölum, sjúklingum verði breytt í við- skiptavini, læknum breytt í fram- leiðendur, samkeppni komið á og verðmiðar settir á allt sem gert er – við teljum að þessar hugmyndir séu að grafa undan hinni mannlegu hlið læknastarfsins,“ segir Steinar West- in en hann var einn fyrirlesara á ráð- stefnu norrænna heimilislækna sem haldin var í Reykjavík nú um helgina. „Social solidarity or com- mercial profit – challenges for the 21st century health care“ var yf- irskrift fyrirlestursins sem fjallaði um hættur sem fylgja einkavæðingu heilbrigðiskerfisins. Westin segir England ætíð hafa verið vöggu heimilislækninga í Evr- ópu og Norðurlöndin litið mikið til Breta. Nú hafi verið gerðar miklar breytingar á breska heilbrigðiskerf- inu og hafi hann því áhyggjur af að Norðurlöndin muni fylgja á eftir. Bandaríska leiðin Westin segir að í Englandi séu einkarekin fyrirtæki komin inn á svið lækna og það hafi orðið til þess að samband lækna og sjúklinga sé ekki eins náið og að læknar hafi minni yfirsýn yfir málefni skjólstæð- inga sinna. Nú orðið þurfi heim- ilislæknar að gera samninga við sjúklinga um að selja þeim þjónustu og eftir því sem Westin segir er það „bandaríska leiðin“. Hún felur í sér að samkeppni eigi að vera um allt og ef hún sé ekki fyrir hendi gangi þjónustan ekki upp. Í fyrirlestri Westin kemur fram að Michael Moore hafi komið til Noregs við gerð myndarinnar „Sicko“, sem sé ádeila á banda- rískt heilbrigð- iskerfi. Moore hafi þurft að klippa allt út úr myndinni um Noreg þar sem Bandaríkjamenn hefðu aldrei trúað að félagslegt heil- brigðiskerfi virkaði í raun og veru. „Stóru fyrirtækin vilja komast inn á heilbrigðissviðið vegna þess að þar eru miklir skattpeningar,“ segir Westin. „Þau stjórnast af gróða- sjónarmiðum og þessar hugmyndir um gróða og samkeppni eru komnar frá fólki sem á pening – og vill græða meiri pening. Í grundvallaratriðum er þetta bandaríska leiðin.“ Hann segist mjög hrifinn af bók breska læknisins Julian Tudor Harts, „The political Economy of health care: a clinical perspective“ en þar deilir Hart harðlega á markaðssetningu heilbrigðis- kerfisins. Westin segir Hart ekki hafa komist á þingið en hann hafi sent bréf í staðinn og les upp: „Við í Bretlandi þurfum að læra af Skandinavíu. Síðasta aldarfjórðung höfum við sent bæði stjórn- málamenn og fagfólk til Bandaríkj- anna þar sem það hefur verið heila- þvegið og vasar þess fylltir af félagslega vanþróaðri en tæknilega fremstu þjóð heims.“ Westin er norskur félagslækn- isfræðingur, stjórnarformaður í þingnefnd sem hefur það að mark- miði að auka jöfnuð í heilbrigðiskerf- inu og heimilislæknir í hlutastarfi. Norrænir heimilislæknar héldu þing í Reykjavík um helgina „Sjúklingum breytt í viðskipta- vini, læknum í framleiðendur“ Steinar Westin LANDSMENN gerðu sér glaðan dag á 17. júní, jafnt háir sem lágir. Margt var í boði og hægt að fagna 63 ára afmæli lýðveldisins með söng, höfuðstöðu eða hoppkastala. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Á sviði Börnin í Fjarðabyggð voru glöð í bragði á þjóðhátíðardaginn en þau stigu á svið og tóku lagið. Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson Alveg hoppandi Krakkarnir á Flúðum í Hrunamannahreppi skemmtu sér í litríkum hoppkastala með rennibraut. Hér leggur einn skopparinn í hann. Ljósmynd/Jón Sigurðsson Lögreglufylgd Jóhanna Magnúsdóttir frá Hnjúki var fjallkona á Blöndu- ósi. Gunnar Sigurðsson og Kristján Þorbjörnsson veittu henni heiðursvörð. Ljósmynd/Guðrún Bjarnadóttir Á hvolfi Ungdómurinn á Hvanneyri æfði höfuðstöðuna af krafti. Með hjálp góðra vina var þetta mögulegt. Fögnuður víða um landið UMFERÐARRÁÐ sendi nýlega frá sér ályktun þar sem ökumenn eru minntir á að aka varlega og haga akstri eftir aðstæðum hverju sinni. Sumarið sé tími skemmtiferða en því miður einnig alvarlegra slysa á þjóðvegum landsins. Umferðarráð vill jafnframt benda ökumönnum með eftirvagna á að sýna sérstaka aðgæslu og huga að því að lág- markshraði með slíka vagna í eftir- dragi er lægri en ella. Við slíkan akstur aukist heildarþyngd öku- tækisins og það lengi hemlunar- vegalengd. Vert sé að hafa í huga að sektir vegna hraðakstursbrota ökutækja með eftirvagna hafa hækkað verulega. Við ákvörðun sektar vegna hraðabrots sé nú höfð hliðsjón af aukinni áhættu sem fylgi hraðakstri ökutækja með eftirvagn. Morgunblaðið/Sverrir Sumarið tími slysa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.