Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 18
Um helgina lauk tískuvikunni íSao Paulo í Brasilíu þar sem hönnuðir kynntu línu sína fyrir sumarið 2008. Hönnuðurinn Lino Villaventura ákvað að hafa hvíta litinn í hávegum og vöktu flíkurnar óskipta athygli gestanna. Nokkrar þeirra gætu hæglega passað fyrir konur og karla sem ætla að ganga í það heil- aga að ári. |mánudagur|18. 6. 2007| mbl.is daglegtlíf Margir hafa sperrt eyrunvið auglýsingum ígömlu góðu Gufunni aðundanförnu, Rík- isútvarpinu, þar sem hinn eini sanni köngulóarmaður býður fram þjón- ustu sína. Ekki þó til að bjarga börn- um úr neyð eða firra heiminn ill- virkjum glæpamanna heldur frelsar hann húseigendur frá ágangi marg- fættra skordýra, sem herja á hús- veggi og þök á sumrin. Maðurinn á bak við köngulóar- manninn heitir Ólafur Sigurðsson og er meindýraeyðir enda skrýðist hann ekki sömu glæsiklæðum og fyrirmyndin vestan hafs. „Neinei,“ segir hann hlæjandi inntur eftir þessu atriði. „Ég er nú bara í regn- galla.“ Aðspurður segir hann köngu- lær eiga það til að gera húseigendum lífið leitt að sumri til. „Ekki mjög víða en þó er alltaf meira um þetta á hverju ári. Sum hús geta orðið mjög slæm því húsbyggingin er góður staður fyrir köngulær að spinna vefi sína. Svo finna þær skjól á syllum og undir klæðningum.“ Glíma fram eftir sumri Vopnin sem Ólafur notar í barátt- unni við köngulærnar er úðunartæki og sérstakt eitur sem kvikindin mega sín lítils gegn. „Ef þetta er gert með réttum efnum og á réttan hátt á eitrið að duga allt sumarið og oft ná þær sér ekki upp næsta sum- ar. Efnið er langverkandi og því er úðað inn í kverkar og undir syllur en það þýðir ekkert að úða því á veggi því þá skolast það bara niður í næstu dembu.“ Og þótt andstæðingurinn sé smærri í sniðum en óvinir hins er- lenda köngulóarmanns er hann oft á tíðum engin smásmíði á íslenskan mælikvarða. „Stundum heyrir mað- ur dynkina þegar þær detta niður dauðar,“ segir Ólafur. „Enda geta þetta orðið stórar og feitar hlussur þegar liðið er á sumarið.“ Köngulærnar byrja að láta á sér kræla á vorin og glíman við þær stendur fram eftir sumri en að sögn Ólafs herja mismunandi meindýr á mannfólkið á mismunandi tímum. „Um það bil sem vorið tekur að vakna fer fólk að hringja út af stara- flónni. Þá þarf að eitra fyrir hana og tryggja að fuglinn byggi ekki hreið- ur á húsunum. Svo er byrjað að hringja út af köngulónum og það nær saman að þegar staraflóaeitrun fer að minnka fer geitungurinn á stjá.“ Á undan mannfólkinu Þá er alltaf nokkuð að gera hjá Ólafi út af silfurskottum og bjöllum. „Fólk verður vart við bjöllurnar í gluggunum á vorin og fram eftir sumri en hinn hluta ársins eru þær á lirfustiginu og forðast ljósið svo eng- inn veit af þeim. Þegar tekur að kólna með haustinu fer fólk að hringja út af músum sem leita þá inn í hús, sérstaklega í nýjum hverfum því þær áttu þar heima á undan mannfólkinu.“ Rottur eru þó ekki á verksviði Ólafs því Reykjavíkurborg sinnir öllum útköllum vegna þeirra. En skyldi Ólafur eiga sér eitt- hvert uppáhaldskvikindi, sem hon- um finnst ef til vill skemmtilegra að fást við en önnur? „Það væru þá helst geitungarnir,“ svarar hann, „Og köngulærnar, því það er svo gaman að vinna í fallegum görðum hjá fólki. Mér finnst nefnilega skemmtilegast að vinna úti – sum- arið á Íslandi er svo dásamlegt – það er bara þannig.“ Ekki svífandi ofurhetja Köngulóarmaðurinn íslenski er nú bara í regngalla og notar engin viðlíka tól og starfsbróðir hans í útlönd- um. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir komst að því að það heyrist dynkur þegar feitar og pattaralegar köngulær detta niður dauðar. Morgunblaðið/Ingó Spunadrottning Þótt köngulær séu meinleysisgrey getur orðið of mikið af hinu góða þegar þær eru margar saman. Morgunblaðið/Golli Venjulegur Íslenski köngulóarmaðurinn heitir Ólafur Sigurðsson. Morgunblaðið/Golli Úðar Skot og syllur eru upplagðir staðir fyrir köngulær að fela sig. Brúðkaup Þessi kjóll myndi sóma sér vel á kirkjugólfinu. ReutersFramandi Herrar klæddir í hvítu lín- una frá Lino Villa- ventura. Ekki alveg víst að íslenskir karlmenn myndu ganga með höf- uðfötin. Hönnuðurinn Lino Villavent- ura veðjar á hvíta litinn fyr- ir næsta sumar. Hvítt í Brasilíu Sumarlegt Höfuðfatið er síður en svo látlaust en tignarlegt. ben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.