Morgunblaðið - 18.06.2007, Síða 17

Morgunblaðið - 18.06.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 17 VESTURLAND VÍKINGUR H. Ólafsson, píanóleik- ari, fékk mjög góðar mótttökur á tónleikum í Ottawa nýverið en með þeim lauk tónleikaferð sem í raun hófst í byrjun apríl en var með hléum. Um víðan völl Tónleikaferðin var farin til 12 borga í Norður-Ameríku og á flest- um tónleikunum léku Víkingur og Karen Ouzounian saman á píanó og selló. Fyrstu tónleikarnir voru í Min- neapolis í Bandaríkjunum 10. apríl og síðan komu þau fram í kanadísku borgunum og bæjunum Winnipeg, Gimli, Foam Lake, Calgary, Edmon- ton, Vancouver, London og Toronto en höfðu auk þess viðkomu í Seattle í Bandaríkjunum. Íslendingafélög í öllum þessum borgum önnuðust undirbúning tónleikahaldsins. Þess- um hluta ferðarinnar lauk 22. apríl og var listafólkinu hvarvetna for- kunnar vel tekið. Hvatning Á tónleikum í Montreal og í Ott- awa lék Víkingur einleik á píanó við frábærar undirtektir áheyrenda. Á dagskránni voru verk eftir J.S. Bach, Beethoven, Chopin, Sigvalda Kalda- lóns og Ólaf Axelsson, föður Víkings. Markús Örn Antonsson, sendi- herra Íslands í Kanada, flutti nokkur ávarpsorð við upphaf tónleikanna og kynnti listamanninn. Sendiherrann lagði áherslu á mikilvægi samskipta Íslands og Kanada á sviði lista og menningar. Sagðist hann vonast til að íslenskt listafólk myndi sem oft- ast eiga erindi vestur um haf til að kynna Kanadamönnum list sína í hinum mörgu og glæsilegu menning- armiðstöðvum í stærstu borgum Kanada eins og Toronto, Montreal og Ottawa, að ógleymdum Íslend- ingabyggðum vestar í þessu mikla landi. Með beinum flugsamgöngum til Halifax og Montreal hefðu tæki- færi til ferðalaga milli landanna orð- ið mun einfaldari í framkvæmd en áður. Markús Örn sagði þetta einkar ánægjulegan áfanga nú, þegar minnst væri 60 ára afmælis formlegs stjórnmálasambands ríkjanna. Menningarmálanefnd Þjóðrækn- isfélags Íslendinga í Vesturheimi undir forystu Gail Einarson- McCleery og Joan Eyjolfson-Cad- man, skipulagði tónleikaferðina ásamt sendiráði Íslands í Ottawa. Víkingi Ólafssyni píanó- leikara mjög vel fagnað Píanisti Víkingur H. Ólafsson, pínanóleikari, sló í gegn á tónleikum í Bandaríkjunum og Kanada og setti punktinn yfir i-ið í Ottawa. Í HNOTSKURN » Víkingur H. Ólafsson ogKaren Ouzounian eru í framhaldsnámi við Juilliard- tónlistarháskólann í New York. » Listafólkið hefur komiðvíða fram í Norður- Ameríku undanfarnar vikur og alls staðar verið mjög vel tekið. » Utanríkisráðuneytið ogLandsbankinn styrktu verkefnið ásamt þjóðrækn- isfélögunum vestanhafs. ROSALIND Vigfusson frá Árborg í Manitoba er fjallkona Íslend- ingadagsnefndar 2007 og tók við hlutverkinu á Gimli fyrir skömmu en fyrsta verkefni hennar sem fjall- kona var að leggja blómsveig að styttu af Jóni Sigurðssyni framan við Þinghúsið í Winnipeg í gær, 17. júní. Rosalind er vel kunn af verkum sínum fyrir íslenska samfélagið í Manitoba og ekki síst sem stjórn- andi barna- og unglingakórs, sem hún stofnaði fyrir nokkrum árum. Fjallkonur Rosalind Vigfusson í hópi kvenna sem gegnt hafa hlutverkinu. Rosalind fjallkona SAMTÖK lyfjafræðinga í Manitoba hafa útnefnt Ern- est Stefanson frá Gimli heiðursfélaga samtakanna. Ernest útskrifaðist frá Manitobaháskóla 1968 og hefur starfað í faginu síðan. Hann hóf eigin rekstur á Gimli 1968 þegar hann opn- aði Lyfjaverslun víkinga, Viking Pharmacy, og hefur mikið látið til sín taka í hópi lyfjafræðinga. Ernest er í stjórn Snorraverkefnisins í Manitoba. Hann hefur í áratugi gegnt ýmsum störfum í félögum og sam- tökum sem tengjast Ís- landi á einn eða annan hátt og er meðal annars heið- ursfélagi Íslendingadags- nefndar. Ernest Stefanson heið- ursfélagi lyfjafræðinga Ernest Stefanson ÚR VESTURHEIMI BÆJARSTJÓRN Snæfellsbæjar lýs- ir þungum áhyggjum vegna tillagna Hafrannsóknastofnunarinnar um mikinn niðurskurð þorskveiðiheim- ilda fyrir fiskveiðiárið 2007-2008. Bæjarstjórnin vill að farið verði yfir vinnuaðferðir Hafrannsóknastofnun- ar og að sjávarútvegsráðherra fari vandlega yfir málin áður en hann taki ákvörðun um niðurskurð aflaheimilda í þorski. „Að mati bæjarstjórnar Snæfells- bæjar lýsa þessar tillögur þeirri stað- reynd að mikið vantar upp á vísinda- lega þekkingu og rannsóknir á þorskstofninum hér við land,“ segir í ályktun bæjarastjórnar sem sam- þykkt var í síðustu viku. Þar segir ennfremur: „Ljóst er að tillögur Hafrannsóknastofnunar eru í hrópandi ósamræmi við liðna vertíð sem er ein sú besta sem verið hefur við Breiðafjörð í langan tíma, þrátt fyrir að stór hluti fiskveiðiflotans hafi reynt að forðast þorsk eins og hægt var. Stærð fisksins og holdafar var mjög gott og er það í ósamræmi við niðurstöður Hafrannsóknastofnunar. Mikill tekjumissir Ef tillögur Hafrannsóknastofnunar ganga eftir þá er ljóst að sveitarfélög við Breiðafjörð verða fyrir miklum tekjumissi sem erfitt er að sjá hvernig þau eiga að komast í gegnum. Það sem vekur furðu í tillögum Hafrann- sóknarstofnunar er á hverju þeir byggja sína ráðgjöf, eftir því sem best verður komið er lítið sem ekkert tekið tillit til netarallsins og afladagbóka fiskiskipa, svo eitthvað sé nefnt, og þeirrar góðu fiskveiði sem var um allt land í vetur. Þær spurningar vakna hvort togararallið geti eitt og sér ver- ið meginuppistaðan í fiskveiðiráðgjöf- inni. Við Breiðafjörð er mönnum ljóst að fiskurinn hefur sporð og færir sig eft- ir því sem aðstæður í hafinu eru og eru þær misjafnar frá ári til árs. Því hlýtur það að vekja spurningar hvort það geti talist eðlilegt að fara alltaf í sömu gömlu togslóðirnar, þrátt fyrir að á þessum langa tíma hefur margt breyst í lífríkinu eins og t.d. hitastig sjávar sem best sést á útbreiðslu skötusels í Breiðafirði á undanförnum árum. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar skorar á sjávarútvegsráðherra að hann skoða málin vandlega frá öllum hlið- um áður en hann tekur ákvörðun um niðurskurð á þorskveiðum næsta árs. Jafnframt skorar bæjarstjórnin á sjávarútvegsráðherra að skipa nefnd sérfróðra manna til að fara yfir vinnu- aðferðir Hafrannsóknastofnunar.“ Í hrópandi ósam- ræmi við liðna vertíð Morgunblaið /Alfons Fiskveiðar Vertíðin við Breiða- fjörðinn var sú besta í mjög mörg ár. Þess vegna efast bæjarstjórn Snæfellsbæjar um nauðsyn þess að skera niður aflaheimildir. FJÖLBRAUTASKÓLA Vestur- lands var slitið laugardaginn 26. maí síðastliðinn. 40 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Hörður Ó. Helgason skólameist- ari ávarpaði samkomugesti og af- henti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskóla- meistari flutti annál vorannar 2007. Gustavo Costa Ferreira flutti ávarp skiptinema. Ásdís Sig- tryggsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Björn Þorri Viktorsson og Viktor Vikt- orsson fluttu kveðjur frá afmæl- isárgöngum sem brautskráðir voru frá skólanum fyrir 10 árum og 20 árum og færðu skólanum málverk að gjöf frá hópunum. Eftirtaldir útskriftarnemar fengu verðlaun fyrir góðan náms- árangur eða störf að félagsmálum: Ásdís Sigtryggsdóttir; Gísli Líndal Karvelsson; Ingólfur Pétursson; Jakob Orri Jónsson; Kristín Mist Sigurbjörnsdóttir; Una Lovísa Ingólfsdóttir. Námsstyrkur Akra- neskaupstaðar og Borgarbyggðar skiptist jafnt milli tveggja um- sækjenda sem báðir útskrifuðust í desember 2006. Þeir eru Dofri Jónasson og Stefán Jóhann Sig- urðsson. Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftar- nemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir sam- veruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans. Brautskráning Fjöl- brautaskóla Vesturlands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.