Morgunblaðið - 18.06.2007, Síða 19

Morgunblaðið - 18.06.2007, Síða 19
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 19 Snerpa HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000, www.hekla.is, hekla@hekla.is Vorsprung durch Technik www.audi.com H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 8 4 1 2 A3 Sportback 1,8 TFSI® · 5 dyra · 160 hestöfl · Sjálfskiptur S-tronic Líttu inn hjá okkur og fáðu að reynsluaka Audi A3 Næst þegar þú átt leið um New York geturðu sinnt óvenjulegu erindi milli há- degismatar og búðarferða. Nýja stofan Smooth Med býður viðskiptavinum sín- um nefnilega hrukkumeðferð með bó- toxi án þess að tími sé bókaður fyr- irfram. Eigandi stofunnar, lýtalæknirinn Michael Rose, vill að sögn vefsíðu Ex- pressen, auðvelda borgarbúum að fá fljótlega hrukkumeðferð. „Hægt er að kíkja til okkar fyrirvaralaust og innan við hálftíma síðar gengur viðkomandi út og heldur áfram með það sem hann var að gera. Það er skárra en að eyða öllum deginum á stofu, bara fyrir sprautu sem tekur fimm mínútur,“ segir hann. Bótoxsprautun er læknisfræðileg meðhöndlun sem fylgir ákveðin hætta á minniháttar ofnæmisviðbrögðum. „Við erum með allar sömu varúðarráðstaf- anir og hver önnur læknastofa,“ heldur Rose áfram. „Læknar sjá um spraut- urnar og taka meðferðinni af fyllstu al- vöru.“ Bótox á hjóli Víðar er bótoxmeðhöndlun orðin að- gengilegri en áður. Þannig býður stofa í London upp á það sem hún kallar Botox á hjóli. Tilboðið felur í sér að læknir kemur heim til sjúklingsins á mótorhjóli og meðhöndlar hann með bótoxi og hrukkueyðingarlyfinu Restylane. Hrukkueyðing í skyndi Morgunblaðið/Golli Hrukkukrukk Með einni sprautu hverfa hrukkurnar og það þarf ekki einu sinni að panta tíma. UNGLINGAR virðast hafa getu til að neyta mun meira af alkóhóli en fullorðnir og það getur haft alvar- legar afleiðingar í för með sér á síð- ari árum. Áfengisdrykkja þeirra, sem enn eru að þroskast, getur nefnilega framkallað breytingar til hins verra á heilabúi unglinganna og þær geta orðið fylgifiskar fyrir lífstíð. Niðurstöður úr rannsókn, sem greint var frá á vefmiðli The Indep- endent fyrir skömmu, leiddu í ljós að unglingar, sem drukku í óhófi eða að meðaltali tvo drykki á dag í tvö ár, urðu fyrir 10% minnistapi í samanburði við jafnaldra, sem ekki drukku áfengi. Að sögn vísinda- manna eru unglingar að glutra minninu meira niður en fullorðnir alkóhólistar auk þess sem ungling- ar í óhófsdrykkju eiga erfiðara með að stýra streituþáttum síðar meir á ævinni. Því má ljóst vera að alkó- hólið getur verið mikill skaðvaldur fyrir eðlilega þroskun heila- starfseminnar. Áfengið skaðar heila- þroskann                            Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.