Morgunblaðið - 18.06.2007, Page 20

Morgunblaðið - 18.06.2007, Page 20
fjármál heimilanna 20 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ dirfðist ekki að hengja yfirhöfn sína í fata- hengi, eða setjast upp í leigubíl af ótta við mengunina sem all- staðar var. En verst af öllu fannst Víkverja skömmin sem fylgdi kvillunum. Nú þegar hann var orðinn við- urkenndur sjúklingur, sá hann betur en nokkru sinni hversu geigvænlegir fordóm- arnir í garð ofnæm- issjúklinga eru. Í kvik- myndum virðist t.d. alsiða að nota ofnæmi til þess að sýna fram á að persóna sé óspennandi aukvisi. Ekki tók betra við þegar Víkverji reyndi að spjalla við dýraeigendur um að það væri ótækt að þeir gengju um borgina, eitrandi fyrir samborgurum sínum. Allir voru þeir sannfærðir um að gleðin sem þeir hlytu af samvistunum við skepnurnar vægi þyngra en sem næmi óþægindum Víkverja. Og létu þess raunar flestir getið að eitthvað væri meira en lítið bogið við fólk sem amaðist við blessuðum ferfæt- lingunum. Víkverji sér úr þessu bara eina leið til þess að sleppa undan fulltrú- um dýraríkisins: Að flytja út í sveit! Á sokkabandsárumVíkverja átti hann örðugt með að skilja afhverju sumt fólk fann sig knúið til að draga skepnur merkurinnar með sér inn í þéttbýli, án þess þó að hann léti mál- efnið halda fyrir sér vöku. Menn verða að eiga sínar sérviskur við sjálfa sig, og Vík- verji hefur aldrei verið einn þeirra sem eru með nefið ofan í hvers manns koppi. En svo brá við að eftir því sem árin færðust yfir tók þessi einkennilegi siður að varða Víkverja meira. Víkverji tók nefnilega upp á því á gamals aldri að þróa með sér ofnæmi. Skyndilega var það orðið happ- drætti upp á líf og dauða að kaupa sér leikhúsmiða. Hefði leikhúsgest- urinn sem síðast dvaldist í sætinu verið einn þeirra sem umgekkst loðna ferfætlinga gat Víkverji búist við því að að tárast, roðna og grípa andann á lofti meðan á sjónleiknum stóð, alveg burtséð frá listrænum áhrifamætti sýningarinnar.Víkverji fann hvernig hann fór að veigra sér við að deila opinberu rými með samborgurum sínum eftir því sem tilfellum sem þessum fjölgaði. Hann         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Áferðalögum erlendis er vissulega ör-yggi fólgið í því að vera með greiðslu-kort í stað peningaseðla. En þó er ým-islegt sem ber að varast og fólk þarf að vera á varðbergi og hafa í huga nokkur atriði. Þórður Jónsson sviðsstjóri hjá VÍSA sagði að inn á borð hjá þeim kæmu ýmis mál tengd mis- notkun á kortum erlendis sem og þjófnaði á kortum. „Fyrst og fremst þarf fólk að gera allt sem það getur til að koma í veg fyrir að kortunum sé stolið. Kortum getur verið stolið úr vösum, tösk- um eða þar sem þau liggja á glámbekk. Eins er ástæða til að hvetja fólk til að fara varlega þegar það fer í hraðbanka til að taka út peninga. Til dæmis ætti fólk að forðast það að þiggja aðstoð frá ókunnugum við peningaúttektina. Eins á aldrei að láta aðra standa svo nálægt að þeir sjái þegar pin-númerið er slegið inn. Viðkomandi gæti þá reynt að stela kortinu eftir á og þá er leiðin greið til að taka út af kortinu fyrir þjófinn, ef hann er með pinnúmerið. Það eru alltaf ein- hver brögð að þessu.“ Almenn skynsemi segir að ekki ekki sé mjög gáfulegt að fara með mikið af kortum inn á næt- urklúbba eða aðra slíka staði, það býður hætt- unni heim. Borgað tvisvar fyrir það sama Þegar greitt er með kortum ætti ekki að láta kortið fara úr augsýn, alla vega ekki í umhverfi sem fólk hefur ekki fullt traust á. „Til dæmis ætti ekki að láta þjóna eða af- greiðslufólk fara með kortið á bakvið borð eða annað slíkt, því það eru brögð að því að kortum sé rennt oftar en einu sinni í gegn, þannig að upphæðin gjaldfærist þá tvisvar í stað þess að fara aðeins einu sinni í gegn. Þetta er alls ekki plága eða neitt slíkt, en það koma alltaf upp svona tilfelli og því er full ástæða til að fara var- lega.“ Ekki skrifa pin-númer niður Þórður segir að allar færslur sem fólk geri at- hugasemdir við séu skoðaðar og athugað efn- islega hvort hægt sé að koma við bakfærslum. „Í mörgum tilvikum er það hægt en ekki öllum. Þetta snýst um að kanna gögn og kalla eftir gögnum og því er mjög áríðandi að korthafar geymi allar kvittanir, reikninga, afrit af korta- færslum og alla samninga sem gerðir eru er- lendis þar sem borgað er fyrir þjónustu eða vöru með korti.“ Þórður segir að þjófnaður á kort- um þar sem þjófar hafa einnig náð í pin- númerið, séu verstu tjónin fyrir korthafa. „Þess vegna er mjög áríðandi að skrifa pinn- úmerin hvergi niður. Alls ekki skrifa þau á kortin og alls ekki vera með miða með pin-númerinu í seðlaveski eða handtösku, því ef einhver bíræfinn stelur töskunni eða veskinu þá getur hann verið fljót- ur að notfæra sér það.“ Mjög áríðandi er að korthafar tilkynni kortaþjófnað sem allra fyrst til að takmarka ábyrgð sína sem mest. Meginreglan er sú að korthafi þarf ekki að borga færslu sem hann ber ekki ábyrgð á. „Vissulega ræðst það af aðstæðum hverju sinni, hvar fólk er statt og hversu auðvelt það er fyrir fólk að tilkynna stuldinn, en nú á tímum eru flestir með gsm síma og því tiltölulega auð- velt að koma því við.“ Þórður mælir að sjálf- sögðu ekki með því að fólk sé með mikið af lausafé á sér, enda víðast hvar hægt að borga með greiðslukorti, þó það sé ekki alls staðar. Hann segir að kostnaður við úttekt af íslensku korti í útlöndum sé háður upphæðinni sem tek- in er út. „En það er dýrast að taka út mjög oft mjög lágar upphæðir. Hagstæðast er að taka sjaldn- ar og meira í einu, því korthafinn greiðir ákveð- ið úttektargjald fyrir hverja úttekt. Korthafi borgar 2% fyrir hverja upphæð sem tekin er út á debetkorti í hraðbanka en 2,5% fyrir hverja úttekt á kreditkorti.“ Hvað ber að varast með greiðslukort í útlöndum? Varúð Full ástæða er til að fara varlega þegar tekið er út í hraðbönkum erlendis og passa skal að láta engan sjá hvaða pin-númer er slegið inn. ÞAÐ ER góð tilfinning að borga skattana sína og enn betri að gefa peninga til rmála. Þetta sýnir ný rannsókn sem vísindamenn við Háskólann í Oregon í Bandaríkjunum gerðu og Berlingske Tidende greinir frá á vefsíðu sinni. Niðurstöðurnar byggjast á heilamyndatökum sem vísindamaðurinn Bill Harbaugh gerði. Hann gaf 19 kvenkyns háskólastúdentum 100 dollara hverjum og sagði þeim að þær ættu að borga skatt af upphæðinni. Hver þátttakandi las sér svo til um 60 mismunandi skattatilfelli, þar sem borga átti milli 0 og 45 dollara í skatt. Á eftir var þeim sagt að dregið yrði um það hversu mikið hver og einn ætti að borga. Teknar voru myndir af heilum þátttakendanna á meðan þeir lásu sér til um skattatilfellin og þá kom í ljós aukin virkni í tveimur ánægjustöðvum heil- ans. Harbaugh kemst því að þeirri niðurstöðu að fólki finnist betra að borga skattana sína en það vill vera láta. Sama gleði Önnur óvænt niðurstaða Harbaughs var að fólk virðist bregðast enn betur við því að gefa peninga til góðra málefna. Hann setti upp aðra svipaða til- raun þar sem þátttakendur gátu valið hvaða mál- efni þeir myndu styrkja. Með því að styðjast við niðurstöður fyrri tilraunarinnar gat Harbaugh sýnt fram á samhengi milli gleðinnar við að borga skatta og gleðinnar við að gefa til góðra málefna. Það kom nefnilega í ljós að þeir sem sýndu mesta virkni í ánægjustöðvunum í fyrri tilrauninni vildu gefa hæsta upphæð til góðgerðarstarfsemi. Örlátustu þáttakendurnir gáfu að meðaltali 17 af dollurunum 100 til velgjörða meðan hófsömustu gefendurnir gáfu um 10 dollara. Ánægjulegt að borga skattana Morgunblaðið/Þorkell Greiðslur Sálartetrið bregst hið ánægjulegasta við sköttunum og gjöfum til góðra málefna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.