Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
DAGRÚN Matthíasdóttir opn-
ar myndlistasýninguna 19, á
morgun, 19. júní í DaLí Galleríi
á Akureyri, klukka 17 – 19.
Dagrún útskrifaðist frá Mynd-
listaskólanum á Akureyri vorið
2006 og er nemi í nútímafræði
við Háskólann Akureyri. ,,Ég
mátti til með að fara í bleika
gírinn í tilefni dagsins. Mynd-
irnar mínar eru sjálfsmyndir
þar sem ég máta nokkrar stað-
alímyndir og spái í femínísk hugðarefni,“ segir
Dagrún um verkin sín. Sýningin stendur til 30.
júní og er opin á laugardögum og sunnudögum í
sumar kl.14 -17. Allir eru velkomnir.
Myndlist
Bleikt í tilefni
kvenréttindadags
Dagrún á veiðum
ÚT ER kominn tvöfaldur safn-
diskur með list Lárusar Páls-
sonar leikara.
Svipmyndir nefnist disk-
urinn en þar flytur Lárus ljóð
og sögur, og heyra má brot úr
nokkrum leikritum sem hann
átti hlut að. Upptökurnar eru
allar úr safni Ríkisútvarpsins
og spanna nær tvo áratugi á
ferli Lárusar, þær elstu eru frá
því á fimmta áratug síðustu aldar en þær síðustu
voru gerðar skömmu fyrir dauða listamannsins
árið 1968. Saman gefur þetta val fjölbreytta hug-
mynd um list Lárusar á ýmsum tímum.
Leiklist
Safndiskur með
Lárusi Pálssyni
Lárus Pálsson
Í LISTASAFNI Ísafjarðar í
Gamla sjúkrahúsinu hefur ver-
ið opnuð sýning á verkum
Kristins E. Hrafnssonar.
Ferðalagið og áttirnar eru
þráður í gegnum sýninguna, og
þá sér í lagi drottning áttanna,
sjálft norðrið og hægt að segja
að norður sé yfirskrift sýning-
arinnar. Það er óhjákvæmilegt
að sigla, segir í ljóði eftir Sig-
urð Pálsson og þá ljóðlínu notar Kristinn í eitt
verkanna. Hann segir ljóðlínuna lýsa vel að mann-
skepnan eigi alltaf að vera leitandi og setningin
gangi upp bæði í eiginlegri sem óeiginlegri merk-
ingu.
Myndlist
Norðrið sýnt á
Vestfjörðum
Höfuðáttin
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
DJÖSSUÐ var stemningin og þægi-
leg á Höfða síðdegis gær er fram fór
útnefning á borgarlistamanni
Reykjavíkur árið 2007. Athöfnin hófst
á því að Vilhjálmur Vilhjálmsson,
borgarstjóri, ávarpaði gesti stuttlega;
síðan kynnti hann borgarlistamann
þessa árs, Ragnar Bjarnason, betur
þekktan sem Ragga Bjarna.
Vilhjálmur rakti langan og fjöl-
skrúðugan feril Ragnars og fór fögr-
um orðum um listamanninn. Borg-
arstjórinn kvað söngvarann
„tímalausan“ og bætti síðar við að
Ragnar væri í senn „litríkur og ein-
stakur“, og auk þess sífellt að þróa
„sinn sérstaka og skemmtilega söng-
stíl“. Ragnar var kampakátur þegar
hann veitti verðlaununum viðtöku, og
fljótur að stökkva með verðlauna-
blómvöndinn að konu sinni, Helle
Birthe Bjarnason. Ragnar talaði fal-
lega um hana: „En ég þakka guði fyr-
ir hvern dag sem hún skrifar ekki
ævisöguna!“ gall að lokum í honum og
gestir hlógu dátt. Ragnar lofaði jafn-
framt þá fjölmörgu tónlistarmenn
sem veitt hafa honum lið í gegnum
tíðina. „Maður gerir eiginlega ekkert
einn í þessum bransa, þetta er svona
samvinnu …“ viðurkenndi hann.
Að sjálfsögðu þandi söngvarinn
síðan raddböndin. Ásamt Árna
Scheving, úr KK sextett, tók hann
„Vorkvöld í Reykjavík“. Árni lék á
forláta harmónikku sem faðir Ragga
átti. „Öll mín músík er eiginlega kom-
in úr þessari harmónikku,“ fullyrti
Ragnar. Þá voru Milljónamæring-
Ragnar Bjarnason söngvari valinn borgarlistamaður Reykjavíkur 2007
Litríkur, einstakur og tímalaus
Heiður Ragnar Bjarnason lék við hvern sinn fingur þegar hann tók við viðurkenningunni í Höfða í gær.
Morgunblaðið/Golli
SALMAN Rushdie hefur hlotið
ýmsar viðurkenningar í gegnum
tíðina; má sem dæmi nefna Booker
of Bookers og the Whitbread verð-
launin. Hugsanlega felst þó hin
mesta vegsemd í þeim heiðri sem
honum hefur nú hlotnast, en hann
var sleginn til riddara fyrir störf
sín í þágu bókmenntanna.
Riddaratignin staðfestir síðbúna
fylgisyfirlýsingu breska ríkisins
við höfundinn – 18 árum eftir að
bók hans, Söngvar Satans, var for-
dæmd fyrir guðlast af trúar-
leiðtoga Írana. Vegna atviksins
þurfti Rushdie að lifa í felum
næsta áratuginn.
Ýmsar fjölmiðlafígúrur hafa
verið tregar til að viðurkenna
Rushdie opinberlega; til að mynda
hefur Tony Blair veigrað sér við
að sjást taka í hönd hans. Flestir
fagna þó riddaratigninni; til að
mynda segir rithöfundurinn Ian
McEwan: „Rushdie er frábær rit-
höfundur, og þetta sendir skýr
skilaboð til bókabrennara og
stuðningsmanna þeirra.“
Um riddaratignina sagði Rus-
hdie sjálfur: „Þetta gleður mig
ósegjanlega; ég tek auðmjúkur við
þessum mikla heiðri, og ég er
mjög þakklátur fyrir það að verk
mín hafi verið viðurkennd með
þessum hætti.“
Rushdie
sleginn til
riddara
Höfundurinn nú loks-
ins viðurkenndur?
PER Petterson, rithöfundur sem
lítt er kunnur utan landsteina Nor-
egs, skaut fjölmörgum stór-
stjörnum bókmenntanna ref fyrir
rass þegar hann hreppti á dögunum
Impac Dublin verðlaunin, hæstu
peningaverðlaun sem veitt eru fyr-
ir bókmenntir skv. Guardian, en
upphæðin var 100.000 evrur. Verð-
launin hlaut Petterson fyrir verk
sitt, Out Stealing Horses. Bókin
fjallar um 67 ára gamlan mann sem
neyðist til að rifja upp átakanlega
atburði úr æsku sinni.
Petterson kveðst í senn ánægður
og undrandi yfir því að hafa hlotið
verðlaunin. „Svo virðist sem þessi
bók hafi gert mig að stráknum í
gullbuxunum; í hvert skipti sem ég
sting hendi í vasann dreg ég upp
gullpening,“ segir hann. „Þetta er
stórfenglegt!“
Drengurinn í
gullbuxunum
FRIÐRIK Rafnsson var kosinn for-
seti Alliance Française á 96. aðal-
fundi félagsins sem fram fór nýlega.
Hann tekur við af Árna Þorvaldi
Jónssyni, sem hefur verið forseti
Alliance Française frá árinu 1995,
eða í tólf ár. Aðrir stjórnarmenn í fé-
laginu eru: Guðlaug Matthildur Jak-
obsdóttir, Svanhildur Snæbjörns-
dóttir, Bruno Lebas, Marlène
Pernier, Guðjón Ármann Eyjólfs-
son, Eve Leplat og Philippe Blanc.
Starfandi framkvæmdastjóri fé-
lagsins er Gaëtan Montoriol en í því
starfi felst m.a að vera sendikennari
í Háskóla Íslands.
Nam í Frakklandi
Fráfarandi forseti, Árni Þorvald-
ur Jónsson, var kvaddur með pomp
og prakt á árshátíð félagsins föstu-
daginn 8. júní og honum þakkað
mikið og gott starf í þágu þess.
Hinn nýi forseti Alliance Fran-
çaise, Friðrik Rafnsson, stundaði
nám í frönsku og bókmenntum í
Frakklandi á árunum 1981–1988,
fyrst Aix-en-Provence og síðan í
París. Frá árinu 1988 hefur Friðrik
unnið að menningarmiðlun í útvarpi,
bókaútgáfu, bókmenntaþýðingum
og vefritstjórn.
Eykur áhuga á Frakklandi
Alliance Française í Reykjavík
var stofnað árið 1911. Félagið er ís-
lenskt og hlýtur styrki frá franska
utanríkisráðuneytinu. Tilgangur fé-
lagsins er að auka áhuga og þekk-
ingu á franskri tungu, frönskum
bókmenntum og menningu meðal Ís-
lendinga.
Alliance Française í Reykjavík hefur starfað síðan 1911
Friðrik Rafnsson kosinn
forseti Alliance Française
Friðrik Rafnsson
Alliance Française er staðsett í
Tryggvagötu 8 og er heimasíða fé-
lagsins: www.af.is
REYKJAVÍKURAKADEMÍAN,
ábúendur í Svartárkoti í Bárðardal,
Ferðamálasetur Íslands á Akureyri
og fleiri aðilar eru nú að hrinda af
stað verkefninu Svartárkot, menn-
ing – náttúra. Það felst í því að
byggja upp að Svartárkoti í Bárð-
ardal rannsókna- og kennslusetur
þar sem haldin verða hágæða-
námskeið á háskólastigi fyrir er-
lenda stúdenta, um íslenska menn-
ingarsögu og náttúru og ekki síst
sambúð manns og náttúru. Leitað
verður eftir samstarfi við háskóla
víða um heim. Lykilatriði í hug-
myndinni er staðsetningin. Svart-
árkot er bújörð í rekstri, á mörkum
mannabyggðar og náttúru, Ódáða-
hraun rís eins og svartur veggur
uppúr túnfætinum. Komin er upp
bráðabirgðaheimasíða fyrir verk-
efnið: www.svartarkot.is
Dagana 19.-25. júní verður haldið
kynningarnámskeið um verkefnið
að Kiðagili í Bárðardal. Það sækja
um 30 háskólakennarar, frá Banda-
ríkjunum, Kanada, Englandi, Finn-
landi, Póllandi, Austurríki, Búlg-
aríu og Ítalíu. Námskeiðið þjónar
einnig þeim tilgangi að fá þátttak-
endur til að hjálpa til við að móta
hugmyndina endanlega.
Verkefnið Svartárkot, menning –
náttúra mun brjóta blað í íslenskri
ferðaþjónustu með því að byggja
upp það sem kallað hefur verið aka-
demísk ferðaþjónusta. Það hefur
fengið undirbúningsstyrki frá
Impru nýsköpunarmiðstöð, Kís-
ilgúrsjóði, Icelandair, iðnaðarráðu-
neytinu og nýtur einnig stuðnings á
fjárlögum þessa árs. Þá styrkir
Reykjavíkurborg verkefni Reykja-
víkurAkademíunnar, Loftbrú til
landsbyggðar þar sem unnið er að
nýsköpun á vettvangi menning-
arfræða í samstarfi við fræðasetur
á landsbyggðinni, en Svartárkot,
menning – náttúra er einn af horn-
steinum þess.
Mennt á mörkum
mannabyggðar
♦♦♦
arnir viðstaddir. Tóku Ragnar og Vil-
hjálmur undir í síðara lagi þeirra og
sungu: „Vert’ ekki að horfa svona allt-
af á mig“. Ragnar hefur ævinlega
notið mikillar hylli og undir lok at-
hafnarinnar hvíslaði einn gesta í eyra
blaðamanns: „Hann er nú alltaf svo-
lítið skemmtilegur hann Raggi
Bjarna–hann er svona „stuðmaður“.“
Í HNOTSKURN
» Borgarlistamaður Reykjavíkur er útnefndur árlega við hátíðlegaathöfn. Verðlaunaféð í ár var ein milljón króna og áletraður steinn.
» Ragnar Bjarnason hefur komið víða við á löngum ferli. Til gamansmá geta þess að hann hóf tónlistarferilinn sem trommari í hljóm-
sveit föður síns, Hljómsveit Bjarna Bö. Þá var söngvarinn á ferming-
araldri.