Morgunblaðið - 18.06.2007, Side 15

Morgunblaðið - 18.06.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 15 STARFSMENN Linate flugvall- arins í Mílanó glíma við óvenju- legt vandamál – héraplágu. Hérar í nágrenni flugvallarins hafa fjölgað sér ótæpilega undanfarna mánuði og valda reglulega óskunda á flugbrautinni. Bæði hafa þeir orðið fyrir flugvélum og flækst í hjólabúnaði þeirra og svo trufla þeir ratsjár. Því var brugð- ið á það óvenjulega ráð í gær að loka flugvellinum í þrjár klukku- stundir svo að fanga mætti hér- ana og færa þá til öruggari heim- kynna. Hérar á villigötum AP Gómaður Ítalskur lögregluþjónn losar héra úr gildru á flugbraut í Mílanó. Hérinn átti fyrir höndum ferðalag til verndarsvæðis fjarri flugumferð. ALAN Johnston, fréttaritara BBC, var rænt í Gaza- borg hinn 12. mars sl. Í kjölfar þess að Hamas- liðar lögðu undir sig Gazasvæðið í síðustu viku lýsti Hamas-maðurinn og fyrrverandi forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniyeh, því yfir að róið væri að því öllum árum að fá Johnston lausan. Í gær tilkynnti Hamas að honum yrði sleppt „innan skamms“. Örfáum stundum síðar birtu ræningjar hans yfirlýsingu þar sem þeir fullyrtu að ekki hefði samist um lausn Johnstons. Þeir ítrekuðu fyrri kröf- ur um að nokkrum herskáum íslam- istum yrði sleppt úr haldi í skiptum fyrir Johnston. Þeir sögðu að meðan viðræðum miðaði ekkert yrði hann áfram fangi þeirra, en ef ástandið versnaði væru þeir tilbúnir að myrða hann, guði sínum til dýrðar. Johnston enn í haldi Alan Johnston FORSETI Palestínu, Mahmoud Abbas, sór í gær nýja neyðarstjórn í embætti. Fyrrverandi forsætisráð- herra, Hamas-liðinn Ismail Haniya, neitar að viðurkenna hina nýju stjórn. Ísraelsmenn eru hins vegar ánægðir og telja að auðveldara verði að eiga við stjórn sem Hamas á ekki aðild að. Í gær skullu tvær eldflaugar á Ísr- ael sem taldar eru upprunnar í Líb- anon, þær fyrstu í tíu mánuði. Engan mun hafa sakað. Líbanar eru þó ekki grunaðir um ódæðið, heldur Palestínumenn. For- sætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, kom til New York í gær og sagði starfsmaður hans Reuters-frétta- stofunni að þetta væri tilraun til að draga Ísrael inn í vopnuð átök, sem myndi ekki takast. Enn logar ófriðarbál ♦♦♦ BRESKA dagblaðið The Observer sagði í gær frá því að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefði haft af því þungar áhyggjur að Bandaríkjamenn hefðu ekki nægi- lega skýra hugmynd um það hvað þeir hygðust gera í Írak að stríðinu loknu. Hann bar þessar áhyggjur oft undir George W. Bush, Banda- ríkjaforseta, sem svaraði fáu. Engu að síður ákvað Blair að senda bresk- ar hersveitir til Írak. Þetta kemur fram í heimildarmynd sem verður sýnd í næstu viku. Condoleezza Rice, utanríkismálaráðherra Banda- ríkjanna, segir þar að Bush hafi boðið Blair að styðja stríðsrekstur- inn með öðrum hætti, en hann hafi neitað því boði. Blair fór í blindni til Íraks ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.