Morgunblaðið - 18.06.2007, Page 29

Morgunblaðið - 18.06.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 29 ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐFINNUR ANNO B. ÁGÚSTSSON, lést á LSH í Fossvogi fimmtudaginn 14. júní. Útför auglýst síðar. Helga Hafberg, Engilbert Ólafur Friðfinnsson, Guðbjörg Gísladóttir, Hafsteinn Ágúst Friðfinnsson, Kolbrún Birna Halldórsdóttir, Ari Friðfinnsson, Þuríður Kristín Sigurðardóttir og barnabörn. ✝ Njáll Halldórs-son fæddist á Bakkafirði 2. októ- ber 1915. Hann lést í Sundabúð á Vopnafirði 11. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Halldór Runólfsson kaupmaður á Bakkafirði, f. 1.10. 1870, d. 27.8. 1920, og Sólveig Krist- jana Björnsdóttir húsmóðir, f. 18.6. 1883, d. 14.11. 1974. Systkini Njáls voru Hilma Fann- ey, f. 1909, d. 1923, Baldur, f. 1911, d. 1926, Bragi, f. 1912, d. 1998, Jón G., f. 1914, d. 1993, Flosi, f. 1916, d. 1984, og Berg- þóra, f. 1917, d. 1996. Eiginkona Njáls er Guðrún Margrét Árnadóttir húsmóðir, f. 17.8. 1921. Hún er dóttir hjón- anna Árna Friðrikssonar útvegs- bónda á Bakkafirði og Petrínar Pétursdóttur húsmóður. Njáll og Guðrún hófu búskap 1947 og börn þeirra eru: 1) Reynir, f. 15.4. 1947, maki Sigþrúður Rögnvalds- dóttir, þau eru búsett á Höfn og eiga þrjá syni, þeir eru: a) Njáll Fannar, f. 1978, sambýliskona Þóra Þórgeirsdóttir, þau eiga tvær dætur og eru búsett í Reykjavík, b) Rögnvaldur Ómar, f. 1979, og c) Ágúst Ragnar, f. 1983, báðir búsettir á Höfn. 2) Stúlka, f. 9.5. 1950, d. 1950. 3) Halldór, f. 29.3. 1953, maki Bryn- hildur Óladóttir, þau eru búsett á Skeggjastöðum og eiga fjögur börn, þau eru Guðrún Margrét, f. 1999, Njáll, f. 2001, Himri, f. 2003, og Þórey Lára, f. 2005. 4) Hilma Hrönn, f. 1.5. 1958, maki Áki Her- mann Guðmunds- son, þau eru búsett á Bakkafirði og eiga þrjú börn, þau eru a) Sólveig Helga, f. 1977, sambýlismaður Andri Árna- son, þau eiga einn son og eru bú- sett í Reykjavík, b) Guðmundur Hlífar, f. 1994, og c) Flosi Hrann- ar, f. 1997. 5) Árni Bragi, f. 31.1. 1967, búsettur á Bakkafirði. Njáll ólst upp á Bakkafirði. Hann fór ungur til sjós og keypti sinn fyrsta bát 1933 er hann var 18 ára og hóf þá útgerð á Bakka- firði. Hann stundaði síðan útgerð þaðan auk þess sem hann var með fiskverkun af eigin báti. Njáll var til sjós frá Vestmannaeyjum á vertíðum árin 1941 til 1943. Þá var hann háseti á seglskipinu Arctic er það rak upp vestan við Mýrar á Snæfellsnesi 17. mars 1945. Njáll og Guðrún bjuggu alla tíð á Bakkafirði en þar byggðu þau íbúðarhúsið Vík og fluttu þar inn árið 1957. Njáll verður jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Það er komið að kveðjustund og kominn er nýr dagur sem er upphaf- ið að tilveru án þín, tilveru sem ég er ekki tilbúin fyrir. Þrátt fyrir háan aldur þinn var lífsviljinn þinn og seiglan svo ótrúlega sterk og ein- kennandi fyrir þig. Síðastliðin tvö ár hefur þú verið að missa þrek og þrótt. Alltaf varstu samt geðgóður og lést veikindi þín ekki bitna á fólk- inu í kringum þig. Þú sagðir samt oft: Það hefði verið gaman að geta gengið úti núna. Þrátt fyrir viljann til að berjast áfram var kallið komið og tími til kominn að láta undan. Eftir stendur djúpt þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman og það að hafa fengið að vera hjá þér allt til enda. Það eru forréttindi að hafa vera svona mikið hjá ykkur ömmu í Vík. Síðustu daga hef ég leitt hugan að öllum þeim fjölmörgu minningum sem ég á um okkur sam- an og þeim góðu stundum sem ég á úr Vík. Veður og sjór voru þér hug- leikin og þú varst sjómaður að guðs- náð. Þér gekk vel og vil ég þakka því hversu iðinn og duglegur þú varst. Eitt af því fyrsta sem ég man eftir okkur saman er þegar þú dróst mig út á Bjarg á bláa trésleðanum sem þú smíðaðir. Þar sem við færðum húsfreyjunni vatn inn úr vatnshús- inu ofan við bæinn. Einnig minnist ég margra ferða okkar saman í bíln- um þínum þar sem stoppað var reglulega og þú tókst í nefið. Á kvöldin gekkstu niður tangann þar sem þú hlustaðir á ölduniðinn og spáðir í veður morgundagsins. Það var vinsælt hjá mér að fara með þér, þar sem ég hlustaði á þig blístra lágt en þegar ég spurði þig hvaða lag þetta væri sagðir þú við mig: „Þetta er duggaravísa“. Þú varst hæglátur maður en stutt var í kímnigáfu þína. Þú lagðir rækt þína við fjölskylduna, því hún var þér allt. Það var nú kannski ekkert skrítið ef maður leiðir hugann að æsku þinni þar sem berklarnir tóku tvö systkini þín og á svipuðum tíma misstuð þið föður ykkar. Tvö systkini þín ólust upp annarstaðar þar sem Sólveig móðir þín gat ekki brauðfætt ykkur öll. Mér finnst það vel við hæfi að þú sért borinn til grafar í dag, afmæl- isdag Sólveigar ömmu. Konu sem ég hitti aldrei en þekki vegna þess hversu vel minning hennar lifði hjá ykkur ömmu. Elsku afi, svona mun minning þín lifa í hjörtum okkar. Kveð ég þig með vísu eftir föður þinn, Halldór Runólfsson: Sofðu vært hinn síðasta blund. Sæt er lausn frá heimsins þrautum. Guðs á helgum himnabrautum. Ástvinir fá endurfund. Þín Sólveig Helga Ákadóttir. Njáll Halldórsson Ég þekkti Hauk tengdaföður minn ekki í mörg ár en hann var þannig mað- ur að ég var ekki lengi að tengjast honum. Ég fann strax hve honum þótti vænt um fjölskylduna sína og það var gagn- kvæmt. Einnig var það auðfundið að hún var honum allt. Haukur hafði gaman af því að spjalla og fræða okkur hin um allt milli himins og jarðar enda hafði hann ótrúlega þekkingu á öllu mögulegu og ómögulegu. Hann hafði mikinn áhuga á heimsmálun- um og sterkar skoðanir á flestu því sem gerðist úti í heimi. Mér fannst hann alltaf svo réttsýnn og oft höfð- um við sömu skoðanir á málunum. Haukur hafði líkt og ég gaman af tungumálum og átti auðvelt með að tala mörg þeirra. Hann var vel að sér í fjármálum og hafði iðulega rétt fyrir sér þegar rætt var um þróun hlutabréfa og gjaldmiðla. Þegar Haukur var annars vegar var alltaf stutt í húmorinn og hann gerði að gamni sínu alveg fram á síðasta dag. Mér þótti vænt um að fá tækifæri til þess að vera hjá hon- um síðustu dagana, það hefur ef- laust gefið mér meira en honum því það var einstakt að fylgjast með honum taka hlutskipti sínu með jafnmiklu æðruleysi og hann gerði. Elsku Haukur, það eru forrétt- indi að hafa fengið að kynnast þér. Ég kveð þig og þakka þér fyrir allt. Bernharð. Haukur Einarsson ✝ Haukur Einars-son fæddist á Akureyri 17. mars 1937. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 30. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogskirkju 11. júní. Elsku afi okkar. Ekki vegna þess að við höfum svo mikla reynslu af því eða vit- um hvernig er að sinna því hlutverki að vera afi, heldur ein- göngu vegna þess hve innilegur, kær og góður þú varst við okkur, segjum við að þín mun ætíð verða sárt saknað í hjörtum okkar. Þú varst, ert og verður ætíð sá sem þroskaðir huga okkar, gladdir hjörtu okkar og færðir okkur slíkt öryggi að jafn- vel heil heimsálfa myndi engu kvíða. En nú ertu ekki lengur hér, ekki hér hjá okkur í þinni holdlegu mynd en hin andlega mun aldrei gleymast. Við munum halda áfram að minnast þín, meðal annars í brosinu hennar ömmu, fuglunum, kyrrðinni, náttúrunni, sex-fréttun- um, smjörsteiktu kótilettunum og öllu því sem þú unnir svo heitt. Að baki þér liggur mikil og góð arfleið, arfleið sem við hyggjumst bera áfram með því að segja sögur af því þegar afi hjálpaði til við að vinna alls kyns leiki á Bylgjunni og þegar afi breytti okkur úr strákum í karlmenn þegar hann kenndi okk- ur allt um rafmagn, s.s. hvernig ætti að skipta um innstungur og tengja ljós. Umfram allt sögur af því hversu hjartahlýr þú varst, gáfaður og mikil fyrirmynd. Ekkert kemur í þinn stað, elsku afi, en mikil lifandi ósköp metum við allt sem þú hefur gert fyrir okkur og við komum til með að líta upp til þín þegar við tökumst á við það verkefni sem þér fórst svo vel úr hendi, að vera góður afi. Þín barnabörn, Heimir Orri Magnússon og Steinþór Helgi Arnsteinsson. Elsku afi minn, þú varst eini afinn sem ég kynntist, og nú ertu farinn frá mér eftir erfið veikindi sem tóku verulega á alla. Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir allar þær yndislegar stundir sem rifjast upp frá því ég var lítil stelpa og kom í heimsókn til þín og ömmu Eddu í Eikarlundinn á Akureyri, þær minningar eru ómetanlegar, elsku afi. Ég gleymi aldrei til- hlökkuninni sem kom þegar ég vissi að ég væri á leiðinni norður í heimsókn til ykkar. Það brást ekki svo ég muni að það væri tilbúinn kvöldmatur um leið og við komum og þegar ég var orðin svo södd að ég bara einfaldlega gat ekki meira, þá sagðir þú alltaf: ,,Þetta er allt í lagi, ég dreg þig að landi“ og svo dróstu mig að landi eins og þú kallaðir það. Öllum ferðunum okk- ar í Sumó saman með fjölskyld- unni er líka erfitt að gleyma. Alltaf þegar okkur krakkana langaði í sund á Stórutjarnir fórst þú með okkur, þar kenndirðu okkur að stinga okkur í laugina, að synda og oft fórum við í keppni um það hver gæti kafað lengst yfir laugina og alltaf fannst mér það jafn merki- legt að þú gast farið yfir alla laug- ina án þess að koma einu sinni upp úr og jafnvel snúið við. Sú mynd af þér inni í bílskúr í Eikarlundinum að bardúsa við einhverjar smíðar vill heldur ekki hverfa frá mér og hvað þá minningin um þig og Helgi Hallsson ✝ Helgi Hallssonfæddist á Siglu- firði 16. febrúar 1931. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Seli á Akureyri 19. maí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju 31. maí. Lappa, hundinn sem þú elskaðir svo mik- ið. Þegar þú lést hann setja framlapp- irnar upp á sögina og ryksugaðir svo yfir hann allan eins og honum þótti svo gott með stóru ryksug- unni þinni. Svo má ekki gleyma henni Skvísu okkar sem þér þótti svo undur- vænt um, það að þú skyldir koma til okk- ar á hverjum morgni, á meðan heilsan leyfði, til þess eins að fara með hana í göngutúr segir nú sitt um hversu mikill dýravinur þú varst, elsku afi. Það var ekki fyrr en þú kvaddir okkur um daginn sem allar þessar minn- ingar komu og mér finnst sárt að segja að ég átti erfitt með að muna eftir þér sem Helga afa, smiðnum og sjómanninum sem alltaf var svo gott að sitja í fanginu á í afa- stólnum, eftir að þú varst langt leiddur af sjúkdómnum sem lék þig svo grátt. Ég held í raun að þú sem persóna hafir farið fyrr en ég gerði mér í raun grein fyrir. Ég gleymi ekki þeim degi sem þú og amma voruð í kaffi hjá okkur. Þetta var ósköp venjulegur dagur fyrir rétt rúmu ári og ég heilsaði upp á þig og skrapp síðan út í smástund og þegar ég kom til baka mundirðu ekki eftir mér. En elsku besti afi minn, ég veit það að þegar ég kem til þín seinna meir áttu eftir að muna eftir mér og okkur öllum og lofa ég þér því að við förum saman í góðan göngutúr og tökum Lappa og Skvísu með okkur. Takk fyrir allt, elsku afi minn, og takk fyrir að hafa beðið með það að kveðja þar til ég gekk inn um dyrnar, því innst inni vil ég trúa því að það hafi verið ætlun þín. Þitt barnabarn Sunna Lind Höskuldsdóttir. 30-50% afsláttur af granít legsteinum ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR HERMANNSDÓTTIR, Skarðshlíð 23 d, Akureyri, áður á Húsavík, sem lést 12. júní, verður jarðsett frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 20. júní kl. 14:00. Arnviður Ævarr Björnsson, Eydís Arnviðardóttir, Snorri Pétursson, Björn Jósef Arnviðarson, Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir, Hermann Gunnar Arnviðarson, Unnur Eggertsdóttir, Börkur Arnviðarson, Inga Dóra Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN PÉTURSSON húsasmíðameistari og formaður Félags nýrnasjúkra, Dverghömrum 18, Reykjavík, andaðist þann 30. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 19. júní kl. 11:00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Félag nýrnasjúkra, s. 568 1865 (Salóme). Auður Thorarensen, Sólrún Lísa Kristjánsdóttir, Olaf Möller, Garðar Kristjánsson, Kristín Snore, Magnús Arnar Sveinbjörnsson, Jófríður Ósk Hilmarsdóttir, Axel Örn Kristjánsson, Kristján Örn Kristjánsson, Steinunn Ýr Hjaltadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.