Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 43
HLJÓMSVEITIN B.Sig hélt tón-
leika í Saltfélaginu á Grandagarði
á föstudaginn.
Það er handboltamaðurinn
Bjarki Sigurðsson sem fer fremst-
ur í flokki í B.Sig en ásamt honum
skipa sveitina bræðurnir Daði og
Börkur Hrafn Birgissynir, Ingi
Björn Ingason og Kristinn Snær
Agnarsson.
B.Sig gaf nýverið út plötuna Go-
od Morning Mr. Evening og hljóm-
aði blúsað rokkið af henni vel inn-
an um húsgögnin í Saltfélaginu
eins og sjá má af meðfylgjandi
myndum.
Þægilegt Óhætt er að segja að Saltfélagið sé huggulegur tónleikastaður enda naut fólk sín innan um húsgögnin.
Innlifun Bjarki lifði sig inn í flutninginn á lögum sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
Áheyrendur Stemningin var góð á tónleikum Bjarka og félaga í B.Sig.
B.Sig í
Saltfélaginu
Aðdáun Hrifningin skein af fólki.
ÞAÐ gleður eflaust marga að heyra
að miklar líkur eru á því að stelpna-
bandið Spice Girls komi saman að
nýju.
Mel C tilkynnti í útvarpsviðtali í
London að í fyrsta sinn væri sann-
leikskorn að finna í orðrómi um sam-
einingu hljómsveitarinnar. Hún
ítrekaði að stúlkurnar myndu ein-
ungis koma saman í stuttan tíma til
að senda aðdáendum lokakveðju.
Samkvæmt BBC hafa hinar
kryddpíurnar, Emma Bunton, Vic-
toria Beckham, Mel B og Geri Halli-
well samþykkt að endurvekja hljóm-
sveitina en að Mel C mun fram að
þessu hafa neitað að taka þátt í því.
Mel C sem í raun heitir Melanie
Chisholm sagði að hún dáðist mikið
að Take That sem hefði komið saman
á ný í fyrra og gengi vel. Hún sagðist
ekki vilja vera sú sem stæði í vegi fyr-
ir því að hlutirnir gætu gerst.
Samkvæmt BBC gengur sá orð-
rómur um endurfæðingu Spice Girls
að þær áætli að halda sex stóra tón-
leika víða um heim til að auglýsa safn-
plötu með bestu lögum sínum sem
koma mun út síðar á árinu.
Beðið er eftir því að Emma Bunton
fæði sitt fyrsta barn síðar í sumar.
Saman á ný