Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 38
38 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000 Fantastic Four 2 kl. 6 - 8 - 10 Hostel 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 18 ára Fantastic Four 2 kl. 6 - 8.20 - 10.30 The Hoax kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 12 ára 28 Weeks Later kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára Painted Veil kl. 5.30 Fracture kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára Fantastic Four 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 Fantastic Four 2 LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 Hostel 2 kl. 5.50 - 8 - 10:10 B.i. 18 ára The Last Mimzy kl. 3.40 Pirates of the Carribean 3 kl. 5 - 9 B.i. 10 ára Spider Man 3 kl. 5 - 8 B.i. 10 ára - Kauptu bíómiðann á netinu Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * ROBERT CARLYLE ER VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA eeee L.I.B. - Topp5.is eee V.I.J. - Blaðið eeee Empire eeee H.J. - MBL Frábær ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna NÝ LEYNDARMÁ - NÝR MÁTTUR - ENGAR REGLUR eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is FALIN ÁSÝND OG ALLS EKKI, UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM, FYRIR VIÐKVÆMA QUENTIN TARANTINO KYNNIR STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA eee D.V. eeee S.V. - MBL ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST R I C H A R D G E R E GABBIÐ eeee “Vel gerð...Gere er frábær!” - H.J., Mbl eeee - Blaðið tv - kvikmyndir.is eee LIB, Topp5.is Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST eee Ó.H.T - Rás 2 ÉG HELD alltaf að tónlist á borð við þessa sé hætt að vera vinsæl þangað til ég sé einhvern töffara keyra niður Laugaveginn á fjólubláum Twin Cam og man að það er bara ég sem er hætt að hlusta á hana. Margt gott gerðist í transi á tíunda áratugnum og á stefnan fullkomlega rétt á sér. Trans getur verið mjög gott þrátt fyrir að vægi þess sé ekki hið sama og áður. Áhrifa þess gætir þó enn víða á vin- sældalistum og ekki síst í klúbbum víðsvegar um heim. Það er mikið rangnefni að kalla þessa plötu Disco, tónlistin á ekkert skylt við bassahrynjanda diskósins. Trans er meira eins og ört rúllandi bolti, fullur af múgæsingu, blikkandi ljósum og taktföstum dansi. Diskó er frekar ró- legt á meðan trans er mjög hröð tón- listarstefna. Plata Hjartar er metn- aðargjörn og vönduð og mér finnst hann nota alla helstu þætti stefnunnar vel. Hraður taktur ásamt seyðandi og melódískri laglínu sem skýst upp á yf- irborðið reglulega, kúnstpásur án takts með vandaðri hljóðrigningu – allt er á sínum stað. Helsti galli plötunnar er einhæfni – fjölbreytni hefði gert plöt- una áheyrilegri til lengri tíma. Áhrifa úr tæknitónlist gætir í nokkr- um lögum en án þess þó að svíkja transinn. Þessi plata er fullkomin til þess að hreyfa sig við. Hvort sem það er dans, leikfimi eða skokk þá kallar tónlistin óhjákvæmilega á að hlustand- inn hrífist með og sletti vandlega úr klaufunum. Plata sem fær þig til að dansa TÓNLIST Hjörtur – Disco  Helga Þórey Jónsdóttir Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is HINN færeyski Jógvan Han- sen sló heldur betur í gegn þegar hann sigraði í X-factor söngvakeppninni sem fram fór á Stöð 2 í vetur. Í kjölfar sig- ursins var strax hafist handa við gerð fyrstu sólóplötu kapp- ans og kom hún í verslanir í síðustu viku undir nafninu Jógvan. „Ég er mjög ánægður með útkomuna, mér finnst lagavalið gott og platan heilsteypt,“ seg- ir Jógvan sem hljómar ljúfur líkt og platan hans. „Platan hljómar nákvæmlega eins og ég var búinn að hugsa hana, það er gott jafnvægi á milli nýrra laga og gamalla og hljómurinn er melódískur út í gegn. Ég vildi hafa plötuna rólega enda er ég sjálfur meira á mjúku hliðinni, þótt mér finnist líka gaman að taka stuðlög inni á milli.“ Frumsamið efni á næsta diski Eitt frumsamið lag eftir Jógvan er á plötunni og aðspurður segist hann ekki hafa viljað hafa fleiri lög eftir sig. „Þessi diskur er góð byrj- un en það er aldrei að vita nema næsti diskur verði bara með frum- sömdum lögum eftir mig.“ Reyndar má finna á Jógvan eitt lag, „Rooftop“, sem kom út á plötu sem Jógvan og hljómsveit hans gáfu út í Færeyjum fyrir um átta ár- um síðan og var það samið af gítarleikara bandsins. Jógvan tekur fyr- ir það að sú plata muni nokkurn tímann fást á Íslandi enda segir hann hana ekki vera tengda því sem hann er að gera í dag, þá hafi hann bara verið ungur strákur að leika sér í hljómsveit. Gefur hárið ekki upp á bátinn Aðspurður hvort hann stefni á frekari landvinninga en Ísland seg- ist hann ekki geta svarað því. „Það er auðveldara að segja en að gera enda til mikið af flottu listafólki. En ef eitthvað stendur mér til boða þá mun ég auðvitað athuga það, annað væri heimska.“ Jógvan er einn af eigendum hárgreiðslustofunnar Unique og starf- ar þar samhliða tónlistinni. „Ég stefni ekki á að gefa hárið upp á bátinn og starfa eingöngu við tónlist hér á landi. Ég á þetta fyrirtæki líka svo ég stekk ekki frá því. Ég sinni starfi mínu sem hárgreiðslumaður jafnmikið frá hjartanu og tónlistinni, það tvennt fer líka vel saman, hvort tveggja snýst um að skapa.“ Jógvan Hansen gefur út sína fyrstu sólóplötu Er meira á mjúku hliðinni Morgunblaðið/ÞÖK Heilsteyptur Jógvan er mjög sáttur við fyrstu sólóplötu sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.