Morgunblaðið - 18.06.2007, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 18.06.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 39 www.haskolabio.is Sími - 530 1919 Fantastic Four 2 kl. 6 - 8 - 10 Hostel 2 kl. 8 - 10 B.i. 18 ára The Invisible kl. 6 - 10.30 B.i. 14 ára 28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Lives of Others kl. 5.30 - 8 B.i. 14 ára Stærsta kvikmyndahús landsins Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 10 ára ROBERT CARLYLE ER VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA eeee L.I.B. - Topp5.is eee V.I.J. - Blaðið eeee Empire eeee H.J. - MBL Sýnd kl. 4 og 6eeeee S.V., MBL eeee K. H. H., FBL eeee KVIKMYNDIR.COM DAS LEBEN DER ANDERN / LÍF ANNARRA ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST kl. 4 Ísl. tal - 450 kr. 450 k r. OG ALLS EKKI, UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM, FYRIR VIÐKVÆMA STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 18 ára QUENTIN TARANTINO KYNNIR OG ALLS EKKI, UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM, FYRIR VIÐKVÆMA QUENTIN TARANTINO KYNNIR STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA eee D.V. eee D.V. Frábær ævintýra- mynd fyrir alla fjölskylduna -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 www.laugarasbio.is NÝ LEYNDARMÁ - NÝR MÁTTUR - ENGAR REGLUR eee Ó.H.T - Rás 2 HLJÓMSVEITIN Diagon hefur brugðið á það ráð að gefa út plötuna The Volumes of Miscon- ception á netinu. Hana má finna á slóðinni www.diagon-music.com og hvet ég áhugasama ein- dregið til að sækja hana. Tónlistin sem Diagon leikur er fjölbreytt og til- finningasamt rokk. Þeir eru ekki feimnir við að sýna að þeir eiga sér klassískar rætur eins og heyra má í pí- anóleiknum í laginu „Oceans“. Einnig notast þeir við fiðlur til þess að gefa lögunum aukna dýpt og heppnast það af- skaplega vel hjá þeim. Helsti galli plötunnar er sá að hugmyndaauðg- in er svo mikið að Diagonar eiga erfitt með að halda utan um það. Svo mikið er af mismunandi stefnum að það er á fárra færi að negla það niður í eina heild. Söngurinn hljómar líka ekki alveg nógu vel, söngvarinn mætti fara í nokkra tíma til þess að læra að stýra röddinni betur og upptök- urnar eru ekki nógu góðar. Það hefur líklega ekki verið auðvelt að vinna með svona marg- slungna tónlist því einhver losaragangur er yfir heildarsvip plötunnar. Stundum hljómar hún eins og hún sé tekin upp á tónleikum og þá meina ég ekki góðum tónleikum. Metnaðargirni meðlima Diagon á að öllum lík- indum eftir að fleyta þeim áfram og mér skilst að þeir lumi á meira efni. Strákarnir eru hörku spil- arar og hljóma furðu vel af þriggja manna hljóm- sveit. Vonandi tekst þeim betur upp næst. Slöpp útfærsla á góðum hugmyndum TÓNLIST Diagon – The Volumes of Misconception  Helga Þórey Jónsdóttir FRÆÐIMENNIRNIR Joe All- ard og Richard North fjalla í nýrri bók um Íslendingasög- urnar með Bjólfssögu í for- grunni. Í tilefni af útkomu bókarinnar var haldin kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardaginn. At- höfnin hófst á því að sendiherra Bretlands á Íslandi, Alp Meh- met, bauð gesti velkomna. Því næst flutti Hilmar Örn Hilm- arsson, tónskáld og allsherj- argoði, sýnishorn úr tónlist sinni við kvikmyndina Bjólfskviðu. Dr. Joe Allard flutti stutt ávarp, en síðast léku Jakob Frímann Magnússon og félagar fyrir gesti. Bók þeirra Joes Allards og Richards Norths nefnist Beo- wulf and Other Stories: A New Introduction to Old English, Old Icelandic and Anglo-Norman Literatures og hefur hlotið mik- ið lof. Íslendingasögurn- ar og Bjólfskviða Morgunblaðið/Golli Einbeittur Joe Allard segir frá hugmyndum sínum. Í GREININNI „Plötusnúðurinn Illugi snýr heim“ sem birtist í gær var röng slóð birt á heimasíðu Illuga á MySpace. Rétta slóðin er: www.myspace.com/djplaturn. LEIÐRÉTT Röng slóð JAKE (Cedric the Entertainer), vaknar upp við vondan draum á ókunnuglegu hótelherbergi. Hann veit ekki hvar hann er staddur, því síður fær hann botn í líkið sem liggur við hliðina á hon- um, eða tösku sem reynist full af peningum. Það versta er enn ótal- ið; hann hefur glatað minninu, man ekki einu sinni hvað hann heitir eða gerir. Framvindan bendir til þess að hann sé ann- aðhvort hreinsitæknir eða sér- sveitargarpur í leyndardómsfullu verkefni sem tengist tölvukubb. Minnisleysi er vel þekkt í bíó- myndum og getur boðið upp á góða skemmtun ef sæmilega er á haldið, líkt og nú síðast í Bourne- myndunum. Það sem dregur Code Name… niður, er ekki hug- myndin sjálf heldur Cedric sá sem fer með aðalhlutverkið og kennir sig við meðfædda grínhæfileika frekar en föðurinn. Furðulegt, þar sem maðurinn er liðónýtur skemmtikraftur, beinlínis leið- inlegur. Er ekki einum Martin Lawr- ence of mikið í Hollywood? Cedric er greinilega ekki þeirrar skoð- unar og reynir hvað hann getur að feta í fótspor sinnar vafasömu fyr- irmyndar. Kemst ekki með tærn- ar þar sem Lawrence hefur hæl- ana, þó skrefstuttur sé. Hetja eða hreinsitæknir? KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjóri: Les Mayfield. Aðalleik- arar: Cedric the Entertainer, Lucy Liu, Nicollette Sheridan. 90 mín. Bandaríkin 2007. Dulnefni: Ræstingamaður/Code Name: The Cleaner  Sæbjörn Valdimarsson Slæmur „Það sem dregur Code Name… niður er ekki hugmyndin sjálf heldur Cedric sá sem fer með aðalhlutverkið...,“ segir í dómnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.